Fréttablaðið - 30.01.2005, Page 2

Fréttablaðið - 30.01.2005, Page 2
2 30. janúar 2005 SUNNUDAGUR Fundur Samfylkingarinnar á Akureyri: Össur lét klappa fyrir Ingibjörgu Sólrúnu SAMFYLKINGIN Ekkert varð af sam- eiginlegum fundi Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur og Össurar Skarphéðinssonar á Akureyri í gær eins og auglýst hafði verið. Í tilkynningu frá Ingibjörgu, sem lesin var upp á fundinum, sagðist hún vera veðurteppt í Reykjavík en ekki var flogið á milli Akureyrar og Reykjavíkur í gær. Össur og Kristján Möller, fyrsti þingmaður Samfylkingar- innar í Norðausturkjördæmi, komust hins vegar á fundinn með því að fljúga frá Reykjavík til Sauðárkróks í gær og aka þaðan til Akureyrar. Ekki var gefin skýring á því á fundinum afhverju Ingi- björg Sólrún notaði ekki sömu að- ferð til að komast norður. Össur kom lítið inn á væntan- legan formannsslag í Samfylking- unni en bað fundargesti að klappa fyrir Ingibjörgu Sólrúnu. „Við höfum verið vinir í bráðum 30 ár. Við eigum sömu tengdaforeldra og hefur vinátta okkar verið góð og einlæg. Við verðum áfram vin- ir ef ég fæ einhverju um það ráð- ið,“ sagði Össur. - kk Ariel Sharon og Mahmoud Abbas: Fundur innan tveggja vikna ÍSRAEL, AP Búist er við því að Mah- moud Abbas, forseti Palestínu, og Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fundi innan tveggja vikna. Shaul Mofaz, varnarmálaráð- herra Ísraels, og Mohammed Dahlan, yfirmaður öryggismála í Palestínu, hittust síðdegis í gær til að undirbúa fund Abbas og Sharons. Þó að samskipti ísraelskra og palestínskra stjórnvalda séu að batna eru áherslur æðstu yfirmanna um hvaða mál eigi að vera á dag- skrá fundarins ólíkar. Ísraelar vilja fyrst og fremst ræða ör- yggismál. Palestínumenn vilja hins vegar ræða fleiri mál eins og sameiginlega yfirlýsingu um vopnahlé, möguleikann á því að sleppa stórum hluta palest- ínskra fanga í Ísrael og endur- vakningu friðarviðræðna. Nabil Saath, utanríkisráðherra Palestínu, sagði í gær að stjórn- völd væru langt komin með að ná samkomulagi við Hamas og Jihad um vopnahlé. Hann sagði að full- trúar samtakanna myndu funda með egypskum stjórnvöldum í næstu viku og vonast væri eftir því að samkomulagið yrði innsigl- að þar. ■ Hörð viðbrögð á hjúkrunarheimili: 75 ára skotin með rafbyssu BANDARÍKIN, AP Lögreglukona hef- ur fengið viðvörun eftir að hafa notað fimmtíu þúsund volta raf- byssu gegn 75 ára gamalli konu á hjúkrunarheimili. Gamla konan varð æst þegar hún gat ekki fundið veikan vin sinn á heimilinu. Lögreglukonan reyndi að hafa hemil á henni en gamla konan reif sig í burtu frá henni og sló til hennar. Þá greip lögreglukonan til þess ráðs að nota rafbyssuna og það þótti yfir- mönnum hennar full hart. Lög- reglukonan fékk því viðvörun og var send á endurmenntunarnám- skeið. ■ SISSEL KIRKJEBÖ Hún kemur til Íslands í september og heldur tónleika. Hún er þekkt söngkona og söng meðal annars lag í kvikmyndinni Titanic. Sissel Kirkjebö Á leiðinni til Íslands TÓNLEIKAR Norska söngkonan Sissel Kirkjebö er á leið til lands- ins og mun halda tónleika í Há- skólabíói 30. september. Þetta er í fyrsta sinn sem Sissel kemur hingað þrátt fyrir að eiga stóran hóp aðdáenda hérlendis. Sissel hefur verið líkt við söngkonuna Enyu og söng Sissel meðal annars lag í hinni gífurlega vinsælu kvik- mynd, Titanic. Hún hefur einnig látið að sér kveða í hiphop heimin- um því árið 1997 gaf hún út lagið „Prince Igor“ ásamt rapparanum Warren G. Sissel mun koma fram ásamt strengjasveit og barnakór á tónleikunum. Miðasala hefst um miðjan mars en aðeins 900 sæti eru í boði. ■ Við leggjum heiminn að fótum þér... Einn stærsti og virtasti ferðaskipuleggjandi heims fagnar árs afmæli sínu á Íslandi en á næsta ári mun Kuoni halda upp á 100 ára afmæli sitt. Frá upphafi hefur Kuoni lagt höfuðáherslu á fjölbreytni, öryggi og hagstætt verð. Kynntu þér frábæra ferðamöguleika á ótrúlega hagstæðu verði! • Pantaðu glæsilegan bækling • Hringdu eða komdu í heimsókn á skrifstofu okkar Holtasmára 1 • 201 Kópavogi • Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309 www.kuoni.is SPURNING DAGSINS Guðjón, vantaði ekki grimmd í liðið? Það vantaði spýtu og það vantaði sög. Guðjón Þórðarson náði góðum árangri sem landsliðsþjálfari í knattspyrnu. Það var hins vegar lágt risið á íslenska landsliðinu í handknattleik á