Tíminn - 21.02.1975, Page 17
Föstudagur 21. febrúar 1975.
TÍMINN
17
Nýliðar FH mæta Fram
í fyrstu umferðinni
— og íslandsmeistararnir frá Akranesi leika gegn KR á Laugardalsvellinum
NÝLIÐARNIR úr Hafnarfiröi
FH, mæta Fram í sinum
fyrsta leik I 1. deildar keppn-
inni I knattspyrnu, sem áætlað
er aö hefjist um helgina
17,—18. mai n.k. tslands-
meistararnir frá Akranesi
hefja vörn sfna á tslands-
meistaratitlinum I Reykjavlk,
en þeir mæta Vesturbæjarlið-
inu KR á Laugardalsvellinum
I fyrsta leiknum.
Víkingar fá Vestmannaey-
inga i heimsókn og Valsmenn
leika i Keflavik i fyrstu um-
feröinni. Á þessu sést, aö það
verða fjórir fjörugir leikir i
fyrstu umferðinni, og má bú-
ast við að 1. deildar keppnin
hefjist jafnvel með óvæntum
úrslitum, eins og svo oft áður.
Iþróttasiðan hefur frétt, að
mýliðarnir úr Hafnarfirði
stefni aö þvi að leika heima-
leiki sina á Kaplakrikavellin-
um, en FH-ingar eru byrjaðir
aö undirbúa framkvæmdir við
völlinn, þar sem þeir ætla sér
að gera áhorfendastæði fyrir
1000—1500 áhorfendur. Þá
getur einnig farið svo, að þeir
leiki heimaleiki sina á gras-
vellinum i Njarðvikum.
Eins og kunnugt er, þá eru
öll 1. deildar liðin búin að ráða
sér þjálfara, og eru þau nú
þegar byrjuð að æfa undir
stjórn þeirra, eða æfingaáætl-
un, sem þeir hafa sett upp.
— SOS
Þegar Geir kom inn á.,..
— vöknuðu FH-ingar aftur til lífsins. Þeir voru nær búnir að tapa niður 7 marka
forskoti gegn Hau
FH-ingar, undir stjórn Geirs
Hallsteinssonar, sigruðu erki-
fjendurna úr Firðinum, Hauka, á
miðvikudagskvöldið. Lengi vel
leit út fyrir að FH-ingar ynnu
stórsigur, því að þeir náðu 7
marka forskoti I fyrri hálf-
leiknum. En Haukarnir voru ekki
á þeim buxunuin að gefast upp,
þeir söxuðu á forskotið hjá FH og
minnkuðu rnuninn I aðeins eitt
mark (17:16) á 11. min. siðari
hálfleiksins. Þegar FH-liðið virt-
ist vera að sigla i strand, birtist
Geir Hallsteinsson á vellinum, og
honum tókst að rétta stefnuna hjá
FH-liðinu, sem sigldi undir hans
stjórn I örugga höfn, og stórsigur
ikum
FH (23:17) varð staðreynd I
Firðinum.
Viðar Simonarson lét ekki sjá
sig I iþróttahúsinu i Hafnarfirði,
hvorki til að leika með FH né
stjórna Hauka-liðinu. FH-ingar
létu ekki fjarveru landsliðs-
mannsins á sig fá. Ólafur Einars-
son var i „banastuði”, og skoraði
hann hvert markið á fætur öðru
hjá Gunnari Einarssyni, lands-
liðsmarkverði úr Haukum, sem
átti slæman dag i markinu.
FH-ingar komust i 9:6, en þá var
Clafur tekinn úr umferð. Þrátt
fyrir það juku FH-ingar forskotið
og komust i 14:7, og siðan höfðu
þeir 17:12 yfir i hálfleik. Haukar
byrjuðu af miklum krafti i siðari
hálfleiknum og náðu að minnka
muninn i 17:16.
Það gekk hvorki né rak hjá
FH-ingum i sókninni á þessum
tima, og þegar Geir sá hvað var
að gerast, dreif hann sig úr
æfingabúningnum og birtist á
vellinum. Það var nóg fyrir
FH-liðið. Þórarinn skoraði 18:16
eftir linusendingu frá Geir, og
siðan skoraði Geir 19:16 með góðu
langskoti. Stuttu siðar bætti
Gunnar Einarsson marki við
(20:16) úr vitakasti, og FH-ingar
voru aftur komnir á skriö. Þegar
Geir sá, að stefnan var orðin rétt,
hvarf hann aftur af leikvelli.
FH-ingar juku hraðann og kom-
ust i 23:16, áður en Haukar skor-
uðu siðasta mark leiksins, 23:17.
Þá höfðu þeir ekki skorað mark i
18 min.
