Tíminn - 09.01.1975, Qupperneq 7

Tíminn - 09.01.1975, Qupperneq 7
Fimmtudagur 9. janúar 1975. TÍMINN 7 tmi Otgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm). Jón Helgason. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu viö Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrif- stofur I Aöalstræti 7, sími 26500 — afgreiðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verö i lausasölu kr. 35.00. Askriftargjaid kr. 600.00 á mánuði. Blaðaprent h.f. J Sjö staðreyndir Þjóðviljinn reynir nú árangurslaust að hnekkja þeirri staðreynd, að núv. rikisstjórn hefur i höfuðdráttum ekki beitt öðrum úrræðum i efna- hagsmálum en vinstri stjórnin var búin að móta og Alþýðubandalagið var þá búið að fallast á. Vegna skrifa Þjóðviljans þykir rétt að rifja upp enn einu sinni eftirgreindar staðreyndir: í fyrsta lagi er að nefna gengisfellinguna. Alþýðubandalagið var búið að fallast á 15% gengislækkun i viðræðum um myndun nýrrar vinstri stjórnar á siðastl. sumri. Jafnframt var ljóst, að yrðu láglaunabætur hærri en þá var ætl- að, þyrfti gengislækkunin1 að verða meiri. Núv. rikisstjórn lækkaði gengið um 17% en hafði lág- launabæturnar hærri en rætt hafði verið um i áðurnefndum viðræðum. 1 öðru lagi er að nefna hækkun söluskatts um 2%, Alþýðubandalagið hafði strax fallizt á þessa söluskattshækkun um fyrri áramót og talið hana þá nauðsynlega. Þá var fyrirhugað af vinstri stjórninni að hækka söluskattinn um 1% og um 5% vegna tekjuskattslækkunarinnar, en aðeins fékkst fram 4% hækkun söluskattsins. 1 þriðja lagi er að nefna hækkun benzin- skattsins. Sú hækkun naut eindregins stuðnings Alþýðubandalagsins, meðan það var i stjórn. 1 fjórða lagi er að nefna verðjöfnunargjaldið, sem lagt var á raforkuna. Frumvarpið um það efni var tviflutt af Magnúsi Kjartanssyni sem orkumálaráðherra, þótt hann sæti hjá við af- greiðslu þess, eftir að hann var farinn úr rikis- stjórn. í fimmta lagi er að nefna hækkanir, sem hafa orðið á verðlagi landbúnaðarafurða. í þeim efn- um hefur núverandi rikisstjórn fylgt alveg sömu reglum og vinstri stjórnin fylgdi og Alþýðu- bandalagið gerði enga athugasemd við. Rétt er lika að geta þess, að það hefur ekki deilt á þær hækkanir, sem orðið hafa á þessum vörum eftir stjórnarskiptin, heldur talið sanngjarnt að bænd- ur fengju þær. í sjötta lagi er svo að nefna þær hækkanir, sem verðlagsyfirvöld hafa leyft á ýmiss konar þjón- ustu og vöruverði. Þær hækkanir, sem núverandi stjórn hefur leyft, hafa yfirleitt verið stórum minni en óskað hefur verið eftir, og eru tiltölulega sizt meiri en þær hækkanir, sem voru leyfðar, þegar Lúðvik Jósefsson var viðskiptaráðherra. Núverandi viðskiptaráðherra hefur reynt að tak- marka þær, ekkert siður en Lúðvik, en þó verið erfiðara um vik, þvi að ýmsar opinberar þjónustustofnanir voru reknar með miklum halla siðustu misserin, sem vinstri stjórn fór með völd. I sjöunda og siðasta lagi er svo að nefna það, að i viðræðunum um myndun nýrrar vinstri stjórnar, var Alþýðubandalagið búið að fallast á, að kaupgreiðsluvisitalan héldist óbreytt a.m.k. til 1. marz 1975. Þannig er það augljóst, að núv. rikisstjórn hef- ur ekki gert neitt það i efnahagsmálum, sem vinstri stjórn var ekki búin að marka og Alþýðu- bandalagið var ekki búið að fallast á. Núverandi rikisstjórn hefur ekki neitt breytt stefnunni, en si- versnandi viðskiptakjör hafa hins vegar gert að verkum, að ekki er hægt að tryggja nú jafngóð lifskjör og þegar viðskiptakjörin voru bezt i tið vinstri stjórnarinnar. Það er álika rangt af Þjóðviljanum að ætla að þakka vinstri stjórninni hin hagstæðu viðskiptakjör, og það er rangt hjá Mbl. og Vísi að kenna henni um, þegar viðskipta- kjörin versnuðu. þ.