Fréttablaðið - 30.01.2005, Qupperneq 12
Eigendur bankanna
ljóma af gleði eftir upp-
skeru ársins. Hagnaður
Landsbankans í fyrra er
til dæmis svipaður og
verðið sem Samson
greiddi fyrir kjölfestu-
hlut sinn í bankanum.
Árið 2004 kemur ekki
aftur en horfurnar fyrir
þetta ár eru ágætar.
Stærstu fjármálafyrirtækin geta
glaðst yfir árangri síðasta árs.
Hagnaður hefur aldrei verið
meiri og reksturinn virðist í góð-
um gír. Samanlagður hagnaður
fjögurra banka á síðasta ári var
yfir 46 milljarðar króna.
Mest kom á óvart uppgjör
Landsbankans sem skilaði 12,7
milljarða hagnaði. Hagnaðurinn
var töluvert umfram spár, en
bankinn er ásamt Straumi með
mestar eignir hlutfalllslega í
hlutabréfum. Hlutabréf lækkuðu
töluvert á síðasta fjórðungi og
mega stjórnendur Straums og
Landsbankans vel við una að ná
rekstrarárangri fjórðungsins mið-
að við aðstæður á hlutabréfa-
markaði.
Sterkt fyrsta ár hjá Straumi
Uppgjör Straums var undir spám
greiningardeilda, en mikill vöxtur
er í útlánum bankans sem ætti til
framtíðar að gera tekjurnar jafn-
ari og dreifa áhættu. Straumur
hefur verið áberandi á innlendum
hlutabréfamarkaði og oft á tíðum
reynst vera töluvert hreyfiafl á
markaðnum. Bankinn hefur að
undanförnu tekið þátt í erlendum
verkefnum og leiddi fjármögnun
kaupa Íslendinga á Magasin du
Nord. Straumur hagnaðist um 6,4
milljarða á fyrsta starfsári sínu
sem banki. Verkefni bankans á ár-
inu verður meðal annars að leysa
úr stöðunni með eign sinni í Ís-
landsbanka. Eignin í Íslandsbanka
dregst frá eigin fé bankans og
miðað við mikinn vöxt í starfsem-
inni getur eignarhluturinn þegar
fram í sækir farið að standa vext-
inum fyrir þrifum. Fjármálaeftir-
litið telur ekki standast til fram-
tíðar að bankinn eigi bæði hlut í
Íslandsbanka og Tryggingamið-
stöðinni til lengri tíma. Straumur
mun því í nánustu framtíð taka
ákvarðanir um þessar eignir sem
munu efalítið valda einhverjum
titringi þegar lagt verður í hann.
Uppgjör Landsbankans kom
þægilega á óvart
Landsbankinn er einnig í örum
vexti og hefur enn sem komið er
ekki ráðist í kaup á erlendum
banka, en flestir búast við því að
skammt sé í fréttir af útrás bank-
ans. Uppgjör bankans er geysi-
gott og arðsemi eiginfjár er um 50
prósent. Margir hafa óttast vaxta-
verki af stækkun bankans, en
uppgjör síðasta árs bendir til þess
að reksturinn fylgi vextinum.
Bankinn hefur aukið útlán sín
verulega og framtíðin ein getur
sagt til um hversu góð lánin eru.
Uppgjör bankans kom markaðn-
um þægilega á óvart og hækkaði
gengi bankans við birtingu. Bank-
inn hafði auk þess hækkað nokkuð
dagana fyrir uppgjörið.
Traustar undirstöður í KB og Ís-
landsbanka
Afkoma Íslandsbanka og KB
banka einkenndist af sterkum
undirstöðum. Íslandsbanki á orðið
nokkuð langa samfellda sögu góðs
rekstrarárangurs og árið í fyrra
var engin undantekning. Bankinn
skilaði 11,4 milljarða hagnaði, en
starfsemi Sjóvár Almennra dró
afkomuna niður á fjórða ársfjórð-
ungi.
