Fréttablaðið - 30.01.2005, Side 38
KÖRFUBOLTI Það urðu mjög óvænt
úrslit í undanúrslitaleik bikar-
keppni kvenna í körfubolta á
föstudagskvöldið þegar nýliðar
Hauka slógu út Íslands- og bikar-
meistara Keflavíkur með 100-72
sigri á Ásvöllum.
Það voru þó ekki bara úrslitin
sem voru óvænt (Keflavík hafði
unnið þrjár fyrri viðureignir lið-
anna í vetur með samtals 75 stig-
um) heldur hversu illa Haukaliðið
fór með handhafa allra bikara
sem keppt er um í kvennakörf-
unni hér á landi.
Haukaliðið náði mest 36 stiga
forustu, vann leikinn með 28 stig-
um og varð fyrsta liðið í sögunni
sem skorar 100 stig gegn kvenna-
liði Keflavíkur í deild, bikar, úr-
slitakeppni eða fyrirtækjabikar.
Breiðablik hafði komist næst
hundraðinu með því að skora 98
stig í úrslitakeppninni 1995 en það
var fyrrverandi leikmaður Kefla-
víkur, hin 16 ára gamla Ragnheið-
ur Theódórsdóttir, sem skoraði
stigið sögulega af vítalínunni 28
sekúndum fyrir leikslok.
Haukaliðið hefur tekið stöðug-
um framförum í allan vetur undir
dyggri stjórn þjálfarans Ágústs
Björgvinssonar og erlendi leik-
maðurinn Ebony Shaw hefur vax-
ið með hverjum leik.
Fyrr í vikunni hafði Haukaliðið
náð aðalmarkmiði vetrarins sem
því að tryggja sæti sitt í deildinni
á næsta ári og haldi liðið áfram
þessum stíganda kemur liðið til
með að blanda sér í baráttuna um
Íslandsmeistaratitilinn.
Ebony var með 36 stig og 10
fráköst í sigrinum á Keflavík,
Helena Sverrisdóttir náði þre-
faldri tvennu (17 stig, 21 frákast,
11 stoðsendingar) og þá má ekki
gleyma þeim Hönnu Hálfdanar-
dóttur (16 stig) og Pálínu Gunn-
laugsdóttur (8 stig, 6 fráköst, 6
stoðsendingar) sem lögðu sitt af
mörkunum í vörn sem sókn.
ooj@frettabladid.is
26 30. janúar 2005 SUNNUDAGUR
LEIKIR GÆRDAGSINS
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
27 28 29 30 31 1 2
Sunnudagur
SEPTEMBER
FÓTBOLTI Fjórða umferð ensku
bikarkeppninnar hófst í gær með
fjórtán leikjum. Það bar einna
hæst að Wayne Rooney skoraði
tvö stórfengleg mörk þegar
Manchester United, núverandi
bikarhafi, lagði Middlesbrough
af velli, 3-0. Í viðtali eftir leikinn
virtist Rooney vera í skýjunum
með eigin frammistöðu. „Þetta
eru tvö af flottustu mörkum sem
ég hef skorað á ferlinum,“ sagði
Rooney.
Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri United, tók í sama streng
og var stoltið uppmálað með pilt-
inn. „Frábær mörk, sérstaklega
hið seinna. Það fyrsta var hár-
nákvæmt, ótrúlegt mark,“ sagði
Ferguson. „Þetta var erfið viður-
eign þar sem Middlesbrough hef-
ur oft náð að krækja sér í stig á
okkar heimavelli. Leikmennirnir
voru tilbúnir í slaginn í dag og
héldu hraðanum vel uppi.“
Stórkostlegur leikmaður
John O’Shea skoraði fyrsta
mark leiksins á 10. mínútu en
stórsýning Rooney hófst um
miðjan síðari hálfleik. Steve
McClaren, knattspyrnustjóri
Middlesbrough, sparaði ekki
stóru orðin þegar hann lýsti að-
dáun sinni á frammistöðu Roon-
ey.
„Hann er stórkostlegur leik-
maður og það sást vel í þessum
leik,“ sagði McClaren.
„Við vissum að við ættum erf-
iðan leik fyrir höndum og við
lentum á mjög vel stemmdu
Manchester-liði sem er afar
erfitt. Við hefðum þurft að vera
fyrri til að skora því þá hefur
okkur yfirleitt vegnað vel hér.
Svo náðum við ekki að jafna leik-
inn, þrátt fyrir gott tækifæri, og
okkur var refsað fyrir það.“
Arsenal er komið áfram í
fimmtu umferð bikarkeppninnar
eftir sigur á Wolves, 2-0. Patrik
Vieira skoraði fyrra markið úr
vítaspyrnu í byrjun seinni hálf-
leiks eftir að Thierry Henry var
felldur af markverði Wolves,
Michael Oakes. Freddie Ljung-
berg innsiglaði sigur Arsenal 8
mínútum fyrir leikslok.
