Fréttablaðið - 30.01.2005, Qupperneq 36
24 30. janúar 2005 SUNNUDAGUR
Við fögnum því ...
... að strákarnir í íslenska landsliðinu mættu fullir einbeitingar í
lokaleikinn gegn Alsír á HM í Túnis og kláruðu mótið með sæmd.
Margir framtíðarmenn liðsins fengu eldskírnina í þessu norðurríki Afríku
og með þessum níu marka sigri sýndu þeir að það býr margt í liðinu.
Við hrósum ...
... Jóhönnu Eyvindsdóttur Christiansen sem var í sviðsljósinu á
Íslandsmeistaramótinu í bekkpressu í Valsheimilinu í gær. Jóhanna
gerði sér lítið fyrir og bætti Íslandsmetið í sínum flokki í bekk-
pressu um 37,5 kíló þegar hún lyfti 120 kílóum með glæsibrag.
sport@frettabladid.is
HM Í HANDBOLTA Fyrir leikinn voru
margir óttaslegnir að leikurinn
yrði mikið basl enda ekki að
neinu að keppa fyrir strákana.
Hugarfar þeirra var hins vegar í
góðu lagi og ljóst að strákarnir
vildu ljúka keppni með sæmd.
Það gerðu þeir svo sannarlega
því strákarnir hreinlega völtuðu
yfir Alsírbúana og unnu að lokum
öruggan níu marka sigur, 34-25,
eftir að hafa leitt með átta mörk-
um í leikhléi, 19-11.
Léttleiki og leikgleði ein-
kenndi leik íslenska liðsins sem
kaffærði Alsír strax í byrjun með
fínum varnarleik, góðri mark-
vörslu og vel útfærðum hraða-
upphlaupum sem Alsír átti ekk-
ert svar við. Leiknum var því í
raun lokið í leikhléi en strákarnir
héldu samt ágætri einbeitingu í
síðari hálfleik og sáu til þess að
forystan var aldrei í hættu.
Birkir Ívar varði vel
Birkir Ívar fékk loksins að
spila heilan leik og hann varði
mjög vel. Guðjón Valur kórónaði
gott mót hjá sér með tíu fínum
mörkum og Róbert Gunnarsson
var einnig mjög öflugur. Alex-
ander Petterson var síðan mjög
góður í vörninni. Aðrir leikmenn
áttu ágæta spretti en leikurinn
hefði getað unnist mun stærra ef
strákarnir hefðu nýtt dauðafærin
betur en fjöldi þeirra fór forgörð-
um eins og oft áður á þessu móti.
Þó að niðurstaða mótsins hafi
valdið miklum vonbrigðum er
ljóst að þetta lið á framtíðina fyr-
ir sér. Viggó mætti til leiks með
tíu nýja leikmenn sem enga
reynslu höfðu af stórmótum en
þeir öðluðust mikla reynslu á
þessu móti. Það mun koma liðinu
vel í framtíðinni því flestir
sýndu þeir fram á að þeir eiga
fullt erindi í alþjóðabolta og ein-
hverjir hefðu jafn vel átt að fá
tækifæri með liðinu fyrr en
núna.
Það er ár í næsta stórmót sem
er EM í Sviss og það ár verður
Viggó Sigurðsson að nýta vel til
þess að laga varnarleik liðsins.
Hann er langt frá því að vera við-
unandi og liðið nær engum ár-
angri á næsta móti ef hann batn-
ar ekki. Stöðugleiki er annar
höfuðverkur en hinum frægu
slæmu köflum verður að fækka
hið fyrsta.
