Fréttablaðið - 30.01.2005, Side 20

Fréttablaðið - 30.01.2005, Side 20
Ýmis störf fyrir 18-28 ára eru í boði hjá Norddjobb nú í sumar og vert að skoða heimasíðuna www.nor- djobb.net. Fólki á aldrinum 18 til 28 ára býðst eins og undanfarin ár að sækja um sumarstarf á Norður- löndunum á vegum Nordjobb verkefnisins. Núna er meðal ann- ars leitað að nemum í tannlækn- ingum til starfa í sænskumælandi hluta Finnlands, fólki með reynslu af ummönnun og hjúkrunarstörf- um til Svíþjóðar og Danmerkur og fólki til byggingarvinnu í Suður- Svíþjóð. Að sögn Virpi Jokinen, verkefnisstjóra Norddjobb á Ís- landi, er áberandi vöntun á fólki í umönnunarstörf og hjúkrun og hún telur meiri möguleika á að komast að í Svíþjóð en Danmörku. Einnig segir hún það nýmæli að beðið sé um fólk í byggingarvinnu hjá Norddjobb. Læknanemar á síðari stigum námsins eru gjarn- an teknir sem afleysingalæknar í Finnlandi og Svíþjóð. Hún segir einn hafa farið héðan til Álandseyja í fyrra og verið afar ánægðan. Annars eru margbreytileg störf í boði og fyrir þau er greitt samkvæmt gildandi launatöxtum. „Nordjobbarar njóta sömu kjara og innlendir vinnufélagar þeirra,“ tekur Virpi fram og segir kaup og kjör liggja fyrir áður en umsækj- andi ákveði að þiggja eða hafna starfinu. Á hverju ári sækja fleiri þús- und ungmenni frá öllum Norður- löndunum um Nordjobb, en í boði eru tæplega þúsund störf. Virpi segir því mikilvægt að vanda vel til verks þegar umsóknareyðu- blaðið er fyllt út og gæta þess að fullnægjandi upplýsingar komi þar fram. Frekari upplýsingar og leiðbeiningar er að finna á heima- síðunni www.nordjobb.net og á skrifstofu Norræna félagsins, Óð- insgötu 7 í Reykjavík, sími: 551 0165. Á heimasíðunni er hægt er að fylgjast með hvaða störf eru í boði hverju sinni. Umsóknarfrest- ur er frá 1. janúar til 31. maí. ■ Skilaboð Láttu fólkið sem sér um símsvörun vita ef þú verður ekki við í vinnunni og hvort hægt verði að ná í þig annars staðar. Þannig getur sá sem svarar í símann fyrir þig tekið niður í skilaboð í stað þess að láta símann þinn hringja og hringja. Auk þess er góð regla að láta fólkið sem sér um símsvörun vita af ferðum þínum.[ ] Meginhlutverk skólastjóra er að: stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi Leitað er að umsækjanda sem: hefur stjórnunarhæfileika og reynslu af stjórnun hefur kennaramenntun, en framhaldsmenntun á sviði stjórnunar, uppeldis- eða kennslufræði æskileg hefur reynslu af kennslu og vinnu með börnum og unglingum er lipur í mannlegum samskiptum Staða skólastjóra Breiðholtsskóla Reykjavíkurborg leggur áherslu á þróun skóla í átt til einstaklingsmiðaðs náms, samvinnu nemenda, sterka sjálfsmynd þeirra og skóla án aðgreiningar. Auk þess er lögð áhersla á að styrkja tengsl skóla við grenndarsamfélagið og sjálfstæði skóla. Grunnskólar Reykjavíkur Laus er staða skólastjóra við Breiðholtsskóla í Reykja- vík sem er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Nemendur skólans eru um 570 að tölu. Í Breiðholtsskóla er lögð áhersla á að allir nemendur nái sem bestum árangri miðað við eigin áhuga, hæfi- leika og getu. Markvisst er unnið í skólanum í átt til einstaklingsmiðaðs náms og samvinnu nemenda. Einkunnarorð skólans eru „árangur fyrir alla“. Skólinn hefur verið móðurskóli í foreldrasamstarfi og er í góðu samstarfi við foreldra, hverfisbúa og aðrar stofnanir og félagasamtök í hverfinu. Í skólanum er móttökudeild fyrir nýbúa. Kannanir hafa sýnt að nemendur og foreldrar eru ánægðir með skól- ann og meðal starfsmanna ríkir mjög góður starfsandi. Staðan er laus frá 1. mars nk. Umsóknum fylgi yfirlit