„Miðverðir Wolves áttu frá-
bæran leik í dag,“ sagði Arsene
Wenger, knattspyrnustjóri
Arsenal. „Þetta var mjög góð æf-
ing fyrir komandi átök á þriðju-
daginn þegar við mætum
Manchester United. Áræðni liðs-
ins sem og skipulag komu mér
skemmtilega á óvart.“
Hoddle sótillur
Glenn Hoddle, knattspyrnu-
stjóri Wolves, var sótillur út í
dómarann. „Ég veit ekki hvernig
menn velja dómara en það þarf
að endurskoða það, það er alveg
ljóst,“ sagði Hoddle.
„Við fengum dæmt á okkur
vafasamt víti en þeir sluppu með
skrekkinn þegar dómarinn hefði
getað gefið okkur víti sem var
borðleggjandi.“
Harry Redknapp stjórnaði
síðan Southampton til sigurs
gegn sínum gömlu lærisveinum í
Portsmouth en sigurmarkið kom
úr víti á lokamínútum leiksins.
Engin óvænt úrslit urðu í gær
en úrvalsdeildarlið Charlton
vann þó nauman 3–2 sigur á 3.
deildarliði Yeovil, Fulham gerði
1–1 jafntefli við Derby og
Tottenham náði aðeins jafntefli
gegn botnliði West Brom.
smari@frettabladid.is
GULL AF MÖRKUM Wayne Rooney skoraði tvö glæsimörk í 3–0 sigri Manchester
United á Middlesbrough í ensku bikarkeppninni í gær. Hér fagnar Rooney.
Tvö flottustu mörkin mín
Enska bikarkeppnin hélt áfram í gær. Wayne Rooney gerði allt brjálað á Old
Trafford með tveimur af flottustu mörkum sínum á ferlinum. Arsenal fór létt
með Wolves þar sem Glenn Hoddle kvartaði sáran undan dómgæslu leiksins.
■ ■ LEIKIR
12.00 Fylkir og HK/Víkingur
mætast í Egilshöll í Reykjavíkurmóti
kvenna í fótbolta.
12.00 Stjarnan og ÍBV mætast á
Stjörnuvelli í Reykjavíkurmóti kvenna
í fótbolta.
13.15 Fjarðabyggð og Þór mætast
í Boganum í Powerade-móti karla í
fótbolta.
13.15 KS og Tindastóll mætast í
Boganum í Powerade-móti karla í
fótbolta.
14.00 Valur og Fjölnir mætast í
Egilshöll í Reykjavíkurmóti kvenna í
fótbolta.
16.00 Valur og Höttur mætast á
Hlíðarenda í 1. deild karla í
körfuknattleik.
12.00 ÍR og KR mætast í Egilshöll í
Reykjavíkurmóti kvenna í fótbolta.
19.00 Valur og Fjölnir mætast í
Egilshöll í B-riðli Reykjavíkurmóts
karla í fótbolta.
19.15 KR og Tindastóll mætast í
DHL-Höllinni í Intersportdeild karla í
körfu.
19.15 ÍR og Keflavík mætast í
Seljaskóla í Intersportdeild karla í
körfu.
19.15 Grindavík og Fjölnir mætast
í Grindavík í Intersportdeild karla í
körfu.
19.15 Hamar/Selfoss og Njarðvík
mætast í Hveragerði í Intersportdeild
karla í körfu.
19.15 Snæfell og Skallagrímur
mætast í Stykkishólmi í
Intersportdeild karla í körfu.
19.15 KFÍ og Haukar mætast á
Ísafirði í Intersportdeild karla í körfu.
19.15 Haukar og Njarðvík mætast
á Ásvöllum í 1. deild kvenna í körfu.
21.00 ÍR og Fylkir mætast í
Egilshöll í B-riðli Reykjavíkurmóts
karla í fótbolta.
■ ■ SJÓNVARP
09.15 Hnefaleikar á Sýn. Sýnt frá
bardaga Arturo Gatti og Jesse James
Leija.
11.15 NFL-Tilþrif á Sýn.
11.45 Bandaríska mótaröðin í
golf á Sýn. Buick Invitational-mótið.
12.40 Bestu bikarmörkin á Sýn.
Fallegustu mörk í sögu enska
bikarsins.
13.35 Enski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá Oldham og Bolton.
15.35 Enski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá Chelsea og
Birmingham.
16.00 Alþjóðlegt sundmót Ægis á
RÚV. Bein útsending frá mótinu sem
fram fer í nýju keppnislauginni í
Laugardal.
17.50 Spænski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Numancia og Real
Madrid.
19.50 NBA-körfuboltinn á Sýn.
Bein útsending frá leik Miami og
Houston.
