Tíminn - 10.05.1975, Blaðsíða 4
4
i
'TÍMINN
í<íi ,0i t .:J
Laugardagur 10. mai 1975.
Ný fæðutegund
í landi sólar-
tasÉ upprisunnar
Þaðhljómar kannski undarlega
i eyrum, að Japanir eru nýfarn-
ir að baka brauð og éta. Fram
til þessa hafa þeir, eins og aðrar
þjóðir i Asiu aðallega lifað á
hrisgrjónum, og ekki ræktað
korn til brauðgerðar. En nú er
öldin önnur. Jaþanir hafa tekið
sér Vesturlandabúa til fyrir-
myndar um flesta þætti daglegs
lifs og meðal annars i mataræði,
og eru farnir að flytja inn korn
ogbaka brauð, og hafa þúsundir
brauðgerðarhúsa risið upp viðs
vegar um landið. Þessi mynd er
tekin i stórverzlun einni i Tokyo
og sýnir stafla af margs konar
brauðum og geta viðskiptavinir
fengiö að bita i og smakkað á
aðskilja nlegum tegundum
brauða til að vita hvað bragðast
þeim bezt. ^
Trimm
Það eru fleiri en mannfólkið
sem stundar likamsæfingar sér
til ánægju og heilsubótar. Hér
eru tveir sterkir, sem þurfa að
halda sér við. Á efri myndinni er
þvottabjörn að gera morgun-
æfingarnar sinar, sennilega eft-
ir útvarpi, og á hinni neðri er
glimukappi að liðka sig fyrir
keppni.
I tröllahöndum
Ef þið þekkið ekki stúlkuna á
myndinni getur Spegillinn frætt
ykkur um að hún heitir Delila di
Lazzaro og er 19 ára gömul og
býr I Róm. Hérna stendur hún á
hökunni á miklu trölli, sem ann-
að tröll hefur yfirunnið. Eru
steinbákn þessi i „Tröllagarðin-
um” norður af Róm, en
stytturnar voru gerðar fyrir
einn af Orsini greifunum á
árunum 1555-1585.
DENNI
DÆMALAUSI
hvernig er
„Halló, Wilson.'.
kvefið mitt?