Tíminn - 10.05.1975, Page 2

Tíminn - 10.05.1975, Page 2
2 TÍMINN Laugardagur 10. mai 1975. Tíunda hver króna fengin að láni er- lendis eða tekin af gjaldeyrisforðanum — útlánaaukning verður að minnka um helming, sagði Seðlabankastjóri á ársfundi bankans — vá fyrir dyrum, ef þjóðarútgjöldin lækka ekki BH— Reykjavik. — „A siðast- liðnu ári varð viðskiptahallinn nálægt 12% af þjóðarframleiðsl- unni, en það þýddi I raun og veru, að um tiunda hver króna, sem íslendingar ráðstöfuðu á árinu, var annað hvort fengin að láni erlendis eða tekin af gjald- eyrisforða, sem safnað hafði veriðá mörgum undangengnum árum," sagði Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri, formaður bankastjórnar Seðlabankans i ræðu sinni á ársfundi Seðla- bankans, sem haldinn var i gær. Siðar I ræðunni sagði hann m.a.: ,,Við biasir ekki að- eins það verkefni að tryggja lækkun þjóðarútgjalda á þessu ári um nálægt 8% heldur má jafnframt búast við þvf, að sáralitið svigrúm verði til aukningar raunverulegrar neyzlu og fjárfestingar næstu 2- 3 árin á eftir. Og þessi kaleikur verður ekki frá okkur tekinn með frekari rýrnun gjaldeyris- stöðunnar eða aukinni skulda- söfnun erlendis, þvi að I þeim efnum hefur þegar verið teflt á tæpasta vað. Takist ekki að halda útgjöldum þjóðarinnar innan þeirra marka, sem hér hefur verið lýst, er vá fyrir dyr- um.” t upphafi ræðu sinnar gerði Jóhannes Nordal, seðlabanka- stjóri, grein fyrir efnahagsþró- uninni á siðastliðnu ári, I itar- legu máli, hversu þröng staða þjóðarbúsins væri orðin og hversu torsótt Ieiðin til aftur- bata kynni að reynast á næst- unni.” Siðan sagði Jóhannes Nordal: „Samkvæmt þeim þjóðhags- spám er legið hafa til grund- vallar ákvörðunum um efna- hagsráðstafanir, frá þvi aö gengisbreytingin var gerð I febrilar slðastiiðnum, er gert ráð fyrir þvi, að rauntekjur þjóðarinnar á þessu ári veröi allt að 6% minni en á árinu 1974, sem jafngildir yfir 7% minnkun ráöstöfunartekna á mann. Meginhluti þessarar lækkunar þjóðartekna stafar af um 15% rýrnun viðskiptakjara miðað viö meðaltal ársins 1974. Þessi viðskiptakjararýrnun er að mestu leyti þegar fram komin, og því miður er ekkert útlit fyrir það, að útkoman verði hagstæð- ari að þessu leyti, enda er verð- lag á íslenzkum útflutningsaf- urðum enn mjög veikt, og ennþá er mikil óvissa um verð og söluhorfur. Verðlag sumra afurða t.d. lýsis, hefur farið lækkandi, og er vafasamt, hvort tekst að halda þvi verði á ýms- um öðrum vörutegundum, sem vonir stóðu til i upphafi ársins. Aflabrögð á vetrarvertið, eink- um I aprílmánuði, auka ekki heldur á bjartsýni um útkomu ársins. Ekki er síður erfitt að meta, hver framvindan muni verða I efnahagsmálum umheimsins, og hvaða áhrif hún muni hafa á þjóðarbúskap Islendinga. Ennþá eru engin örugg merki farin að koma fram um það, að komið sé til botns I þeim efna- hagssamdrætti, er hófst á siðari hluta ársins 1973, og er orðinn hinn langalvarlegasti, siðan siö- ari heimsstyrjöldinni lauk. Afkoma atvinnufyrirtækja hef- ur yfirleitt verið erfið I