Tíminn - 10.05.1975, Síða 5
Laugardagur 10. mai 1975.
TÍMINN
5
Yfirlýsing fjármálaráðherra
Timanum barst s.l. miö-
vikudag yfirlýsing frá
Matthiasi Á. Mathiesen fjár-
málaráöherra vegna um-
mæla, sem viöhöfð voru i
þættinum „Ura daginn og veg-
inn” um bifreiðakaup hans.
Yfirlýsing fjármálaráðherra
fer hér á eftir og auk þess yfir-
lýsing frá Velti h.f. Lands-
banka tslands og Gunnari Ás-
geirssyni forstjóra.
t þættinum „Um daginn og
veginn” sl. mánudagskvöld og i
Kastljósi sjónvarpsins hinn 21.
marz sl. var dylgjað um bif-
reiðakaup min, eins og áður
hafði verið gert i Alþýðublaðinu
18. febrúar sl. Ég sá þá ekki
ástæöu til að svara. Þar sem
þessar dylgjur hafa nú verið
viðhafðar i hljóðvarpi leyfi ég
mér að óska eftir þvi að með-
fylgjandi yfirlýsingar verði
birtar og þykir rétt að taka fram
eftirfarandi:
1. Bifreið þá, sem hér um ræðir,
pantaöi ég hjá Velti hf. 13.
september 1974 og átti hún að
afgreiðast frá verksmiðju 28.
október — 9. nóvember það
ár.
2. Vegna framleiðslutafa, sem
mér eru að sjálfsögðu óvið-
komandi kom bifreiðin ekki
til landsins fyrr en 16. janúar
sl.
3. Ég greiddi andvirði bifreið-
arinnar til Veltis hf. 23. janú-
ar sl. Fyrirtækið greiddi hana
ásamt öðrum bifreiðum i
banka 24. janúar sl.
4. Innflutningur bifreiðarinnar
var á vegum Veltis hf. og án
nokkurs atbeina af minni
hálfu. •
5. Þessu til staðfestingar fylgir
hér með yfirlýsing frá Velti
hf. Ennfremur staðfesting
Landsbanka Islands á þvi að
bifreiðin var greidd i banka
24. jan. og að á þessum tima
voru engar gjaldeyrishömlur
komnar til, þær voru settar á
29. jan.
6. Gengi islenzku krónunnar var
lækkaö 12. febrúar 1975.
7. Meðfylgjandi yfirlýsing
Gunnars Asgeirssonar, for-
stjóra sýnir, að Vilmundur
Gylfason vissi betur en hann
lét i veðri vaka sl. mánudag
er hann flutti erindi sitt ,,Um
daginn og veginn.”
Virðingarfyllst
Reykjavik, 7. mai 1975
Matthias A. Mathiesen
Veltir h.f.
Suðurlandsbraut 16
Reykjavik
Skv. beiöni yðar staðfestum
vér að innh. nr. 479462 (invoice
no. A 0520147) að upphæð Skr.
20.824,00 fyrir bifreið, var af-
greidd hér I bankanum 24. jan.
s.l., enda voru frilistakröfur
gegn staðgreiðslu afgreiddar
með eðlilegum hætti fram til 29.
janúar s.l. samkvæmt gildandi
gjaldeyrisreglum.
Reykjavik 7. mai 1975
Landsbanki tslands
Austurbæjarútibú
1 framhaldi af umræðum i
fjölmiðlum, sem orðið hafa um
bifreiðakaup Matthiasar Á.
Mathiesen fjármálaráðherra i
janúarmánuði siðastliðnum,
viljum vér gefa eftirfarandi
yfirlýsingu.
Bifreiðin, sem er af gerðinni
VOLVO árgerð 1975 var pöntuð
af oss, til VOLVO AB I Gauta-
borg, þann 13. september 1974.
A.B. Volvo staöfesti þá, að bif-
reiðin mundi afgreidd frá verk-
smiðju á timabilinu 28. október
til 9. nóvember sama ár. Vegna
ýmissa tafa á afgreiðslu á gerð-
inni VOLVO 264, reyndist af-
greiðslan óframkvæmanleg fyrr
en eftir áramót.
Bifreiðin var siðan afgreidd
frá verksmiöjunni 9. janúar 1975
á reikningi nr. A-0520147 og kom
til landsins með M/S Hvitá þann
16. janúar 1975, á farmskrá nr.
6.
Samkvæmt bókhaldi voru, og
kvittun fyrir greiðslu nr. 872,
greiddi fjármálaráðherra and-
virði fob-verðs bifreiðarinnar til
vor þann 23. janúar s.l.
