Fréttablaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 35
SUNNUDAGUR 30. janúar 2005 23
Kynningarfundur
vegna breytinga á gatnamótum Kringlumýrarbrautar
/Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar/Listabrautar
Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar og Vegagerðin boða til kynningarfundar
vegna breytinga á gatnamótum Kringlumýrarbrautar / Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar / Listabrautar.
Kynningin fer fram fimmtudaginn 3. febrúar kl. 17:00 í Álftamýrarskóla
Kynntar verða úrbætur á gatnamótum Kringlumýrarbrautar/Miklubrautar sem
fyrirhugaðar eru á þessu ári og matsáætlun fyrir mat á umhverfisáhrifum
mislægra gatnamóta Kringlumýrarbrautar / Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar /
Listabrautar.
Fundurinn er boðaður í samvinnu við Hverfisráð Háaleitis en er öllum opinn.
„Við höfum í nokkur ár verið með
opnunartónleika Myrkra músík-
daga, og það er mjög skemmtilegt,“
segir Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari
og leiðtogi Kammersveitar Reykja-
víkur.
Kammersveitin verður með tón-
leika í Listasafni Íslands í kvöld og
með þessum tónleikum hefjast
Myrkir músíkdagar, hin árlega tón-
listarhátíð Tónskáldafélags Ís-
lands.
Tónverk íslenskra tónskálda eru
jafnan í hávegum höfð á þessari há-
tíð. Á opnunartónleikunum flytur
Kammersveitin verk eftir Pál P.
Pálsson, Karólínu Eiríksdóttur,
Gunnar Andreas Kristinsson, Jón
Nordal og Tryggva M. Baldvinsson.
„Núna erum við að flytja verk
sem hafa verið samin fyrir okkur
sérstaklega, bæði fyrir þó nokkru
síðan og eins verk sem eru alveg ný.“
Elsta verkið er Brot eftir Karó-
línu Eiríksdóttur. Það er samið árið
1979 og frumflutt á Myrkum mús-
íkdögum árið 1980.
„Breiddin í aldri tónskáldanna
finnst mér líka skemmtileg. Jón er
elstur, hann er fæddur árið 1926, en
Gunnar Andreas er yngstur, fædd-
ur 1976. Það eru því 50 ár á milli
þeirra og ég vona að þeir verði báð-
ir viðstaddir á tónleikunum.“
Tónleikar Kammersveitarinnar
hefjast klukkan 20, en þeir verða
reyndar ekki fyrsti viðburðurinn á
dagskrá Myrkra músíkdaga í ár, því
barnaóperan Undir drekavæng
verður frumflutt í menningarmið-
stöðinni Gerðubergi klukkan 14.
Óperan er eftir þær Mist Þorkels-
dóttur og Messíönu Tómasdóttur og
fjallar á skemmtilegan hátt um rétt
náttúrunnar og þeirra sem minna
mega sín.
Aðrir fastir liðir verða á sínum
stað á Myrkum músíkdögum þetta
árið, svo sem stórir tónleikar með
Sinfóníuhljómsveit Íslands á
fimmtudaginn, og hátíðinni lýkur á
tónleikum Caput hópsins 6. febrúar.
Einnig verða raftónleikar, blás-
aratónleikar, kórtónleikar og
flaututónleikar, svo nokkuð sé
nefnt af fjölskrúðugri dagskrá
þessarar árvissu tónlistarveislu. ■
Ógeðsleg
og falleg
„Hún er svolítið ógeðsleg, og líka al-
veg ógeðslega falleg,“ segir
Bjargey Ólafsdóttir um stuttmynd
sína Ég missti næstum vitið, sem er
meginuppistaðan í sýningu
Bjargeyjar í Listasafni Reykjavík-
ur, Hafnarhúsinu,
sem opnuð var
um síðustu helgi.
„Mér finnst
líka fyndið að fólk
skynjar sögu-
þráðinn á mjög
ólíkan hátt. Ég
hef fengið að
heyra svo margar
útgáfur á því
hvernig fólk skynjar þetta, og það
finnst mér æðislegt.“
Í dag verður Bjargey með lista-
mannsspjall í tengslum við sýning-
una þar sem hún sýnir þrjár stutt-
myndir sínar og ræðir við áheyr-
endur um gerð þeirra. Auk myndar-
innar Ég missti næstum vitið verða
sýndar myndirnar Falskar tennur
og Jean.
Sýning Bjargeyjar í Hafnarhús-
inu er innsetning með ljósmyndum,
sem hún tók meðan á gerð myndar-
innar stóð. Myndin er sýnd í sama
herberginu og hún var tekin upp í.
Leikarar í Ég missti næstum vit-
ið eru Kristján Franklín Magnús og
Þrúður Vilhjálmsdóttir.
Bjargey heldur brátt utan til
Berlínar þar sem henni var boðið að
taka þátt í samstarfi ungra kvik-
myndagerðarmanna í tengslum við
kvikmyndahátíðina þar í borg. ■
FJÖLLEIKAHÚS Í LEIKHÚSINU
Tveggja manna sirkusinn Oki Haiku Dan
sýnir í Borgarleikhúsinu.
Tveggja
manna sirkus
Sébastien Dault og Keisuke Kanai
eru tveggja manna sirkusinn Oki
Haiku Dan. Uppselt var á sýningu
þeirra í Borgarleikhúsinu í gær og
því var ákveðið að þeir héldu eina
aukasýningu í dag.
Sýningu sína nefna þeir „Bougez
pas bouger“, eða „Hreyfa ekki
hreyfa“.
Þetta er einlæg sýning fyrir alla
fjölskylduna þar sem fimleikjum,
leikjum með hluti, látbragðsleik,
leiklist og dansi er blandað saman á
nýstárlegan og skemmtilegan hátt.
Annar kastar hlutum í loft upp
og dansar, hinn dansar og flýgur. Á
miðju sviðinu sveiflast svifróla. ■
■ FJÖLLEIKAR
BJARGEY
ÓLAFSDÓTTIR
BERNHARÐUR WILKINSSON, RÚNAR ÓSKARSSON OG GUNNAR ANDREAS
KRISTINSSON Bernharður er stjórnandi Kammersveitar Reykjavíkur á tónleikunum í
kvöld, Rúnar er einleikari á bassaklarinett og Gunnar eitt tónskáldanna sem flutt verða
verk eftir.
■ TÓNLEIKAR
Veisla tónskáldanna hefst í dag
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.