Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.01.2005, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 19.01.2005, Qupperneq 6
6 19. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR BORGARMÁL Borgarfulltrúar R-list- ans samþykktu í gær tillögu borg- arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að Innri endurskoðun Reykja- víkurborgar verði falið að gera út- tekt á kaupum borgarinnar á svokölluðum Stjörnubíósreit við Laugaveg 86 – 94. Ég fagna því að þessi tillaga hafi verið samþykkt,“ segir Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna. „Það kom mér ekki á óvart að hún skyldi vera samþykkt því á hvaða forsendum átti að hafna henni?“ Vilhjálmur segir að athugun borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins á kaupunum leiði í ljós að borgin hafi keypt lóðina á alltof dýru verði af Jóni Ólafssyni árið 2002. Borgin hafi greitt 140 millj- ónir fyrir lóðina og síðan hafi það kostað 17 milljónir að rífa hús á svæðinu. Kostnaður borgarinnar af kaupunum hafi verið um 39 þúsund krónur á fermetra á með- an hámarksmarkaðsverð lóða á þessum stað á þessum tíma hafi verið um 25 þúsund krónur á fer- metra. Kaup borgarinnar hafi því verið um 55 prósentum yfir hæsta markaðsverði. Vilhjálmur segist reikna með því að úttektinni verði lokið eftir fáeina mánuði. „Innri endurskoðun borgarinn- ar er tiltölulega ung stofnun og að minni hyggju verður þetta ákveð- inn prófsteinn á hennar störf.“ -th Forsvarsmenn alþjóðlegra verkalýðshreyfinga: Skoða aðstæður við Kárahnjúka KÁRAHNJÚKAR Ítalska verkalýðs- hreyfingin kemur til Egilsstaða í kvöld og fer að Kárahnjúkum á morgun og eyðir þar deginum. Forystumennirnir koma svo suður á föstudag. Ítölsku verkalýðsfélögin og Alþjóðabyggingasambandið hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna heimsóknarinnar þar sem bent er á að samkomulag við Impregilo hafi verið undirritað í Rómarborg í nóvember 2004. Heimsóknin til Impregilo á Kárahnjúka er liður í undirrit- uðu alþjóðlegu samkomulagi og á að færa til sanns vegar vilja Impregilo um að eiga gott sam- starf við verkalýðsfélögin sem feli í sér að allt sé á hreinu. Takmarkið er að gefa ítölsku verkalýðsfélögunum og alþjóða- byggingasambandinu tækifæri til að kynnast og ganga úr skugga um hvernig málum er háttað á Kárahnjúkum. - ghs Fela ekki lengur ólöglega vinnu Grunur leikur á að útlendingar starfi mjög víða ólöglega að byggingastörfum hér á landi. Samiðn segir, að það séu „smákallarnir“ sem standi í því að ráða slíkt vinnu- afl. Þeir séu í smáverkum og geti látið hluti hverfa eins og vinnulaun. ATVINNUMÁL Starfsmenn Samiðnar, sambands iðnfélaga, hafa verið að sjá mörg tilvik á undanförnum vik- um, þar sem grunur leikur á að um ólöglega atvinnustarfsemi útlend- inga sé að ræða. Finnbjörn A. Her- mannsson segir að sú breyting hafi orðið, að áður hafi þessir ólöglegu menn unnið í öllum skúmaskotum, en nú séu þeir farnir að vinna fyrir opnum tjöldum. „Við erum búnir að fara á ótal marga vinnustaði síðan í desem- ber,“ sagði hann. „Menn eru orðnir svo öruggir í þessu því það er aldrei hróflað við einu eða neinu. Nú eru þeir farnir að vinna á dag- vinnutíma inni í almennum bygg- ingum.