þ. ERLENT YFIRLIT Tekst Hartling að halda velli? Sennilega verður hann forsætisrdðherra dfram Paul Hartling ÞÓTT svo fari, eins og nú eru taldar horfur á, aö Vinstri flokkurinn allt að þvi tvöfaldi þingsætatölu sina i kosningun- um I dag, mun hann ekki fá mikiö meira fylgi en hann fékk Ikosningunum 1964, en þá fékk hann 38 þingmenn kosna. Flokkurinn hefur nefnilega tapað I öllum kosningum undir forustu Hartlings þangað til nú. Hann fékk 35 þingmenn i kosningunum 1966, 34 þing- menn i kosningunum 1968, 30 þingmenn i kosningunum 1971, og ekki nema 22 þingmenn i kosningunum 1973. Eftir siðari heim sstyrjöldina fékk flokkurinn mest fylgi I þing- kosningunum 1957, en þá fékk hann 45 þingmenn kosna. Mestur var vegur hans fyrr og siðar i þingkosningunum 1920, en þá fékk hann 34.4% greiddra atkvæða. Þá átti hann aðalfylgi sitt i sveitum, en siðan hefur Ibúum mjög fækkað þar og það bitnað á flokknum. Ef flokkurinn eykur verulega fylgi sitt nú, verður hann að vinna hið nýja fylgi sitt i kaupstöðum og borgum. Vinstri flokkurinn er elzti flokkur Danmerkur, stofnaður 1870, og var það hlutverk hans þá, að ryðja þingræði og auknu frjálsræði braut. Frá þeim tima ber hann vinstra nafnið. RADIKALA flokknum er nú spáð verulegum ósigri. Hann rekur sögu sina tii 1905, er klofningur var I Vinstri flokknum. Aldrei hefur verið mjög langt á milli þessara flokka, en Radikali flokkurinn þó verið lengra til vinstri og þvi oft verið samstarfsflokkur við sósialdemókrata. Flokkur- inn fór heldur minnkandi fyrst eftir siðari heimsstyrjöldina og 1964 var svo komið, að hann fékk ekki nema 5.3% af at- kvæðamagninu og 10 þing- menn kjörna. Árið 1966 fékk hann 13 þingmenn kjörna, og i kosningunum 1968 meira en tvöfaldaði hann þingsætatölu sina, en þá fékk hann 27 þing- menn kjörna. Sigur hans þá byggðist á miklum vinsældum Hilmars Baunsgaard, sem var á þeim tima mesta sjónvarps- stjarna danskra stjórnmála. Eftir kosningarnar 1968 myndaði Baunsgaard rikis- stjórn Radikala flokksins, Vinstri flokksins og Ihalds- flokksins og fór hún með stjórn til 1971. í kosningunum þá hélt Radikali flokkurinn enn 27 þingsætum, en i kosn- ingunum i fyrra fékk hann ■ ekki nema 20 þingmenn kjörna. Segja má, að Vinstri flokkurinn og Radikali flokk- urinn hafi um langt skeið myndað miðjuna i dönskum stjórnmálum, en þar hafa nú fleiri flokkar komið til sögu, eins og miðdemókratar og Kristilegi flokkurinn. ÞVl ER spáð nú, að flokkur sósialdemókrata muni halda velli, ef miðað er við úrslit kosninganna i fyrra. Slikt get- ur þó ekki talizt neinn sigur, þvi að I kosningunum i fyrra tapaði flokkurinnhvorkimeira né minna en 24 þingsætum. Það átti stærstan þátt i tapi hans þá, að einn af helztu áhrifamönnum flokksins, Er- hard Jacobsen borgarstjóri, klauf sig úr flokknum og stofn aði nýjan flokk, flokk mið- demókrata. Hann fékk 14 þingsæti. Nú er þvi spáð, að miðdemókratar biði mikinn ósigur, en það virðist ekki ætla að verða vatn á myllu sósfal- demókrata, ef þeir gera ekki betur en að halda fylginu frá i fyrra. Sósialdemókratar mega muna sinn fifil fegri, en mest fylgi fengu þeir i þing- kosningunum 1937, eða 46.1% greiddra atkvæða, en þá var vegur Staunings hvað mestur, en hann hefur verið áhrifa- mesti leiðtogi þeirra fyrr og siðar. 