Fréttablaðið - 30.01.2005, Síða 12

Fréttablaðið - 30.01.2005, Síða 12
Eigendur bankanna ljóma af gleði eftir upp- skeru ársins. Hagnaður Landsbankans í fyrra er til dæmis svipaður og verðið sem Samson greiddi fyrir kjölfestu- hlut sinn í bankanum. Árið 2004 kemur ekki aftur en horfurnar fyrir þetta ár eru ágætar. Stærstu fjármálafyrirtækin geta glaðst yfir árangri síðasta árs. Hagnaður hefur aldrei verið meiri og reksturinn virðist í góð- um gír. Samanlagður hagnaður fjögurra banka á síðasta ári var yfir 46 milljarðar króna. Mest kom á óvart uppgjör Landsbankans sem skilaði 12,7 milljarða hagnaði. Hagnaðurinn var töluvert umfram spár, en bankinn er ásamt Straumi með mestar eignir hlutfalllslega í hlutabréfum. Hlutabréf lækkuðu töluvert á síðasta fjórðungi og mega stjórnendur Straums og Landsbankans vel við una að ná rekstrarárangri fjórðungsins mið- að við aðstæður á hlutabréfa- markaði. Sterkt fyrsta ár hjá Straumi Uppgjör Straums var undir spám greiningardeilda, en mikill vöxtur er í útlánum bankans sem ætti til framtíðar að gera tekjurnar jafn- ari og dreifa áhættu. Straumur hefur verið áberandi á innlendum hlutabréfamarkaði og oft á tíðum reynst vera töluvert hreyfiafl á markaðnum. Bankinn hefur að undanförnu tekið þátt í erlendum verkefnum og leiddi fjármögnun kaupa Íslendinga á Magasin du Nord. Straumur hagnaðist um 6,4 milljarða á fyrsta starfsári sínu sem banki. Verkefni bankans á ár- inu verður meðal annars að leysa úr stöðunni með eign sinni í Ís- landsbanka. Eignin í Íslandsbanka dregst frá eigin fé bankans og miðað við mikinn vöxt í starfsem- inni getur eignarhluturinn þegar fram í sækir farið að standa vext- inum fyrir þrifum. Fjármálaeftir- litið telur ekki standast til fram- tíðar að bankinn eigi bæði hlut í Íslandsbanka og Tryggingamið- stöðinni til lengri tíma. Straumur mun því í nánustu framtíð taka ákvarðanir um þessar eignir sem munu efalítið valda einhverjum titringi þegar lagt verður í hann. Uppgjör Landsbankans kom þægilega á óvart Landsbankinn er einnig í örum vexti og hefur enn sem komið er ekki ráðist í kaup á erlendum banka, en flestir búast við því að skammt sé í fréttir af útrás bank- ans. Uppgjör bankans er geysi- gott og arðsemi eiginfjár er um 50 prósent. Margir hafa óttast vaxta- verki af stækkun bankans, en uppgjör síðasta árs bendir til þess að reksturinn fylgi vextinum. Bankinn hefur aukið útlán sín verulega og framtíðin ein getur sagt til um hversu góð lánin eru. Uppgjör bankans kom markaðn- um þægilega á óvart og hækkaði gengi bankans við birtingu. Bank- inn hafði auk þess hækkað nokkuð dagana fyrir uppgjörið. Traustar undirstöður í KB og Ís- landsbanka Afkoma Íslandsbanka og KB banka einkenndist af sterkum undirstöðum. Íslandsbanki á orðið nokkuð langa samfellda sögu góðs rekstrarárangurs og árið í fyrra var engin undantekning. Bankinn skilaði 11,4 milljarða hagnaði, en starfsemi Sjóvár Almennra dró afkomuna niður á fjórða ársfjórð- ungi. KB banki hagnaðist um 15,8 milljarða sem er Íslandsmet í hagnaði. Sama má segja um upp- gjör KB banka og Íslandsbanka að undirstöðurnar eru mjög traustar. Báðir þessir bankar eru með mjög hátt eigið fé. Íslandsbanki mun nota það til að borga fyrir BN bank í Noregi og KB banki er lík- legur til þess að kaupa Singer and Friedlander í London, auk þess sem bankinn hyggst byggja upp starfsemi sína í Finnlandi og Nor- egi þegar tækifæri gefast. Stöð- ugleikinn í rekstri Íslandsbanka og KB banka gefur fyrirheit um að áframhald verði á góðum hagn- aði í ár. Hagnaður KB banka ætti að verða meiri í ár en í fyrra ef tekið er mið af kröfu bankans sjálfs um arðsemi eigin fjár. Sama gildir um Íslandsbanka. Tilkoma BN bank í bækur bankans um mitt þetta ár ættu að geta skilað bank- anum áframhaldandi góðum hagnaði. Framhaldið hjá Landsbankan- um ræðst af því hvort innri vöxt- urinn heldur áfram af sama krafti og verið hefur og hvort ráðist verði í erlend kaup. Draga kann til tíðinda í því á næstunni. Gott framhald hjá Straumi ræðst ann- ars vegar af uppbyggingu lána- starfseminnar sem hefur vaxið að undanförnu, svo og af því hvernig greitt verður úr flækjunni varð- andi eignarhald TM og Íslands- banka. Annaðhvort mun Straumur taka þátt í orrustu um yfirráð Landsbankans í Íslandsbanka eða að leitað verði kaupanda að kjöl- festuhlutnum í bankanum. Horfur í ár bjartar Horfurnar hjá bönkunum eru al- mennt góðar fyrir þetta ár. Mikill kraftur og metnaður einkennir rekstur þeirra allra. Efnahags- horfur eru góðar, þótt varla verði hægt að búast við viðlíka ytri skil- yrðum og voru á síðasta ári. Upp- gjör bankanna eru það góð að menn eiga erfitt með að hallmæla árangri keppinautanna. Viðhorfið er: „Þetta er fínt hjá þeim – en við erum bestir.“ haflidi@frettabladid.is thkjart@frettabladid.is 12 30. janúar 2005 SUNNUDAGUR vidskipti@frettabladid.is nánar á visir.is Stærstu fjármálafyrirtækin geta glaðst yfir árangri síðasta árs. Hagnaður hefur aldrei verið meiri og reksturinn virðist í góðum gír. Samanlagður hagnaður fjögurra banka á síðasta ári var yfir 46 milljarðar króna. 9 3 Nafnávöxtun frá 01.12.2004 - 31.12.2004 á ársgrundvelli                   !"# !        $  %    $&  '() % *+, ! % -  .   .. / $&   &  $            Dýrðarár bankanna AFKOMA BANKANNA ÁRIÐ 2004 (Allar tölur í milljörðum króna) Breyting Arðsemi Eiginfjár- Eignir Markaðs- Hagnaður frá 2003 eigin fjár hlutfall í lok árs verðmæti* KB banki 15,8 110% 22,6% 14,2% 1.534 329 Íslandsbanki 11,4 96% 40,0% 12,6% 675 150 Landsbankinn 12,7 330% 50,1% 10,4% 730 113 Straumur 6,4 68% 34,5% 15,5% 90 55 *Markaðsverðmæti við lokun markaðar á föstudag. KÁTIR BANKASTJÓRAR Þeir Sigurður Einarsson, starfandi stjórnarformaður KB banka, Hall- dór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, og Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, geta allir unað glaðir við sitt. Bankarnir virðast traustir í sessi sem hlýtur að gleðja sessunaut bankamannanna á þessari mynd, Pál Gunnar Pálsson, forstjóra Fjármálaeftirlitsins. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.