Tíminn - 10.05.1975, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
Laugardagur 10. mai 1975.
Skilyrði ríkisstjórnarinnar vegna ríkisóbyrgðar fyrir Flugleiðir:
Eftirlit með rekstri og
fjárhagslegum ákvörðunum
Alþýðubandalagið og Samtökin tortryggin og
telja, að málið þurfi að skoðast mjög vel
t gær var lagt fram í neðri deild
Alþingis frumvarp um heimild
fyrir rfkisstjórnina til þess aö
ábyrgjast lán fyrir Flugieiðir hf.
að upphæð, sem nemur allt að 18.5
milljónum Bandarikjadala, enda
taki Flugieiðir þetta ián til kaupa
á fiugvélum, og til að bæta
rekstrarfjárstöðu félagsins, eins
og segir i 1. gr. frumvarpsins.
Matthias Á. Mathiesen fjármála-
ráðherra fylgdi frumvarpinu úr
hiaði, en auk hans tóku til máls
Magnús Kjartansson (Ab),
Magnús Torfi Ólafsson (SFV) og
Garðar Sigurðsson (Ab) sem allir
gagnrýndu frumvarpið og máls-
meðferð, en Gylfi Þ. Gislason
(A), sem einnig tók til máls taldi
eðlilegt að Flugleiöir fengju þá
fyrirgreiöslu, sem um er fjallað I
frumvarpinu.
t r æ ð u
Matthiasar A.
Mathiesen kom
fram, að rikis-
stjórnin telur,
að eignir Flug-
leiða séu nægi-
leg trygging
fyrir ábyrgðum
þeim, sem leit-
að er eftir. 1
ræðu hans kom fram, að þar sem
hér sé um að ræða óvenjuháa
ábyrgöarveitingu telji rikis-
stjórnin rétt að færa i ákveönara
form aðstöðu til eftirlits með
fjárhagslegum ákvörðunum
félagsins, svo og öðrum þeim
ákvörðunum um rekstur, sem
hún telur nauðsynlegar.
1 ræðu fjármálaráðherra kom
þetta einnig m.a. fram:
,,í lok október 1974 sneru for-
ráöamenn Flugleiða hf. sér til
rikisstjórnarinnar og greindu
henni frá áformum sinum um
kaup á tveim flugvélum af gerð-
inni DC-8-63 CF. Jafnframt gerðu
þeir rikisstjórninni grein fyrir
fjárhagslegum erfiðleikum i
rekstri fyrirtækisins siðari hluta
árs 1974og á árinu 1975. Fóru þeir
óformlega þess á leit við rikis-
stjórnina að veitt yrði ábyrgö
rikissjóðs á áöurnefndum flug-
vélakaupum og aðstoð viö að
tryggja rekstrarfjárstöðu fyrir-
tækisins. Formlega sneri fyrir-
tækið sér til rikisstjórnarinnar
með beiðni um ábyrgðir rikis-
sjóðs með bréfum 5. febrúar og
16. april sl.
Flugvélarnar tvær af gerðinni.
DC-8-63 CF hyggst fyrirtækiö
kaupa af Seaboard World Airlines
Inc., New York, Bandarikjunum.
Flugvélarnar hafa Loftleiðir hf.
haft á leigu samkvæmt
kaupleigusamningi allt frá árinu
1970 og hafa þær verið i notkun á
flugleiðum félagsins. Flugvélarn-
ar hyggst félagið nota áfram
aðallega á flugleiðunum New
York — Luxemburg og
Chicago—Luxemburg en einnig á
leiðunum til Skandinaviu og
Stóra-Bretlands. Flugvélar þess-
ar taka 249 farþega I sæti og geta
jafnframt borið allt að 5 tonn af
fragt I ferð. Hafa þær að sögn for-
ráöamanna fyrirtækisins reynzt
Loftleiðum vel og sama er að
segja um önnur fyrirtæki sem
notaö hafa flugvélar af þessari
gerð.
Kaupleigusamningurinn, sem
áöur var getiö, rennur út á miðju
þessu ári. Við gerð kaupleigu-
samningsins var verðmæti flug-
vélanna beggja 21 milljón banda-
rikjadala. Það hefur nú veriö
greittniöur að u.þ.b. einum þriöja
hluta. Kaupverö flugvélanna
beggja er þvi um 13.5 milljónir
bandarikjadala. Laú til þessara
flugvélakaupa hyggst fyrirtækiö
taka hjá Export Import-bankan-
um I Washington og hjá
viðskiptabönkum i Bandarlkjun-
um.
