Tíminn - 10.05.1975, Side 1
Stjórnlokar
Olíudælur
Olíudrif
Landvélar hf
Verkfall flugfreyja
skollið ó:
FLUGIÐ
STÖÐVAÐIST
í NÓTT
Gsal—Reykjavik. — A miðnætti i
nótt skall á vcrkfall flugfreyja og
hefur þvi flug stóru flugfélag-
anna, Loftleiða og Flugfélags ts-
lands, stöðvast, — bæði innan-
lands- og miliilandaflug. Fundur
var hjá sáttasem jara 1 gærkvöldi,
og var farið þess á leit við flug-
freyjur að þær frestuðu verkfalls-
boðun sinni, en þær sinntu þeim
tilmælum ekki.
— Innanlandsflug með farþega
verður ekkert á vegum Flug-
félags tslands meðan verkfallið
varir, sagði Sveinn Sæmundsson,
blaðafulltrúi Flugleiða, er Tíminn
ræddi við hann seint i gærkvöldi.
— Hins vegar verða Fokker
FriendShip vélarnar notaðar til
flutninga á pósti og vörum.
Sveinn sagði að það yrði leitazt
við að greiða götu þeirra farþega
sem til skrifstofa flugfélagsins
leita, eftir þvi sem föng væru á
hverju sinni, en ekki kvaðst hann
geta greint frá þvi á hvern hátt
það yrði.
Eins og áður segir leggst milli-
landaflugið ennfremur niður og
kvað Sveinn að á þessu stigi
málsins væri ekkert hægt að
segja um það, hvort flogið yrði
með póst og vörur til og frá land-
inu. Ef verkfallið myndi dragast
á langinn yrðu ákvarðanir þar að
lútandi teknar.
Eins og menn muna, gripu
Loftleiðir til þess ráðs I flug-
freyjuverkfallinu í fyrra að setja
um borð f vélar sinar öryggis-
verði til að halda millilandaflug-
Frh. á bls. 15
ÍSLAND
ERNUMIÐ
i dag eru liðin 35 ár
frá því Bretar
hernámu ísland. A
myndinni sjást fyrstu
brezku hermennirnir
leggja að við Sprengi-
sand í morgunsárið 10.
maí 1940 og á bls. 11 er
nánar skýrt frá þess-
um stóratburði í okkar
sögu. (Ljósm: Svavar
Hjaltested).
Tíunda hver
króna sem
við eyddum
var fengin
að lóni eða
tekin af
gjaldeyris-
forðanum
m > O
PROFBEKKIR ENN
AUÐIR í KHÍ
Deilunni vfsað til menntamálaráðuneytisins
Gsal-Reykjavik — Nemendur I að við viljum semja, og viljum
Kennaraháskólanum neita enn skólanum ekkert nema gott.
að mæta til prófa og I gær- Skólastjórn mun halda annan
morgun þegar próf áttu að vera fund i málinu n.k. mánudag.
voru bekkirnir auðir. Að sögn Ekki tókstTimanum I gær að ná
Kristinar Magnúsdóttur, nem- tali af Brodda Jóhannessyni,
anda á 2. ári I KHl var á fundi rektor.
skóiastjórnar s.l. miðvikudag Nemendur Kennaraháskólans
samþykkt að visa málinu til gengu I gærdag á fund mennta-
menntamálaráðuneytisins, þar málaráðherra og afhentu hon-
eð ekki væri hægt að Ifta á það um þar bréf, þar sem óskað var
sem innanskólamál. eftir þvi við hann og hans ráðu-
A fundi nemenda það sama neyti að það hlutaðist til um
kvöld var ákveðið að halda lausn málsins. Að sögn Vil-
þessum aðgerðum áfram. hjálms Hjálmarssonar,
— Við viljum allt til vinna til menntamálaráðherra, ræddi
aö málið leysist, sagði Kristin, hann við nemendur og hlustaði á
þvi aö auðvitað eru allir orðnir þeirra skýringar, en ekki vildi
æstir i að komast i próf. Mig hann frekar tjá sig um efni
langar sérstaklega að geta þess, bréfsins.
