Fréttablaðið - 30.01.2005, Side 39
SUNNUDAGUR 30. janúar 2005 27
300 kílóa múrinn
hélt á Hlíðarenda
Góður árangur náðist á Íslandsmótinu í bekk-
pressu 2005 sem fram fór í Valsheimilinu í gær.
LYFTINGAR Íslandsmótið í bekk-
pressu var haldið í Valsheimilinu
að Hlíðarenda í gær og var fjöldi
áhorfenda mættur til að verða
vitni að hrikalegum átökum kepp-
enda. Mótið heppnaðist prýðilega
og mörg met féllu, eins og Hjalti
„Úrsus“ Árnason, kynnir keppn-
innar, var búinn að lofa. Frábær
stemning var á keppninni eins og
endranær, þar sem tröllin
hnykluðu vöðvana og létu vel í
sér heyra undir harðri rokktónlist
og fagnaðarópum áhorfenda.
Konurnar voru fyrstar á svið
og þar var árangurinn frábær.
María Guðsteinsdóttir bætti Ís-
landsmetið í 67,5 kg flokki, lyfti
100 kílóum og hlaut þar að auki
stigaverðlaunin í kvennaflokki.
Jóhanna Eyvindsdóttir Christian-
sen gerði sér lítið fyrir og bætti
Íslandsmetið í +90 kg flokki um
nærri 40 kíló þegar hún lyfti 120
kílóum, sannkölluð tímamótalyfta
hjá henni.
Héraðsmaðurinn sterki, Ísleif-
ur Árnason, sigraði örugglega í 90
kg flokki og bætti Íslandsmet
Jóns Gunnarssonar um hálft kíló
þegar hann lyfti 210,5 kílóum í
annarri tilraun.
Hermann Hermannsson sigr-
aði í hundrað kílóa flokki og setti
Íslandsmet með því að lyfta 221
kílói við mikinn fögnuð áhorf-
enda.
Jakob Baldursson varð hlut-
skarpastur í 110 kg flokknum
þegar hann tvíbætti Íslandsmetið
og stendur það nú í 250 kílóum
sem er frábær árangur.
Keppni í þyngstu flokkunum
hafði verið beðið með mikilli eft-
irvæntingu og var stefnan fyrir
mótið sett á að 300 kílóa múrinn
yrði brotinn hérlendis í fyrsta
sinn. Sú varð ekki raunin í þetta
sinn, en þó náðist mjög góður ár-
angur og keppendur náðu að bæta
sig talsvert. Magnús Magnússon
bætti sig talsvert þegar hann lyfti
270 kílóum en var óheppinn að
gera ógilt þegar hann reyndi við
285 kíló. Magnús hefur lofað að
hann muni taka 300 kílóin á árinu
og miðað við skriðinn sem er á
stráknum er hann til alls líklegur,
enda ungur maður þar á ferð.
Gamla brýnið Ingvar J.
Ingvarsson olli engum vonbrigð-
um frekar en venjulega, enda
mikill keppnismaður og setur
jafnan skemmtilegan svip á
keppnir hvar sem hann tekur
þátt. Ingvar varð stigahæsti mað-
ur mótsins í karlaflokki og setti
nýtt Norðurlandamet öldunga
þegar hann lyfti 280 kílóum sem
nægði honum til sigurs í 125 kg
flokki. Auðunn Jónsson sigraði í
+125 kg flokki með því að lyfta
280 kílóum, en hann átti tvær Ís-
landsmetstilraunir við 300 kílóin
frægu sem ekki vildu upp að
þessu sinni. Búast má við að hörð
atlaga verði gerð að því á næst-
unni, því mikill hugur er í mönn-
um og framfarirnar örar.
baldur@frettabladid.is
Landskeppni í karate:
Unnu Noreg
KARATE Ísland og Noregur áttust
við í landskeppni í karate fyrir
fullu húsi í Borgarleikhúsinu í
gær. Keppnin var glæsileg í alla
staði og mátti sjá fremsta
karatefólk landsins sýna hæfni
sína í baráttu sinni við frændur
sína og frænkur frá Noregi.
Íslendingar báru sigur úr být-
um með sjö vinningum gegn fjór-
um í þessari vináttuviðureign
landanna.
Edda Blöndal, margfaldur Ís-
landsmeistari, sigraði báðar sínar
viðureignir í keppninni. Þá er
einnig vert að minnast á þegar
nokkrir íslenskir keppendur
sýndu snilli sína í kata sem var
sérlega tilkomumikið. ■
Breytingar á kvennaliði Keflvíkinga í körfuboltanum:
Rose látin fara eftir 2 leiki
KÖRFUBOLTI Stjórn körfuknattleiks-
deildar Keflavíkur hefur ákveðið
að segja upp samningnum við
Latoya Rose hjá kvennaliði Kefl-
víkinga sem kom í stað Reshea
Bristol í síðustu viku.
„Hún stóð ekki undir þeim
væntingum sem til hennar voru
gerðar, alveg langt í frá,“ sagði
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari
Keflavíkur.
„Hún hjálpaði okkur ekki neitt
og það gæti í rauninni hver sem er
af bekknum gert það sama og hún
var að gera. Við væntum náttúr-
lega meira af atvinnumönnunum
og ætlumst til að þeir leggi sig
manna mest fram á vellinum.“
Að sögn Sverris eru frekari út-
lendingamál í athugun hjá Kefl-
víkingum.
„Það er auðvitað mjög slæmt
að þurfa að skipta aftur um er-
lendan leikmann og við urðum af
einum titli út af þessu. Við erum
þó með fína stöðu í deildinni og
þurfum bara að koma okkur á
sporið aftur,“ sagði Sverrir Þór.
