Fréttablaðið - 19.01.2005, Síða 30
22 19. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
Grátkór Stykkishólms má alveg fara að þagna
Það er kominn tími til að körfuboltagrátkórinn í Stykkishólmi fari að þagna. Gissur Tryggvason, formaður körfuknattleiksdeildar Snæfells, Bárður Eyþórsson,
þjálfari liðsins og lærisveinar hans hafa grenjað meira en góðu hófi gegnir út í forystu KKÍ, dómara og andstæðingana í allan vetur og fundið upp
samsæriskenningar nær vikulega. Nú er mál að linni. Snæfellingar: Farið að einbeita ykkur að því að spila körfubolta og hættið þessu endalausa væli. Það
nennir enginn að hlusta á það lengur og réttast væri að nota kraftana í að búa til fleiri frábær stuðningsmannalög fyrir undurþýðan barka Þórunnar
Antoníu.sport@frettabladid.is
LEIKIR GÆRDAGSINS
Enska bikarkeppnin
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
16 17 18 19 20 21 22
Miðvikudagur
JANÚAR
FÓTBOLTI Eftir ævintýraför í
heimalandi knattspyrnunnar,
Englandi, er einn sigursælasti
knattspyrnuþjálfari Íslandssög-
unnar kominn heim. Guðjón Þórð-
arson skrifaði undir þriggja ára
samning við bikarmeistara Kefla-
víkur skömmu fyrir jól og er
óhætt að segja að hann sé strax
búinn að hrista vel upp í íslensku
knattspyrnulífi.
Það gekk á með skini og skúr-
um hjá Guðjón í Englandi. Hann
kom Stoke City upp um deild og
var rekinn skömmu síðar. Hann
tók við liði Barnsley í bágri stöðu,
reif félagið upp á eftirminnilegan
hátt en fékk samt reisupassann.
Erfiðlega gekk að fá nýtt starf
eftir það enda margir færir þjálf-
arar um hvert starf og erlendir
þjálfarar sjaldan fyrsti kostur í
stöðunni. Eftir að hafa lifað og
hrærst í atvinnumennsku í
Englandi um nokkurra ára skeið
hljóta það að vera talsverð við-
brigði að koma aftur heim til Ís-
lands.
„Þetta voru gífurleg viðbrigði.
Ég neita því ekki. Það er samt í
þessu eins og öðru að það þýðir
ekki að tala um það sem maður
hefur ekki heldur verða menn að
vinna með það sem þeir hafa í
höndunum,“ sagði Guðjón sem er
mjög ánægður með Keflavíkur-
strákana og segir þá flesta harð-
duglega og mjög metnaðarfulla.
Hann lætur þá æfa fimm sinnum í
viku og á laugardögum er löng æf-
ing, eða langur laugardagur eins
og Guðjón kallar það.
Eins og áður segir er talsverð-
ur tími síðan Guðjón þjálfaði síð-
ast á Íslandi en hvað telur hann
helst hafa breyst hér á landi á
þessum árum?
„Stóri munurinn liggur í að-
stöðunni en tilkoma knattspyrnu-
húsanna er mikil bylting. Nú þarf
aldrei að hafa áhyggjur af veðri
lengur. Ég man eftir því þegar ég
var með ÍA 1993 þá fórum við á
æfingu í Kópavogi í febrúar. Þá
hafði ekki verið hægt að æfa allan
veturinn á gervigrasinu vegna
ótíðar. Við þurftum að hætta æf-
ingunni eftir tæpar 20 mínútur
því þá fauk annað markið og mátti
minnstu muna að það hefði orðið
Kristjáni Finnbogasyni mark-
verði að fjörtjóni. Þetta vandamál
er ekki lengur til staðar sem er
mjög jákvætt,“ sagði Guðjón en
telur samt að alltaf megi gera bet-
ur á öllum sviðum.
„Það er ekkert svo gott að ekki
megi gera betur. Það er fullt af
hlutum sem við vorum góðir í
áður sem mér finnst vera á undan-
haldi núna. Það þarf að spyrna við
fótum og stöðva þá þróun. Í dag
gefast of margir upp þegar á móti
blæs en hér á árum áður voru
menn tilbúnir að berjast meira
fyrir hlutunum. Kannski hafa
menn það of gott í dag.“
Guðjón kemur heim reynslunni
ríkari enda var Englandsdvölin
honum mjög lærdómsrík. Honum
finnst gott að geta miðlað reynslu
sinni til annarra.