Frábærar fréttir
Sóknarleikurinn er ágætur og
það eru frábærar fréttir fyrir
liðið að Ólafur Stefánsson ætli að
spila áfram því þessir ungu
drengir þurfa á leiðsögn hans og
reynslu að halda til þess að bæta
sig. Það verður áhugavert að sjá
hvernig þetta lið spjarar sig á
næsta móti.
henry@frettabladid.is
Strákarnir kláruðu
mótið með sæmd
Íslenska landsliðið í handknattleik lauk keppni á HM í Túnis í gær með mikl-
um sóma þegar þeir mættu Alsír og pökkuðu þeim saman.
STÖÐUR ÚR LEIKNUM
Fyrri: 0–1, 3–1 (5 mín), 3–2, 4–3, 8–3
(12 mín), 8–5, 13–5 (18 mín), 13–7,
17–7 (24 mín), 17–10, 18–11, 19–11.
Seinni: 19-12, 20–12, 21–13, 21–14,
23–14, 24–16 (38 mín), 27–16, 27–17,
29–17 (42 mín), 29–18, 31–18, 31–21
(52 mín), 33–22, 34–23, 34–25.
TÖLFRÆÐIN
Skotnýting 54%–47%
Tapaðir boltar 8–15
Hraðaupphlaupsmörk 12–3
Brottvísanir (mínútur) 12–16
Varin skot/víti 20/0–22/1
Varin skot í vörn 6–2
Víti fengin (nýting) 4 (75%)–6 (100%)
MÖRK–SKOT ÍSLANDS
Guðjón Valur Sigurðsson 9–12 (75%)
Róbert Gunnarsson 7/1–9/1 (78%)
Ólafur Stefánsson 5/2–10/3 (50%)
Alexander Petersson 3–9 (33%)
Arnór Atlason 2–4 (50%)
Vilhjálmur Halldórsson 2–5 (40%)
Einar Hólmgeirsson 2–7 (29%)
Vignir Svavarsson 1–1 (100%)
Markús Máni Michaelsson 1–1 (100%)
Dagur Sigurðsson 1–1 (100%)
Logi Geirsson 1–3 (33%)
Birkir Ívar Guðmundsson 0–1 (0%)
VARIN SKOT ÍSLANDS
Birkir Í. Guðmundsson 20 af 44/5 (45%)
Roland Valur Eradze 0 af 1/1 (0%)
STOÐSENDINGAR ÍSLANDS
Ólafur Stefánsson 7 (2 inn á línu)
Vilhjálmur Halldórsson 4 (2)
Alexander Petersson 4 (2)
Guðjón Valur Sigurðsson 3 (2)
Dagur Sigurðsson 3 (2)
Markús Máni Michaelsson 2 (0)
Róbert Gunnarsson 2 (0)
Einar Hólmgeirsson 1 (0)
FISKUÐ VÍTI ÍSLANDS
Róbert Gunnarsson 2
Einar Hólmgeirsson 1
Alexander Petersson 1
HRAÐAUPPHLAUPSMÖRKIN
Guðjón Valur Sigurðsson 4
Arnór Atlason 2
Ólafur Stefánsson 2
Einar Hólmgeirsson 2
Róbert Gunnarsson 2
34-25
ÍSLAND ALSÍR
LEIKIR GÆRDAGSINS
HM í handbolta í Túnis
A-RIÐILL
ANGÓLA–KANADA 27–26
TÚNIS–GRIKKLAND 27–27
DANMÖRK–FRAKKLAND 26–32
LOKASTAÐAN Í A-RIÐLINUM
TÚNIS 5 3 2 0 159–118 8
FRAKKLAND 5 3 1 1 161–106 7
GRIKKLAND 5 3 1 1 132–117 7
DANMÖRK 5 3 0 2 174–117 6
ANGÓLA 5 1 0 4 108–178 2