iönaðar- rikjunum að undanförnu, ný fjárfesting farið ört minnkandi, en jafnframt hefur greiöslu- staða margra rikja stórversnað vegna olluveröhækkana. Astæða er til þess að óttast, að allt þetta verði til þess, aö erfitt reynist að snúa efnahagsþróun- inni aftur inn á braut vaxandi framleiðslu og eftirspurnar, auk þess sem liklegt er, að batinn verði hægur, a.m.k. fyrsta árið. Fari svo, er ekki viö þvi búist, að Islendingar fái teljandi búhnykk á næstu tveimur árum eöa svo vegna bættra ytri skil- yrða. Við þessar tvisýnu horfur um þróun þjóðartekna, næstu árin bætist svo hin erfiða staða þjóöarbúsins út á viö. A siðast- liðnu ári varð viðskiptahallinn nálægt 12% af þjóðarframleiösl- unni, en það þýddi i raun og veru, að um tiunda hver króna, sem tslendingar ráöstöfuðu á árinu, var annað hvort fengin að láni erlendis eða tekin af gjald- eyrisforða, sem safnað hafði veriðá mörgum undangengnum árum. Ég er viss um, að allir, sem reyna að gera sér grein fyrir stöðu þessara mála af raunsæi, muni fljótlega sjá, að slikan viðskiptahalla þola tslendingar ekki tvö ár i röð, ef þeir vilja halda trausti sinu út á viö og efnahagslegu sjálfstæði. Þvert á móti er óhjákvæmilegt að viðskiptahallinn fari ört lækkandi á allra næstu árum, þannig að greiðslubyrði við út- lönd haldist innan viðráöan- legra marka, en allt bendir nú til þess, að greiðslubyrðin verði komin upp I nálægt 20% af gjaldeyristekjum að þremur ár- um liðnum. Til þess að forðast enn meiri aukningu skulda- byröarinnar og leyfa nokkra bót á hinni veiku gjaldeyrisstöðu, virðist mér óhjákvæmilegt að setja það markmið, að viðskiptahallinn verði lækkaður i áföngum á þessu og næstu þremur árum, þannig að hann verði horfinn með öllu á árinu 1978. En hver eru þá skilyrði þess, aö þessu markmiði verði náð, og hvaða hagstjórnartækjum þarf að beita I þvi skyni? Sú efnahagsstefna sem fylgt hefur verið undanfarna mánuði, hefur það að leiðarljósi að draga úr greiðsluhalla við útlönd og tryggja viðunandi afkomu út- flutningsatvinnuveganna, án þess að svo snöggur samdráttur verði I innlendri eftirspum, aö verulega drægi úr atvinnu, eins og átt hefur sér stað i flestum iðnaöarlöndum. Hin hægfara aðlögun aö gjörbreyttri efna- hagsstööu þjóöarinnar, sem i þessari stefnu felst, er tvimæla- laust frá félagslegu sjónarmiði sársaukaminnsta leiðin til þess aö ná framangreindum mark- miðum. 1 hinni þröngu stöðu þjóðarbúsins er hún hins vegar vandrötuð, þar sem samtimis þarf að gæta þess, að stilla sam- dráttaraðgerðum og skeröingu kaupmáttar i'hóf, en tryggja þó örugglega þann árangur i bætt- um greiðslujöfnuði, sem að er stefnt. Til þess að slik stefna takist er þörf bæði varfærni og festu I stjórn allra þátta efna- hagsmála. Hvergi reynir þó meira á I þvi efni en i meðferð launa og kjaramála. Akvarðanir i gengismálum að undanförnu hafa miöast við það að ganga ekki feti lengra en brýnasta nauðsyn krafðist til styrktar at- vinnuvegunum og greiðslustöð- unni út á við, svo að launþegar gætu frekar sætt sig við þá kjaraskerðingu