Fréttablaðið - 19.01.2005, Blaðsíða 12
19. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
Guðni stendur
við fyrri orð
Guðni Ágústsson segir að yfirlýsing forsætisráðherra staðfesti atburðarásina
sem lá að baki ákvörðuninni um stuðning Íslendinga við innrásina í Írak.
Íraksmálið hafi verið margrætt. Hins vegar var ákvörðunin sjálf ekki rædd.
ÍRAKSMÁLIÐ „Þessi yfirlýsing stað-
festir með skýrum hætti ákvörðun
og atburðarás þessa máls. Þetta er
sannleikur málsins og finnst mér
gott að hann er kominn mjög skýrt
fram þótt þetta hafi í rauninni oft
verið sagt bæði af forsætisráð-
herra og utanríkisráðherra,“ segir
Guðni Ágústsson, landbúnaðarráð-
herra.
„Það er alveg skýrt í mínum
huga, og ég hef aldrei haldið öðru
fram, að ákvörðunin um að styðja
með pólitískri yfirlýsingu þessar
hernaðaraðgerðir Breta, Banda-
ríkjamanna og fleiri lýðræðisríkja,
hún er tekin af þeim sem það ber
að gera. Enda segir að utanríkis-
ráðherra skuli í samráði við for-
sætisráðherra taka slíkar pólitísk-
ar ákvarðanir,“ segir hann.
„Ég get staðfest það að þetta
Íraksmál hefur á síðustu árum ver-
ið margrætt í ríkisstjórn, utanrík-
ismálanefnd, á vegum Alþingis og í
flokkunum, á fundum flokkanna,
fyrir og eftir þessa miklu ákvörð-
un.“
- Ertu að bakka með það sem þú
hefur áður sagt í fjölmiðlum, að
ákvörðunin hafi aldrei verið rædd?
„Nei, mér finnst það ekki.“
- Manstu eftir ríkisstjórnar-
fundinum 18. mars?
„Já ég man eftir honum.“
- Og var þetta rætt þar?
„Það var fjallað um það að ef til
þessa kæmi, að fara yrði með
vopnavaldi inn í Írak til að taka
Saddam Hussein úr umferð og
snúa þróuninni þar við því hann
ógnaði heimsfriðnum, myndum við
styðja það pólitískt eins og við
gerðum í Júgóslavíu og víðar. Eins
og fram kemur í yfirlýsingu for-
sætisráðherra sneri það að loft-
helginni, að Keflavíkurflugvelli og
að því að við vorum sem þjóð tilbú-
in að taka þátt í uppbyggingu að
þessu stríði loknu. Ég vil auðvitað
hafa það á hreinu að orðtakið sem
ég notaði í viðtalinu á Skjá einum:
„Allt orkar tvímælis þá gert er,“
má nota í öllum svona stórum mál-
um. Auðvitað brjóta menn heilann
um það að þetta eru aldrei nein ein-
föld eða auðveld mál.“
-En ákvörðunin sjálf var ekki
rædd?
„Ákvörðunin var ekki rædd í
sjálfu sér. Staða málsins var auð-
vitað rædd oft og mörgum sinnum
og áreiðanlega þennan dag líka þótt
engin bókun sé til um það. Síðar
þann dag tóku forsætisráðherra og
utanríkisráðherra þessa ákvörðun
eins og fram kemur í yfirlýsing-
unni. Það liggur jafnframt fyrir í
utanríkismálanefnd að þar var til-
laga Vinstri grænna felld af því að
menn búast við því að það verði að
fara með vopnum að Saddam.“
- Sú tillaga gekk heldur lengra
en að styðja ekki innrásina, hún
beinlínis fordæmir hana og lýsir
andstöðu við hana. Jónína Bjart-
marz, sem situr í utanríkismála-
nefnd, hefur skýrt frá því opinber-
lega að ákvörðunin sjálf hafi aldrei
verið rædd í nefndinni og að nefnd-
in hafi á engan hátt komið að þess-
ari ákvörðun. Hvað segirðu um
það?
„Ákvörðunin sjálf... menn eru
náttúrlega búnir að margskýra
hver staða málsins er og eins og ég
hef sagt þá ber þeim að taka þessa
ákvörðun. Ég lýsti því yfir á þeim
tíma, í mars 2003 í Fréttablaðinu,
að ég styddi þessa pólitísku
ákvörðun forystumanna ríkis-
stjórnarinnar. Ég er ekkert að hopa
frá því. Hitt mega menn svo hafa í
huga að þessi 30 þjóða listi er auð-
vitað tilbúningur eftir á sem var að
sjálfsögðu til í Washington. Menn
voru ekkert að setja sig á þennan
lista, heldur að lýsa yfir pólitískum
stuðningi eins og í Júgóslavíu og
víðar.“
- Getur þá verið að menn hafi
ekki gert sér grein fyrir afleiðing-
um ákvörðunarinnar þegar hún var
tekin?
„Ég tel að menn hafi gert sér
grein fyrir því að verið var að
sækja manninn sem var að beita
efnavopnum. Bandaríkjamenn
þekktu hann betur en aðrir menn,
höfðu reyndar fóstrað hann hálf-
partinn á tímabili og vissu sem var
að hann var stórhættulegur. Hann
hafði drepið milljón manns í sínu
landi, þar á meðal konur og börn,
þannig að Bandaríkjamenn og
Bretar vissu það auðvitað upp á
hár að í svona átökum verður eitt-
hvert mannfall. Auðvitað bera allir
harm í huga þegar til svona orrustu
er lagt.“
sda@frettabladid.is
Fimmtíu ár síðan tveir togarar Norðfirðinga fórust:
Minnisvarði um sjóslys
MINNING Fyrir um fimmtíu árum
fórust tveir togarar Norðfirðinga,
Egill rauði og Goðanes, með
minna en 2 ára millibili. Í gær
samþykkti bæjarráð Fjarða-
byggðar að reisa minnisvarða
vegna sjóslysanna.
