Fréttablaðið - 19.01.2005, Page 14

Fréttablaðið - 19.01.2005, Page 14
14 19. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR Innflytjendum vefst tunga um tönn Ný könnun á viðhorfum og aðstæðum innflytjenda á Vestfjörðum og Austur- landi sýnir að fjölmargir eiga í mesta basli með ís- lenskuna. Af því leiðir að margir skilja ekki ráðning- arsamninga sem þeir þó hafa undirritað. Könnunin sýnir líka að margir inn- flytjendur eiga börn í upp- runalandinu, margir búa í eigin húsnæði og atvinnu- leysi er nánast óþekkt. „Það þarf greinilega að setja miklu meiri kraft í íslensku- kennsluna og taka meira mið af þörfum einstaklinganna,“ segir Elsa Arnardóttir, framkvæmda- stjóri Fjölmenningarseturs, en könnunin var unnin fyrir setrið. Hún vill þó ekki taka undir að ís- lenskukennsla innflytjenda fái hreina og klára falleinkunn en nauðsynlegt sé að bjóða upp á fleiri valkosti í kennslunni. Fræðslumið- stöðvarnar á landsbyggðinni hafa umsjón með íslensku- kennslu inn- flytjenda en all- ur gangur er á framkvæmdinni. Víða er boðið upp á námskeið að vinnudegi loknum en þá eru margir of þreyttir til að setjast á skólabekk eða hafa hreinlega öðrum hnöpp- um að hneppa, eins og til dæmis að ala upp börnin sín. Svo þarf ekki annað en að togari leggist að með fullfermi til að enginn mæti. Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar á fundi í gær en hann sátu fulltrúar nokkurra stofnana sem koma að málefnum innflytjenda. Almennt setti það ugg að fundarmönnum hve marg- ir innflytjendur, sem margir hafa búið hér í nokkur ár, eiga erfitt með að skilja íslensku. Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmda- stjóri Alþýðusambandsins, sagði samninga sem fólk ekki skilur vera málamyndasamninga og bætti við að tungumálið væri jú lykill að samfélaginu. Undir það tók Ingibjörg Hafstað, sem um árabil hefur kennt útlendingum íslensku, og sagði mikilvægt að skipuleggja þessi mál upp á nýtt og það heildstætt. Upplýst var á fundinum að helstu niðurstöður könnunarinnar hefðu verið kynnt- ar á fundi ríkisstjórnarinnar í gærmorgun og þar á bæ væri vilji til að bæta úr. Víst er að vilji er til þess meðal innflytjenda því sam- kvæmt könnuninni hafa níu af hverjum tíu ýmist áhuga á að læra íslensku eða læra hana betur. Dugnaðurinn mikill Margt jákvætt kom í ljós í könn- uninni. Fjórir af hverjum tíu inn- flytjendum búa í eigin húsnæði og níu af hverjum tíu voru í vinnu þegar könnunin var gerð. Þeir sem ekki voru á vinnumark- aði voru í námi, heimavinnandi eða fæðingarorlofi. Atvinnuleysi var nær óþekkt. Þá höfðu fjórir af hverjum tíu áhuga á að hefja eigin rekstur eða stofna fyrir- tæki og þó nokkrir höfðu þegar hafið undirbúning að stofnun fyr- irtækis. „Dugnaðurinn kom mér á óvart,“ segir Kristín Harðardótt- ir, hjá Félagsvísindastofnun Há- skóla Íslands, sem gerði könnun- ina. Henni, eins og öðrum, „Mér bregður mest við að sjá hve mik- ill fjöldi fólks skilur ekki undir hvað skrifað er þegar ráðinga- samningur er undirritaður. Mað- ur setur spurningarmerki við hvers vegna fólk er látið undir- rita slíka samninga þegar það veit ekki hvað það er að skrifa undir.