KANADA 5 0 0 5 103–201 0
B-RIÐILL
ÍSLAND–ALSÍR 34–25
TÉKKLAND–KÚVEIT 33–22
SLÓVENÍA–RÚSSLAND 27–31
LOKASTAÐAN Í B-RIÐLINUM
RÚSSLAND 5 5 0 0 151–103 10
SLÓVENÍA 5 3 0 2 154–137 6
TÉKKLAND 5 2 2 1 145–136 6
ÍSLAND 5 2 1 2 154–144 5
ALSÍR 5 1 1 3 138–153 3
KÚVEIT 5 0 0 5 101–170 0
C-RIÐILL
JAPAN–ÁSTRALÍA 29–19
SPÁNN–ARGENTÍNA 35–28
KRÓATÍA–SVÍÞJÓÐ 28–27
LOKASTAÐAN Í C-RIÐLINUM
KRÓATÍA 5 5 0 0 169–124 10
SPÁNN 5 4 0 1 191–128 8
SVÍÞJÓÐ 5 3 0 2 164–118 6
JAPAN 5 2 0 3 121–151 4
ARGENTÍNA 5 1 0 4 133–141 2
ÁSTRALÍA 5 0 0 5 85–201 0
D-RIÐILL
ÞÝSKALAND–SERBÍA/SVARTFJ. 24–25
BRASÍLA–KATAR 30–25
NOREGUR–EGYPTALAND 24–19
LOKASTAÐAN Í D-RIÐLINUM
SERBÍA-SVART. 5 4 0 1 139–117 8
NOREGUR 5 3 1 1 142–105 7
ÞÝSKALAND 5 3 1 1 149–115 7
EGYPTALAND 5 3 0 2 123–123 6
BRASILÍA 5 1 0 4 104–146 2
KATAR 5 0 0 5 117–168 0
STAÐAN Í MILLIRIÐLI 1
RÚSSLAND 2 2 0 0 56–48 4
GRIKKLAND 2 1 1 0 47–46 3
TÚNIS 2 0 2 0 53–53 2
TÉKKLAND 2 1 0 1 49–51 2
FRAKKLAND 2 0 1 1 45–46 1
SLÓVENÍA 2 0 0 2 53–59 0
STAÐAN Í MILLIRIÐLI 2
KRÓATÍA 2 2 0 0 61–58 4
SERBÍA/SVART.2 2 0 0 50–48 4
SPÁNN 2 1 0 1 64–59 2
NOREGUR 2 0 1 1 51–52 1
ÞÝSKALAND 2 0 1 1 51–52 1
SVÍÞJÓÐ 2 0 0 2 53–61 0
Þessi leikur var fínn endir á ann-
ars misjöfnu móti. Hann bar þess ei-
lítið merki að líkurnar á að liðið
kæmi áfram voru nánast engar. En
samt sem áður var ég ánægður með
hvernig menn lögðu sig fram í leikn-
um og einbeitingin var til staðar
meira eða minna í 60 mínútur sem
er í rauninni þveröfugt við leikinn
við Kúveit. Það er það sem stendur
einna helst upp úr.
Birkir Ívar fékk loksins að byrja
leikinn og skilaði ágætis vinnu. Það
var margt ágætt í þessum leik sem
segir okkur að það býr mikið í þessu
liði. En niðurstaðan að komast ekki
áfram er náttúrulega ekkert annað
en vonbrigði.
Hvernig liðið spilaði gegn Alsír,
hvernig mannskapnum var stillt upp
eða hvernig liðið var að breyta varn-
arleiknum skipti í rauninni ekki máli.
Það eina sem þurfti að nást út úr
leiknum var sigur til þess að skila
sem bestu verki og svo var náttúr-
lega mikilvægt að enda mótið vel.
Menn hafa augljóslega verið mjög
svekktir með að liðið kæmist ekki
áfram og því var þetta upplagður
endir.