Bifreiöin var siðan greidd i
Landsbanka Islands, Laugavegi
77, þann 24. janúar s.l. sam-
kvæmt bankastimpluðum gögn-
um i bókhaldi voru og meðfylgj-
andi staðfestingu Landsbanka
Islands, Austurbæjarútibús.
Þann sama dag var einnig
greidd ein vörubifreið og ein
fólksbifreið, báðar af
VOLVO-gerð. 1 vikunni á eftir,
þ.e.a.s. til og með 28. janúar fór
fram afgreiðsla I þessum sama
banka, á fimm fólksbifreiðum
og einni vörubifreið, allar af
VOLVO-gerð. Ekki var um
neina afgreiðslutregðu að ræða
af hálfu bankans á þessu tima-
bili, sbr. áðurnefnda staðfest-
ingu Landsbankans. Tekið skal
fram, að allar bifreiðar, sem
fluttar eru inn af VELTI HF,
eru á nafni fyrirtækisins, en
ekki nafni væntanlegra kaup-
enda þeirra og annast fyrirtæk-
ið þvi algjörlega um innflutning
þeirra.
Reykjavik, 7. mai 1975.
Ásgeir Gunnarsson, forstjóri.
Árni Filippusson, sölustjóri.
Gisli Steinsson, skrifstofustjóri.
Vegna ummæla Vilmundar
Gylfasonar i þættinum ,,Um
daginn og veginn” s.l. mánu-
dag, þar sem hann ræðir enn um
greiðslur bifreiða i banka fyrir
lokun á gjaldeyri I janúar s.l.,
vil ég að fram komi það, sem á
milli okkar fór, fyrir þáttinn
Kastljós um miðjan marz.
Vilmundur hringdi til min og
óskaði eftir upplýsingum um
hvenær við hefðum siðast leyst
bil úr banka.
Þar sem ég hafði ekki við
hendina stimplaða bankapapp-
ira, spurði ég tollmann minn um
þetta atriði, en hann skráir allar
vörur með dagsetningu, sem I
toll fara.
Siðustu bilar, sem i toll fóru
frá okkur var 29. janúar og
sagði ég þvi Vilmundi, að ef að
likum lætur hafi þeir verið
greiddir 1-2 dögum áöur.
Siðan spyr hann, hvort bill
fjármálaráðherra sé einn af
þeim. Svarið, sem hann fær er,
að hann fór I toll 24. janúar og
hafi þvi væntanlega verið
greiddur 22. eða 23. janúar I
banka.
Þar sem hannminntist á bil
ráðherra, þá bað eg hann að
koma þvi að I þættinum, vegna
ummæla I Alþýðublaðinu, aö bill
fjármálaráðherra hafi verið
pantaður s.l. haust, en af-
greiðsla tafizt. Hinsvegar hafi
hann verið leystur út strax og
pappirar komu og þvi væntan-
lega verið greiddur i banka
22.-23. janúar eins og fyrr segir
og þá engar afgreiðslutafir á
gjaldeyrisyfirfærslum.
Að mér dytti i hug, að mann-
inum væri ekki treystandi fyrir
að koma leiðréttingu á framfæri
er mér fjarri, hinsvegar segir
hann i þessum þætti, að Veltir
hafi haft sérfriðindi I bankan-
um, þar sem hvorki Hekla h.f.
eða P. Stefánsson h.f. hafi feng-
ið að greiða sendingu bila 4 dög-
um fyrir lokun.
Að Veltir h.f. hafi haft einhver
sérfríðindi vegna afgreiðslu
gjaldeyris I banka á ég bágt
með að trúa, enda e.t.v. meining
Vilmundar að gera tortryggi-
lega greiðslu vegna fjármála-
ráðherra.
Að sjálfsögðu á maður að vara
sig á fréttamönnum en ég hefi
verið það heppinn um dagana I
flestum tilfellum að hafa átt
viðtal við heiðarlega frétta-
mennsem viljað hafa það sem
sannast reynist.
Reykjavik, 7. mai 1975.
Gunnar Ásgeirsson.
Norrænt kennaranám-
skeið í Reykjavík
Arlega halda norrænu kennara-
samtökin (N.L.S.) námskeiö fyrir
kennara frá öllum Norðurlönd-
unum. Á þessum námskeiðum
eru fluttir fyrirlestrar um
kennslu- og skólamál, starfshóp-
ar starfa og umræður fara fram
um erindin. — Landssamband
framhaldsskólakennara og Sam-
band Islenzkra barnakennara eru
aðilar að samtökunum.
Að þessu sinni verður nám-
skeiðið haldiö hér á islandi og
hefst laugardaginn 26. júlí að
Hótel Loftleiöum, en lýkur föstu-
daginn 1. ágúst.
