Fréttablaðið - 30.01.2005, Síða 1

Fréttablaðið - 30.01.2005, Síða 1
ÓÁNÆGJA Í FRAMSÓKN Framsóknar- konur eru óánægðar með hallarbyltingu í fé- lagi framsóknarkvenna í Kópavogi. Óviðun- andi að karlmenn séu að skipta sér af kven- félögum flokksins. Sjá síðu 2 INGIBJÖRG VEÐURTEPPT Ekkert varð af sameiginlegum fundi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og Össurar Skarphéðinssonar á Akureyri í gær eins og auglýst hafði verið. Sjá síðu 2 STÝRISBLAÐ BROTNAÐI Flutninga- skip Eimskipafélagsins varð stjórnlaust fyrir austan land í fyrrakvöld. Týr hefur reynt að draga skipið að landi en dráttartaug hefur slitnað þrisvar. Sjá síðu 4 ABBAS OG SHARON FUNDA Búist er við því að Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, og Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fundi innan tveggja vikna. Sjá síðu 2 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 Kvikmyndir 30 Tónlist 30 Leikhús 30 Myndlist 30 Íþróttir 24 Sjónvarp 32 SUNNUDAGUR DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG 30. janúar 2005 – 28. tölublað – 5. árgangur STREKKINGUR NORÐAUSTAN- LANDS Hægari annars staðar. Kalt fyrir norðan í dag en hlýnar á morgun. Lítilsháttar úrkoma vestanlands. Sjá síðu 4 HEIL UMFERÐ Sex leikir verða í Inter- sport-deildinni í körfubolta klukkan 19.15. Liðin sem mætast eru: Grindavík – Fjölnir, Hamar/Selfoss – Njarðvík, KFÍ – Haukar, KR – Tindastóll, ÍR – Keflavík og Snæfell – Skallagrímur. Allt landið 18-49 ára Me›allestur dagblaða Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups nóvember 2004 MorgunblaðiðFréttablaðið 62% 38% Össur Skarphéðinsson: SÍÐA 18 ▲ Fiskar enn og vill standa áfram í brúnni SÍÐUR 16 & 17 ▲ Riðlakeppni HM í handbolta lauk í Túnis í gær: Strákarnir kvöddu með góðum sigri SÍÐUR 24 & 25 ▲ ÍRAK Flugskeyti var skotið á bandaríska sendiráðið í Bagdad í gær. Tveir Bandaríkjamenn létu lífið og fjórir særðust. Skömmu áður en flugskeytaárásin var gerð létust þrír íraskir lögreglumenn og fimm óbreyttir borgarar í sjálfsmorðsárás annars staðar í borginni. Gríðarleg ólga ríkir í landinu og er búist við því að óöldin haldi áfram í dag þegar þing- og sveit- arstjórnarkosningar fara fram. Uppreisnarmenn súnní-múslima hafa hótað hertum árásum og segja að spjótunum verði beint að kjörstöðum. Öryggisgæsla er gríðarlega mikil í landinu vegna þessa. Algjör óvissa ríkir um það hversu margir munu taka þátt í kosningunum en óttast er að stór hópur fólks mæti ekki á kjörstaði af ótta við árásir ofbeldismanna. George W. Bush, forseti Banda- ríkjanna, áréttaði í gær að kosn- ingarnar myndu ekki binda enda á hryðjuverkaárásir öfgamanna. Hann sagði hins vegar að þær mörkuðu upphafið að lýðræði í Írak og að friður væri í augsýn. Bush sagði að hryðjuverka- menn myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til að trufla kosning- arnar í dag. Það væri kannski skiljanlegt því hryðjuverkamenn- irnir hefðu hagnast á þeirri ógnar- stjórn sem ríkt hefði í landinu um áratugaskeið en með kosningunum væru breyttir tímar framundan. Alls eru um 5.300 kjörstaðir í landinu og opnuðu þeir klukkan fjögur í nótt. Kjörstaðir loka síðan klukkan tvö í dag. Búist er við því að það taki fjóra til fimm daga að telja atkvæðin. Alls er kosið um 275 þingsæti og verður fyrsta verk þingsins að skrifa nýja stjórnarskrá. Stefnt er því að nýr forsætisráðherra taki við stjórn landsins í byrjun mars og ríkis- stjórn verði mynduð í lok þess mánaðar. ■ Hlýtt á Íslandi en frost í Flórída Mikil hlýindi hafa verið hér á landi undanfarna daga. Á sama tíma hafa kuldaköst gengið yfir Bandaríkin og víða um Evrópu. Kosningar í Írak í skugga ofbeldis Kjörstaðir opnuðu í Írak klukkan fjögur í nótt. Óöld ríkir í landinu og var flugskeyti skotið á bandaríska sendiráðið í Bagdad í gær. Forseti Bandaríkjanna segir að kosningarnar muni ekki binda enda á hryðjuverkaárásir. Þær séu hins vegar upphafið að nýjum tímum í landinu. SULLAÐ VIÐ SUNNUHLÍÐ Á AKUREYRI Um 10 stiga hiti hefur verið á Akureyri undanfarna daga og er snjór óðum að hverfa. Á laugardaginn var stíflað niðurfall í götu við verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð og myndaði snjóbráðin um 40 cm djúpt götulón. Gangandi vegfarendur komust ekki hjá því að blotna en sumir ökumenn höfðu gaman af. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /K K Hvassviðri á Norðurlandi: Flutningabíll fauk út af VEÐURTJÓN Gámaflutningabíll með tengivagn fauk út af veginum skammt norðan Akureyrar í gær. Ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Fjórð- ungssjúkra- hússins á A k u r e y r i en meiðsli hans reynd- ust ekki al- v a r l e g . Hvasst var á Norður- landi að- f a r a n ó t t laugardags og í gær en samkvæmt sjálfvirkum mæli Veðurstofunnar á Akureyri fór vindhraðinn hátt í 30 m/s í hviðum. Að sögn lögreglunnar á Akur- eyri var nokkuð um að hlutir væru að fjúka í bænum aðfaranótt laugardags og fram eftir degi í gær. Þakplötur sem geymdar voru á skúrþaki, skammt frá þar sem flutningabíllinn valt, fuku yfir þjóðveginn og að sögn lögreglunn- ar var lán að enginn varð fyrir þeim. Töluvert var um að kerrur og aðrir lauslegir munir fykju í hvassviðrinu en lögreglu var ekki tilkynnt um alvarlegt eignatjón eða slys á fólki. - kk Á SLYSSTAÐ Svo hvasst var á Norðurlandi í gær að gámaflutningabíll fauk út af vegi norðan Akureyrar.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.