Rikisstjórnin tók áðurnefnda
málaleitan Flugleiða hf. til at-
hugunar og fól trúnaðarmönnum
sinum aö kanna fjárhagsstöðu
fyrirtækisins og önnur þau atriði i
rekstri fyrirtækisins sem snerta
þetta mál. Skiluðu trúnaðarmenn
rikisstjórnarinnar greinargerö
með niöurstööum sinum i febrúar
s.l. Það var meginniðurstaða
trúnaðarmanna rikisstjórnarinn-
ar, að fyrirgreiðsla rikisins við
útvegun rekstrarfjármagns yrði
ekki skilinfrá fyrirsjáanlegum og
nauðsynlegum flugvélakaupum
félagsins á þessu ári. Með þvi að
nýta ekki kaupréttinn á flugvél-
unum fyrirgerði félagið þeim
möguleikum á aukningu á eigin fé
sem það heföi þegar greitt i formi
leigu af flugvélunum. Lögðu
trúnaðarmenn rikisstjórnarinnar
til, að Flugleiðum hf. yrði gert
kleift að nota kaupréttinn. Talið
er að markaðsverð vélanna i dag
sé um 22 milljónir bandarikja-
dala, en kaupréttarverðið er 13.5
milljónir bandarikjadala.
Mismunur á þessu tvennu jafn-
gildir eiginfjáraukningu hjá
Flugleiðum hf. og veitir jafn-
framt rikissjóði verulega aukna
tryggingu fyrir þeim ábyrgðum
sem kunna að verða veittar félag-
inu.”
Magnús
Kjartansson
(Ab) tók næstur
til máls. Sagði
hann, að hér
væri um stórt
mál að ræða, og
það væru óverj-
andi vinnu-
brögö „að kasta
máli eins og
þessu inn á Alþingi”, eins og hann
orðaði það og til þess ætlast, aö
það yrði afgreitt á þeim stutta
tima, sem eftir er af þingtiman-
um. Kvartaði þingmaðurinn und-
an þvi, aö Alþýðubandalaginu
hefði ekki gefizt kostur á að fylgj-
ast með málinu á undanförnum
vikum og mánuðum.
Þingmaðurinn sagði, að mörg-
um spurningum væri ósvaraö i
sambandi við Flugleiðir. Hann
benti á, að mesti tapreksturinn
hjá félaginu væri á leiðinni
Evrópa—Amerika. A þeirri leið
flytti félagið erlenda ferðamenn,
og taldi óeðlilegt, að islenzka rik-
iö styddi þann rekstur. Þá benti
hann á, að Flugleiðir væri með
margs konar rekstur, s.s. hótel og
bflaleigu i samkeppni við aöra
innlenda aðila.
Magnús Torfi ólafsson (SFV)
tók i sama streng og Magnús
Kjartansson. Benti hann m.a. á,
að Flugleiðir væri meö feröa-
skrifstofurekstur. Nýlega hefðu
verið auglýstar
lækkanir á
svokölluðum
sólarferöum á
vegum þeirra
aðila, sem
skipta við Flug-
leiðir. Hér væri
um óeðlilega
samkeppni að
ræða við annan aöila, sem hefði
svipaðan rekstur með höndum.
Þá vék þingmaðurinn að þeim
tryggingum, sem Flugleiðir eiga
að láta I té og spurði hvað ætti að
teljast gilt I þeim efnum.
Garðar Sigurðsson (Ab) tók
einnig til máls. Hann minntist á
samkeppni Flugleiða við Ferða-
skrifstofuna Sunnu og spurði
hvort veita ætti Flugleiðum fyrir-
greiðslu „til að slátra Sunnu”,
eins og þingmaðurinn komst að
oröi.
Gyifi Þ.
Gislason (A)
sagði, að þing-
flokkur Alþýðu-
flokksins ' hefði
haft tækifæri til
að fjalla unv
þetta mál sið-
ustu daga.
Sagði Gylfi, að
mjög þýðingarmikið væri að veita
Flugleiðum aðstoð, þar sem
félagið héldi uppi þýðingarmikilli
starfsemi I samgöngumálum. En
aðalatriðið væri þó það, að rikið
tæki ekki óeðlilega mikla áhættu
varðandi þá fyrirgreiðslu, sem
frumvarpið fjallaði um. Þing-
maöurinn sagði, að flokkarnir
fengju tækifæri til að skoða máliö
betur I þeirri umferð, sem fengi
það til meðferðar.
