Fréttablaðið - 30.01.2005, Page 10
Eftir helgina kemur út ný bók eft-
ir Pál Skúlason, háskólarektor og
prófessor í heimspeki, sem gefin
er út á fjórum tungumálum í
senn, íslensku, ensku, frönsku og
þýsku. Bókin heitir Hugleiðingar
við Öskju en í henni leggur Páll út
af stórbrotnu náttúrufari við
Öskju og veltir upp hugleiðingum
um eðli trúarbragða og stöðu
mannsins í heiminum.
Grundvöllur trúarinnar
Þó svo að Páll noti Öskju sem út-
gangspunkt í bók sinni segir hann
fólk vissulega geta orðið fyrir
þeirri reynslu af náttúrunni sem í
henni er lýst við allt aðrar að-
stæður. „Eins gæti eitthvað ör-
smátt í náttúrunni vakið þessa
reynslu af sjálfstæðum veruleika
óháðum vitund okkar, fullum af
leyndardómum,“ segir hann, en
slíkri upplifun fylgir gjarnan
einnig vitundin um eigin smæð,
vanmátt og takmarkanir. „Við
fæðumst þarna inn í heim sem er
óendanlega stórkostlegur ef svo
má orða það,“ segir hann og telur
að þarna sé komin tilfinningin
sem liggi trúarbrögðum til
grundvallar. „Andspænis þessum
sjálfstæða náttúrulega veruleika
uppgötvum við okkur sem vitandi
verur og líf okkar verður fólgið í
því að mynda tengsl, eða sam-
band, við þennan veruleika og
okkar á milli. Þetta samband er
andlegt og þar með eiginlega af
trúarlegum toga, en svo getur
það auðvitað þróast á marga ólíka
vegu.“ Páll segist ekki óttast að
fólki finnist vegið að trú sinni
með því að skilgreina trúarþörf-
ina á þennan hátt. „Ég er heldur
ekki að fjalla um hin breytilegu
trúarbrögð, heldur um ákveðna
sammannlega reynslu. Ef eitt-
hvað er, þá er í þessu fólgin
ákveðin viðurkenning á mikil-
vægi trúarbragða almennt, hver
sem þau eru.“
Hugleiðingar við Öskju eru
hins vegar ekki bara heimspeki-
rit heldur einnig nokkurs konar
handbók ferðafólks, ríkulega
skreytt ljósmyndum Guðmundar
Ingólfssonar. „Ég vona að hún
gagnist fólki þegar það ferðast
um landið,“
segir Páll og
vísar til
þess hvern-
ig fólk leit-
ast við að
hverfa úr
sínu hvers-
d a g s l e g a
umhverfi í
fríum í leit
að endurnýj-
un, hvíld og
hress ingu.
„Þá virðist
g j a r n a n
vera freist-
andi að
reyna að
e n d u r u p p -
götva eða endurupplifa náttúr-
una. Í því sambandi getur auðvit-
að verið gagnlegt fyrir fólk að
hafa einhvern texta til að íhuga.“
Meira fé í skólana
Líta má á útkomu nýrra bóka sem
ákveðin tímamót, en Páls Skúla-
sonar bíða önnur tímamót í vor
þegar hann lætur af starfi rekt-
ors Háskóla Íslands. „Ég fer aft-
ur í prófessorsstarfið og mín
fræði,“ segir hann og kveður það
munu verða spennandi að koma
aftur að fræðunum. „Það er nátt-
úrlega sá heimur sem ég hef ver-
ið að vinna í,“ segir hann og játar
því að vera þegar farinn að leggja
í huganum grunn að næstu bók-
um. „Maður er auðvitað alltaf að
því, en það er kannski full-
snemmt að segja til um þá hluti.“
Páll segist mjög sáttur við tíð
sína sem rektor, en hann hefur
gegnt starfinu í um átta ára skeið.