yfir nám og störf og gögn er varða frumkvæði á sviði skólamála, greinargerð um hugmyndir umsækjenda um framkvæmd skólastarfsins, auk annarra gagna er málið varðar. Umsóknarfrestur er til 26. febrúar 2005. Umsóknir sendist Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 1, 101 Reykjavík. Upplýsingar gefur Ingunn Gísladóttir, starfsmannastjóri á Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, netfang: ingunn.gisladottir@reykjavik.is sími 535 5000. Laun eru skv. kjarasamningi LN og KÍ. Árskóli á Sauðárkróki Kennara vantar á Krókinn! Vegna barnsburðarleyfa getum við bætt við okkur áhugasömum kennurum sem eru tilbúnir að taka þátt í því metnaðarfulla skólastarfi sem fram fer hjá okkur. Um er að ræða handmennt, ensku og umsjónarkennslu á yngsta stigi frá 15. febrúar nk. Nánari upplýsingar veita skólastjórnendur í símum: 4551100/8221141/8221142 Sjá einnig heimasíðu skólans: http://www.arskoli.is Framleiðslustjóri Fiskiðnaðarfyrirtæki á Akranesi óskar eftir að ráða framleiðslustjóra. Leitað er að samviskusömum starfsmanni með grunnþekk- ingu á tölvur, geti talað og skrifað ensku auk þekkingar á HACCP. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Upplýsingar í síma 431-4501 og 893-5763. Breskir karlar fastir í fortíðinni Konur snúa á þá með því að stofna eigin fyrirtæki. Stúdentar hættir að mótmæla Eru of uppteknir við að afla fjár. Sumarstörf á Norðurlöndunum Stúdentar í Bandaríkjunum hafa ekki tíma til að taka þátt í stúd- entapólitík og mótmælaaðgerðum vegna annríkis við að afla fjár. Þetta kom fram í könnun sem UNITE-stofnunin gerði á högum stúdenta. Fjórir af hverjum tíu stúdentum vinna að minnsta kosti fjórtán og hálfan tíma á viku og 70% þeirra eru að vinna sér inn fyrir daglegum nauðsynjum. Skuldir nemenda jukust að meðal- tali um 525 dollara á síðasta ári, en þeir skulda að meðaltali 5.285 dollara. Peningaáhyggjur voru efstar á lista yfir áhyggjuefni stúdentanna. Helene Symons hjá Þjóðar- samtökum háskólastúdenta segir þetta áhyggjuefni. „Félagslíf og pólitík eiga að vera mikilvægir þættir í lífi háskólanema og fjár- hagsáhyggjur ættu ekki að koma í veg fyrir að þeir njóti skólaár- anna.“ ■ Íslenskir stúdentar kunna ennþá að mótmæla ef gert er á þeirra rétt. Samkvæmt skýrslu sem borgar- stjórinn í London kynnti fyrir skemmstu eru konur að meðaltali með 25% lægri laun en karlar í borginni. Í Bretlandi öllu eru þær með 18% lægri laun. Þá kom fram í könnun sem London Business School birti í vikunni að 177.000 konur stofnuðu fyrir- tæki á síðasta ári, sem er mikil fjölgun og skref í þá átt að brúa bilið sem hefur verið milli karla og kvenna í atvinnurekstri. Dianah Worman, ráðgjafi hjá Chartered Institute of Personnel and Development, segir það standa atvinnulífi í Bretlandi fyrir þrifum að stjórnarmenn fyrirtækja séu enn ekki komnir inn í 21. öldina og ríg- haldi í gömlu „karlaklúbbaímynd- ina“. Konur í Bretlandi hafi tekið til sinna ráða og séu þess vegna að stofna sín eigin fyrir- tæki þar sem þær eru sjálfar við stjórnvölinn. Þar að auki gefi þær körlunum langt nef með því að stofna sína eigin kvennaklúbba. „Það að launamunur karla og kvenna sé enn svona mikill er ekkert minna en hneyksli,“ segir Worman. „Konur í fyrir- tækjarekstri eru góð þróun, en því miður held ég að enn sé langt í land að konur fái þau laun sem þær eiga skilið.“ ■ Konur í London eru með 25% lægri laun en karlar. Mikil þörf er á fólki með reynslu af umönnunarstörfum bæði í Svíþjóð og Danmörku. SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR »

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.