Minnisvarðinn verði jafnframt
til marks um fádæma þrekraun og
kjark björgunarmanna sem stóðu
að björguninni og virðingu sem
íbúar sveitarfélagsins sýna þeim
sjómönnum sem farist hafa á hafi
úti og við sjávarsíðuna.
Togarinn Egill rauði fórst und-
ir Grænuhlíð í Ísafjarðardjúpi
hinn 26. janúar 1955 og með hon-
um 5 menn og togarinn Goðanes
við Flesjar í Skálafirði í Færeyj-
um tæpum tveimur árum síðar og
með honum einn maður.
Minnisvarðinn verður ekki síð-
ur til marks um þá virðingu sem
íbúar sveitarfélagsins sýna þeim
sjómönnum sem farist hafa í og
við sjó fyrr og síðar. Stefnt verði
að því að afhjúpa minnisvarðann á
sjómannadag árið 2006. ■
GUÐNI ÁGÚSTSSON LANDBÚNAÐAR-
RÁÐHERRA
Segist ekki vera að bakka með það að
ákvörðunin um stuðning við innrásina í
Írak hafi ekki verið rædd. Hann segir að
hins vegar hafi málefni Íraks verið
margrætt.
Guðni Ágústsson:
Ákvörðunin rædd eftir á
„Þessir leiðtogar ríkisstjórnarinnar, Halldór Ás-
grímsson og Davíð Oddsson, þeir tóku þessa
ákvörðun. [...] um að vera á þessum lista.“
Guðmundur Steingrímsson: „Og það er þá rétt
sem Kristinn [H. Gunnarsson] segir, að hún var
ekki rædd fyrirfram í þingflokknum?“ Guðni
Ágústsson: „Þeir tóku það, það er alveg viður-
kennt, þeir tóku þessa ákvörðun. Auðvitað hefur
hún síðan oft verið rædd í ríkisstjórn og í utan-
ríkismálanefnd og þinginu.“ Guðmundur: Já síð-
an, en hún var ekki rædd fyrir í utanríkismála-
nefnd og ekki fyrir í þingflokknum?“ Guðni
Ágústsson: „Auðvitað var oft búið að ræða um
Íraksmál en þessa ákvörðun tóku þeir og af
hverju þeir gerðu það með þessum hætti kann ég
ekki að segja frá. Þeir verða auðvitað bara að
verja sig í því.“ ■
Kristinn H. Gunnarsson:
Málið ekki rætt á
þingflokksfundi
„Guðni segir að Íraksmálið hafi verið margrætt í
þingflokknum, það kannast ég ekki við,“ segir Krist-
inn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokks-
ins. Hann vísar í ummæli Magnúsar Stefánssonar,
þingmanns Framsóknarflokksins, sem situr í utan-
ríkismálanefnd, sem birtust á forsíðu Fréttablaðsins
24. mars 2003. Þá sagði Magnús: „Við höfum ekki
fjallað um þetta á þingflokksfundi, þannig að það
liggur ekki fyrir nein umfjöllun um málið.“
Kristinn H. sem var þingflokksformaður á
þessum tíma segist vera búinn að láta fara yfir þing-
flokksfundarbækur. „Ég stend við það að Íraksmálið
var ekki rætt fyrir ákvörðun, hvorki almennt, né
hvort við ættum að styðja innrásina í Írak, og hefur
ekki verið rætt síðan,“ segir Kristinn. ■
!""
#
$
%"
&'
""
(" #
(
)"*+
("
,-
"%#./0
"
*+$
.
1
2
%
3-+
$
4
$5"
(" $
6
("0 $
6
7
"
""
8
2,5(59: ;<( 8&/= %"
4 (
*+. "
' *$
(#
>">
%! %!./0+
?-
2
##
%+"
@ 4
8"
A" %0'
$
4 !%<
!""
A" %
-
4 !%<
!""
(#
/ $
@4 %!""
(#
// $
@4
!
B%""
A"
@4 !%<
!""
9"
%'
" $
4 &'
""
9
#
4
0+
8#
""
9
"
4
C(1""
$
8
$
C>
0+
>
&
A#% ! #%+ 4
0+
8#
""
.
4#1" #%+ 4
C(1""
!
&
('0$!"+$
// @4@ %+
# "
*
>2D
"7
+
'$ @ %+
# (1A
7#
/:7-"-E
9'
%*'
# &
"%#""
9'
%
- @4@
# 8
"!
""
4#
$#
@4
*
""
F#
$
4 4 GEE
%"-!
#
$
4 4 6
0+
6
$""
#
%+"
4 4 (
)"HE-!""
F#
(
)"2
0
""
F#
%+"
F <
-
I
"
4
0+
8#
""
#
"
%+"
F
C(1""
F#
9'
%+"
F 8
"!
""
F#
9 "%
F#
4 4 *
'-
6
""
F#
%+"
4 4 6
0+
6
$""
.#
"
#
$
4 4 *
'-
6
""
J$"C
- '+
>'"'+
#
%"
4 4 8
"!,'""
NESKAUPSTAÐUR
Gera á minnisvarða vegna hörmulegra sjóslysa.