„Þetta hefur verið afskaplega
skemmtilegur tími og tilbreyt-
ingaríkur. Starfið er fjölbreytt og
viðfangsefnin mörg og ólík.
Þarna fékk ég tækifæri til að
kynnast háskólafólki og háskól-
anum á alveg nýja vegu og ég er
þakklátur fyrir að hafa fengið að
vera í þessu hlutverki.“ Skólinn
hefur í rektorstíð Páls gengið í
gegnum miklar breytingar og
vaxið, bæði hvað varðar fjölda
nemenda og námsframboð. Páll
segir mestu nýmælin fólgin í
auknu framboði meistara- og
doktorsnáms. „Þegar ég er að
byrja voru um 100 nemendur í
meistaranámi en núna eru um
1.500 í meistara- og doktorsnámi.
Þetta er gjörbylting í starfi Há-
skólans og hefur verið stórkost-
legt ævintýri,“ segir Páll og telur
óvíst að þjóðfélagið hafi enn upp-
götvað hversu mikla þýðingu það
hafi að hafa að bjóða svo öflugt
nám. „Þessi vöxtur allur kallar
vitanlega á meira fé, aukið hús-
næði og bættar aðstæður, um leið
og nýta þarf peninga og húsnæð-
ið sem fyrir er betur en nokkru
sinni. Það höfum við reynt að
gera um leið og við höfum kallað
eftir meiri fjármunum. Hins veg-
ar er alveg ljóst að þjóðfélagið
þarf að leggja mun meira í há-
skólana. Þessi aukna menntun í
meistara- og doktorsnámi er ein-
faldlega framtíðin og krafa þjóð-
félagsins er að stofnanir eins og
Háskólinn sinni þessum verkefn-
um sem síðan skila sér með óend-
anlega breytilegum og margvís-
legum hætti út í þjóðfélagið.“ ■
10 30. janúar 2005 SUNNUDAGUR
SIR WINSTON CHURCHILL (1874-1965)
var borinn til grafar þennan dag.
Ný bók að koma
og starfslok í vor
TÍMAMÓT: PÁLL SKÚLASON REKTOR HÁSKÓLA ÍSLANDS
„Sjálfur er ég alltaf til í að læra, þó svo að
mér hugnist ekki alltaf að láta kenna mér.“
Útför stjórnmálajöfursins sem var forsætisráðherra Breta í seinni
heimsstyrjöldinni fór fram að viðstöddu fjölmenni, fyrirfólki víða að
úr heiminum sem og bresku hefðarfólki.
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI
Þorbjörn Broddason fjöl-
miðlafræðingur er 62 ára
í dag.
Kolbrún Jarlsdóttir kvik-
myndagerðarmaður er
fimmtug í dag.
ANDLÁT
Roy Ó. Breiðfjörð lést miðvikudaginn
19. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrr-
þey.
Gylfi Árnason, Snægili 30, Akureyri, lést
laugardaginn 22. janúar.
Henný Dagný Sigurjónsdóttir, áður
Laugarnesvegi 42, Reykjavík, lést á
Hjúkrunarheimilinu Skjóli, miðvikudag-
inn 26. janúar.
Jóhannes Oddsson, glerskurðarmeistari,
Vesturgötu 57A, lést miðvikudaginn 26.
janúar.
Halldóra Jóhannsdóttir, Hjallabraut 88,
Hafnarfirði, lést fimmtudaginn 27. janúar.
Sigrún Magnúsdóttir Lucchesi, áður
Vesturgötu 7, Reykjavík, lést fimmtudag-
inn 27. janúar.
Þennan dag árið 1933 sór Adolf
Hitler embættiseið sem ríkis-
kanslari og náði völdum í Þýska-
landi. Þar með náði nasistaflokk-
urinn undirtökunum í þýsku
þjóðlífi í gegnum margvíslega
lagasetningu sem ýtti undir völd
flokksins og gerði öðrum erfiðara
fyrir.
