Fréttablaðið - 30.01.2005, Page 19

Fréttablaðið - 30.01.2005, Page 19
Samskipti leitar eftir reyndum prentara sem hefur góða tölvuþekkingu, til að vinna við Heidelberg Quickmaster DI Pro prentvél. Síðumúli 4 sími 580 7800 Hverfisgata 33 sími 580 7860 Hæðasmári 4 sími 580 7880 Samskipti ehf. hefur verið starfandi í prentþjónustu í 26 ár og starfar í dag á flestum sviðum prentunar. Fyrirtækið er í örum vexti enda starfa hjá fyrirtækinu á fjórða tug starfsfólks. Fyrirtækið rekur starfsemi á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu; á Hverfisgötu, í Síðumúla og í Hæðasmára í Kópavogi. Samskipti er þjónustufyrirtæki sem veitir einstaklingum, ásamt fyrirtækjum og stofnunum í öllum greinum íslensks atvinnulífs alhliða prentþjónustu og þjónustu henni tengdri. Auk prentþjónustu rekur Samskipti öfluga merkingadeild, þjónustu við vörusýningar hverskonar og hraðsendingar- þjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Við viljum vera öðrum fyrirtækjum fyrirmynd hvað varðar þjónustu og liðsanda og leggjum áherslu á frumkvæði og nýsköpun til að öðlast og viðhalda samkeppnisforskoti á öllum sviðum prentþjónustu. Frekari upplýsingar um starfið veitir Ragnar á tölvupóstfangið ragnar@samskipti.is Frekari upplýsingar um Heidelberg Quickmaster DI Pro: www.heidelberg.com/www/pages/content.jsp?contentID=2673 Viðkomandi þarf að geta hafið störf í mars eða apríl. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Samskipta, Síðumúla 4 eða á tölvupóstfangið starf@samskipti.is eigi síðar en 11. febrúar. Vilt þú slást í hópinn? - Okkur vantar góðan liðsauka! Þórunn Þórarinsdóttir er forstöðumað- ur fasteignaþjónustu KB banka. Hún tók við starfinu fyrir tæpu ári. „Ég hef menntun sem löggiltur fasteigna- sali og þar að auki viðskipta- og rekstrar- menntun,“ segir Þórunn. „Þá hef ég líka langa starfsreynslu í bankageiranum og fasteignageiranum.“ Þórunn lauk stúdentsprófi af félags- fræðibraut Menntaskólans á Akureyri árið 1996, en segist ekki hafa haft nokkurn áhuga á viðskiptum á þeim tímapunkti. „Ég bjóst frekar við að fara í framhaldsnám tengt listum, en byrjaði samt á að fara suð- ur að vinna og í framhaldi af því ákvað ég að skoða heiminn. Svo vann ég í átta ár á fasteignasölum áður en ég tók nám til lög- gildingar fasteignasala. Þaðan lá leiðin í Ís- landsbanka, í þjónustumiðstöð fasteigna- viðskipta, og nú er ég hér,“ segir Þórunn og brosir geislandi brosi. Starf Þórunnar snýst um fasteignaþjón- ustu fyrir KB banka, sem stendur reyndar öllum opin. „Við sjáum um útlán, lánaráð- gjöf, uppgreiðslumál og fjármálaþjónustu tengda fasteignaviðskiptum almennt og sinnum því daglega. Við erum með sér- fræðinga sem vita allt um þessi mál. Sam- skipti mín eru mikil við yfirmenn mína, úti- búin og fasteignasalana. Í þessum málum er ör þróun og við þurfum að fylgjast vel með því sem er að gerast á markaðnum. Það sem mér finnst skemmtilegast við þetta starf er hvað það er fjölbreytt. Ég þarf að vera í miklu sambandi við fólk, bæði við viðskiptavini og fólk innan bank- ans. Svo gefur það mér mikið að geta veitt öðrum innsýn í það sem ég hef þekkingu á.“ Þórunni finnst ekki erfitt að vera kona í stjórnunarstöðu og hún segist njóta virð- ingar karlanna. „Þetta byggist auðvitað á því að hafa gott sjálfstraust og trúa á það sem maður er að gera. Þá er maður jafnoki karlanna og vel það,“ segir hún hlæjandi. Áhugamál Þórunnar eru fjölmörg og frí- tímann notar hún meðal annars til að stunda útivist og líkamsrækt. „Svo hef ég gaman af að lesa og vera með góðu fólki og bæði teikna og mála. Eiginlega hef ég of mörg áhugamál til að geta sinnt þeim öll- um. En mér hefur tekist ágætlega að koma saman vinnu, heimili og áhugamálum. Mað- ur verður bara að skipuleggja sig vel og njóta hvers dags.