Fréttablaðið - 19.01.2005, Síða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: 585 8330, dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Aðal-vinningur erMEDION XXL tölva með 17”flatskjá!
99 kr/skeytið
* Vátryggjandi er Sjóvá-Almennar.
Láttu ekki fjármálin flækjast fyrir flér í náminu. fiú getur skrá› flig
í Námsmannafljónustuna í öllum útibúum Íslandsbanka e›a á isb.is.
SKRÁÐU ÞIG STRAX!
Frá framleiðendum Vekjarans, Flettarans og Skemmtarans kemur NÝJUNG Í NÁMI:
ÓKEYPIS FARTÖLVUTRYGGING*
HAGSTÆTT TÖLVUKAUPALÁN
• Viðbótarfjármögnun
• Yfirdráttarlán
• Ókeypis Silfurkort með ferðaávísun
• 50% afsláttur af greiðsluþjónustu
• Lán vegna LÍN á hagstæðum kjörum
... og margt, margt fleira.
Flókið mál
eða einfalt?
Hvenær drepur maður mann oghvenær drepur maður ekki
mann?“ eins og frægur prófessor
kemst svo fallega að orði. Og út frá
þessari pælingu er hægt að halda
áfram að spyrja: Hvenær lýgur
maður og hvenær segir maður satt?
Getur maður logið með því að segja
ekki beinlínis satt og sagt satt með
því að ljúga ekki beinlínis? Er þetta
rosalega flókið mál? Eða tiltölulega
einfalt?
GAMALL VINUR minn lenti í því
að skrifa upp á skuldabréf fyrir
gamlan félaga sinn. Víxillinn lenti í
vanskilum og á endanum þurfti vin-
ur minn að selja ofan af sér húsið til
að gjalda fyrir sinn staðfasta stuð-
ing við æskuvin sinn. Skítamál! En
verst var þó að eiginkona og börn
vinar míns, fjölskylda hans, stóð
ekki með honum í þessu. Fjölskyld-
an sagði að hann hefði ekki haft
neitt umboð til að skrifa upp á þetta
skuldabréf án þess að hafa samráð
við eiginkonu sína og jafnvel börn
þeirra.
VINUR minn segir að þetta sé tóm-
ur misskilningur. Hann hafi aldrei
gert ráð fyrir að þurfa að borga
þennan víxil. Hann hafi margoft
rætt við konu sína bæði um fjármál
yfirleitt, útgjöld heimilisins og löng-
un hans til að sýna vini sínum stað-
fasta vináttu og stuðning í lífinu;
þau hjónin hafi verið sammála um
að vinurinn hafi verið alls góðs mak-
legur. Konan segir að þetta sé lygi
og útúrsnúningur, manninum hafi
vel mátt vera það ljóst að hann hefði
enga heimild til að skuldbinda þau
bæði gagnvart þriðja aðila án henn-
ar vitundar og samþykkis.
HJÓNIN eru nú skilin að borði og
sæng og Gróa á Leiti segir að konan
sé búin að ráða Ragnar Aðalsteins-
son til að sjá til þess að hinn yfir-
gangssami eiginmaður fái makleg
málagjöld fyrir lygi og óheiðarleika.
Hún þverneitar líka að gefa mannin-
um eftir forræðið yfir börnum þeir-
ra og þar að auki ganga um það sög-
ur í bænum að hún sé farin að stíga í
vænginn við Össur Skarphéðinsson,
en aðrir segjast hafa séð hana vanga
við Steingrím Sigfússon í Glæsibæ.
Þetta er nefnilega staðföst kona sem
telur að það sé tiltölulega einfalt
mál að segja sannleikann og er búin
að missa alla trú á eiginmanninum –
en samt vonandi ekki karlmönnum
yfirleitt. ■
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR