Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.01.2005, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 30.01.2005, Qupperneq 32
30. janúar 2005 SUNNUDAGUR Su mar sól 19 .950 kr. Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Fyrstir koma - fyrstir fá! Alicante Beint leigu- flug me› Icelandair í allt sumar! Sumarhúsa- eigendur og a›rir farflegar til Spánar! Flugáætlun Flug fram og til baka með flugvallarsköttum. Verð miðast við að bókað sé á Netinu, ef bókað er í síma eða á skrifstofu bætast 2.000 kr. við hverja bókun. Netverð frá 19. og 31. mars 11. apríl 18. maí og síðan alla miðvikudaga í sumar til 5. október. Bessastaðir stóðu undir regnboga skömmu áður en athöfnin hófst og forsetinn hafði orð á því í ávarpi sínu að veðrið væri gott og fallegt, líkt og svo oft áður þegar bók- menntaverðlaunin eru afhent. Áður en athöfnin hófst tók Ólafur Ragnar Grímsson í höndina á öllum viðstöddum, það er að segja þeim sem voru stundvísir. Rjóminn af íslensku bókmennta- kökunni var á staðnum, höfundar jafnt sem útgefendur, og meðal gesta voru í það minnsta fimm sem áður hafa hlotið Íslensku bók- menntaverðlaunin. Létt stemning var í hópnum og fólk skiptist á kurteisislegum orð- um áður en boðið var til stofu. All- ir þekktust. Spáð var og spekúlerað í hverjir færu heim með verðlaun- in að þessu sinni og reyndust sum- ir sannspáir. Einn sagðist hafa þetta alveg á hreinu og byggði sín- ar niðurstöður á að telja hve mörg skyldmenni fylgdu hverjum og ein- um tilnefndum. Þau vísindi virk- uðu, hann hafði rétt fyrir sér. Ekki hlustað á hann Ólafur Ragnar sló á létta strengi í ávarpi sínu. Hann ræddi um fyrir- komulag bókmenntaverðlaunanna og sagðist löngum hafa lagt til við útgefendur að þeir hefðu reglurn- ar um verðlaunin sveigjanlegri en nú er. Hins vegar væri ekki hlust- að á aðfinnslur hans, eins og raun- ar á fleiri bæjum. Að þessu var hlegið. Íslensku bókmenntaverðlaun- in máttu þola harða gagnrýni fyrir jólin. Ólafur Ragnar vék að þeim efnum og beindi sjónum að gagnrýninni á valið á dómnefnd- armönnum. Gaf hann lítið fyrir hana og sagði lög- og hagfræð- inga geta haft gott vit á bók- menntum. Og í tilefni af heima- stjórnarafmælinu á síðasta ári minnti hann viðstadda á að Hannes Hafstein hefði jú verið lögfræðingur. Eivör Pálsdóttir hefur fyrir löngu heillað landsmenn með undurfögrum söng sínum og ein- lægri framkomu. Berfætt söng hún tvö lög með þeim hætti að gestir hlýddu agndofa á. Tár sáust falla á hvarma, svo falleg var tón- listin. Auður og Halldór Spennan í salnum magnaðist þegar ljóst varð að sjálf verðlaunaaf- hendingin var í vændum. Menn fylgdust með hvort einhverjir úr röðum tilnefndra fikruðu sig fram- ar í salinn en allir stóðu þeir sem fastast. Reynt var að lesa í lát- bragð, sjá hvort einhver seildist í innanávasa eða tösku eftir ræðu, en engir slíkir tilburðir voru uppi. Ólafur Ragnar byrjaði á fræði- ritunum og frá fyrstu orðum hans var ljóst að verðlaunin væru Hall- dórs Guðmundssonar fyrir ævi- sögu hans um Halldór Laxness. Í kjölfarið mátti svo lesa það af svip forsetans hver hlyti hin verðlaun- in. Brosandi tengdi hann viðfangs- efni Halldórs við verðlaunahafann í flokki fagurbókmennta og allra augu voru á Auði Jónsdóttur. Bæði þökkuðu fyrir sig með stuttum og skemmtilegum ræðum og talaði Auður í eina mínútu og 39 sekúndur en Halldór tvær mínútur og 48 sekúndur. Ólafur Ragnar sleit svo form- legu samkomuhaldi og bauð upp á léttar veitingar; smárétti, vín og vatn. 23 Laxnessverk í bókhlöðunni Í stuttu spjalli við blaðamann í bókhlöðu Bessastaða sagði Auður gaman að fá verðlaun og ekki væri síður ánægjulegt að bókin hennar, Fólkið í kjallaranum, hefði ratað til fólks. Halldór Guðmundsson sagði það efla þrótt og sjálfstraust að fá viðurkenningar, hvort sem þær kæmu frá lesendum eða dóm- nefndum. Í hillum bókhlöðunnar mátti í fljótheitum finna 23 bækur eftir Halldór Laxness. Sigríði Halldórsdóttur, dóttur Laxness og móður Auðar, leið vita- skuld vel þennan dag. Hana grun- aði að Halldór fengi verðlaunin en það hvarflaði ekki að henni að Auður yrði líka verðlaunuð. „Þetta er svolítill Halldórsdag- ur,“ varð Halldóri Guðmundssyni að orði. ■ Laxnesshátíð á Bessastöðum Íslensku bókmenntaverðlaunin voru afhent á Bessastöðum síðdegis á fimmtudag. Björn Þór Sigbjörns- son blaðamaður blandaði sér í hóp rithöfunda, útgefenda, forystumanna í listalífinu og annarra menn- ingarvita til að sjá og heyra hvernig svona lagað fer fram. Hann varð ekki fyrir vonbrigðum, athöfnin var hin besta skemmtun. „Mér fannst þetta val vera ágætt, báðar þess- ar bækur sóma sér vel. Ég tel að verk Hall- dórs Guðmundssonar sé tímamótaverk í ís- lenskri ævisagnagerð og held að það sé í stíl við það sem að við sjáum hvað best gert er- lendis. Og mér fannst verk Auðar bæði skemmtilegt og athyglisvert og gaman að því hvernig hún varpar ljósi á þann tíma sem ég þekki nú vel og kannski mína kynslóð og tvinnar það saman með hennar eigin samtíð. Hún gerir það á mjög skemmtilegan og ný- stárlegan hátt. Mér finnst valið á henni ekki aðeins vera heiður fyrir hana heldur líka ákveðin skilaboð til þessara mörgu ungu höfunda sem hafa komið fram á síðustu árum. Þeir eru teknir al- varlega og orðnir gjaldgengir í sveit íslenskra meiginskálda og rithöfunda. Mér fannst mjög gaman að því hve margar skemmtilegar bæk- ur eftir nýrri höfunda, höfunda sem ekki voru á vettvangi fyrir fimm til tíu árum síðan, komu út fyrir síðustu jól og hve margar þeirra vörpuðu nýstárlegu ljósi á íslenskt þjóðfélag og menningu. Það er mikið lífsmark.“ Ólafur Ragnar Grímsson um bókmenntaverðlaunin: Báðar bækurnar sóma sér vel Halldór Guðmundsson tekur við verðlaunum sínum, einbeittur á svip. Auður Jónsdóttir tekur við verðlaunum sínum, með bros á vör. EIVÖR PÁLSDÓTTIR Eivör syngur af gleði og innileika og Halldór og Auður hlýða á. STUNGIÐ SAMAN NEFJUM Skáldjöfrarnir Thor Vilhjálmsson og Guðrún Helgadóttir. Guðrún var tilnefnd til verðlaunanna að þessu sinni en Thor hlaut þau 1998. FORVERI OG EFTIRMAÐUR Ólafur Ragnar og Ragnar Arnalds á skrafi. Báðir voru þeir formenn Alþýðubandalagsins á sínum pólitíska ferli og báðir fjármálaráðherrar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.