Sigur FH-liðsins var sætur, og
nú eru FH-ingar enn með i barátt-
unni um íslandsmeistaratitilinn.
Birgir Finnbogason, Gunnar
Einarsson, og Ólafur Einarsson
áttu beztan leik hjá FH-liðinu.
Mörk liðsins skoruðu: Þórarinn
8(4 viti), Ólafur 6, Gunnar 5(1
viti), Arni, Geir og Tryggvi eitt
hver. FH-ingar tóku Hörð
Sigmarsson úr umferð i leiknum,
og hafði það sin áhrif á leik
Hauka-liðsins. Hörður var samt
markhæstur hjá Haukum, með
7(6 viti) mörk, Stefán 2, Arnór 2,
Ólafur 2, Frosti 3 og Elias eitt. —
SOS
ÍR-liðið þoldi ekki blóðtökuna
Aðeins kraftaverk getur
bjargað því frá falli
Baráttuglaðir Gróttumenn komnir af hættusvæðinu'
ÁN ÞEIRRA stórkarlanna Gunn-
laugs Hjálmarssonar, Agústs
Svavarssonar og Þórarins Tyrf-
ingssonar, hafði ÍR-Iiöið ekkert
að gera I hendurnar á baráttu-
glöðum Gróttumönnum I fþrótta-
húsinu i Hafnarfiröi á miöviku-
dagskvöldið, tR-liðiö var einhæft
og fékk þaö stóran skell þar —
(16:19). Nú getur ekkert nema
kraftaverk bjargað liðinu frá
falli. ÍR-liöið mátti greinilega
ekki við þessari miklu blóötöku,
þvi að það lék lélegan sóknarleik
og einhæfan. Stórskytturnar
Agúst og Þórarinn voru fjarri
góöu gamni, en þeir voru settir út
úr liöinu vegna agabrots, og
einnig haföi fjarvega Gunnlaugs
mikil áhrif á liöið, þvi aö ieikur
liðsins var sunduríaus, bæði I
vörn og sókn.
Það var aðeins um tima I fyrri
hálfleik, að IR-liðið gat veitt
Gróttu keppni, en þá höföu IR-
STAÐAN
STAÐAN er nú þessi I 1. deildar
keppninni I handknattleik:
Víkingur.....10 7 1 2 197:176 15
FH............10 7 0 3 215:196 14
Valur.........11 7 0 4 218:188 14
Fram.......... 11 5 2 4 206:205 12
Armann....... 11 6 0 5 187:195 12
Haukar.......11 5 0 6 205:205 10
Grótta....... 11 2 2 7 224:249 6
1R............ 11 1 1 9 197:235 3
Markhæstu menn:
Hörður Sigmarss. Haukum 96(33)
Björn Péturss. Gróttu .... 71(25)
Einar Magnúss. Vikingi ...53(15)
ólafur Jónsson, Val ......52( 0)
PálmiPálmas. Fram.........48(17)
Halldór Kristj. Gróttu....46( 3)
Stefán Halldórss. Vfk.....43(15)
ingar um tlma fjögur mörk yfir —
6:2 um miöjan hálfleikinn.
Gróttumenn jöfnuðu 8:8 en IR-
ingar skoruðu tvö siöustu mörk
hálfleiksins, sem lauk 10:8 fyrir
1R. Gróttuliðiö byrjar slðari hálf-
leikinn af miklum krafti, og eftir 3
min. var staðan oröin jöfn 10:10
og siðan bæta Gróttumenn við
þremur mörkum og komast yfir
13:10. IR-ingum tókst að jafna
13:13 um miðjan hálfleikinn, en
eftir það náðu leikmenn Gróttu
öllum tökum á leiknum og sigr-
uðu örugglega 19:16.
IR-ingar tóku Björn Pétursson
úr umferð I leiknum og héldu
honum algjörlega niöri. Gróttu-
menn létu þaö ekki á sig fá og
Halldór Kristjánsson tók viö hlut-
verki Björns. Hann skoraöi 7
glæsileg mörk og var óstöðvandi
fyrir slaka IR-vörn. Leikmenn
Gróttu-liösins börðust hart allan
leikinn og sigur þeirra var
fyllilega verðskuldaður.
IR-liðið var ekki upp á marka
fiska. Ungu leikmennirnir i liöinu
eiga langt i land að geta fyllt upp i
þau skörð, sem Gunnlaugur,
Agúst og Þórarinn skildu eftir sig.
Það sést bezt á þvi, hve einhæfur
sóknarleikur liðsins var, að liðið
skoraöi aðeins 4 mörk fyrstu 27
min. i siðari hálfleiknum. Sami
leikmaðurinn, Guðjón Marteins-
son, skoraði öll mörkin, þar af 3
úr vltak. Eins og IR-liðið lék
gegn Gróttu, á það hvergi annars
staöar heima en I 2. deild, svo
lélegur var allur leikur liösins.