Næstu sex ár umbreytti Hitler
Þýskalandi þannig að úr varð lög-
regluríki. Við tók uppbygging
hersins, sem þó var brot á Ver-
salassáttmálanum frá árinu 1919.
Á alþjóðasviðinu þóttist Hitler
maður samninga og átti í vin-
samlegum viðræðum við aðrar
Evrópuþjóðir um leið og hann
lýsti yfir einlægum friðarvilja.
Árið 1938 hóf Hitler svo yfir-
gangsama landvinningastefnu og
leit að „lífsrými“ eða „lebens-
raum.“ Hvorki Bretland, Frakk-
land né Rússland vildu hætta á
stríð og létu því undan yfirgangs-
semi Þjóðverja. Þannig tókst
Þýskalandi að innlima nágranna-
ríkið Austurríki og sneiða til sín
hluta af Tékkóslóvakíu. Þá hót-
uðu Bretar og Frakkar um síðir
að stríð myndi brjótast út ef
Þýskaland leggði í Pólland eða
Rúmeníu.
Það var svo í september árið
1939 að Þýskaland réðst inn í Pól-
land. Bretlandi og Frakklandi var
þá nauðugur einn kostur að lýsa
yfir stríði á hendur landinu og
seinni heimsstyrjöldin braust út.
ADOLF HITLER
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1649 Karl I Bretakonungur er
hálshöggvinn.
1935 Húsmæðrafélag Reykjavík-
ur stofnað.
1948 Mahatma Gandhi lætur líf-
ið í banatilræði á Indlandi.
1957 Sameinuðu þjóðirnar fara
fram á að Suður-Afríka
endurskoði aðskilnaðar-
stefnu sína.
1972 „Blóðugi sunnudagurinn“
þegar breskir hermenn
drápu þrettán manns í
mannréttindagöngu kaþ-
ólikka á Norður-Írlandi.
1982 Snjóflóð fellur í Ingólfsfjalli í
Ölfusi með þeim afleiðing-
um að piltur og stúlka farast.
2002 Rómversk-kaþólska kirkjan
á Írlandi samþykkir bóta-
greiðslur upp á 6 til 7
hundruð milljónir króna til
barna sem prestar kirkj-
unnar hafa misnotað síð-
ustu áratugi.
Hitler varð ríkiskanslari í Þýskalandi
Tilkynningar um merkisatburði,
stórafmæli, andlát og jarðarfarir
í smáletursdálkinn hér að ofan
má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma
550 5000.
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is
MOSAIK
af legsteinum
gegn staðgreiðslu
í janúar og febrúar
Sendum myndalista
15% afsláttur
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Sigurður Baldursson
hæstaréttarlögmaður,
lést föstudaginn 28. janúar. Útför hans verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Lilja Bernhöft, Baldur Sigurðsson og Gísli Sigurðsson.
1882 Franklin D. Roosevelt, forseti
Bandaríkjanna.
1927 Olof Palme, for-
sætisráðherra Sví-
þjóðar.
1930 Gene Hackman,
leikari.
1937 Boris Spasskí,
heimsmeistari í skák.
1937 Vanessa Red-
grave, leik-
kona.
1947 Steve Marriott, tónlistarmaður.
1951 Phil Collins, tónlistarmaður.
1958 Brett Butler, leik-
kona.
1959 Jody Watley, söng-
kona.
1974
Christian Bale, leikari.
1979 Diva Zappa, dóttir
Franks Zappa.
FÆDDUST ÞENNAN DAG
HUGLEIÐINGAR VIÐ
ÖSKJU Bókin kemur út
á fjórum tungumálum,
hér að ofan er enska út-
gáfan sem ber heitið
„Meditations at the edge
of Askja“.
PÁLL SKÚLASON HÁSKÓLAREKTOR Í byrjun vikunnar kemur út ný bók eftir Pál sem farinn er að horfa til frekari skrifa þegar hann
lætur af störfum sem rektor í vor.