Matthias A. Mathiesen
fjármálaráðherra tók aftur
til máls og svaraði nokkrum at-
riöum, sem fram komu i ræðum
þingmanna. M.a. sagðist hann sjá
til þess að Samtökin, sem eiga
fulltrúa i fjárhags- og viðskipta-
nefnd fengju tækifæri til aö fylgj-
ast meö málinu.
Deilt um
orkulög
Iðnaðarnefnd hefur skilað áliti
um frumvarp um breytingu á
orkulögum um nýtingu jarðhita.
Kiofnaði nefndin 1 afstöðu sinni.
Meirihlutinn, Ingóifur Jónsson
(S), Lárus Jónsson (S), Ingvar
Gislason (F), og Geirþrúður
Bernhöft (S) vill, að frumvarpinu
verði visað til rikisstjórnarinnar,
en minnihlutinn, Magnús
Kjartansson (Ab), Þórarinn
Þórarinsson (F) og Benedikt
Gröndal (A) leggja til, að frum-
varpið verði samþykkt óbreytt.
Nokkrar umræður uröu um
málið I neöri deild I gær. Ingólfur
Jónsson og Ingvar Gislason töldu,
aö með frumvarpinu væri verið
að fara inn á svið eignarréttarins
með vafasömum hætti, eins og
Ingvar Gislason orðaði það. Sagöi
hann, að málið væri meira og
minna rekið á röngum forsend-
um.
Magnús Kjartanssongagnrýndi
mjög þá Ingvar og Ingólf. Minnti
hann á, að frumvarpið heföi upp-
haflega verið flutt fyrir 3 árum að
beiðni Orkustofnunarinnar.
Óiafur Jóhannesson dóms-
málaráðherra sagðist styðja
frumvarpið. Hann væri ósam-
mála þeim sjónarmiðum, sem
fram hefðu komiö, að I frumvarp-
inu fælust tillögur um eignanám.
Um það væri aö ræða, að setja al-
menna skynsamlega takmörkun
á eignarrétti. Sagði ráðherrann,
aö mjög nauðsynlegt væri að
setja lagareglur i þessu sam-
bandi. Þá minnti hann á, að það
hefði verið stefna fyrrverandi
rikisstjórnar aö setja lög i þess-
um efnum.
Nú verður lítið var-
í lágu númerin
Lagt hefur verið fram stjórnarfrumvarp um breytingu á um-
ferðarlögum.
Meginefni frumvarps þessa felur I sér þær breytingar, á
ákvæðum umferöarlaga, aö gert er ráð fyrir þvi, að hætt veröi aö
umskrá ökutæki vegna fiutninga milli lögsagnarumdæma, svo
og þvi að Bifreiöaeftirlit rikisins annist skráningu ökutækja I
staö lögreglustjóra. Frumvarpið hefur ennfremur aö geyma
ákvæði um skráningu og notkun beltabifhjóla (vélsieða) og um
hámarkslengd ökutækja. Þá er lagt til, að hækkaðar veröi
vátryggingarfjárhæðir fyrir hina iögboðnu ábyrgöartryggingu
ökutækja og ennfremur gert ráö fyrir nokkrum öðrum breyting-
um á umferðarlögunum.
Meö þvi að hætt verður aö umskrá bifreiöir, munu sömu núm-
er fylgja bifreiðum, þar til þær eru ónýtar og teknar af skrá.
Steingrímur Hermannsson alþingismaður:
Róttækar aðgerðir í efna-
hagsmálum nauðsynlegar
ÞEGAR frumvarp rikisstjórn-
arinnar um ráðstafanir I efna-
hagsmálum var til umræöu i
efri deild, flutti Steingrimur
Hermanr.sson ræðu, sem hér
fer á eftir, nokkuð stytt. Stein-
grimur sagði m.a.:
Gengisfellingin
I efnahagsmálum hef ég I
huga nokkur atriði, sem ég tel
rétt að koma á framfæri. Ég
er þeirrar skoðunar, að geng-
isfellingin siðasta I febr. hafi
verið óhjákvæmileg, fyrst og
fremst vegna þess, að gjald-
eyrisstaðan var slik, að þá
varö að gripa til skjótra aö-
gerða og aðrar aðgerðir hafi
ekki verið fljótvirkari en
gengisfelling. Ég er yfirleitt
mjög tregur til þess að sam-
þykkja gengisfellingar, en ég
sannfærðist um það, aö hún
var nauðsynleg i þessu tilfelli.