heimsmeistaramótinu í Túnis og liðið komst ekki upp úr riðlakeppni. FUNDU AMFETAMÍN Lögreglan í Borgarnesi hafði í nótt afskipti af ökumanni við hefðbundið umferð- areftirlit. Tveir menn sem áður hafa komið við sögu lögreglunnar voru í bifreiðinni og ákveðið var að leita í henni. Við leitina fundust fjögur grömm af amfetamíni og voru mennirnir handteknir. ■ LÖGREGLUFRÉTTIR STJÓRNMÁL Heitar umræður urðu um átök í Freyju, félagi framsóknar- kvenna í Kópavogi, á fundi Lands- sambands framsóknarkvenna í gær. Á aðalfundi Freyju í liðinni viku gengu 43 konur í félagið og felldu Unu Maríu Óskarsdóttur, varafor- mann félagsins, úr stjórninni. Una er einnig formaður Landssambands framsóknarkvenna og fyrrverandi aðstoðarmaður Sivjar Friðleifsdótt- ur í umhverfisráðuneytinu. Talað hefur verið um hallarbylt- ingu í félaginu og látið liggja að því að tilgangur með henni sé að koma Páli Magnússyni, aðstoðarmanni Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðar- ráðherra og bróður Árna Magnús- sonar félagsmálaráðherra, að sem oddvita framsóknarmanna í bæjar- stjórn Kópavogs. Á fundinn á Hótel Borg mættu allar þingkonur flokksins og um þrjátíu konur í allt en engin þeirra kvenna sem gengu í Freyju í vik- unni. Þungt hljóð var í mörgum og þótti sumum sem Freyja hefði verið hertekin af bandamönnum Páls og Árna. Með innkomu kvennanna fjölgaði stuðningsmönnum bræðr- anna verulega. Konurnar skráðu sig í félagið sama dag og fundurinn fór fram með aðstoð Aðalheiðar Sigur- sveinsdóttur, konu Páls, og á meðal þeirra var Edda Björg Hákonar- dóttir, eiginkona Árna Magnússon- ar. Viðmælandi blaðsins úr röðum framsóknarkvenna, sem vildi ekki láta nafn síns getið, sagði að fram- koma kvennanna á fundinum gæti hafa verið lögleg en sé örugglega siðlaus. Fundurinn hefur verið kærður til laganefndar Framsókn- arflokksins sem fjallar um málið í næstu viku. Á fundinum í gær var rætt um að óheppilegt hafi verið að Páll og Árni Magnússynir stæðu svo nærri byltingu innan kvenfélags í flokknum, það væri eins og að hleypa refum inn í hænsnabú. „Það er óviðunandi að karlmenn séu komnir með hendurnar inn í kven- félögin,“ sagði viðmælandi blaðsins. Siv Friðleifsdóttur sagði á heima- síðu sinni í gær að flokksmönnum misbjóði að ítrekað skuli stofnað til ófriðar í flokknum. Bryndís Bjarnason, jafnréttis- fulltrúi Framsóknarflokksins, segir að Landssambandið ætli að berjast fyrir því á komandi flokksþingi Framsóknarflokksins að í lög flokksins verði sett ákvæði um að í forystu flokksins verði konur aldrei færri en fjörutíu prósent fulltrúa. ghg@frettabladid.is ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON FORMAÐUR SAMFYLKINGARINNAR Frummælendur á fundinum, auk Össurar, voru þingmennirnir Kristján Möller og Einar Már Sigurðarson og varaþingmaðurinn Lára Stefánsdóttir. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /K K FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R KVENNAFUNDUR Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, að loknum fundi Landssambands framsóknarkvenna í gær. Þær ætla á komandi flokksþingi að berjast fyrir auknum hlut kvenna í áhrifastöðum á vegum flokksins. Eins og minkar í hænsnabúi Framsóknarkonur eru óánægðar með hallarbyltingu í félagi framsóknar- kvenna í Kópavogi. Viðmælandi blaðsins segir óviðunandi að karlmenn skipti sér af kvenfélögum flokksins. Spjótin standa á félagsmálaráðherra. UMDEILDIR BRÆÐUR Margar framsóknarkonur telja að bandamenn Páls og Árna Magn- ússonar hafi hertekið kvenfélag framsóknarkvenna í Kópavogi. Íslensk flugfélög: Skærur á milli félaga SAMKEPPNI Starfsmaður Icelandair klippti auglýsingar Iceland Ex- press úr bæk- lingum Ferða- málaráðs á ferða- kaupstefnu á Spáni á miðviku- dag. Ólafur Hauks- son, talsmaður Iceland Express, segir að það sé dýrt að kaupa auglýsingar í bæklingnum. „Það er sérkennilegt að starfsmenn Icelandair skemmi auglýsingar sem birtast í opinberum bæklingi.“ Hann segir þetta annað tilfellið á stuttum tíma sem félagið standi í skærum við Iceland Express. „Það er ekki langt síðan þeir tengdu net- slóðina icelandexpress.org við heimasíðu Icelandair.“ Ekki náðist í Guðjón Arn- grímsson upplýsingafulltrúa Icelandair. ■ ÓLAFUR HAUKSSON ARIEL SHARON Forsætisráðherra Ísraels vill aðeins ræða öryggismálin við Abbas.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.