22.05 Helgarsportið á RÚV.
20.25 Ítalski boltinn á Sýn.
Útsending frá leik Palermo og Inter.
Enska bikarkeppnin
SOUTHAMPTON–PORTSMOUTH 2–1
1–0 Oakley (54.), 1–1 Yakubu, víti (57.), 2–1
Crouch, víti (90.).
ARSENAL–WOLVES 2–0
1-0 Vieira, víti (53.), 2-0 Ljungberg (82.).
BLACKBURN–COLCHESTER 3–0
1-0 Watson, sjálfsm. (21.), 2-0 Johnson (27.), 3-0
Matteo (51.).
BRENTFORD–HARTLEPOL 0–0
BURNLEY–BOURNEMOUTH 2–0
Moore 1-0 (17.), 2-0 Moore (90.).
CHARLTON–YEOVIL 3–2
1-0 Hughes (37.), 1-1 Terry (44.), 2-1 Jeffers
(51.), 3-1 Bartlett (57.), 3-2 Davies (66.).
DERBY–FULHAM 1–1
1-0 Tudgay (56.), 1-1 John (71.).
EVERTON–SUNDERLAND 3–0
1-0 McFadden (9.), 2-0 Beattie (27.), 3-0 Cahill
(80.).
NEWCASTLE–COVENTRY 3–1
1-0 Shearer (37.), 2-0 Ameobi (42.), 2-1 Adebola
(45.), 3-1 Babayaro (52.).
NOTT. FOR.–PETERBOROUGH 1–0
1-0 King (10.).
READING–LEICESTER 1–2
1-0 Forster (10.), 1-1 Williams (32.), 1-2
Scowcroct (90.).
WEST BROM–TOTTENHAM 1–1
1-0 Earnshaw (17.), 1-1 Defoe, víti (31.).
WEST HAM–SHEFF UTD. 1–1
1-0 Harewood (39.), 1-1 Jagielka (57.).
MAN UTD–MIDDLESBROUGH 3–0
1-0 O´Shea (10.), 2-0 Rooney (67.), 3-0 Rooney
(82.).
Þýska Bundesligan
BIELEFELD–HANNOVER 0–1
0-1 Stendel (30.)
LEVERKUSEN–BOCHUM 4–0
1-0 Krzynowek (28.), 2-0 Voronin (31.), 3-0
Ponte (70.), 4-0 Freier (78.).
DORTMUND–GLADBACH 1–1
1-0 Koller (29.), 1-1 Kluge (49.).
KAISERSLAUTERN–SCHALKE 2–0
1-0 Amanatidis (57.), 2-0 Blank, víti. (75.).
HAMBURG–MAINZ 2–1
1-0 Barbarez (32.), 1-1 Auer (40.), 2-1 Lauth
(80.).
FREIBURG–WOLFSBURG 1–0
1-0 Bajramovic (57.).
STUTTGART–NURNBERG 2–4
0-1 Muller (7.), 0-2 Schroth (11.), 1-2 Meira
(51.), 2-2 Szabics (70.), 2-3 Mintal (85.), 2-4
Schroth (90.).
STAÐAN
BAYERN 18 11 4 3 36–20 37
SCHALKE 19 12 1 6 28–24 37
STUTTGART 19 10 4 5 37–25 34
B. LEVERK. 19 9 5 5 35–25 32
HANNOVER 19 9 4 6 25–19 31
WOLFSB. 19 10 0 9 33–29 30
HERTHA 18 7 8 3 30–17 29
W.BREMEN 18 8 4 6 37–21 28
Ítalska A-deildin
CHIEVO–LIVORNO 1–0
1–0 Tiribocchi (31.).
PARMA–UDINESE 1–0
1–0 Gilardino (34.)
Hið unga lið Hauka sló Íslands- og bikarmeistara Keflavíkur út úr bikarnum:
Sögulegur og sannfærandi stórsigur
ÞREFÖLD TVENNA Helena Sverrisdóttir
hjá Haukum var með þrefalda tvennu í
sögulegum stórsigri á Íslands- og bikar-
meisturum Keflavíkur. Helena skoraði 17
stig, tók 21 frákast og gaf 11 stoðsending-
ar á félaga sína en hún var búin að ná
þrennunni fyrir lok þriðja leikhluta.
FLEST STIG SKORUÐ GEGN
KVENNALIÐI KEFLAVÍKUR:
100 Haukar, bikarkeppni 2005
98 Breiðablik, úrslitakeppni 1995
90 KR, úrslitakeppni 1999
87 KR, deildin 2001
84 ÍS, deildin 2002
83 KR, deildin 2002**
82 Grindavík, fyrirtækjabikar 2001
82 Grindavík, deildin 2001*
*= fjöldi framlenginga