Fréttablaðið - 19.01.2005, Síða 8

Fréttablaðið - 19.01.2005, Síða 8
1Hvað tekur stærsta farþegaflugvélheims marga farþega? 2Hvaða tákn hefur Evrópusambandiðtil umræðu að banna? 3Hvaða stórmót í tennis hófst í fyrra-dag? SVÖRIN ERU Á BLS. 30 VEISTU SVARIÐ? 8 19. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR Formaður Matsveinafélagsins mótmælir auglýsingaskilti: Ég er ekki getinn af djöflinum VERSLUN Skúli Einarsson, nýkjör- inn formaður Matsveinafélags Íslands, hefur mótmælt harðlega auglýsingaskilti sem hangið hefur um hríð í versluninni 10 – 11 í Grímsbæ. Á því stendur: „Guð gaf okkur lambakjötið, en djöfullinn gaf okkur kokkana.“ „Ég viðurkenni ekki að ég sé getinn af djöflinum, né heldur að aðrir kokkar séu það,“ sagði Skúli. Hann kvaðst hafa hringt í viðkomandi verslun til að kvarta undan þessum texta á skiltinu, enda væri hann fyrir neðan allar hellur. „Áður en ég lét til skarar skríða hafði fólk hringt í mig vegna þess arna, fyrir okkar hönd,“ sagði Skúli. „Svo ég hringdi í verslunina en stúlkan sem ég ræddi við brúkaði bara kjaft. Ég íhuga nú að leita álits lögfræðinga á þessu. „Skúli er nýkjörinn formaður í félaginu, eins og áður sagði, 78 ára að aldri. Hann hefur gegnt starfi varaformanns til fjölda ára. „Það verður lögð mikil áhersla á að fjölga félagsmönn- um sem eiga að vísu að vera hér, en eru hist og her,“ sagði Skúli. „Það er mikið andvaraleysi af mönnum að vera ekki í sínu félagi og efla það.“ - jss Neytendasamtökin styrkja prófmál gegn olíufélögum Einstaklingur sem höfðar skaðabótamál gegn olíufélögunum vegna verðsamráðs mun njóta fjárhagslegs stuðnings Neytendasamtakanna. Lögmaður segir að kröfugerð verði send á næstunni en olíufélögin geti leyst málið utan dómstóla. VERÐSAMRÁÐ Stjórn Neytendasam- takanna hefur ákveðið að sam- tökin styðji fjárhagslega við bakið á skaðabótamáli einstakl- ings gegn olíufélögunum vegna verðsamráðs þeirra. Jóhannes Gunnarsson, formað- ur samtakanna, segir að þau geti ekki sjálf farið í mál fyrir hönd neytenda. Þess vegna hafi þessi leið verið valin og það hafi verið óumdeilt í stjórninni. Hann segir að nú séu samtökin að meta hugsanlegt tjón almennings af verðsamráðinu. Hann hvetur fólk sem á eldsneytisnótur frá árinu 1995 til 2002 til að hafa samband við Neytendasamtökin, bæði til þess að hjálpa við að meta tjónið og vegna hugsanlegra málaferla. Enn er ekki búið að ákveða fyr- ir hönd hvaða einstaklings málið verði höfðað. „Það er verið að fara yfir þau gögn sem komin eru og ákvörðun um það verður tekin á næstunni.“ Jóhannes segir erfitt að giska á hvað málaferlin muni kosta Neytendasamtökin. „Málið er hins vegar það alvarlegt að við förum í þetta óhikað. Olíufélögin fóru þannig með neytendur að það er ekki hægt að standa hjá að- gerðalaus. Það er búið að hafa af þeim mikla fjármuni. Ég tala nú ekki um ef við tökum óbeint tjón vegna hækkunar neysluvísitölu sem hefur leitt til hækkunar á verðtryggðum skuldum heimil- anna. Það tjón verður aldrei sótt í sjóði félaganna þannig að neyt- endur eiga aðeins möguleika á því að ná hluta af því tjóni til baka sem þeir hafa orðið fyrir.“ Eggert B. Ólafsson lögmaður mun sjá um málflutning í málinu fyrir hönd neytenda. Hann segir að nú sé unnið að því að forma kröfugerð og málið verði þingfest á næstunni. „Það verður gert á næstu vikum. Við byrjum á því að senda olíufélögunum kröfubréf,“ segir Eggert. „Olíufélögin hafa því tækifæri til að greiða tjónið án þess að það fari fyrir dóm- stóla.