Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.01.2005, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 19.01.2005, Qupperneq 26
Reynsla í einkavæðingu hjá Milestone Mannabreytingar verða hjá Norræna fjárfestingar- bankanum í Helsinki. Guðmundur Ólason sem ver- ið hefur svæðisstjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Norræna fjárfestingarbankanum lætur af því starfi. Við starfi hans tekur Benedikt Árnason, skrifstofustjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu. Guðmundur gerist hins vegar fram- kvæmdastjóri Milestone sem er í eigu Werners- barnanna, Karls, Ingunnar og Steingríms. Eignir Milestone nema um 35 milljörðum króna. Þar á meðal er virkur eignarhlutur í Íslandsbanka og eign í Actavis, auk lyfsölukeðjunnar Lyfja og heilsu. Milestone hyggst vera leiðandi fjárfestir á íslenskum markaði. Guðmundur var sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu áður en hann hélt til Finn- lands og var ritari einkavæðingarnefndar. Hann ætti því að vera vel dómbær á hvort Milestone eigi möguleika í komandi einkavæðingu Símans. Tvöfaldar líkur á vinningi Flugfélög víða um heim sjá fram á ýmsa mögu- leika til að nýta plássið í nýju Airbus risaþoturnar. Venjuleg útgáfa af flugvélinni gerir ráð fyrir sætum og rúmum fyrir 555 farþega en mest getur þotan tekið átta hundruð farþega. Breska flugfélagið Virgin, sem er í eigu milljarðamæringsins uppátækjasama Richard Branson, hefur pantað sex vélar. Branson sagði í gær frá því hvernig hann sæi fyrir sér nýt- ingu á vélunum. Hann ætlar að láta fara vel um farþegana og gerir ráð fyrir að í vélinni verði leikfimisalur, bar og spilavíti. Farþegar á fyrsta farrými geta þar að auki fengið sér blund í tvíbreiðu rúmi. Branson sagði að með spilavíti og tvíbreið rúm um borð hefðu farþegar tvöfaldar líkur á vinningi. MESTA HÆKKUN ICEX-15 3.559 KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ] Fjöldi viðskipta: 276 Velta: 2.087 milljónir -0,89% MESTA LÆKKUN MARKAÐSFRÉTTIR... Úrvalsvísitalan lækkaði í gær um 0,89 prósent. Þetta er fyrsti dagurinn á þessu ári þar sem vísi- talan lækkar. Vísitalan er nú 5,93 prósent hærri en í upphafi ársins. Nýjar verðbólgutölur í Bret- landi voru hærri en gert hafði ver- ið ráð fyrir. Á ársgrudvelli er verð- bólgan þar 1,5 prósent. Eng- landsbanki ákvað fyrir skemmstu að hækka ekki stýrivexti sína. Hagnaður Sony Ericsson dróst saman á fjórða ársfjórðungi 2004 miðað við árið á undan. Árið 2004 var þó sterkara í heild en árið á undan. Hagnaðurinn 2004 var 316 milljónir evra en árið 2003 skilaði reksturinn 86 milljón evra tapi. Gengi krónunnar veiktist lítil- lega á gjaldeyrismarkaði í gær. 18 19. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR Björgólfur Thor Björg- ólfsson verður að líkind- um fyrsti Íslendingur- inn til að komast á lista Forbes yfir ríkasta fólk í heimi. Forbes er að sannreyna eignastöðu Björgólfs og fátt bendir til annars en að hann eigi heima á listanum. Eignir hans nema lík- lega vel á annan millj- arð Bandaríkjadollara. Allt stefnir í að Björgólfur Thor Björgólfsson verði fyrstur Íslend- inga til að komast á lista tímarits- ins Forbes yfir ríkasta fólks heims. Luisa Kroll, ritstjóri lista Forbes, er stödd hér á landi til þess að meta eignir Björgólfs Thors og hvort hann nái inn á lista yfir ríkustu einstaklinga í heimi. Fréttablaðið birti frétt í fyrra þar sem eignir Björgólfs voru áætlaðar um eða yfir einn millj- arður Bandaríkjadollara sem hef- ur verið viðmið til þess að koma til greina á listann. Síðan þá hefur dollarinn veikst gagnvart krón- unni, auk þess sem eignir Björg- ólfs í skráðum félögum eins og Landsbankanum og Actavis hafa vaxið. Luisa Kroll segir að rit- stjórn Forbes hafi borist tölvu- póstur í kjölfar fréttarinnar og birtingu listans um að Björgólfur Thor ætti hugsanlega heima á lista Forbes. Líklegt er að sú verði nið- urstaðan, en auk Björgólfs hefur Luisa Kroll kynnt sér eignir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, auk þess að kynna sér útrás og umhverfi ís- lensks viðskiptalífs. Ekki er eins líklegt að Jón Ásgeir komist á list- ann nú, þar sem