Mörkin I leiknum, sem var af-
spyrnulélegur, skoruöu:
GRÓTTA —Halldór 7, Magnús 3,
Arni 2, Georg 2, Björn 2 (1 viti),
Kristmundur og Sigurður eitt
hvor. ÍR — Guðjón 6 (3 viti),
Hörður H. 3, Brynjólfur 2. Asgeir
2, Bjarni 2 og Hörður Á. eitt. —
SOS
sækja
í 2.
deild
AKUREYRARLIÐIN i knatt-
spyrnu, Þór og KA, sem slitu
samvistum fyrir stuttu og
ákváðu að hætta að leika sam-
an undir merki ÍBA hafa bæði
sótzt eftir að taka sætið, sem
ÍBA-liðið átti I 2. deild. Stjórn
KSl er nú að kanna, hvernig
bezt er að leysa mál Akureyr-
arliðanna, en það getur farið
svo að þau leiki bæði I 3. deild i
sumar.
Sumir telja réttlátt, að
Akureyrarliðin fái að koma
sér saman um, hvort Þór eða
KA taki sæti IBA i 2. deild, eða
þá að Þór og KA leiki um lausa
sætið, sem IBA skildi eftir sig i
deildinni. En spurningin er
hvort það sé rétt, lagalega séð,
að þessi nýju deildarlið fái rétt
til að leika strax um það, hvort
liðið skuli leika i 2. deild.
Margar tillögur eru nú á
lofti, eins og t.d. að kalla for-
ráðamenn 2. deildar liðanna
saman á fund og fá álit þeirra
á þvi, hvernig þeir telji bezt að
leysa þetta vandamál, sem
hefur skotið upp kollinum við
það, að Akureyrarliðin slitu
samvistum. Þá hefur verið
rætt um það, að 3. deildarliðið
Reynir frá Arskógsströnd sem
lék til úrslita gegn Ólafs-
vikur-Vikingum á siðasta
kappnistimabili i 3. deild, fái
sæti i 2. deild. Það er eflaust
bezta lausnin á þessu máli,
sem getur dregið dilk á eftir
sér, ef ekki er rétt haldið á
spilunum.
tþróttasiðan hefur frétt, aö
Reynir frá Arskógsströnd sé
tilbúið að leika i 2. deild i
sumar. Þá er einnig viðbúiö
að l'ðin, sem tóku þátt i
úrslitakeppninni i 3. deild,
kæri þaö, ef annaðhvort Akur-
eyrarliöið kemst beint i 2.
deild, án keppni I 3. deild. —
SOS
Rimmer átti stórleik
JIMMY RIMMER, markvörður-
inn snjalli hjá Arsenal, sem Man-
chester United gat ekki notað, átti
stórleik á Filbert Street, þeg'ar
Arsenal var svo heppið að ná
jafntefli (1:1) gegn Leicester I
bikarkeppninni. Rimmer, sem er
einn bezti markvöröur Bretlands-
eyja, bjargaði Arsenal frá stór-
tapi. Hvað eftir annað bjargaði
hann snilldarlega, á milli þess
sem varnarmenn Arsenal björg-
uðu á linu. Heppnin var ekki með
ieikmönnum Leicester, og staðan
★ Hann bjargaði Arsenal frá stórtapi
á Filbert Street í Leicester
JIMMY RIMMER hefur leikið vel
I marki Arsenal I vetur.
var 0:0 eftir venjulegan leiktima.
Mörgum þótti það nálgast krafta-
verk, að Leicester tókst ekki að
skora.
Arsenal-liöiö, drifiö áfram af
fyrirliðanum Alan Ball, sem átti
stórleik, náði forustunni i fyrri
hálfleik framlengingarinnar. Það
var John Radford, sem skoraði
mark Arsenal, með stórgóöum
skalla. En dauöuppgefnir leik-
menn Leicester gáfust ekki upp:
beim tókst að tryggja sér auka-
leik á marki, sem Alan Birchenall
skoraöi undir lok framlengingar-
innar.
Eftirtalin lið leika um farseðil-
inn til Wembley i 8-liða úrslitun-
um:
Ipswich—Leeds
Birmingham—Middlesborough
Carlisle—Fulham
Arsenal eöa
Leicester—West Ham
Einn leikur var leikinn a 1.
deildar keppninni á miövikudag-
inn, — West Ham og Liverpool
gerði jafntefli (0:0) á Upton Park
i Lundúnum. West Ham haföi
ekki heppnina með sér i leiknum
— þrátt fyrir mikla pressu aö
marki Liverpool, tókst leikmönn-
um „The Hammers” ekki að
koma knettinum i netiö. — SOS