“ Nú þegar hafa stjórn Landsambands íslenskra útvegsmanna og forsvarsmenn Alcan óskað eftir skaðabótum frá olíufélögunum vegna samráðs. Auk þess liggur fyrir álit lögfræðinga Flugfélags Íslands vegna verðsamráðsins en ákvörðun um málshöfðun hefur ekki verið tekin. Niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála í máli olíufélaganna er að vænta um næstu mánaðamót. ghg@frettabladid.is MOGENS LYKKETOFT Formaður Jafnaðarflokksins í Danmörku hóf kosningabaráttuna á sunnudag með því að lofa að skapa 50.000 ný störf. Danmörk: Atvinna og velferð POLITIKEN, DANMÖRK Danskir jafnaðarmenn hófu kosningabar- áttu sína á sunnudag með því að lofa að skapa 50.000 ný störf á næsta kjörtímabili, fái þeir til þess umboð, og ætla að auka fjár- veitingar til atvinnusköpunar um rúma 19 milljarða. Þetta er meðal þess sem kom fram þegar Mogens Lykketoft, formaður flokksins kynnti stefnu- skrána „Made in Denmark“. Hann gagnrýndi núverandi stjórn harð- lega fyrir að 40.000 störf á almennum markaði hafa tapast síðan skipt var um ríkisstjórn í nóvember 2001. Þeir málaflokkar sem flokkurinn leggur áherslu á eru menntamál, aukin atvinna og velferð fyrir alla. ■ – hefur þú séð DV í dag? IDOL-ÞJÓFUR Kallaður fyrir dómara vegna innbrots í sjúkrahús JÓHANNES GUNNARSSON Formaður Neytendasamtakanna segir að samtökin geti ekki sjálf höfðað mál gegn olíufé- lögunum. Þess vegna hafi verið ákveðið að styðja einstakling fjárhagslega í prófmáli. MÓTMÆLIR Skúli Einarsson nýkjörinn formaður Matsveinafélags Íslands við skiltið góða, þar sem segir að Guð hafi gefið fólki lambakjötið en djöfullinn kokkana. Skúli mótmælir harðlega. Sektir olíufélaganna: Hluti renni til eftirlits VERÐSAMRÁÐ Ef áfrýjunarnefnd samkeppnismála kemst að þeirri niðurstöðu að olíufélög- in eigi að greiða sektir vegna samráðs munu fjármunirnir renna nánast samstundis í rík- issjóð. Í niðurstöðu samkeppn- isráðs, sem olíufélögin hafa áfrýjað til á f r ý j u n a r - nefndarinnar, kom fram að olíu-félögin ættu að greiða tæpa þrjá millj- arða í sektir. Páll Magn- ússon, að- stoðarmaður iðnaðar- og v i ð s k i p t a - m á l a r á ð - herra segir ekkert ákveð- ið um það hvort féð verði notað til sérstakra verkefna. Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Sam- fylkingar, segir að flokkurinn hafi sett fram hugmyndir um að eitthvað af fjárhæðinni renni til reksturs Neytenda- samtakanna og til Samkeppnis- stofnunar. – ghg LÚÐVÍK BERGVINSSON Segir Samfylking- una vilja styrkja eft- irlitsstofnanir með hluta af sektar- greiðslum olíufélag- anna. Rannsóknir háskólamanna í umdeildum málum: Skapar tortryggni í garð háskólans VERÐSAMRÁÐ Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands, segir að það kunni að orka tvímælis að starfsmenn skólans taki beinan þátt í rannsóknum á umdeildum þjóðfélagsmálum. Þetta segir hann aðspurður um skýrslu Tryggva Þórs Herbertssonar, forstöðu- manns Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, og Jóns Þórs Sturlusonar, sérfræðings á stofnuninni, sem þeir gerðu í eigin nafni fyrir olíufélögin. Skýrslan var lögð fram til varnar olíufélögunum í haust vegna verðsamráðs þeirra. Við málflutning fyrir áfrýj- unarnefnd samkeppnismála í síðustu viku deildu lögmenn Samkeppnisstofnunar hart á skýrsluna. Tvímenningarnir fullyrtu í skýrslunni að mat Samkeppnisstofnunar á hagn- aði olíufélaganna af samráði væri órökstutt og líkur væru á að hagnaðurinn ætti sér eðli- legar skýringar. Páll segir að þetta fyrir- komulag verði trúlega skoðað. Hins vegar sé ljóst að mönn- um sé frjálst að taka að sér verkefni utan við starf þeirra hjá háskólanum. „Ég hef fulla trú á því að fræðimenn hér vinni af heilindum og heiðar- leika en þegar menn vinna álit sem er keypt af aðilum sem eiga ríkra hagsmuna að gæta þá getur það vakið tortryggni. Það er óheppilegt fyrir há- skólann.“ – ghg PÁLL SKÚLASON Rektor Háskóla Íslands segir að þegar fræðimenn innan háskólans vinni álit sem er keypt af aðilum sem eiga ríkra hagsmuna að gæta í umdeildum málum þá geti það vakið tortryggni í garð skólans.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.