1 fyrra fengu þeir aðeins 25.7% greiddra atkvæða. 1 þingkosningunum eftir siðari heimsstyrjöldina hafa þeir fengið mest fylgi i kosningun- um 1960 og 1966, en þá fengu þeir 76 þingmenn kjörna. tHALDSFLOKKURINN hefur aldrei verið verulega stór flokkur siðan á dögum Estrups. Að vissu leyti kann það að stafa af þvi, að siðan 1915hefur flokkurinn verið til- tölulega frjálslyndur og oft haft viðsýnum leiðtogum á að skipa, t.d. Christmas Möller. Hann safnaði þvi aldrei um sig öllu hægra fylginu. Flokkurinn virtist vera i nokkrum vexti 1964, þegar hann fékk 36 þing- menn kjörna og 1968, þegar hann fékk 37 þingmenn kjörna. Hann fékk 31 þing- mann kjörinn 1971, en i kosn- ingunum i fyrra ekki nema 16. Hann mun þá hafa misst mest fylgi til hins nýja framfara- flokks Glistrups. SÓSÍALISKI þjóðarflokkur- inn kom til sögunnar 1960, er Aksel Larsen klauf sig úr kommúnistaflokknum og myndaði nýjan flokk. Hann fékk þá 11 þingsæti, en kommúnistar misstu öll þing- sæti sin. Mestu fylgi náði flokkurinn 1966, er hann fékk 20 þingmenn kjörna. Sigur hans þá mun hafa ýtt undir það, að Alþýðubandalagið gerðist stjórnmálaflokkur og sleit formlega tengslin við kommúnistaflokka. I kosning- unum 1971 fékk flokkurinn 17 þingsæti, en i kosningunum i fyrra ekki nema 11. Þá komu kommúnistar aftur til sögu að nýju sem þingflokkur, en þeir fengu sex menn kjörna. Sam- kvæmt spám nú mun Sósialiski þjóðarflokkurinn ekki gera meira en að standa i stað, en hins vegar er kommúnistum spáð nokkurri fylgisaukningu. HÉR hefur verið getið þeirra fimm stjórnmála- flokka, sem mest hafa sett svip á dönsk stjórnmál undan- farna áratugi. í kosningunum i fyrra bættust hins vegar við fimm nýir þingflokkar. Tveir af þeim, kommúnistar og Réttarsambandið, sem fékk 5 þingmenn, höfðu áður átt full- trúa á þingi. Hinir þrir voru hins vegar alveg nýir, eða miðdemókratar, sem fengu 14 þingsæti, Kristilegi flokkur- inn, sem fékk 7 þingmenn, og framfaraflokkur Glistrups, sem fékk hvorki meira né minna en 28 þingsæti og varð annar stærsti flokkur þings- ins. Flokkurinn er i senn hægri flokkur og lýðskrumsflokkur. Eitt af stefnumálum hans er t.d. að leggja alveg niður utanrikisþjónustuna, nema sendiráðið i Brussel. Þá vill hann fækka þingmönnum úr 179 i 40 og láta landið allt vera eitt kjördæmi. Þingmenn skulu kosnir persónulega, þannig að einn þingmaður er kosinn hvern mánuð. Sitthvað af slikum tillögum flokksins virðast hafa gengið i augu kjósenda. AÐ SJÁLFSÖGÐU er nú margt rætt um það eftir kosn- ingarnar, hvað taki við að þeim loknum. I upphafi kosn- ingabaráttunnar spáðu marg- ir þvi, að Vinstri flokkurinn og sósialdemókratar mynduðu stjórn saman eftir þær. Nú þykir þetta ekki eins liklegt, þar sem bæði Hartling og Ank- er Jörgensen, leiðtogi sósial- demókrata, krefjast þess að fá stjórnarforustuna. Útilokað er þetta þó ekki. þvi að oft verður að sveigja frá þvi, sem er sagt I hita kosningabaráttunnar. Ef vinstri flokkurinn vinnur mik- inn sigur, virðist liklegast að Hartling verði forsætisráð- herra áfram. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.