Ríkisstjórnin vill setja
eftirlitsmenn
með rekstri
Flugleiða hf. vegna
ríkisóbyrgðarinnar
I O
YFIRVOLD LIN
VIÐ
BYSSUVARGANA
Gsal-Reykjavik — Alltof vægt er
tekið á þeim mönnum sem hand-
leika skotvopn af gáleysi, og svo
virðist sem aðgerðir lögregluyfir-
valda séu nær eingöngu á einn
veg, þ.e. að sekta viðkomandi. t
framhaldi af frétt Timans á
fimmtudaginn um fjölda skot-
varga, sem sækja I land isólfs-
skála, — höfðum við tal af Sveini
Björnssyni, rannsóknarlögreglu-
manni I Hafnarfirði.
Eins og lesendur muna var
skotið á hest ísólfs og kom það
mál til kasta rannsóknarlögregl-
unnar i Hafnarfirði. Að sögn
Sveins játuðu þeir menn, sem þar
voru að verki, en það voru þeir
hinir sömu og kveiktu i sumarbú-
stað skógræktarstjóra.
— Já, þeir játuðu hér hjá okkur.
Hins vegar eru þeir að bögglast
við að taka þann framburð til
baka núna fyrir rétti, á þeirri for-
sendu að þeir hafi verið þvingaðir
til að játa. En þeim er ekki stætt á
þvi. Faðir þeirra kom hér oft og
heimtaði af mér byssurnar og að
lokum fór svo að ég hreinlega rak
hann út með hörku. Ég læt ekki
byssurnar frá okkur án úrskurðar
sýslumanns.
— Finnst þér, Sveinn, vera tek-
iðnógu hart á þessum mönnum?
— Nei, langt þvi frá. Ég álit að
þaö eigi að taka bæði byssur og
leyfi af þeim mönnum, sem ger-
ast brotlegir við lög t.d. með þvi
að skjóta á skepnur. Hafi þeir
ekki leyfi álit ég að þeim verði
meinað að fá leyfi um alla ævi. —
En það er svona linkindin á öllu
hérna.
Sveinn sagði, að hann teldi, að
alltof mörg byssuleyfi væru gefin
út, og miðað við það þyrfti að
fjölga afgirtum svæðum til skot-
iökana.
— Það hefur komið fyrir að
börn allt niður i sjö ára aldur hafa
verið að handleika byssur. Höfðu
tekið þær bak við miðstöðvarofn
þar sem þær voru geymdar.
Nefndi hann, að fólk færi ekki
nógu varlega með þessi vopn og
iðulega væru geymslustaðir skot-
vopna, þar sem auðvelt væri fyrir
börn að ná til þeirra, s.s. undir
rúmum og bak við ofna.
Sveinn kvað alltof litið eftirlit
haft með þeim svæðum, þar sem
meðferð skotvopna væri bönnuð.
1 framhaldi af þeim dæmum,
sem hjónin i' tsólfsskála greindu
okkur frá á miðvikudaginn, varð-
andi ágang skotmanna og hegðan
þeirra, — skal hér greint frá einu
dæmi enn, og það er ísólfur Guö-
mundsson bóndi sem segir frá:
— Ég heyröi i byssumönnum
hér i fyrra og lét lögreglu vita af
þeim. Ég hafði tekið niður
númerið á bilnum, og þegar mig
var farið að lengja eftir komu lög-
reglunnar gekk ég út að bilnum
og sá hvar billyklarnir voru i
geymsluskránni. Ég tók þá og
hélt heim. Skömmu siðar sá ég
hvar byssumenn komu ofan fjall-
iö og hófu að leita að lyklunum i
vösum sinum. Þegar þeir fundu
lyklana hvergi fóru þeir aftur upp
i fjall, þar sem þeir höfðu verið að
skjóta. — Eftir einn og hálfan
tima kom lögreglan og ég lét þá fá
billyklana. Þegar lögreglan hóf
að tala við þá kom i ljós að þeir
höföu ekkert byssuleyfi. Sögðu
þeir lögreglunni ennfremur, að
þeir hefðu verið með eina byssu
og var það ritað i lögregluskýrsl-
una. Hins vegar vissi ég, að þeir
höfðu verið með fleiri byssur, —
og eftir að lögreglan hafði farið
með þrjótana gekk ég að þeim
stað er þeir höfðu verið, — og fann
þar tvær byssur að auki og skot-
belti. Nokkrum dögum siöar kom
lögreglan til að sækja byssurnar
og ég veit að mennirnir fengu þær
aftur!