sem óumflýjan- leg hefur verið. Verði þessum aðgerðum svarað með hóflegri og raunsærri tekjustefnu af hálfu launþega og annarra hagsmunasamtaka, eru veru- legar vonir til þess að unnt verði að tryggja allt i senn, batnandi viðskiptajöfnuð, minnkandi verðbólgu og viðunandi at- vinnuástand. Óraunhæfar kauphækkanir mundu hins veg- ar við núverandi efnahagsað- stæöur eingöngu fjarlægja okk- ur þessum markmiðum, kalla á nýja verðbólguöldu eða kippa fótum undan afkomu atvinnu- veganna og þá um leið þvi at- vinnuöryggi, sem allir vilja að stefna. Hvort tveggja mundi koma harðast niður á launþeg- um sjálfum og þá sérstaklega láglaunafólki. Skynsamlegir samningar i launamálum munu þó aldrei ná tilgangi sinum, nema stefnan i fjármálum opinberra aðila og peningamálum stefni að sama marki, en á siðasta ári tókst ekki að beita þvi aðhaldi, sem nauðsynlegt var i þessum efn- um, eins og þegar hefur verið rakið. Er þvi þeim mun meiri nauðsyn að úr verði bætt á þessu ári. Hvernig til tekst mun ekki sizt velta á fjármálastjórn rikis- ins. Langt er nú síðan hagfræðing- ar urðu sammála um það, að sveigjanleg fjármálastjórn rikisinsværi eitt öflugasta tækið til sveiflujöfnunar i þjóðar- búskapnum. Stefna ætti að greiðsluáfgangi á þenslutimum, en losa um að nýju, þegar hætt væri við, að framleiðsluþættirn- ir væru vannýttir. Þvi miöur hefur þessi kenning of litlu ráðið um fjármálastjórn á Islandi til þessa. Dæmi um það er hinn mikli halli rikissjóðs og opin- berra aðila bæði á árinu 1974 og 1973, þótt þetta væru einhver mestu þensluár.sem um getur i þjóðarbúskap okkar. Atti þessi þróun opinbera búskaparins mikinn þátt i þvi að magna hér verðbólgu og veikja stöðu þjóðarbúsins út á við. Eitt frum- skilyrði þess, að unnt reynist að ná tökum á þeim vandamálum, er að þolanlegur jöfnuður náist i fjármálum rikisins á þessu ári. Svigrúm Seðlabankans til þess að fjármagna frekari greiðslu- halla rikissjóös er á þrotum vegna hinnar veiku stöðu út á við. Takist ekki með þeim niðurskurði rikisútgjalda, sem nú er fyrirhugaður, að stöðva áframhaldandi skuldasöfnun rikisjóðs við Seðlabankann, get- ur stjórn bankans staðið frammi fyrir þeim öarlaga- þrungna vanda að geta ekki veitt ríkissjóði frekari fyrir- greiðslu, nema með þvi aö draga úr endurkaupum afurða- lána og annarri fyrirgreiðslu bankans við atvinnuvegina. Sama nauðsyn er einnig á ströngu aðhaldi I útlánum bank- anna á þessu ári, en útlána- aukning þeirra átti, eins og áður er takið, einnig stóran þátt i eftispurnarþenslu undanfarinna tveggja ára. Þrátt fyrir stór- versnandi lausafjárstööu' bank- Frh. á bls. 15 Rúmlega 400 starfsmenn í Sigöldu leggja niður vinnu Ágústsson r I Norræna húsinu Hörður Agústsson. JG—Rvik. — Hörður Agústsson, listmálari hefur opnaö málverka- sýningu I Norræna húsinu. Þar sýnir Hörður 67 myndir, sem unn- ar eru meö ýmsum efnum, vatns- litamyndir, oliumálverk og túss- myndir. Hörður hélt sina fyrstu sýningu árið 1949 I Parisarborg, en sýndi siðar á sama án i Listamanna- skálanum við Austurvöll, sem þá var athvarf meiri háttar sýninga i höfuðborginni. Sýning Harðar verður opin 8.