KB banki hagnaðist um 15,8
milljarða sem er Íslandsmet í
hagnaði. Sama má segja um upp-
gjör KB banka og Íslandsbanka að
undirstöðurnar eru mjög traustar.
Báðir þessir bankar eru með mjög
hátt eigið fé. Íslandsbanki mun
nota það til að borga fyrir BN
bank í Noregi og KB banki er lík-
legur til þess að kaupa Singer and
Friedlander í London, auk þess
sem bankinn hyggst byggja upp
starfsemi sína í Finnlandi og Nor-
egi þegar tækifæri gefast. Stöð-
ugleikinn í rekstri Íslandsbanka
og KB banka gefur fyrirheit um
að áframhald verði á góðum hagn-
aði í ár. Hagnaður KB banka ætti
að verða meiri í ár en í fyrra ef
tekið er mið af kröfu bankans
sjálfs um arðsemi eigin fjár. Sama
gildir um Íslandsbanka. Tilkoma
BN bank í bækur bankans um mitt
þetta ár ættu að geta skilað bank-
anum áframhaldandi góðum
hagnaði.
Framhaldið hjá Landsbankan-
um ræðst af því hvort innri vöxt-
urinn heldur áfram af sama krafti
og verið hefur og hvort ráðist
verði í erlend kaup. Draga kann til
tíðinda í því á næstunni. Gott
framhald hjá Straumi ræðst ann-
ars vegar af uppbyggingu lána-
starfseminnar sem hefur vaxið að
undanförnu, svo og af því hvernig
greitt verður úr flækjunni varð-
andi eignarhald TM og Íslands-
banka. Annaðhvort mun Straumur
taka þátt í orrustu um yfirráð
Landsbankans í Íslandsbanka eða
að leitað verði kaupanda að kjöl-
festuhlutnum í bankanum.
Horfur í ár bjartar
Horfurnar hjá bönkunum eru al-
mennt góðar fyrir þetta ár. Mikill
kraftur og metnaður einkennir
rekstur þeirra allra. Efnahags-
horfur eru góðar, þótt varla verði
hægt að búast við viðlíka ytri skil-
yrðum og voru á síðasta ári. Upp-
gjör bankanna eru það góð að
menn eiga erfitt með að hallmæla
árangri keppinautanna. Viðhorfið
er: „Þetta er fínt hjá þeim – en við
erum bestir.“
haflidi@frettabladid.is
thkjart@frettabladid.is
12 30. janúar 2005 SUNNUDAGUR
vidskipti@frettabladid.is nánar á visir.is
Stærstu fjármálafyrirtækin geta glaðst yfir árangri síðasta árs.
Hagnaður hefur aldrei verið meiri og reksturinn virðist í góðum
gír. Samanlagður hagnaður fjögurra banka á síðasta ári var yfir
46 milljarðar króna.
9 3
Nafnávöxtun frá 01.12.2004 - 31.12.2004 á ársgrundvelli
!"#
!
$
% $&
'() %
*+, !
%
-
.
.. / $&
&
$
Dýrðarár bankanna
AFKOMA BANKANNA ÁRIÐ 2004
(Allar tölur í milljörðum króna)
Breyting Arðsemi Eiginfjár- Eignir Markaðs-
Hagnaður frá 2003 eigin fjár hlutfall í lok árs verðmæti*
KB banki 15,8 110% 22,6% 14,2% 1.534 329
Íslandsbanki 11,4 96% 40,0% 12,6% 675 150
Landsbankinn 12,7 330% 50,1% 10,4% 730 113
Straumur 6,4 68% 34,5% 15,5% 90 55
*Markaðsverðmæti við lokun markaðar á föstudag.
KÁTIR BANKASTJÓRAR Þeir Sigurður Einarsson, starfandi stjórnarformaður KB banka, Hall-
dór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, og Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka,
geta allir unað glaðir við sitt. Bankarnir virðast traustir í sessi sem hlýtur að gleðja sessunaut
bankamannanna á þessari mynd, Pál Gunnar Pálsson, forstjóra Fjármálaeftirlitsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI