Tíminn - 06.05.1975, Qupperneq 13

Tíminn - 06.05.1975, Qupperneq 13
Þriðjudagur 6. mai 1975. TÍMINN 13 if isyf .Id! b iiiii. Svartbakurinn er fugl, sem vegnað hefur vel á undanförn- um áratugum, en á ekki að sama skapi vinsældum að fagna meðal tvífætlinganna. Bætir þar ekki um, að samhliða mikilli fjölgun kvað hann farinn að leggjast á sauðfé, þegar færi gefst. Verðmætum hent — vargurinn alinn Jtíhannes Björnsson i Ytri- Tungu, kunnur maður fyrir náttúrufræðilegar athuganir, skrifar á þessa leið: „Asiðasta áratug hefur varg- fugli, aðallega svartbak og hrafni, fjölgað geysilega mikið hérálandi. Tjön af völdum hans er viða tilfinnanlegt, einkum i æðarvörpum. Er nú svo komið, að dúntekjan hefur rýrnað um helming frá þvi sem mest hefur verið. Þá hefur svartbakurinn tekið upp þá nýbreytni i fæðuöflun að leggjast á ósjálfbjarga kindur og murka Ur þeim lifið. Hann er nU engu afkastaminni við þá iðju en hrafninn. Við ósa veiðiánna heldur veiðibjallan stöðugan vörð og tekur vænan toll af lax- og silungsseiðum, sem eiga þar leið um. En hvemig stendur á þessari miklu fjölgun vargfugls, þar sem einstaklingafjöldi flestra fuglategunda fer minnkandi? Hér á maðurinn tvimælalaust sökina. Hann hefur raskað jafn- vægi náttUrunnar með aðgerð- um sinum. 1 allmörg ár hefur hann hlaðið krásum á veizluborðin handa þessum vargfuglum. Úrgangi frá sláturhUsum og matarleif- um frá þéttbýliskjörnum hefur verið ekið Ut á afvikna staði. Þangað þyrpist svermur af Tap á sykurinn- flutningi- gébé—Rvik — Eins og öllum mun kunnugt, hefur vebð á sykri hækkað m jög ört á sl. ári. Orsakir hækkanana eru aðallega tvær, erlend verðhækkun á heims- markaði vegna þess að sykur- framleiðsla varð minni en neyzl- an, en auk þess hefur sykur hækk- að meira hérlendis vegna gengis- breytinga og hækkunar sölu- skatts. Hlutfall álagningar hefur hins vegar tvivegis lækkað i tengslum við gengisbreytingarn- ar, þtítt leyfileg álagning I krónutölu hafi farið hækkandi þar til nú siðustu daga. Þegar gerður hefur verið sam- anburður á sykurveröi hérlendis og erlendis hefur það villt fyrir, að sykurverð hefur verið niður- greitt viða erlendis. en hérlendis hefur sykur ekki verið greiddur niður. íslenzkir sykurinnflytjendur gerðu samninga fram i timann á verði, sem þá van-mjög hagstætt og töldu sig þvi tryggja að hér yrði ei skortur á syrki. Þegar verðhrun varð svo á heimsmark- aði, eiga Isl. innflytjendur sykur, og samning um afhendingu á sykri á verði, sem er töluvert hærra en heimsmarkaðsverðið. Magn þetta er um 1800 tonn. Ef innflytjendur þyrftu að lækka verðið I markaðsverð, yröi tap þeirra þannig samkvæmt birgða- talningu, að lækka þyrfti þessi 1800 tonn af strásykri á nUverandi kostnaðarverði, sem er 436,8 mill- jónir, um 188,2 milljónir til að ná lægsta kostnaðarverði, miðað við nUverandi heimsmarkaðsverð. Tap þetta, 43% eða 188,2 mill- jónir skiptist milli einstakra inn- flytjenda, misjafnlega eftir stærð þeirra. Tapið er verulegt hjá öll- um, en sumum svo mikið, að hætta er á gjaldþroti. fuglum, sem eru þar fastir kost- gangarar yfir haust- og vetrar- mánuðina. Þannig er þessum fuglastofnum bjargað frá eðli- legum vanhöldum með matar- gjöfum. Þegar svo hlýnar á vorin og veizluföngin spillast, leitar þessi alifugl burt. TrUlega er það hann, sem þá er aðgangs- harðastur i æðarvörpunum og við bUfénaðinn. Veizlan á sjónum Á sjónum er varginum boðið til enn stórfenglegri veizlu og samfelldrar árið um kring. Flestir togararnir og Utilegu- bátarnir munu henda fiskslóg- inu i sjóinn, og þar með lifrinni, auk allra smáseiðanna, sem ekki er leyfilegt að landa og lenda öll i fuglinum, sem svifur eins og ský yfir kjölrák hvers fiskiskips, þar sem aðgerð fer fram. Það er talið, að 4-5% af heildarþunga þorskfiskanna sé lifur. Litlu minna magn mun vera af slógi og hrognum, — hvoru um sig. Eftirfarandi tölur gefa til kynna, hversu rausnarlega hef- ur verið borið á borð fyrir fugl- inn á undanförnum árum: Lýsisframleiðsla Islendinga Ur þorsk- og ufaafla árið 1962 var 7311 tonn af 189 þUs. tonna veiði, eða 3.86% af heildarafla, en árið 1973 einungis 4102 tonn af 284.5 þús. tonna afla, eða 1,44%. Útflutt hrogn 1964 voru 7722 tonn, en aðeins 4436 tonn árið 1973 af miklu meiri veiði. Þegar þess er gætt, að lifur, gota og slóg er jafnan hirt Ur afla báta, sem landa daglega, er ljóst, hversu gifurlegu magni af þessu er hent Uí afla togaranna og Utilegubátanna. NU er lýsi og gota verðmæt Ut- flutningsvara, slógið nýtanlegt i fiskimjöl, ogsamkvæmt nýjustu rannsóknum má vinna Ur þvi verðmæta vöru. Það er þvi furðulegt, að Utgerðin, sem oft er I fjárhagskröggum, skuli ekki nýta þessi hráefni, heldur varpa þeim fyrir borð og beint i ginið á vargfuglinum, — sem rikið leggur fé til höfuðs —, og kapp- ala hann á þeirri bætiefna- auðugustu fæðu, sem völ er á. Styrjöld hæpin leið NU eru ýmsir þess hvetjandi, að sóknin séhert gegn svartbaki og hrafni. Slíkur hernaður mun kosta rikið ærið fé og ávinningur tvisýnn, nema þvi aðeins, að „móðir náttúra” sé þátttakandi I styrjöld. Og hún verður það strax, ef við hættum alveg að ala vargfuglinn. Þá gæti hún hjáiparlaust annazt alla fækkun hans niður að hámarki þess, sem áður var. Og fyrir allt þetta fuglafóður, — þUsundir eða tugþUsundir smálesta —, gætum við svo eignazt dýrmætan gjaldeyri. Hann yrði þeginn nUna, þegar við þjóðinni blasa þungbær höft á innflutningi — bæði á dönskum tertubotnum og sólskini frá Spáni.” „Fljúgandi sendiráðherra” M skrifar blaðinu á þessa leið: „Mönnum dettur margt skrit- ið i hug á gamla Fróni. Ágætur borgari vill, að við höfum i sparnaðarskyni aðeins sendi- fulltrUa með vélritunarstUlku, i stað fullgilds sendiráðs, I fjar- lægum heimshlutum, ,svo sem Japan. Þetta getur verið gott og blessað, en siþan bætir hann þvi við, að sendiráðherra þessa heimshluta skuli bUsettur i Reykjavik — og fljUga á stað- inn, t.d. til Tokíó, þegar mikið liggur við. Hvi i ósköpunum þurfum við sendiráðherra til sliks, þegar utanrikisráðuneytið er á staðn- um? Ekki nema okkur vanti „hvildarstöðu” handa uppgjafa stjórnmálaskörungi eða titil handa þreyttum embættis- manni. Hætt er og við, að sendi- fulltrUinn I Asiu eða Afriku kæri sig ekki um slikan gervi-yfir- mann I stað utanríkisráðu- neytisins sjálfs.” Tónlistar- kennslu í ur Arbæjar- og Fossvogs- hverfum skotið á frest BH—Reykjavik — Á fundi borg- arráðs var nýlega fjallað um er- indi skólastjóra BarnamUsik- skóla Reykjavikur varðandi stofnun UtibUa frá skólanum og Tónlistarskólanum i Reykjavik i Arbæjar- og Fossvogshverfum. Taldi borgarráð eigi unnt að veita aukafjárveitingu á þessu ári til þessarar starfsemi, en visaði málinu að öðru leyti til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs. Af þessu tilefni hafði blaðið samband við Stefán Edelstein, skólastjóra BarnamUsikskólans, og kvað hann hér um að ræða framkvæmd á tilraunanámsefni, sem unnið hefði verið á vegum nefndar, er skipuð var af mennta- málaráðuneytinu og skilaði áliti sinu fyrir einum þrem árum. Það mætti ljóst vera, að tónlistar- kennslu i barnaskólum væri viða mjög ábótavant, og þvi væri farið inn á þessa leið til Urbóta. Væri ætlunin að stofna til útibUa frá Tónlistarskólanum, þar sem nemendur á neðstu stigum Tón- listarskólans gætu fengið sina hópkennslu, og hefði verið talið ráðlegt að byrja i Uthverfum borgarinnar, þar sem börnin ættu erfiðast með að sækja tónlistar- kennslu langar leiðir i tónlistar- skóla. Siðastliðið haust hefði slikt UtibU tekið til starfa i Fellaskóla i Breiðholti og gengi allt eðlilega við kennsluna þar, þannig að hún myndi halda áfram, nema ein- hverjar ófyrirséðar stórbreyting- ar yrðu. Ætlunin hefði verið að hefjast handa með stofnun slikra UtibUa við Árbæjar- og Fossvogsskólann á næsta haust, en þvi miður væru fjármálin á þann veg, að á þvi yrði einhver bið. rriAESCULAP L5J óconom BÚFJÁR- klippurnar vsl pekktu Handhægar kraftmiklar og endast og endast 220 volta sterkur innbyggður rafmótor úiiú Fást bæði sem sauðfjár- og stórgripaklippur P ÞÓRHF Auglýsið í Tímanum AIM ei% þegar þrennt er ■Jlétchb* BATAR _ _ CHRYSLEh Marme UTANBORÐS M0T0RAR BATVAGNAR □ Tryggvagata 10 Sími: 21 91 5-21 286 P.O.Box 5030 Reykjavík

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.