Rose lék tvo leiki með Keflavík og
töpuðust báðir.
Rose skoraði 17 stig í fyrri
leiknum en 4 í þeim seinni og hitti
aðeins úr 9 skotum af 34 í leikjun-
um tveimur auk þess sem hún gaf
aðeins þrjár stoðsendingar á sama
tíma og hún tapaði 10 boltum til
mótherjanna.
smari@frettabladid.is
Kommarnir
sigra Berlusconi
– Einar Logi skrifar um boltann í
Suður-Evrópu
Í landi þar sem forsætisráðherrann á
eitt besta fótboltaliðið og stjórnar nær
öllum helstu fjölmiðlunum er óhjá-
kvæmilegt að stjórnmál þvælist inn í
orðræðu knattspyrnuáhugamanna.
Þessi sam-
tvinning póli-
tíkur og fót-
bolta er svo-
sem eldri en
signor
Berlusconi
enda verið
tíska meðal
umdeildra
auðmanna að
eiga eitt stykki
fótboltalið allar götur síðan Agnelli fjöl-
skyldan keypti Juventus fyrir 80 árum.
En hún hefur sjaldan lifað jafn góðu lífi
og eftir að Berlusconi settist í stól for-
sætisráðherra í annað sinn.
Dómararnir á spena
Mestri leikni hafa knattspyrnuáhuga-
menn náð í að tengja dómara við vald-
hafanna og hefur t.a.m. Juventus þótt
njóta óeðlilegrar fyrirgreiðslu þennan
veturinn. Þetta er rætt af þrótti í knatt-
spyrnublöðunum á Ítalíu og slæðist líka
inn í heimspressuna eins og sjá má á
skrifum James Richardson í The Guardi-
an en hann er helsti útbreiðandi ítalska
boltans á Englandi. Richardson fjallar
ævinlega um þetta á gamansaman hátt
en Ítölum sem láta málið sig varða er
full alvara. Hvað sem er til í þessum
ásökunum eru þær hinsvegar svo yfir-
drifnar og samsæriskenningarnar flókn-
ar að það er býsna erfitt að ræða þær
af viti við Ítali, þeir verða hálfpartinn
eins og gangandi grínfígurúr af sjálfum
sér þegar þeir taka mesta flugið. AC
Milan og Juventus eru slík yfirburðalið á
Ítalíu þessa leiktíðina að þau þurfa litla
hjálp frá dómurunum. En það eru auð-
vitað nægar aðrar ástæður fyrir aðdá-
endur allra annarra liða að hata þau
eins og pestina. Ekki síst eignarhald
Berlusconi á Milan enda hefur ítalska
þjóðin ekki verið eins klofin í stjórnmál-
um síðan á dögum Mussolini. Ekki til-
viljun að þeim fyrrnefnda gjarnan líkt
við hinn síðarnefnda af andstæðingum.
Kauptu múrarann!
Hörðustu aðdáendur liðanna á Ítalíu
nefnast „ultras“ og er algengt að þær
halli sér að öfgastefnum í stjórnmálum,
svona til að fylla upp í tómarúmið sem
myndast þegar ekki er lengur hægt að
segja neitt meira um síðasta leik! Það
hvort bullurnar hneigjast til hægri eða
vinstri hefur svsosum ekki mikið með
liðin að gera, ræðst meira af pólitískri
sögu borganna. Frægustu hægribullurn-
ar eru stuðningsmenn Lazio en af
vinstribullunum eru stuðningsmenn
Livorno fremstar í flokki. Livorno er
þriðja stærsta hafnarborg Ítalíu og þar
hafa vinstri menn ráðið málum áratug-
um saman. Aðdáendurnir mæta með
kommúnistafána á völlinn og klæðast
bolum af Che Guevara. Leikmenn marg-
ir ósparir á pólitískar yfirlýsingar, sér-
staklega um samsæri hægri sinnaðra
dómara um að koma þessu liði litla
mannsins beinustu leið niður í Serie B.
Um síðustu helgi mætti Livorno liði
Berlusconi og var að sjálfsögðu uppselt
á völlinn og mikill hiti í mönnum. Alla
vikuna höfðu aðdáendurnir undirbúið
sig og útbúið risastóran fána með
áletrunninni „Spinelli kauptu Dal
Bosco“ en kappi sá er ekki knattspyrnu-
maður heldur múrari og hafði unnið sér
það til frægðar að slasa Berlusconi með
því að henda í hann þrífæti undan ljós-
myndavél fyrir skömmu. Leikurinn vakti
gríðarlega athygli fyrir þessi pólitísku
átök og einnig að gamla Milan-hetjan
Roberto Donadoni mætti þarna sínu
gamla liði í fyrsta sinn en hann tók við
Livorno fyrir mánuði. Hatursmönnum
Milan og Berlusconi til óblandinnar
gleði sigraði smáliðið ríkisbubbana með
einu marki gegn engu. „Stærsti sigurinn
í 63 ára sögu félagsins,“ sagði eigand-
inn Aldo Spinelli.
„Verst að Fíat-
klíkan [Juvent-
us] græðir á
þessu“ bætti
hann hnugg-
inn við.
EINAR LOGI
VIGNISSON SÁRT SAKNAÐ Keflavík vann alla 17
leikina með Reasheu Bristol innanborðs
en hefur tapað báðum leikjunum án
hennar.
GÓÐUR ÁRANGUR Það var mikil stemning í Valsheimilinu í gær þegar Íslandsmeistara-
mótið í bekkpressu fór þar fram. Góður árangur náðist á mótinu. Fréttablaðið/xx