Fréttablaðið - 19.01.2005, Side 28

Fréttablaðið - 19.01.2005, Side 28
Jónína Einarsdóttir hefur verið ráðin í nýja lektorsstöðu í mann- fræði þróunar við mannfræði- og þróunarskor félagsvísindadeild- ar Háskóla Íslands. Þróunarsam- vinnustofnun Íslands kostar námið til þriggja ára. Hlutverk Jónínu verður meðal annars að byggja upp nýtt meistara- og diplómanám við Háskólann, en það verður í fyrsta sinn sem boð- ið verður upp á slíkt nám hér. Jónína segir ekki að því hlaup- ið að skýra í fljótu bragði um hvað mannfræði þróunar snúist. „Annars vegar er beitt aðferða- fræði og kenningum mannfræð- innar til að öðlast skilning á því hvað gerist, til dæmis í þróunar- verkefnum og í þróunarferli. Svo getur hún líka þýtt að fólk nýti sér kenningar og aðferðafræði mannfræðinnar til að vinna að þróunarverkefnum. Bæði er hægt að beita kenningunum til að skilja hvað er að gerast og til að vinna í ferlinu sjálfu,“ segir hún, en mannfræðin snýst að stórum hluta um að lýsa og skilja sjónar- horn þeirra sem eru rannsakaðir og vinna hlutina út frá forsend- um rannsóknarefnisins. „Ég er nú reyndar búin að sitja í þessari stöðu síðan síðasta vor,“ segir Jónína og bætir við að staðan hafi í raun verið búin til með það fyrir augum að koma á l e g g f r a m - h a l d s - námi í þ r ó - u n - ar- fræðum. „Síðan í haust höfum við boðið upp á masterspróf í mann- fræði, en svo er að fara af stað þetta masters- og diplómanám í þróunarfræðinni.“ Mastersnámið er tveggja ára nám til 60 eininga, en diplómanámið samsvarar einni önn og er til 15 eininga. „Svo er líka reiknað með að fólk geti tekið diplómanámið á lengri tíma, því mjög líklegt er að fólk sem áhuga hefur á náminu sé í vinnu.“ Námið er þverfaglegt og getur hver sem lokið hefur há- skólaprófi, hvort sem það er í bú- fræði, hjúkrunarfræði, félags- fræði, efnafræði, eða einhverju öðru, stundað það. „Það einkenn- ir þróunarvinnu að hún er þver- fagleg og við hana vinnur fólk úr öllum áttum,“ segir Jónína og bætir við að einnig verði litið til starfsreynslu fólks þegar sótt er um námið og því ekki útilokað að fólk sem vantar eitthvað upp á háskólapróf komist að. Í diplómanáminu segir Jónína að farið verði í kenningar um þróun, farið í aðferðarfræði með úttektum á verkefnum og undir- búningi fyrir þróunarverkefni. „Þar verður mikið stuðst við hvernig hagnýta megi mann- fræðina. Svo verður þriðja nám- skeiðið valnámskeið sem fólk getur jafnvel tekið úr eigin fagi,“ segir hún, en mastersnámið er hefðbundnara í uppbyggingu þar sem reiknað er með að fólk geri rannsóknarverkefni og skili rit- gerð því tengdu. ■ 20 19. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR EDGAR ALLAN POE (1809-1849) fæddist þennan dag. Undirbýr nýtt meistaranám JÓNÍNA EINARSDÓTTIR: NÝ LEKTORSSTAÐA „Ljóðlist er taktbundin sköpun fegurðar í orðum.“ - Poe er þekktastur fyrir hryllingssögur sínar, ljóðlist og sjúklegan ótta við kviksetningu. timamot@frettabladid.is 19. janúar árið 1983 var nasist- inn Klaus Barbie handtekinn í Bólivíu fyrir glæpi gegn mann- kyni. Glæpina framdi hann fjór- um áratugum fyrr þegar hann var yfirmaður Gestapó í Lyon í Frakk- landi í Seinni heimsstyrjöldinni. Fyrir grimmd sína fékk Barbie viðurnefnið „Slátrarinn frá Lyon.