„Þetta er allt öðruvísi verkefni
en ég var í og nálgunin er önnur.
Fyrst og fremst er maður samt að
vinna með fólki og það finnst mér
skemmtilegt. Það er gaman að sjá
hvernig margir af strákunum
taka við sér og hvað þeir eru vilj-
ugir að læra. Ég held að það sé
fyrst og fremst það sem gefur
manni umbun í lok dagsins því ég
er að reyna að láta gott af mér
leiða,“ sagði Guðjón Þórðarson.
henry@frettabladid.is
HARÐUR HÚSBÓNDI Það er enginn skortur á aga þar sem Guðjón Þórðarson er annars
vegar. Guðjón gefur hér lærisveinum sínum góð ráð á æfingu í Reykjaneshöllinni á
mánudaginn. Fréttablaðið/Valli
Vil láta gott af mér leiða
Knattspyrnuþjálfarinn Guðjón Þórðarson hefur hafið störf í Keflavík. Hann
segir það vera mikil viðbrigði að koma aftur til Íslands eftir að hafa starfað í
enska boltanum síðustu ár.
■ ■ LEIKIR
19.15 KR og Njarðvík eigast við í
DHL-höllinni í 1. deild kvenna í
körfuknattleik.
19.15 Fram og Stjarnan mætast í
Framhúsinu í DHL-deild kvenna í
handknattleik.
■ ■ SJÓNVARP
17.45 Olíssport á Sýn. Fjallað um
helstu íþróttaviðburði heima og
erlendis.
19.00 Heimsbikarinn á skíðum á
Sýn. Nýjustu fréttir af framgöngu
manna á heimsbikarmótum.
19.35 Enski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Exeter og
Manchester United í 3. umferð
bikarkeppninnar.
22.00 Olíssport á Sýn. Fjallað um
helstu íþróttaviðburði heima og
erlendis.
22.20 Handboltakvöld á Rúv.
23.15 History of football á Sýn.
Myndaflokkur um vinsælustu
íþrótt heims.
Lið Phoenix Suns í NBA-körfubolt-anum virðist heillum horfið án
leikstjórnanda síns, Steve Nash sem
meiddist á dögun-
um, en Suns tapaði
fjórða leik sínum í
röð í fyrrinótt þegar
það sótti núverandi
meistara Detroit Pi-
stons heim. Leikn-
um lyktaði með sigri
Pistons, 94-80, en
Suns hefur ekki skorað jafn lítið á
leiktíðinni til þessa. Tayshaun Prince
var stigahæsti maður vallarins, skor-
aði 26 stig, tók 7 fráköst og gaf 5
stoðsendingar. Joe Johnson skoraði
mest fyrir Suns, alls 17 stig. „Við get-
um alveg unnið leiki án mín en til
þess að það gangi eftir verðum við
að ná fleiri fráköstum en við gerðum
í kvöld,“ sagði Nash en heimamenn
náðu alls 25 sóknarfráköstum.
David Beckham sagðist munusnúa aftur til Manchester United
ef hann myndi einhvern tímann
segja skilið við Real Madrid. Beck-
ham, sem sagði skilið við United í
júlí árið 2003, hefur
enn sterkar taugar
til síns gamla liðs.
„Ég ólst upp hjá
United og hafði í
hyggju að vera þar
allan minn feril,“
sagði Beckham
sem segist enn eiga
fullt inni hjá Madrídarliðinu. „Ég er
búinn að vera hérna í eitt og hálft ár
og á enn eftir að ná mínu besta
formi.“ Kappinn sagði enn fremur að
hann yrði með enska landsliðinu á
HM 2006 í Þýskalandi. „Ég hef fulla
trú á því að ég verði fyrirliði Englend-
inga á HM.“
Giovanni Trapattoni, knattspyrnu-stjóri portúgalska liðsins Benfica,
hefur staðfest áhuga sinn á að fá
miðvörðinn Jose Kleberson frá
Manchester United í sínar raðir.
Kleberson, sem er 25 ára að aldri,
hefur átt við ökkla-
meiðsli að stríða og
hefur aðeins leikið
18 leiki með United
á 18 mánuðum.
„Hann vill koma en
félagið vill ekki láta
hann fara. Svona
samningamál eru
ekki auðveld viðureignar en við
munum reyna hvað við getum til að
fá hann til okkar,“ sagði Trapattoni.