eignir hans eru að mestu leyti í óskráðum félögum og verðlagning þeirra og aðgangur að upplýsingum um þau ekki jafn auðveldur og þegar skráð félög eiga í hlut. Líklegt má telja að Jón Ásgeir komist á listann innan tíðar. Ekki er ósennilegt að hrein eign Björgólfs nú sé nær því að vera einn og hálfur milljarður dollara en einn milljarður. Sam- kvæmt þessu eru verulegar líkur á að hann komist á lista Forbes. Samson er aðaleigandi Lands- bankans og er eignarhlutur Björgólfs Thors í Landsbankan- um um nítján milljarðar króna. Björgólfur Thor er einnig stærsti eigandinn í Actavis í gegnum eignarhaldsfélag sitt Amber International. Eignarhlutur hans í Actavis er að verðmæti um 38 milljarðar króna. Samtals gerir þetta 57 milljarðar eða rétt yfir 900 milljónir dollara. Auk þessa á Samson hlut í Burðarási og Straumi. Erlendis hefur Björgólf- ur Thor farið fyrir hópi fjárfesta í kaupum á símafyrirtæki í Búlgar- íu og Tékklandi. Auk þess á hann fasteignir í London. Hrein eign hans í þessum erlendu félögum þarf því ekki að vera veruleg til þess að sætið á lista Forbes sé tryggt. haflidi@frettabladid.is vidskipti@frettabladid.is Peningaskápurinn… Actavis 40,80 +0,25% ... Atorka 5,78 - 0,69% ... Bakkavör 24,60 -3,15% ... Burðarás 12,70 -0,78% ... Flugleiðir 11,50 -1,71% ... Íslandsbanki 11,30 -0,88% ... KB banki 485,00 -0,92% ... Kögun 47,10 -0,63% ... Landsbankinn 12,65 – ... Marel 52,60 -1,50% ... Medcare 5,90 -1,67% ... Og fjarskipti 3,49 -1,41% ... Samherji 11,35 – ... Straumur 10,05 +0,50% ... Össur 80,50 -4,73% Björgólfur Thor stefnir á lista ríkra hjá Forbes Þormóður rammi 2,65% HB Grandi 1,28% Tryggingamiðstöðin 0,92% Össur -4,73% Bakkavör -3,15% Nýherji -1,74% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: nánar á visir.is Enska fyrir börn BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700 Tvíréttað í hádeginu á aðeins 2.100 kr. Nýr hádegismatseðill alla þriðjudaga spennandi matseðill á kvöldin Matseðlar og verð á www.holt.is • • • • • • • • • Meistaranám í endurskoðun Sameining á tryggingamarkaði VIÐSKIPTI Í gær var tilkynnt um sar- muna tryggingafélaganna Varðar og Íslandstryggingar. Vörður var í eigu Vátryggingafélags Íslands en eftir sameininguna verður VÍS stærsti hluthafi hins sameinaða fé- lags með 58 prósenta hlutdeild. Sameiningin er háð áreiðan- leikakönnunum á félögunum tveimur og leyfum frá Fjármála- eftirlitinu og Samkeppnisstofnun. Nýja félagið mun heita Vörður – Íslandstrygging en framkvæmda- stjóri þess verður Einar Baldvins- son, framkvæmdastjóri Íslands- tryggingar, og aðstoðarfram- kvæmdastjóri verður Fylkir Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri trygginga- og tjónasviðs Varðar. Íslandstrygging er yngsta vá- tryggingafélagið á Íslandi en fé- lagið tók til starfa í júlílok 2002. Vörður Vátryggingafélag er hins vegar rótgróið tryggingafélag með rætur í Vélbátasamtryggingu Eyjafjarðar sem stofnuð var 1926. Einar Baldvinsson segir að sameiningarvinnan hafi gengið mjög hratt þó að enn eigi eftir að hnýta lokahnútana. - kk Viðskipta- og hag- fræðideild Háskóla Ís- lands býður frá og með næsta hausti upp á meistaranám í reikn- ingshaldi og endur- skoðun. Meistaranámið er þriggja missera viðbót við hefðbundið þriggja ára grunnám í við- skiptafræði. Fram til þessa hefur Háskóli Ís- lands útskrifað nem- endur af kjörsviði eft- ir fjögurra ára cand.oecon nám. Gylfi Magnússon, forseti viðskipta- og h a g f r æ ð i d e i l d a r, segir að hið gamla kerfi hafi verið um margt ágætt en breytt umhverfi kalli á aukna kennslu og sérhæfingu á ákveðnum sviðum. Breytingunni er meðal annars ætlað að færa umgjörð námsins í samræmi við alþjóðlegar við- miðanir. - þk Á TOPPINN YFIR ÞÁ RÍKUSTU Tímaritið Forbes skoðar eignir Björgólfs Thors Björgólfssonar með það í huga að setja hann á lista tímaritsins yfir 500 ríkasta fólk veraldar. Gera má ráð fyrir að eignir Björgólfs nemi allt að einum og hálfum milljarði dollara eða yfir 90 milljarða króna. FRÉTTAB LAÐ IÐ /B ILLI GYLFI MAGNÚSSON Forseti viðskipta- og hagfræði- deildar Háskóla Íslands.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.