Það er alveg ljóst að pressan var
að hrjá mannskapinn í fyrsta leik og
það var í rauninni ekki fyrr en að
fyrsti leikurinn var nánast tapaður að
það losnaði svolítið um hömlur liðs-
ins og menn svona settu í fluggírinn
og náðu að jafna þann leik. Slóvena-
leikurinn hafði allt annað yfirbragð
og var að mínu mati alveg pressu-
laus. Þar sofnuðu menn á verðinum
og ætluðu að landa sigrinum á seigl-
unni. Síðan voru menn hreinlega
komnir upp við vegg með því að
þurfa að leggja Rússa, best skipu-
lagða lið riðilsins, af velli.
Ég er þó ánægður með það, að
þrátt fyrir vonbrigðin og þá sérstak-
lega hjá leikmönnunum sjálfum, þá
sýndu menn ákveðinn karakter að
leggja sig vel fram í dag og innbyrða
sigur og þeir gerðu það virkilega vel.
GEIR SVEINSSON
SÉRFRÆÐINGUR FRÉTTABLAÐSINS
SPÁÐ Í SPILIN
ÍSLAND MÆTTI ALSÍR Á
HM Í HANDKNATTLEIK Í
TÚNIS Í GÆR
Góður endir hjá strákunum
STRÁKARNIR RIFU SIG UPP Guðjón Valur Sigurðsson og félagar hans í íslenska
landsliðinu rifu sig upp eftir vonbrigði föstudagsins og unnu glæsilegan sigur á Alsíringum
í síðasta leik íslenska liðsins á HM í Túnis. Fréttablaðið/Uros Hocevar
7 MÖRK Í TÚNIS Dagur Sigurðsson
skoraði samtals 7 mörk í leikjunum fimm.
FRAKKAR SENDU DANI HEIM Frakkar
unnu Dani 32–26 og sendu þá þar með
heim þar sem Grikkir náðu jafntefli við
Túnisbúa og komust í milliriðil.
Framtíð fyrirliðans:
Dagur hugs-
ar sinn gang
HM Í HANDBOLTA Svo getur farið að
landsliðsfyrirliðinn Dagur Sig-
urðsson leggi landsliðsskóna á
hilluna eftir þetta mót.
„Dagur sagði að þetta væri
þriðja mótið í röð sem hann yrði
fyrir gríðarlegum vonbrigðum.
Hann bað um umhugsunartíma
núna og framtíð hans með lands-
liðinu er óljós eins og staðan er í
dag,“ sagði Viggó Sigurðsson
landsliðsþjálfari.
Viggó sagðist ætla að rífa Dag
upp á þessu móti eftir tvö slök
mót á undan. Var hann ánægður
með frammistöðu Dags á mótinu?
„Ef menn horfa á sóknina þá
stjórnar Dagur honum og við spil-
um á köflum glimrandi sóknar-
leik. Menn sjá oft ekki hans verk
því hann skorar oft ekki mikið
sjálfur. Hann stjórnar aftur á
móti sókninni mjög vel og skilaði
því sem ég ætlaðist til af honum.
Ég er mjög sáttur við hans
frammistöðu á þessu móti,“ sagði
Viggó Sigurðsson. -HBG
HENRY BIRGIR
GUNNARSSON
H M Í H A N D B O L T A
T Ú N I S
SKRIFAR UM
HM Í
HANDBOLTA
FRÁ TÚNIS
Riðlakeppni HM í Túnis:
Danir úr leik
HM Í HANDBOLTA Danska hand-
boltalandsliðið er eins og það
íslenska úr leik á HM í Túnis eftir
26–32 tap fyrir Frökkum í lokaleik
liðsins á HM í Túnis.
Danir unnu þrjá fyrstu leikina
á mótinu og virtust vera í góðum
málum en tap fyrir Túnis á
föstudaginn breytti öllu þar um og
Danir urðu því að ná í stig gegn
Frökkum í lokaleiknum eftir að
Grikkir náðu stigi gegn Túnis. Það
tókst ekki og danska liðið er því á
heimleið en Grikkir fara með flest
stig í milliriðil eða 3. Túnis tekur
með sér tvö stig og Frakkar hafa
eitt. ■