Höfuðviðfangsefni námskeiðs-
ins verður „Skólinn og hin nor-
ræna menningarsameign”. Flutt
verða eitt til tvö erindi daglega
auk hópvinnu og almennra um-
ræðna. Frummælendur verða frá
öllum þátttökuþjóðunum. A nám-
skeiðinu verður m.a. rætt um
kennslu i norrænu málunum,
samvinnu Norðurlandanna I
skóla- og kennslumálum, sam-
eiginlega tilraunastarfsemi,
samræmingu á námsskrám o.fl.
Þátttökugjald fyrir íslendinga
verður kr. 7.000,00 og er innifalið i
verðinu ferð til Gullfoss og Geysis
og lokafagnaður að Hótel Loft-
leiðum. Gistingu og mat verða
þátttakendur að annast sjálfir,
nema þeir öski sérstaklega eftir
öðru.
Happamarkaður
Framsóknar-
kvenna í dag
1 dag heldur Félag Fram-
sóknarkvenna i Reykjavik
happamarkað i Framsóknar-
húsinu að Rauðarárstíg 18.
Happamarkaðurinn hefst kl. 14.
Það er von félagskvenna, að vel-
unnarar félagsins komi og geri
góð kaup og mikil, og styrki með
þvi móti gott málefni, þvi að
ágóðinn mun renna til kvensjúk-
dómadeildar Landspitalans, sem
nú er I smiðum.
Kínversku
sýningunni
að Ijúka
AÐ UNDANFöRNU hefur staðið
yfir á Kjarvalsstöðum sýning á
grafiskum myndum frá Kina og
hefur sýningin verið fjölsótt. Sýn-
ingunni lýkur á sunnudagskvöld,
en I dag, laugardag og á morgun
sunnudag, verður sýningin opin
frá kl. 14-22. Aðgangur að sýning-
Þátttakendur af hálfu S.l.B. og
L.S.F.K. geta ekki orðið fleiri en
20 samtals og óskast umsóknir
um þátttöku sendar skrifstofum
samtakanna fyrir 1. júni n.k., en
þar eru veittar nánari upplýsing-
ar um námskeiðið.
Þingkona
talar í
Garðakirkju
Sunnudaginn 11. mai fer fram
guðsþjónusta i sambandi við ár-
lega kaffisölu Kvenfélags Garða-
hrepps.
Við þessa guðsþjónustu mun
Sigurlaug Bjarnadóttir flytja
ræðu, en sá siður hefur komizt á
að þennan dag hefur kona flutt
ræðu I Garðakirkju og hefur þvi
verið mjög vel tekið af kirkju-
gestum. Garðakórinn, undir
stjórn Þorvaldar Björnssonar
syngur við athöfnina. Að messu
lokinni verður kaffisala Kven-
félags Garðahrepps að Garða-
holti, og skal fólki bent á, að mjög
skemmtilegt er að aka um þessar
slóðir á vordegi og nema staðar á
Garðaholti f leiðinni.
IhaKLtn.
rafmagnshandfræsari
★ Aflmikill 930 watta
mótor
★ 23000 snún/min.
★ Léttur, handhægur
★ Innifalið í verði:
★ Verkfæri
★ Karbíttönn
★ Lönd o.fl. o.fl.
★ Hagstætt verð
Leitið upplýsinga um
aðrar gerðir Makita
rafmagnsverkfæ ra
D
ÞÓRf
SlMI B1500-ÁRMÚLA11
r
Arnessýsla
Húsbyggjendur, húseigendur.
Tökum að okkur nýbyggingar, breytingar
og viðgerðir. önnumst efnisútvegun og
gerum föst tilboð, ef óskað er.
Benedikt Eggertsson og Hrafn Björnsson,
Hveragerði, simi 4114.
MERKJASALA
Slysavarnadeildarinnar Ingólfur
SUNNUDAGINN 11. MAÍ 1975
Merkin eru afhent í flestum barnaskólum borgarinnar
kl. 10 - 12 — 10% sölulaun
Foreldrar! Hvetjið börn yðar til að selja merkin
Farið verður í Sundaferð með 50 söluhæstu börnin
Akranes — Atvinna
Starf launafulltrúa á bæjarskrifstofunni á
Akranesi er hér með auglýst laust til um-
sóknar.
Starfið, sem veitist frá 1. júni n.k., er fólg-
ið i undirbúningi gagna vegna útreiknings
launa i skýrsluvél.
Umsóknir, er greini frá aldri menntun og
fyrri störfum,berist undirrituðum fyrir 15.
mai n.k.
Akranesi 29. april 1975
Bæjarritarinn á Akranesi.