- 18. mai. 1 vandaðri sýningarskrá segir Ólafur Jóhann Sigurðsson m.a. á þessa leið i dálitilli ritgerð um málarann: ,,Ég er ekki einn um það, að hafa fyrir löngu skipað honum á bekk með menntuðustu og grand- vörustu listamönnum okkar. Þess vegna fagna ég hverri sýningu hans sem menningarviðburði og andlegum drýgindum”. eftir á Karde- mommubænum Sýningum fer nú að fækka á barnaleikritinu vinsæla, Kardemommubænum, sem sýnt hefur verið 55 sinnum i Þjóðleik- húsinu I vetur. Það hefur helzt boriö til tiðinda i þeim fræga bæ, að nýr leikari hefur brugðið sér I gervi ræningjans Jónatans: Guðjón Ingi Sigurðsson hefur tekið við hlutverkinu af Þórhalli Sigurðssyni, sem dvelst erlendis. Ekkert lát virðist vera á aðsókn að leikritinu og hafa yfir 30 þúsund manns séð hana i vetur. Næsta sýning er á sunnudag kl. 15. Myndin er af Soffiu frænku (Guðrúnu Stephensen) og Bastian bæjarfógeta (Arna Tryggvasyni). gébé-Rvik. Klukkan eitt á hádegi á fimmtudag, lögðu á fimmta hundraö starfsmenn við Sigöldu- virkjun niður vinnu. — Þetta er lengi búiö aö búa um sig I mönnum, sagði Siguröur Óskarsson starfsmaður verka- lýðsfélaganna i Rangárvalla- sýslu, Júgósla vnesku verk- takarnir hafa staöiö illa viö gerða samninga og margsinnis brotið þá. Meöal starfsmannanna, sem lögöu niöur vinnu, eru rösklega hundrað júgósla vneskir iön- verkamenn. | Aðalágreiningsefniö er I fyrsta lagi það, að júgóslavnesku verk- takarnir Energoprojekt, vilja ekki greiða áhættuþóknun, né tvöfalda slysatryggingu, þeim starfsmönnum, sem vinna á hættusvæðum við virkjunina. Þá er ágreiningur um tvo daga er ekki var hægt aö vinna vegna veöurs. í þriðja lagi, hefur vinnu- flokkur, sem unnið hefur við járn- bindingar, ekki fengið þau verk- efni, sem þeim hefur verið lofað' og nokkrir Júgóslavar, sem ekki höfðu atvinnuleyfi, látnir i þau verk i staðinn. Siöan eru ýmis minni mál, sem lengi hafa verið ágreiningsefni milli starfsmanna og verktakanna. A föstudag kl. 5, hófst fundur með fulltrúum verkalýðsfélaga Landssambandsins og Vinnuveit- endasambandsins til að reyna að koma á sættum. Starfsmenn voru margir að tinast i bæinn til Reykjavikur á föstudag, en margir aðrir biðu þar átekta tiðinda. Verkfallsverðir eru á vinnusvæðinu og gæta þess að vinnustöðvunarbannið verði haldið. Um hádegisbilið á fimmtudag var veriö að sprengja á vinnu- svæðinu við Sigöldu, en þar er venjulegasprengt i matartiman- um, þegar fáir menn eru á ferli. Varð þá það óhapp að stærðar grjóthnuliungur féll gegnum þak á timburskúr og skemmdi hann nokkuð. Starfsmaður við Sigöldu sagði i gær, að alltaf væru geröar miklar varúðar- ráðstafanir áður en sprengt væri á svæðinu, séö um að enginn nálgast sprengistað, hljóðmerki gefið, og þeir sem ynnu að sprengingunni væru i góðu skjóli. Svo vareinnig i þetta skipti, og var þvi enginn i neinni hættu þegar sprengingin varð, þót að timburskúrinn yrði fyrir skemmdum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.