“ Barbie bar ábyrgð á því að senda þúsundir franskra gyðinga og meðlima andspyrnuhreyfingar- innar í fangabúðir, auk þess að standa fyrir pyntingum, misþyrm- ingum og aftökum fjölda ann- arra. Eftir frelsun Frakklands flúði hann til Þýskalands og gekk í lið með fleiri fyrrum foringjum nas- ista í neðanjarðarhreyfingu til höfuðs kommúnisma. Árið 1947 leysti bandarísk njósn- astofnun (Counter-Intelligence Corps eða CIC) upp samtökin. Barbie gekk hins vegar laus þar til stofnunin réði hann sem njó- snara í baráttunni við meintar njósnir Sovétríkjanna. Barbie starfaði sem bandarískur njósn- ari í Þýskalandi í tvö ár og var svo smyglað til Bólivíu árið 1949. Þar tók hann sér nafnið „Klaus Altmann“ og hélt áfram njósna- störfum fyrir Bandaríkin auk starfa við yfirheyrslur og pynting- ar fyrir harðstjórann Hugo „El Petiso“ Banzer sem komst þar til valda árið 1971. Á áttunda ára- tugnum uppgötvuðu nasistaveið- ararnir Serge Klarsfeld og Beatte Kunzel hvar Barbie hélt sig, en Banzer neitaði að framselja hann. Eftir stjórnarskipti í Bólivíu upphafi níunda áratugarins var Barbie svo lokst framseldur til Frakklands. Í júlí 1987 var hann svo dæmdur til ævilangrar fang- elsisvistar. ■ KLAUS BARBIE ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1793 Lúðvík XVI fundinn sekur um landráð og dæmdur til að hálshöggvast. 1915Í París í Frakklandi fær Geor- ge Claude einkaleyfi á ne- onljósum til að nota í ljósaskiltum. 1903 Þýski togarinn Friederich Albert strandaði á Skeiðar- ársandi. Áhöfnin komst í land en hraktist um sand- inn í hálfan mánuð og þrír fórust. 1915 Yfir 20 manns létust þegar loftför Þjóðverja vörpuðu sprengjum á England í fyrsta sinn. 1957 Kristján Eldjárn þjóðminja- vörður varði doktorsritgerð sína um kuml og haugfé í heiðnum sið á Íslandi. At- höfnin fór fram í hátíðarsal Háskóla Íslands. Slátrarinn frá Lyon handtekinn í Bólivíu Árni B. Tryggvason leikari er 81 árs í dag. Högni Óskarsson geð- læknir er sextugur í dag. Björn Vignir Sigurpálsson aðstoðarrit- stjóri Morgunblaðsins er 59 ára í dag. Óttar Felix Hauksson at- hafnaskáld er 55 ára í dag. Gísli Sverrir Halldórsson dýralæknir er 49 ára í dag. Hilmar Oddsson kvik- myndaleikstjóri er 48 ára í dag. Adolf Hjörvar Berndsen þingmaður er 46 ára í dag. Einar Þór Daníelsson knattspyrnumað- ur er 35 ára í dag. Sigurður Bogi Sævars- son blaðamaður er 34 ára í dag. FÆDDUST ÞENNAN DAG 570 Múhammeð spámaður 1736 James Watt sem fann upp gufu- vélina. 1798 Auguste Comte heimspek- ingur 1839 Paul Cezanne listmálari 1858 Eugene Brieux leikritaskáld 1883 Hermann Abendroth hljómsveit- arstjóri 1887 Alexander Woollcott smásagna- höfundur. 1892 Ólafur Thors fyrrum forsætisráð- herra Íslands 1923 Jean Stapleton leikkona 1926 Fritz Weaver leikari 1936 Ursula Andress leikkona 1943 Janis Joplin tónlistarkona 1946 Dolly Rebecca Parton leik- og söngkona 1949 Robert Palmer söngvari úr Emerson, Lake & Palmer 1967 Christine Tucci leikkona 1971 Shawn Wayans leikari Þrír félagar í OA-samtökunum, fé- lagsskap fólks sem þjáist af átfíkn, segja sögu sína á opnum fundi sem haldinn verður í dag í tilefni af 45 ára afmæli samtakanna. Í tilkynningu kemur fram að á fundinn séu allir þeir velkomnir sem áhuga hafi á að kynna sér starf samtakanna, en hann byrjar klukkan 20:15 og stendur í um klukkustund. Fundarstaður er „Gula húsið“ Tjarnargötu 20 í Reykjavík. Átfíkn er sögð eiga sér ýmsar birtingarmyndir, en tekist er á við vandann „einn dag í einu“ á sama hátt og félagar í AA samtökunum takast á við áfengis- og vímu- efnafíkn, að því er fram kemur í tilkynningu samtakanna, en unnið er eftir sama 12 spora kerfinu. „Á Íslandi eru nú starfandi 16 OA- deildir, þar af 10 á stór-Reykjavík- ursvæðinu.