Fréttablaðið - 19.01.2005, Síða 38
30 19. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
– hefur þú séð DV í dag?
Unnusta Barkar
axarmanns í sjokki
Mamma fórnar-
lambsins sátt
við dóminn
Gettu betur, spurningakeppni
framhaldsskólanna, er í fullum
gangi þessa dagana í útvarpinu. Í
dag fer fram blóðug barátta í
keppninni þegar lið Borgarholts-
skóla og Menntaskólans við
Reykjavík mætast í annarri um-
ferð. Mörgum þykir eftirsjá með
þessum liðum þar sem þau hafa
staðið sig vel undanfarin ár og
ansi hart að þau detti út áður en
keppnin fer í sjónvarpið.
„Þetta er mjög klaufalegt þar
sem þetta eru langstigahæstu
skólarnir úr fyrstu umferð. Þeir
voru báðir með um þrjátíu stig á
meðan næsti skóli á eftir var með
tuttugu og eitt stig,“ segir Stefán
Pálsson, dómari keppninnar.
Það kaldhæðnislega við allt
saman er svo að meðal annars
fulltrúar þessarra beggja skóla
komu í veg fyrir reglu sem hefði
tryggt að þessi lið hefðu ekki
dregist saman fyrr en í sjónvarp-
ið væri komið.
Sjónvarpið lagði til tvær reglur,
önnur var sú að liðin sem komust í
sjónvarp í fyrra myndu ekki drag-
ast saman í fyrri umferð. Hin regl-
an hljómaði þannig að liðin sem
komust í undanúrslit í fyrra myndu
ekki dragast saman fyrr en í sjón-
varpi. Fjögurra manna nefnd fram-
haldsskólanna samþykkti fyrri til-
löguna en ekki þá síðari. Í nefndinni
voru einn MR-ingur og einn Borg-
hyltingur.
„Þeir hljóta að ergja sig aðeins á
þessu núna. Það er auðvitað leiðin-
legt þegar skólarnir sem leggja mest
á sig lenda í þessu,“ segir Stefán. ■
MR eða Borgarholtsskóli detta út
LIÐ BORGARHOLTSSKÓLA Það mætir liði Menntaskólans við Reykjavík í dag í annarri
umferð í Gettu betur.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
555
Hakakrossinn
Opna ástralska mótið
Leikritið Blái hnötturinn eftir
Andra Snæ Magnason, byggt á
samnefndri bók hans, verður
frumsýnt í Toronto í Kanada
þriðja febrúar næstkomandi.
Verkið verður sýnt í einu
stærsta barnaleikhúsi Norður-
Ameríku, Lorranie Kimsa Theat-
er for Young People, fram til 20.
mars. „Þetta kom þannig til að
Maja Árdal, sem er mjög virt í
hinum kanadíska leikhúsheimi, sá
verkið þegar það var sýnt í Þjóð-
leikhúsinu og kom því á framfæri
við leikhúsið,“ segir Andri Snær.
„Þetta er risastórt verkefni og
verður sýnt nánast á hverjum
degi í næstum tvo mánuði. Leik-
húsið er við eina aðalgötuna í
Toronto og er mjög virt.“
Andri fer á næstu dögum til
Toronto til að fylgja eftir síðustu
vikunni í æfingaferlinu. Hann
verður síðan viðstaddur frumsýn-
inguna og mun jafnframt taka
þátt í að kynna leikritið þar í borg.
„Þetta er frábært tækifæri og
leikhúsið er mjög metnaðarfullt.
Það er í góðum tengslum við skól-
ana og ætlar að vera með ráð-
stefnu í maí í tengslum við leikrit-
ið. Þá eiga krakkar að búa til verk-
efni um hvernig á að bæta heim-
inn. Síðan verður ráðstefna í lokin
þar sem börnin sýna afraksturinn
og ræða málefnin við stjórnmála-
menn, líffræðinga og fleiri aðila,“
segir hann.