“ Hún telur þó ekki sérstaka ástæðu til að hafa áhyggjur af að fólk fái ekki þau kjör sem því ber. „Hátt hlutfall í könnuninni tel- ur sig fá sömu laun og aðrir í sambærilegum störfum,“ seg- ir Kristín en bætir við „hins vegar er vandamál að fólk fær ekki menntun sína metna og þá komum við enn og aftur að íslensk- unni.“ Víst er að þar hittir hún naglann á höfuðið því níu af hverjum tíu telja menntun sína ekki nýtast að fullu í núverandi starfi og bróðurpart- ur fólksins hafði ekki reynt að fá menntun sína metna. Þar eru tungumálaerfiðleikar meginá- stæðan. Ætla má að íslenskt sam- félag fari á mis við margt af þeim sökum. Flýja ekki atvinnuleysi Það vekur athygli að fjórir af tíu sem svöruðu könnuninni eiga barn eða börn sem enn búa í upp- runalandinu. Sú staðreynd kom Elsu Arnardóttur á óvart. „Mér finnst athyglisvert hve margir eiga börn í heimalandinu, þetta er hærri tala en ég átti von á,“ segir hún. Sjö af hverjum tíu svarenda eru í hjónabandi eða sambúð. Þá kemur í ljós að um helm- ingur svarenda unir sér vel í nú- verandi heimabyggð og vill búa áfram á sama stað. Af þeim sem helst vildu búa annars staðar vildu rúmlega sex af hverjum tíu búa á höfuðborgarsvæðinu en hinir vildu búa annars staðar á landsbyggðinni. Líkt og sagði í inngangi náði könnunin til innflytjenda sem búa á Vestfjörðum og Austur- landi. 214 svör bárust, voru tals- vert fleiri þeirra frá konum en körlum. Er það í samræmi við kynjaskiptingu innflytjendanna. Meðalaldur svarenda er 36 ár en þeir yngstu voru 18 ára og þeir elstu 63 ára. Könnunin var lögð fyrir fólk á þeim tungumálum sem það talar, pólsku, taílensku og serbnesku/króatísku og ensku að auki. Bróðurpartur fólksins starfar við fiskvinnslu eða veiðar og flestir eru hingað komnir fyrir orð eða tilstuðlan ættingja og vina. Rúmur helmingur svarenda flutti hingað fyrst og fremst til að stunda vinnu en engu að síður kemur í ljós að fólk kemur ekki til Íslands vegna atvinnuleysis í heimalandinu. Vissulega eru aðstæður fólks í upprunalandinu misjafnar og að sama skapi ástæðurnar fyrir flutningi allla leið til Íslands. Greinilegt er hins vegar að mörgum líkar hér lífið vel og einhverjum kann að hlýna um hjartaræturnar við að heyra að níu prósent þeirra sem tóku þátt í könnuninni nefna Ísland sem sitt heimaland. bjorn@frettabladid.is FÓÐUR FYRIR SMÁFUGLANA KOSTAR NOKKUR HUNDRUÐ KRÓNUR Allt eftir magni. HVAÐ KOSTAR ÞAÐ? Um miðjan júní féll dómur í meiðyrðamáli Jóns Ólafssonar, athafnamanns gegn Davíð Oddssyni, þáverandi forsætisráðherra. Málið var þingfest í jan- úar í kjölfar ummæla Davíðs þess efnis að viðskipti Jóns hefðu brag af kaupum og sölu þýfis og voru þau ummæli dæmd dauð og ómerk í Héraðsdómi Reykjavíkur. Dómnum var ekki áfrýjað. Áhrif dómsins Sigríður Rut Júlíusdóttir segir að dómurinn hljóti að hafa einhver áhrif. „Með honum var viðurkennt að forsætisráðherra hefði með ummælum sínum geng- ið of