“ Á vef samtakanna, oa.is, er hægt að taka próf sem leiða á í ljós hvort fólk er haldið átfíkn, auk þess sem þar er að finna nafnlaus- ar reynslusögur þeirra sem barist hafa við átfíkn. ■ OA-samtökin 45 ára: Opinn afmælisfundur AFMÆLI Norðurbakkinn: Fróðleiksmolar í Hafnarfirði Framundan eru miklar framkvæmdir á Norðurbakkanum í Hafnarfirði og fjöl- breytt athafnalíf sem tengt var haf- sækinni starfsemi víkur fyrir nýrri íbúiðabyggð. Í fyrirlestri á Byggðasafni Hafnarfjarðar í kvöld fjalla Már Svein- björns framkvæmdarstjóri Hafnarfjarð- arhafnar og Pétur G. Kristbergsson fyrrverandi verkstjóri í BÚH um at- hafnalíf á Norðurbakkanum. Fyrirlest- urinn er hluti mánaðarlegra „Fróð- leiksmola“ sem Byggðasafn Hafnar- fjarðar býður til í sýningarhúsinu Pakk- húsinu við Vesturgötu 8. Aðgangur að fyrirlestrinum, sem hefst klukkan átta í kvöld, er ókeypis. ■ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Kristín Ingimundardóttir, Hvassaleiti 58, Ragnheiður Ingunn Magnúsdóttir, Brynja Ríkey Birgisdóttir, Garðar Berg Guðjónsson, Birgir Aðalsteinsson, Steinunn Guðjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. lést á Hjartadeild Landspítalans miðvikudaginn 5. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Valgarður Einarsson frá Ási, Hegranesi, Börn, tengdabörn og fjölskyldur. lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki, 16. janúar síðastliðinn. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 22. janúar kl. 10.30. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi, Kristján Pétursson Laxagötu 3a, Akureyri, Þórkatla Sigurbjörnsdóttir Guðrún Heiða Kristjánsdóttir, Þorsteinn Krüger Pétur Guðjón Kristjánsson, Júlía Garðarsdóttir Helga Sóley Kristjánsdóttir, Halla Björk Kristjánsdóttir Kristín Mjöll Kristjánsdóttir, Atli Steinn Friðbjörnsson Pétur Ágúst Pétursson og afabörn. lést á heimili sínu laugardaginn 15. janúar. ANDLÁT Gísli Hjartarson frá Geithálsi í Vest- mannaeyjum, lést miðvikudaginn 5. jan- úar. Ingibjörg Vilhjálmsdóttir frá Seyðisfirði, Ásbúðartröð 17, Hafnarfirði, lést föstu- daginn 7. janúar. Sigríður Johnsen Marklandi, Löngufit 40, Garðabæ, er látin. Hjörleifur Tryggvason Ytra-Laugalandi í Eyjafjarðarsveit, lést fimmtudaginn 13. janúar. Anna Magnúsdóttir frá Flögu, Sunnu- flöt 25, Garðabæ, lést föstudaginn 14. janúar. Ágúst Gíslason Suður-Nýjabæ, Þykkva- bæ, lést föstudaginn 14. janúar. Jóna Svanhvít Hannesdóttir Norður- brún 1, Reykjavík, lést föstudaginn 14. janúar. Sören M. Aðalsteinsson Valbraut 7, Garði, áður Eiðsvallagötu 3, Akureyri, lést föstudaginn 14. janúar. Einar Hansen frá Hólmavík lést laugar- daginn 15. janúar. Gísli Brynjólfsson frá Króki, Norðurár- dal, Hraunbæ 164, Reykjavík, lést laug- ardaginn 15. janúar. Guðrún Guðmundsdóttir Lyngholti 22, Keflavík, lést laugardaginn 15. janúar. Ríkharður Jónsson Ólafsbraut 38, Ólafsvík, lést laugardaginn 15. janúar. Anna Ólafsdóttir Efstasundi 41, lést sunnudaginn 16. janúar. Guðrún Brynjólfsdóttir dvalarheimilinu Höfða, áður Skálabraut 31, Akranesi, lést sunnudaginn 16. janúar. Þuríður Guðmundsdóttir, frá Ásgarði, Völlum, Miðvangi 22, Egilsstöðum, lést sunnudaginn 16. janúar. JARÐARFARIR 13.00 Elínborg Sigurðardóttir frá Ísa- firði, Unnarbraut 4, Seltjarnarnesi, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju. 13.00 Jórunn Karlsdóttir Brúarási 7, Reykjavík, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju. JÓNÍNA EINARSDÓTTIR Lektor í mannfræði þróunar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.