Fréttablaðið - 19.01.2005, Page 18

Fréttablaðið - 19.01.2005, Page 18
Prófundirbúningur Kvöldið fyrir erfitt og langt próf er gott að hvíla sig frá námsefninu og huga að öðr- um hlutum. Ágætt er að fara í bíó, lesa skáldsögu, hitta vini eða hvað sem er sem fær hugann til að hugsa um aðra hluti. Að lokum er gott að fá góðan nætursvefn þannig að maður komi hlaðinn orku og vel reiðubúinn til að takast á við prófið.[ Með Fréttablaðinu alla fimmtudaga Hópþjálfunin er byrjuð Í boði eru mismunandi hópar sem opnir eru öllum, bæði fólki með gigt og öðrum fullorðnum sem vilja góða leikfimi án hamagangs. - Róleg leikfimi, vefjagigtarhópar, bakleikfimi fyrir karla - Jóga aðlagað einstaklingum með gigt og þeim sem þurfa að fara rólega. - Byrjenda- og framhaldshópar. Nánari upplýsingar og skráning á skrifstofu Gigtarfélags Íslands, Ármúla 5, sími 5303600. Leikum okkur með líkamann Guðrún fer í leiki með börnunum. Börn iðka jóga í Laugum einu sinni í viku undir leiðsögn Guðrúnar Arnalds jógakennara. „Að kenna börnum jóga felst að nokkru í því að gera æfingarnar skemmtilegar og skapa úr þeim leik þannig að þau verði aldrei leið. Við leikum okkur með lík- amann, hermum eftir dýrum, búum til sögur og segjum þær með jógastöðum. Svo förum við í leiki þar sem við fáum að hlaupa og fá útrás og leiki sem byggjast á einbeitingu og kyrrð. Eldri krakk- arnir hafa líka gaman af því að spreyta sig á jógastöðum og sjá hvað þeir geta.“ Þetta segir Guð- rún Arnalds jógakennari og játar að það hafi komið sér á óvart hversu auðvelt sé yfirleitt að halda börnum við efnið. Nám- skeiðin standa í 12 vikur og eru að hefjast nú á föstudaginn 21. janú- ar. Guðrún hefur kennt fullorðn- um jóga í nokkur ár og byrjaði að kenna börnum í fyrravetur eftir að hafa sótt námskeið í barnajóga í London og annað í sirkusjóga í Bandaríkjunum. Hana dreymir um að koma meira af jóga inn í skólana og hún segir því víða hafa verið tekið vel. „Markmiðið með því er að auka vellíðan barnanna og stuðla að auknum sjálfsaga og betri einbeitingu. Einnig að styrkja líkamann og auka sveigj- anleika hans. Ég reyni að hjálpa börnum að auka tilfinningu fyrir sjálfum sér bæði líkamlega og til- finningalega og efla sjálfstraust þeirra. Jóga getur til dæmis verið mjög gagnlegt í sambandi við of- virkni og í því að koma orkunni í réttan farveg,“ segir hún. Hóparnir í Laugum skiptast í tvennt eftir aldri. 4-7 ára og 8-11 ára og að sögn Guðrúnar eru for- eldrarnir með börnunum í yngri hópnum og í annað hvert skipti með eldri börnunum. „Þetta er jú líka hugsað þannig að foreldrarn- ir geti gert eitthvað með krökkun- um sínum sem er öðru vísi en það sem þeir gera á hverjum degi. Þetta er tími til að vera saman á skapandi hátt,“ segir hún að lok- um. gun@frettabladid.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Teygjur eru líka góðar. Börn verða greinilega liðug í jóga. Gleðin er alltaf með í för. ]

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.