Aðalmarkvörður unglingalandliðsBenin var barinn til dauða eftir að
liðið tapaði gegn Nígeríu, 3-0, á Afr-
íkukeppni unglingalandsliða.
Samiou Yessoufou, sem gekk undir
nafninu Campos, var 18 ára gamall.
Hópur manna réðst að Campos á
næturklúbbi eftir leikinn og lést hann
af áverkum sínum í gærmorgun.
Fregnir herma að mennirnir hafi ver-
ið æfir yfir tapinu og létu höggin og
spörkin dynja á Campos sem átti sér
ekki viðreisnarvon.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Fjölni
í Höllina!
Grafarvogsbúar – Fjölnismenn
Laugardaginn 22. janúar kl. 16.15
leika Hamar/Selfoss og Fjölnir í fjögurra liða
úrslitum bikarkeppni KKÍ í Hveragerði.
Sætaferðir verða frá Íþróttamiðstöð Grafarvogs
við Dalhús kl. 14.30.
Skráning í sætaferðir er á skrifstofu Fjölnis
í síma 567-2085.
Verð: leikur + rúta fullorðnir 700 + 500 kr.
15 ára og yngri 300 + 500 kr.
Fjölnisbolir verða til sölu á 500 kr.
BLACKPOOL–LEICESTER 0–1
0–1 Jóhannes Karl Guðjónsson (16.).
BURNLEY–LIVERPOOL 1–0
1–0 Sjálfsmark (51.).
Enska bikarkeppnin:
Burnley sló
út Liverpool
FÓTBOLTI Enska 1. deildarliðið
Burnley sló í gær Liverpool út úr
ensku bikarkeppninni en það voru
þó leikmenn Liverpool sem sáu
um markaskorunina því sigur-
markið var stórfurðulegt sjálfs-
mark varnarmannsins Djimi
Traore. Burnley vann því óvænt
1–0. Traore virtist leika á sinn
eigin markvörð áður en hann setti
boltann í eigið mark á 51. mínútu
leiksins og félagar hans í liðinu
gátu ekki bætt fyrir mistök hans
það sem eftir lifði leiksins.
Jóhannes Karl Guðjónsson
tryggði liði sínu Leicester sæti í
næstu umferð þegar hann skoraði
sigurmarkið gegn Blackpool strax
á 16. mínútu leiksins. Markið
skoraði Jóhannes Karl með
þrumuskoti af 35 metra færi.
Guðjón Þórðarson, nýráðinn stjóri, um leikmannamál bikarmeistaranna:
Menn fá tækifæri til að sanna sig
FÓTBOLTI Bikarmeistarar Keflavík-
ur hafa orðið fyrir miklum áföll-
um frá því tímabilinu hér heima
lauk. Þórarinn Kristjánsson og
Haraldur Freyr Guðmundsson
eru farnir í atvinnumennsku. Zor-
an Daníel Ljubicic tók við þjálfun
1. deildarliðs Völsungs og svo er
óvissuástand með Scott Ramsey.
Þegar Guðjón Þórðarson tók
við liðinu sagðist hann ætla að
taka sér góðan tíma í að meta hóp-
inn áður en hann tæki ákvörðun
um styrkingar.
„Ég mun taka mér tíma vel
fram í febrúar til að sjá hvernig
þessi hópur er. Það er samt ljóst
að við þurfum að styrkja hópinn.
Ég vil fyrst sjá hvort það séu ein-
hverjir í hópnum sem geta tekið
við af þeim sem eru farnir áður en
ég fer að fá nýja menn. Menn fá
tækifæri til að sanna sig,“ sagði
Guðjón en hann sagði engu að síð-
ur blasa við að það væri vöntun á
miðvörðum og þar yrði að fá nýja
menn.
„Það er ekki um auðugan garð
að gresja á innlendum markaði.
Það eru samt aðrir kostir í stöð-
unni og ég hef fín sambönd er-
lendis. Þá bæði á Englandi og í
Skandinavíu,“ sagði Guðjón sem
er þegar byrjaður að þreifa fyrir
sér. „Við erum búnir að skoða
ákveðna möguleika. Það er aldrei
að vita nema um mánaðamótin
komi einn eða tveir leikmenn sem
við viljum skoða betur,“ sagði
Guðjón Þórðarson.
- hbg
TVEIR SEM ERU FARNIR Haraldur Guðmundsson og Zoran Daníel Ljubicic eru báðir
farnir frá Keflavík.