langt. Forsætisráðherra, bæði þáverandi og nú- verandi, hljóta því að gæta orða sinna, þar sem þeir vita að þeir geti verið látnir sæta ábyrgð og orð þeirra dæmd dauð og ómerk. Menn eiga víðtækt tjáningarfrelsi, en verða alltaf að bera ábyrgð á orð- um sínum. Ef verið er að ærumeiða geta menn ver- ið látnir sæta ábyrgð og möguleiki á því að orðin verði dæmd dauð og ómerk. Það er mín skoðun að orð forsætisráðherra gagnvart óbreyttum borgur- um í þjóðfélaginu hljóti að hafa meiri áhrif og vægi og eigi að hafa það í huga þegar metið er hvort um ærumeiðingar sé að ræða. Því verður forsætisráðherra að gæta þess sérstaklega að fara ekki yfir þetta strik en eiga það annars á hættu að orð hans verði dæmd dauð og ómerk. Ég held að það hljóti að skipta forsætisráðherra máli hvort dómstólar dæmi orð hans dauð og ómerk.“ Engin áfrýjun Sigríður Rut segir að farið hafi verið fram á skaðabætur í málinu, en dómari hafi ekki dæmt umbjóðanda hennar slíkt. „Ég tel það vera gagn- rýnivert, en málinu var ekki áfrýjað. Umbjóðandi minn taldi sig hafa náð sínu fram með því að orð forsætisráðherra voru dæmd dauð og ómerk.“ Davíð gat ekki áfrýjað málinu, þar sem hann lét þingsókn falla eftir að hafa skilað greinagerð. Forsætisráðherra gæti orða sinna EFTIRMÁL: MEIÐYRÐAMÁL JÓNS ÓLAFSSONAR GEGN DAVÍÐ ODDSSYNI „Mér líst frekar illa á þetta. Það er nauðsynlegt að það sé eitthvert rokk í útvarpinu enda eru mjög margir sem hafa áhuga á því. Það er uppselt á hverja rokktónleikana á fætur öðrum á meðan popptónleikar hafa gengið heldur verr,“ segir Þorsteinn Örn Kol- beinsson, mikill áhugamaður um rokktónlist og innflytjandi margra minna þekktra erlendra þungarokks- sveita á undanförnum misserum. Að undanförnu hafa þrjár útvarps- stöðvar sem lagt hafa áherslu á rokktónlist lagt upp laupana, Radíó Reykjavík, Skonrokk og X-ið sem reyndar endurfæddist sem X-fm. Þorsteinn furðar sig á því hvers vegna rokkstöðvar ganga ekki betur en raun ber vitni, sérstaklega í ljósi þess mikla áhuga sem verður vart á rokkinu, svo sem í aðsókn á tónleika. Hann segir að ein ástæðan kunni að vera spilunarlist- ar þar sem ákveðið sé fyrirfram hvað sé spilað, mest sé um tónlist sem hef- ur sannað sig og oft lítið um nýjungar. Þessi einsleitni birtist líka í því að ein- blínt sé á tónlist frá Bandaríkjunum og Bretlandi meðan til dæmis evrópskar hljómsveitir eigi erfitt uppdráttar. Eins sé spurning hvernig auglýsingasalar og kaupendur hugsa. „Mín tilfinning er sú að þeir sem eru í þessum störfum séu ekki jafn rokk sinnaðir og aðrir. Það er ekki mikið af leðurklæddum síðhærð- um rokkurum sem mæta í vinnuna með bindi og í jakkafötum.“ ÞORSTEINN ÖRN KOLBEINSSON Rokkið er nauðsynlegt ROKK Í ÚTVARPI SJÓNARHÓLL FLAKAÐ Í KAPPI VIÐ KLUKKUNA Allur gangur er á hvernig staðið er að íslenskukennslu innflytjenda úti um land. Fjöldi innflytj- enda vinnur hjá HB Granda og þar á bæ er boðið upp á íslenskukennslu í vinnutímanum. KRISTÍN HARÐARDÓTTIR ELSA ARNARDÓTTIR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.