Að sögn Andra er ekki mikið
framboð á nýjum, stórum barna-
leikritum í heiminum. Hann er
sannfærður um að Blái hnötturinn
geti farið á hvaða svið sem er,
enda skrifaði hann bókina með því
markmiði að hún yrði klassísk og
stæðist frægustu barnabókum
heims snúning. „Markmiðið var
að skrifa bók sem kæmist í hillu á
milli Bróður míns ljónshjarta,
Múmínálfanna og Lísu í Undra-
landi. Það var gott markmið því
þá gaf ég mér aukaár í að skrifa
söguna eftir að hún var orðin út-
gáfuhæf, sem var mjög gott.“
Eins og gefur að skilja eru
stjórnendur leikhússins hæstá-
nægðir með leikritið og boðskap-
inn á bak við það. „Þegar Maja Ár-
dal sýndi mér þetta leikrit frá Ís-
landi var ég strax hugfanginn af
„fljúgandi“ krökkum í leikhúsinu
okkar,“ segir Allen MacInnis, leik-
stjóri verksins og listrænn stjórn-
andi leikhússins. „Þegar ég var
búinn að lesa leikritið heillaðist ég
af fegurðinni í skrifum Andra og
hvernig börnin á Bláa hnettinum
bregðast við neikvæðum áhrifum
gerða sinna. Þetta er mjög
skemmtilegt og pólitískt verk
fyrir börn.“ freyr@frettabladid.is
BLÁI HNÖTTURINN Leikritið Blái hnötturinn verður sýnt í Toronto í Kanada á næstunni.
Ósanngjarnt
Mér fannst ekki sanngjarnt að
Nanna Kristín skyldi detta út
og það kom mér mjög á
óvart. Ég sá hana að vísu ekki
syngja allt lagið en þegar lög-
in voru sýnd aftur skildi ég
ekki alveg af hverju hún datt
út. Hún hefði allavega ekki átt
að detta út í þetta skipti og
það verður spennandi að sjá
hver dettur út næst. Annars er
Davíð Smári minn maður, ég
þekki hann og veit hvað hann
getur. Hann er mjög hæfileik-
aríkur söngvari. Hann á eftir
að ná langt – það er ekki
spurning.
Kom verulega á óvart
Ég er ekki frá því að þjóðin
hafi haft rangt fyrir sér í Idol-
inu. Mér fannst hún Vala eiga
mun meira skilið að detta
þarna út miðað við frammi-
stöðu þessa kvölds. Það kom
mér eiginlega verulega á
óvart að Nanna Kristín skyldi
detta út. Ég sá hana ekki einu
sinni fyrir mér í þremur
neðstu sætunum. Hingað til
hefur hún Heiða staðið sig
best. Hún er mögnuð söng-
kona og það kæmi mér ekki
á óvart ef hún myndi taka
þetta.
Þjóðin hafði rangt fyrir sér
Þjóðin hafði rangt fyrir sér að
fella Nönnu Kristínu úr leik. Ef
maður byggir á frammistöðu
keppenda þetta kvöld og
byggir ekki á neinu öðru, átti
hún ekki að detta út. Ég vil nú
ekki segja hver hefði átt að
detta út en þetta er allt sjálf-
sagt ágætis fólk og hæfileika-
ríkt. Ég held að ég haldi með
henni Heiðu en annars hélt
ég með Gísla Hvanndal og
þurfti að finna mér nýjan þeg-
ar hann datt út.
Nanna Kristín Jóhannsdóttir fékk fæst atkvæði í síðustu Idol-keppni og féll úr leik.
Skiptar skoðanir eru á því hvort áhorfendur hafi haft rangt fyrir sér eður ei þegar hún kaus.
HAFÐI ÞJÓÐIN RANGT FYRIR SÉR Í IDOLINU?
ALMA
GUÐMUNDSDÓTTIR
Söngkona í Nylon.
BALDUR
BALDURSSON,
Tónleikahaldari og út-
gefandi.
HUGI
HALLDÓRSSON,
Dagskrárgerðarmaður
á Popp tívi.
...fær Kristján Magnússon sund-
laugarvörður sem finnur allt sem
týnist í Vesturbæjarlauginni,
jafnvel augnlinsu.
HRÓSIÐ
Með Fréttablaðinu
alla fimmtudaga
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Lárétt: 2 hryggð, 6 skammst., 8 liðin
tíð, 9 blaut, 11 leit, 12 prýðilegt, 14
handarkriki, 16 tvíhljóði, 17 sterk, 18
dvelja, 20 skammst., 21 dyrastaf.
Lóðrétt: 1 listi, 3 samtenging, 4 þrif, 5
illgjörn, 7 laganna vörð, 10 þykir vænt
um, 13 nem, 15 krota, 16 til viðbótar, 19
rykkorn. Lausn:
Lárétt: 2 sorg,6kl,8gær, 9rök,11sá,
12ágætt,14greip, 16au,17kná,18
una,20gr, 21karm.
Lóðrétt: 1skrá,3og,4ræsting,5grá, 7
lögguna,10kær, 13tek,15pára,16auk,
19ar.
ANDRI SNÆR MAGNASON Andri Snær
Magnason bindur miklar vonir við leikrit
sitt, Bláa hnöttinn, í framtíðinni.
ANDRI SNÆR MAGNASON: BARNALEIKRIT FRUMSÝNT Í FEBRÚAR
Blái hnötturinn í Kanada