Tíminn - 10.05.1975, Blaðsíða 12
12
TÍMINN
Laugardagur 10. mai 1975.
Höfundur: David Morrell
Blóðugur
hildarleikur
17
þú rekst á skærin. ' Þvi næst klippti
hann burt stóran hárlokk. Hægra eyra
Rambos var nú bert og óvarið fyrir
svölu og röku lofti kjaiiárans. Þú ert hármeiri en ég
bjóst við, sagði Teasle og lét hárlokkinn falla á dag-
blöðin, sem breidd voru á gólfið. Höfuðið á þér
verður mun léttara eftir fáeinar mínútur. Dagblöð-
in sugu í sig bleytuna á gólf inu. Teasle klippti meira
af hárinu, og aftur hörfaði Rambo undan. Teasle
gekk aftur fyrir hann. Rambo stífnaði allur, þegar
hann gat ekki séð hvað gerðist að baki hans. Hann
sneri höfðinu snögglega við, en Teasle rétti hann
við. Rambo losaði höfuðið undan höndunum. En
Teasle fór aftur með skærin að höfði hans. Enn
hörfaði Rambo undan. Hárið festist í sigurnagla
skæranna, sem þrýstust skyndilega í höf uð honum.
Rambo þoldi þetta ekki lengur. Hann hentist úr
stólnum og eldsneri sér að Teasle.
— Farðu frá mér.
— Sestu í stólinn.
— Þú klippir ekki meira. Ef þú vilt láta klippa á
mér hárið, skalt þú sækja rakara hingað niður.
— Klukkan er orðin sex. Þeir eru allir hættir að
vinna. Þú ferð ekki í búninginn fyrr en búið er að
klippa þig.
— Þá verð ég svona.
— Þú sezt í stólinn. Galt, farðu upp pg sæktu
Singleton. Ég gef þér ekki f leiri tækifæri. Við skul-
um klippa þig eins hratt og við hefðum beitt sauða-
klippum.
Galt virtist feginn að sleppa burt. Rambo heyrði
þegar hann opnaði læstar dyrnar efst í stiganum.
Bergmálið af lyklaskröltinu barst niður. Atburða-
rásin var nú mun hraðari. Hannn vildi ekki meiða
neinn. En hann vissi að hverju stefndi. Hann gat
ekki lengur hamið vaxandi reiði sína. Maður heyrð-
ist þjóta niður stigann. Á eftir honum kom Galt á
f Ijúgandi ferð. Maðurinn var sá, sem setið hafði við
talstöðina á fremri skrifstof unni. Þegar hann stóð
uppréttur, virtist hann risastór. Höfuð hans nam
við bjart loftljósið í klefanum. Ljósið féll þannig á
andlit mannsins, að beinabygging andlitsins varð
áberandi. Hann leit á Rambo, sem fann nú enn
meira til nektar sinnar.
— Vandræði? spurði hann Teasle. — Mér skilst þú
eigir i vandræðum. — Ekki ég — heldur HANN,
sagði Teasle. Látið hann setjast í stólinn. Singleton
gekk beint að honum. Galt hikaði andartak, en kom
svo einnig.
— Ég veit ekki hvað er að gerast, sagði Singleton
við Rambo. En ég er sanngjarn maður. Þú mátt
vel ja, annað hvort seztu sjálf ur eða ég ber þig í stól-
inn.
— Þér er bezt að snerta mig ekki. Rambo var
ákveðinn í því, að missa ekki stjórn á sér. Hann
þurfti aðeins að halda út í fimm mínútur enn, þola
nánd skæranna og þá var þetta búið. Það var allt og
sumt. Hann gekk í átt að stólnum og rann svolítið í
vatninu. Singleton var að baki hans og sagði: — Guð
hjálpi mér, hvaðan eru þessi ör á bakinu á þér?
— Or stríðinu. Þetta var veikur blettur. Hann
hefði alls ekki átt að svara.
— Ja — nema hvað? I hvaða her var það?
Minnstu munaði að Rambo dræpi hann á auga-
bragði. En Teasle byrjaði aftur að klippa hárið.
Honum brá við. Hárlufsurnar dreifðust á gegnblaut
dagblöðin, sem loddu sum hver við nakta fætur
hans. Rambo bjóst við, að Teasle héldi áfram að
snyrta hárið. Hann bjó sig undir það. Þessí í stað f ór
hann að klippa skeggið. Skærin komu of nálægt
hægra auga hans. Rambo beygði höfuðið undan,
ósjálf rátt.
— Vertu kyrr, sagði Teasle. Galt, Singleton —
haldið honum kyrrum. Singleton neyddi höfuð hans
í réttar skorður, og Rambo sló hönd hans frá höfði
sér. Aftur reyndi Teasle að klippa skeggið. Það
festist í skærunum og klemmdi kinnina.