“ Finnbjörn sagði að Samiðn hefði í desember hafið könnun á þessari starfsemi með ólöglegt erlent vinnuafl og stæði hún fram á vorið. Hlutur erlenda vinnuaflsins væri aðeins hluti af þeirri könnun, því hún næði til þess hverjir væru al- mennt að vinna störf iðnaðar- manna. Hörgull væri á þeim þessa dagana og þá færu aðrir í störfin. Finnbjörn sagði að könnunin væri bundin við suðvesturhornið. Hefði verið farið á allmarga vinnu- staði og málið verið kannað. Því yrði haldið áfram. Að þessari könn- un lokinni ættu að liggja fyrir stað- reyndir um hversu mikið væri af ólöglegu vinnuafli í byggingariðn- aði á höfuðborgarsvæðinu og ná- grenni. Ef marka mætti það sem talað væri á vinnustöðum væri mjög mikið um þetta. „Við höfum ekki áhyggjur af stærri fyrirtækjum í þessu tilliti,“ sagði Finnbjörn. „Þau eru með sitt bókhald í lagi og leika ekkert svona hluti. Ef menn koma ólöglega inn í landið þá eru þeir vitanlega í svartri atvinnustarfsemi. Þeir taka laun sem ekki eru gefin upp. Stærri aðilar sem ætla að vera áfram á markaðnum bjóða sjálfum sér ekki upp á slíkt. Það eru þessir smákallar sem eru í þessum undanskotum. Þeir eru í smáverkum þar sem þeir geta látið hluti hverfa eins og vinnulaun og annað þess háttar.“ Finnbjörn sagðist telja fulla ástæðu til að Alþýðusamband Ís- lands kæmi að þessu máli með Samiðn og athugaði fleiri greinar atvinnulífsins í þessu tilliti. Það hefði verið rætt við ASÍ, sem alls ekki hefði tekið illa í aðild að víð- tækari athugun. jss@frettabladid.is HRINGBRAUT Í REYKJAVÍK Framkvæmdir við Hringbraut eru á áætlun. Byrjað verður að steypa göngubrýr í vikunni. Verklok í október: Hringbraut á áætlun SAMGÖNGUR Ekið verður um hluta nýju Hringbrautarinnar í Reykja- vík í maí. Hafliði Richard Jóns- son, verkefnastjóri hjá Vegagerð- inni, segir verklok 15. október. Hafliði segir framkvæmdir á áætlun. Fyrirtækin Háfell og Eykt standi sameiginlega að verk- inu. Háfell sjái um jarðfram- kvæmdir og Eykt um uppsteypu á undirgöngum og göngubrúm. „Samningur við verktaka hljóðar upp á 1.200 milljónir,“ seg- ir Hafliði. Verkið geti farið um tíu prósent fram úr áætlunum. Það kosti í heild um 1.600 milljónir. - gag Spænskir vísindamenn: Leita beina Kólumbusar SPÁNN, AP Spænskir vísindamenn sem reyna að leysa ráðgátuna um hvar bein Kristófers Kólumbusar eru grafin hafa orðið sér úti um leyfi til að grafa upp líkamsleifar í Dóminíkanska lýðveldinu. Grun- ur leikur á um að bein Kólumbus- ar séu grafin þar en ekki á Spáni. Spænsk stjórnvöld segja bein Kólumbusar grafin í dómkirkju í Sevilla. Dóminíkönsk stjórnvöld segja réttu beinin hins vegar í minnisvarða um Kólumbus í Dóminíkanska lýðveldinu. Vísindamennirnir ætla að at- huga hvort finna megi DNA í beinunum í Dóminíkanska lýð- veldinu og bera það saman við af- komendur hans og bein bróður hans og sonar. ■ ■ EVRÓPA Eiga fyrrverandi ráðherrar að fá eftirlaun meðan þeir gegna enn opinberum störfum? SPURNING DAGSINS Í DAG: Ferðu til tannlæknis á hverju ári? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 95% 5% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN VIÐ KÁRAHNJÚKA Ríflega 40 erlendir verkamenn eru á leið til Íslands. Impregilo: 90 umsóknir KÁRAHNJÚKAR 90 umsóknir bárust á Íslandi og í gegnum evrópskan vinnumiðlunarvef við auglýsingu Impregilo í byrjun janúar. 