Tíminn - 24.01.1975, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Föstudagur 24. janúar 1975.
Föstudagur 24. janúar 1975
Vatnsberinn (20. jan.—18. febr.)
Enda þótt einhverjir nákomnir þér séu á ein-
hvern hátt andvigir þvi, sem þú ert að bralla, þá
skaltu ekki láta það hafa minnstu áhrif á þig,
heldur halda fast við það, sem þú ert sannfærður
um, að sé rétt. Svaraðu gagnrýni.
Fiskarnir (19. febr.—20. mai .
Loksins, — þegar stendur orðið nákvæmlega á
sama — fást úrslit i einhverju máli, sem þér lá
óskaplega mikið á hjarta á sinum tima og þú
þráðir ekkert heitara en hagstæða lausn. Það
má vel vera að þér finnist eitthvað til um
fréttirnar núna.
Hrúturinn (21. marz—19. april)
Ef þú bara blandar ekki saman starfi og
skemmtun, þá ættirðu að fá töluverðu áorkað i
máli, sem varðar þig þó talsvert miklu. Vandinn
við það að vera vingjarnlegur við samstarfs-
fólkið er það, að þá er eins og aginn vilji fara út
um þúfur.
Nautið (20. april—20. maí)
Það er næsta liklegt, að þú rekist á eitthvað það i
dag, sem verður þér til framdráttar á einhvern
skemmtilegan hátt. Þetta gæti verið i sambandi
við peningamál, eða einhvers konar viðskipti, —
en samt skaltu nú fara að öllu varlega.
Tviburarnir (21. maí—20. júni)
Ef þú gætir þin á þvi að blanda ekki saman starfi
og skemmtun ættirðu að geta áorkað talsverðu i
dag i máli, sem varðar þig miklu. Ef þetta
heppnast skaltu gleðjast með þinu fólki yfir
árangrinum. Þið hafið þá tii þess unnið.
Krabbinn (21. júní—22. júli)
Þetta er heldur hagstæður dagur. Þú skalt gera
þett bezta til þess að sinna öllum þeim f jölmörgu
verkefnum, sem þú hefur tekið að þér. Þú skalt
hafa mikla aðgát á öllu þvi, sem einhver áhrif
getur haft á einkalif þitt. Þú átt gott með einbeit-
inguna.
Ljónið (23. júlí—23. ágúst)
Það er hætt við þvi, að fjármálin taki mjög tima
þinn i dag, og þú gerir eitthvað það, sem mun
bæta mjög fjárhagslega aðstöðu þina, en þú ætt-
ir endilega að ganga úr skugga um, hvort þú eig-
ir ekki einhvers staðar eign, sem þú er búinn að
gleyma.
Jómfrúin (24. ágúst—22. sept.)
Það er hætt við þvi, að það fari ýmislegt öðruvisi
en ætlað er i dag. Það getur vel farið svo, að þú
fáir tækifæri til að taka þátt i mannfagnaði, og
það skaltu endilega gera og hafa það þá hugfast
að umgangast þá, sem þú umgengst ekki venju-
lega.
Vogin (23. sept.—22. okt.)
Það eru þó nokkrar likur á þvi, að þér verði á
einhver mistök i dag, og þess vegna ættir þú að
fara einstaklega varlega að i hvivetna, hvað sem
þú tékur þér fyrir hendur. Starfsorkan er mikil,
en gættu þess að ofreyna þig ekki.
Sporödrekinn (23. okt—21. nóv.)
Þú ert uppfullur af hugmyndum og orku, en það
er hætt við þvi, að það standi ósköp stutt, þvi
miður, svo að þú skalt reyna að beina þreki þinu
i æskilega farvegi, — þá er heldur ekki svo mikil
hætta á örvæntingunni, sem stundum hrjáir þig.
Bogmaðurinn (22. nóv.—21. des.)
Þaö litur bara út fyrir, að þú eigir auðvelt með
það i dag að gleyma þvi leiðniega, sem gerðist i
siðustu viku, og þú munt finna það, að vinir þinir
og fjölskylda stendur að baki þér og styðja þig i
einu og öllu. Gætir átt ánægjulega kvöldstund.
Steingeitin (22. des.-19. jan)
ffeldur er nú að birta yfir, finnst þér ekki? Heils-
an er kannski ekki upp á það allra bezta, en það
er ymislegt annað sem þú hefur ástæðu til aö
vera ánægður yfir. Þér berast að likindum
fregnir af fjarlægum vini eða kunningja.
JOHNS-MANVILLE
glerullar-
9 einangrun
er nú sem fyrr vinsælasta og öruggasta glerull-
areinangrun á ma.rkaðnum í dag. Auk þess fáió
þér frian álpappir með. Hagkvæmasta
einangrunarefnið i flutningi. Jafnvel flugfragt
borgar sig.
Muniö Johns-Manville í alla einangrun.
Sendum hvert á land sem er.
JÖN LOFTSSOI
Hringbrout 121 Simi I
•4 HF.
0 600
1 dag, föstudaginn 24. janúar,
er fyrsti dagur i þorra — hinn
svokallaði bóndadagur.
— Það hefur liklega verið vegna
þess, að bóndadagurinn var i
nánd, að mig dreymdi i nótt
vfsu, sem ég ætla að láta ykkur
heyra, sagði Höskuldur Einars-
son frá Vatnshorni við Timann i
gær. En draumvisan var svona:
Nú er hér komið kvennaár,
kaldsamt með norðansteytu,
efnahagsmálin illa klár;
eiginmenn þjást af streitu.
Snjó-hjólbarðar
til sölu í flestum stærðum
góð snjó-mynstur
HAGSTÆTT VERÐ
Sólum flestar
stærðir
ÁBYRGD Á SÓININGU
Sendum í póstkröfu
SÓLN1N6 HE
Nýbýlaveg 4 • Sími 4-39-88
Kópavogi
! AUGLÝSIÐ í TÍMANUM
Tímlnner
penlngar
]
REYKJAVÍKURDEILD
Rauða kross íslands
NÁMSKEIÐ:
SKYNDIHJÁLP
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 20-22, i sex skipti.
Byrjar 30. janúar n.k.
Ilagaskóli: kennari Hafþór Jónsson,
Breiðboltsskóli: kennari Guðjón Petersen.
Álftamýrarskóli: kennari Sigurður Svei sson.
NÁMSKEIÐ:
Aðhlynning sjúkra
í heimahúsum
Þriðjudaga og miðvikudaga kl. 17-19, i sjö skipti.
Byrjar 29. janúar n.k.
öldugata 4: kennari Kristbjörg Þórðardóttir.
Námskeiðin eru ókeypis og öllum heimil þátttaka.
Upplýsingar og innritun i sima 2-82-22 og að öldugötu
4.