— Jesús. Hann engdist eins og ormur. Þeir voru
of nærri honum. Þeir þrengdu sér að honum, svo
hann langaði til að öskra.
— Við verðum að þessu í alla nótt, sagði Teasle.
Galt— farðu og sæktu raksápuna og rakhnífinn á
borðinu.
Rambo engdist. — Þú rakar mig ekki. Þú kemur
ekki nálægt mér með rakhnífinn.
Skyndilega stóð Galt við hlið hans og rétti Teasle
rakhnífinn. Rambo sá hvernig langt hnífsblaðið
blikaði i Ijósinu og varð hugsað til víetnamska liðs-
foringjans, sem risti sundur holdið á brjóstkassa
hans. Það réð úrslitum. Hann missti stjórn á sér,
þreif rakhnif inn og hratt þeim f rá sér. Hann barðist
gegn árásarhvötinni. Hann mátti ekki ráðast á þá
Geiri og Vicki eru
kvödd meö viöhöfn.
En nýi keisarinn er
enginn ansi.... I ^
Guöir? Vitleysa! Það
hlýtur að vera svar
við þvi sem þau^
gerðu.
Sem mig langarV AÞa“ hjálpað
ekki að vita mér hl krununnar,
ekkiaövita. , svo ég er þeim þakk-
látur hvar sem þau eru
Sjáðu fiðrildið V Ég myndi verða
þarna, er það ekki ) á þessum lit ef ég þyrfti
fallegt? A n°ta hann á hverjum
<8
fÞvi þá það? Kannski hef-
ur fiðrildið fataskáp fullan,
af vængjum einhvers
staðar
we
6-8
Laugardagur
10. mai.
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05 Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Anna Snorradóttir les
þýðingu sina á sögunni af
„Stúart litla” eftir Elwyn
Brooke White (12). Tilkynn-
ingar kl. 9.30. Létt lög milli
atriða. óskaiög sjúklingakl.
10.25: Kristin Sveinbjörns-
dóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar. 12.25 Fréttir
og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 tþróttir Umsjón : Jón
Asgeirsson.
14.15 Að hlusta á tónlist,
XXVIII Atli Heimir
Sveinsson sér um þáttinn.
15.00 Vikan framundan
Magnús Bjarnfreðsson
kynnir dagskrá útvarps og
sjónvarps.
16.00 Fréttir. 16.15 Veður-
fregnir. Islenzkt mál. Dr.
Jakob Benidiktsson flytur
þáttinn.
-16.40 TIu á toppnum
17.30 Sögulestur fyrir börn:
„Agni og dóttir selkonungs-
ins” irskt ævintýri
18.00 Söngvar I léttum dúr.
Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
19.35 í minningunn^Þorsteinn
Matthiasson' kennari talar
við Hermann Guðmundsson
frá Bæ I Steingrimsfirði.
20.00 Hljómplöturabb
Þorsteinn Hannesson
bregður plötum á fóninn.
20.45 „Hérnamegin glers-
ons”, smásaga eftir Véstein
Lúðviksson Kjartan
Ragnarsson leikari les.
21.15 Frönsk og rússnesk
bailetttónlist
21.45 Bak við rimiana.
Sigurður A. Magnússon les
þýðingar sinar á griskum
ljóðum.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
(Jtvarpsdansleikur i
vertiðarlok. M.a. leiknir
sjómannavalsar og önnur
gömul danslög. (23.55 Frétt-
ir i stuttu máli).
01.00 Dagskrárlok.
Laugardagur
10. mai
16.30 íþróttir. Knattspyrnu-
kennsla
16.40 Enska knattspyrnan.
17.30 Aðrar iþróttir.
Umsjónarmaöur ómar
Ragnarsson.
18.30 tvar hlújárn. Bresk
framhaldsmynd, byggð á
sögu eftir Walter Scott. 2.
þáttur. Þýðandi Stefán
Jökulsson.
19.15 Þingvikan. Þáttur um
störf Alþingis. Umsjónar-
menn Björn Teitsson og
Björn Þorsteinssón.
19.45 Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.30 Elsku pabbi Breskur
gamanmyndaflokkur.
Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir.
,20.55 Vaka. Dagskrá um bók-
menntir og listir á liðandi
stund. Umsjónarmaður
Aðalsteinn Ingólfsson.
21.45 Vogun vinnur... (Classe
tous risoues) Frönsk bió-
mynd frá árinu 1960. byggð
á sögu eftir José Giovanni.
Leikstjóri Claude Santet.
Aðalhlutverk Jean-Paul
Belmondo og Sandra Milo.
Þýðandi Ragna Ragnars.
Aðalpersóna myndarinnar
er franskur afbrotamaður,
sem flúið hefur úr landi og
búið i Rómaborg um skeið.
Hann vill nú snúa aftur
heim til Parisar, en það
ferðalag verður honum
næsta örðugt.
23.25 Dagskrárlok.