30 umsækjendum hefur þegar verið boðin vinna og sex hafa þeg- ið hana og níu Íslendingar hafa verið beðnir um upplýsingar. Ríflega 40 erlendir verkamenn eru á leið til Íslands. Þeir eru einkum frá Kína en líka frá Pakistan, Rússlandi og einn frá Kólumbíu. - ghs FRAMKVÆMDIR VIÐ LAUGAVEG Verið er að byggja þriggja hæða bílastæða- hús neðanjarðar á Stjörnubíóreitnum á Laugavegi. Sjálfstæðismenn gagnrýna kaupin á Stjörnbíósreitnum: R-listinn samþykkir að gerð verði úttekt Flugfreyjur: Semja við Icelandair KJARAMÁL Kjaraviðræður Iceland Express og Flugfreyjufélags Ís- lands eru ekki hafnar. Samist hefur milli eigenda og flugfreyja Icelandair. Þóra Sen, skrifstofustjóri hjá Flugfreyjufélagi Íslands, segir við- ræður við Iceland Express hefjast fljótlega. Miklar annir hafi verið hjá félaginu og því hafi verið ákveðið að fresta viðræðum fram yfir áramót. Þóra segir nú fundað með Flug- félagi Íslands. Félagið eigi einnig eftir að semja við Íslandsflug. Mál- in séu í eðlilegum farvegi. - gag ÓLÖGLEGT VINNUAFL Útlendingar sem koma hingað til lands og vinna „svart“ við byggingavinnu eru ekki hjá stóru fyrirtækjunum, heldur hjá þeim litlu sem taka að sér smærri verk, að sögn Samiðnar. Myndin er alls ótengd efni fréttarinnar. Þjóðverjar: Flytja mest allra út ÞÝSKALAND, AP Þjóðverjar eru mesta útflutningsríki heims annað árið í röð samkvæmt tölum þýsku hagstofunnar. Þar kemur fram að Þjóðverjar hafi flutt út vörur fyrir andvirði 59.600 milljarða króna. Bandaríkjamenn komu næstir Þjóðverjum, þeir fluttu út vörur og þjónustu að andvirði 46.000 milljarða fyrstu ellefu mánuði ársins og var talið ólíklegt að þeir hefðu flutt út það mikið í desem- ber að það hefði fleytt þeim í efsta sæti upp fyrir Þjóðverja. Styrking evrunnar virðist ekki hafa haft áhrif á útflutning Þjóð- verja sem jókst um tíu prósent á sama tíma og innflutningur jókst um 7,7 prósent. ■ STÖÐVUÐU ÚTSENDINGU Franska útvarpsstöðin France Inter hætti útsendingum í um hálftíma í gær- morgun eftir að mótmælendur ruddu sér leið inn í upptökuklefa stöðvarinnar. Starfsfólk úr af- þreyingariðnaðinum tók völdin á útvarpsstöðinni til að mæta for- ystumönnum atvinnurekenda og ákvað stjórnandi stöðvarinnar að hætta útsendingu. PÁFI HITTI GYÐINGA Jóhannes Páll páfi annar tók á móti 160 leið- togum gyðinga í gær. Forystu- menn gyðinga héldu á fund páfa til að þakka honum fyrir viðleitni hans til að bæta samskipti gyð- inga og kaþólikka. ERLENDIR STARFSMENN Carlos Santos frá Portúgal, Zhu Xiao Jin og Zu Ren Jin frá Kína eru starfsmenn Impregilo. Þarna eru þeir að ráða ráðum sínum en vinna þeirra þennan daginn fólst í því að setja upp turn vegna malarflokkunar. Fólk af 26 þjóðernum starfar hjá Impregilo. Borgarstjóri: Rakalausar dylgjur BORGARMÁL „Við erum margoft búin að fara yfir þetta mál og svara spurningum minnihlutans og það er ekkert verið að fela við þessi kaup og ekkert óeðlilegt við þau og í því ljósi fannst okkur eðlilegt að Innri endurskoðun geri þessa úttekt til að ljúka málinu,“ segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri um sam- þykkt R-listans á tillögum Sjálf- stæðisflokksins í borginni. Steinunn segir að það sé ekki síst mikilvægt að fá endanlega skorið úr þessu máli í ljósi þess menn hafið haldið uppi „rakalausum dylgjum um að málið hafa markast af því að tiltekinn maður átti lóðina“. - bs

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.