En gengisfelling er raunar
ekkert annað en leiðrétting,
sem fljótlega rennur út I sand-
inn, ef ekki er gripið til fleiri
markvissra ráðstafana I béinu
framhaldi. Af þvi er fengin
löng og sár reynsla i okkar
efnahagslifi.
Ég gerði mér þvi vonir um,
að þessu fylgdu ákveðnar
aðgerðir, og ég skal aðeins
nefna fáeinar, sem ég fyrir
mitt leyti lagði áherzlu á i um-
ræðum um það mál.
Beinar aðgerðir til að
draga úr innflutningi
Þessi gengisfelling var fyrst
og fremst nauðsynleg vegna
gjaldeyrisstöðunnar. Þegar
þannig er ástatt, er eðlilegt að
draga jafnframt úr innflutn-
ingi með beinum aðgerðum. A
ég þar við aðgerðir eins og t.d.
Danir gripu til, þegar þeir
hækkuðu tolla um 10%, að-
gerðir, sem raunar ýmsar
þjóðir I viðskiptabandalögum
Evrópu hafa beint eða óbeint
gripiö til og dregið úr innflutn-
ingi. Ég vil einnig vekja at-
hygli á þeim tilmælum Félags
Isl. iðnrekenda, að reglur um
þróun friverzlunar verði
endurskoðaðar með tilliti til
þeirrar staöreyndar, að is-
lenzk framleiðsla hefur ekki
búið við þær aöstæður upp á
slðkastiö, sem gert hafa henni
kleift að undirbúa sig sem til
var ætlazt fyrir þá samkeppni,
sem vaxandi mun fara. Ég tel
þvi rétt að stiga skref til baka i
þessari þróun. Ég lit svo á, að
þaö sé að sjálfsögðu tima-
bundið. Ég er fylgjandi þeirri
meginstefnu aö koma á fri-
verzlun í svo vtötækum mæli,
sem okkar litla þjóðfélag, og
að mörgu leyti erfiða með til-
liti til gjaldeyristekna, getur
og hefur efni á.
Það skiptir mig engu máli,
þótt slikar aðgerðir séu nefnd-
ar höft. Ég lit ekki á það sem
höft, þegar ein stór fjölskylda
verður, vegna fjárskorts, að
draga úr ákveðnum innkaup-
um og jafnvel að setja vissa
hluti á bannlista.
Visitölugrund-
völlurinn
Ég lit einnig svo á, að visi-
tölugrundvöllurinn sé þannig,
að aldrei fáist viöunandi jafn-
vægi I efnahagsmálum fyrr en
hann er leiðréttur. Og raunar
hygg ég, að allir séu sammála
um þaö, þótt ekki séu þeir
sammála um hitt, á hvern
máta ber að leiðrétta visitölu-
grundvöllinn. Ot I það skal ég
ekki fara timans vegna. Þó vil
ég nefna, að mér sýnist ófært,
að tekjur til opinberra fram-
kvæmda, viö skulum segja
álagning skatta til- þess að
byggja sjúkrahús, eigi að leiöa
sjálfkrafa til launahækkunar.
Ljóster, að slik hringrás getur
aldrei staðizt. Nú er að visu
oröið samkomulag um það, aö
þetta veröi endurskoðað, og
þvi fagna ég. Ég vona, að af
þvi verði einhver árangur, og
get með tilliti til þess sam-
komulags fallizt á, aö Alþingi
hinkri við. Hins vegar vil ég
lqggja á það rika áherzlu, að
rikisstjórn þarf sjálf að undir-
búa markvissar aögerðir að
þessu leyti og vera tilbúin að
hrinda þeim i framkvæmd
með lögum frá þinginu, jafn-
vel þótt ekki náist um það
samkomulag á vinnu-
markaðnum.
Lifeyrissjóðirnir
Ég er einnig þeirrar skoðun-
ar, að eyðslufé lifeyrissjóða,
ef ég má kalla svo það fé lif-
eyrissjóða, sem rennur i stór-
um mæli til alls konar neyzlu,
verði að koma undir nöuggari
heildarstjórn I fjármálum rik-
isins. Ég er raunar hlynntur
þvi, að li'feyrissjóöirnir verði
Frh. á bls. 15