“ ■ Jafnoki karlanna og vel það atvinna@frettabladid.is Unglingum og háskólanemum gefst kostur á að sækja um starf hjá Landsvirkjun sumarið 2005. Einkum er um útivinnu að ræða, svo sem við garðyrkju og fegrun svæða kringum virkjanir og vinnusvæði en einnig við gesta- móttöku í stöðvarhúsum. Há- skólanemar geta fengið ýmis af- leysingarstörf og verkfræðinem- um, til dæmis, bjóðast störf sem tengjast þeirra námi. Nánari upp- lýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Landsvirkj- unar www.lv.is og frestur til að skila umsóknum er til og með 28. febrúar. Kaupmáttur launa jókst að jafnaði um 1,5% á síð- asta ári, samkvæmt nýútkomnum töl- um frá Hagstofu Íslands og er það heldur minni aukning en árið 2003. Laun hækkuðu um 4,7% að meðaltali á síðasta ári. Þar af hækkuðu laun á almennum markaði um 4,5% en um 5% á opinbera markaðnum. Á sama tíma hækkaði almennt verðlag um 3,2%. Kaupmáttur fólks á al- mennum vinnumarkaðinum jókst samkvæmt því um 1,2% en um 1,8% á opinbera markaðnum. Útboðsþing 2005 var haldið á Grand Hótel síðastliðinn föstu- dag. Það voru Samtök iðnaðarins og Félag vinnuveitenda sem stóðu að því og kynntu þar opin- berar framkvæmdir ársins enda mættu þar fulltrúar frá ríki og stærstu sveitarfélögum landsins, og einnig byggingarverktakar og vinnuvélaeigendur og aðrir sem áhuga höfðu. Þarna voru línurnar lagðar í því helsta sem framund- an er af verklegum framkvæmd- um á landinu. Þórunn bjóst ekki við að enda í fjármálaráðgjöf, áhugamálin tengdust meira listum þegar hún lauk stúd- entsprófi. Nú nýtur hún hverrar mínútu í starfi. LIGGUR Í LOFTINU í atvinnu MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINSER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR? Góðan dag! Í dag er sunnudagurinn 30. jan, 30. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 10.13 13.41 17.10 AKUREYRI 10.11 13.26 16.41 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag STÖRF Í BOÐI Sálfræðingur Framleiðslustjóri Vefstjóri Aðstoðardeildarstjóri Sérfræðingar Sölumenn Deildarstjóri Eftirlitsmaður Umsjónarmaður Hjúkrunarfræðingar Kranamaður Stuðningsfulltrúi Kennarar Stuðningsfulltrúi Rafvirki Prentari Þroskaþjálfar Sjóntækjafræðingur Sjúkraliðar Bílar & farartæki 58 stk. Keypt & selt 18 stk. Þjónusta 15 stk. Heilsa 5 stk. Skólar & námskeið 5 stk. Heimilið 3 stk. Tómstundir & ferðir 5 stk. Húsnæði 23 stk. Atvinna 21 stk. Tilkynningar 2 stk. SMÁAUGLÝSINGAR byrja í dag á bls. 24 Flokkar & fjöldi Kynferðisleg áreitni á vinnustað Vaxandi fjöldi unglinga kærir. Árið 2001 komu fram sjö kærur frá unglingum um kynferðislega áreitni á vinnustað. Á síðustu tveim- ur árum hafa þrjátíu kærur verið meðhöndlaðar hvort árið og enn bíða 37 kærur meðhöndlunar. Tæplega fimm milljónir unglinga í Bandaríkjunum eru á vinnumarkaðnum og sérfræðingar segja að því fleiri unglingar á vinnu- markaðnum því fleiri til- felli séu um áreitni á vinnu- stað. Enn fremur segja þeir að kynferðisleg áreitni sé ekki ný af nálinni heldur hafi unglingar ekki þorað að tala um þessi mál hingað til. Áfall við slíka áreitni er gífurlegt og þurfa margir langan tíma til að jafna sig áður en þeir snúa aftur á vinnumarkaðinn. ■ Fórnarlömb kynferðislegrar áreit- ni á vinnustað verða oft fyrir miklu áfalli sem erfitt er að jafna sig á.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.