Tíminn - 10.05.1975, Side 11

Tíminn - 10.05.1975, Side 11
Laugardagur 10. mal 1975. TÍMINN 11 HernámsliOiö lagöi Þjóöleikhúsiö, sem þá var ófullgert.undir sig. UM ÖTTULEYTIÐ aðfaranótt 10. maimánaðar árið 1940 heyrðist gnýr i lofti yfir Reykja- vik. Ékki leyndi sér, að þar fóru flugvélar. Mörgum, sem þessa uröu áskynja, varð hverft við, þvi að ekki var á þeim árum von Islenzkra flugvéla á sveimi um þetta leyti sólarhrings. Litlu slðar ösluðu stórdrekar, spiiandi þykkum reykjar'mekki, inn flóann og stefndu á Reykja- vikurhöfn. Ekki leyndi sér, að þar voru herskip á ferð. Þessi skip vörpuðu akkerum á ytri höfninni. Menn, sem á ferli voru I bænum I morgunskimunni, störðu agndofa á þessi skip. Að skammri stundu liðinni kom tundurspillir, hlaðinn her- mönnum, inn á innri höfnina og lagöist aðbryggju. útlendur her var kominn til þess að hernema landið — brezkur her. Togarar, sem inni lágu, voru teknir tií mannflutninga úr herskipunum, og brátt var hafnarbakkinn I Reykjavik morandi af her- mönnum i móleitum einkennis- búningum. Þeir hlóðu þar ókennilegu farteski sinu I hrauka og spigsporuðu fram og aftur með byssur um öxl. Sveit manna hélt rakleitt suður i Túngötu að þýzka sendi- ráðinu til þess að handtaka Ger- lach, sendiherra nasista á ís- landi, er þegar hafði haft njósn- ir af þvi, hvað i aðsigi var, og brennt mikið safn leyndar- skjala. Aörir dreifðust um bæ- inn til þess að handtaka Þjóð- verja, er þar dvöldust. Þar á meðal var áhöfn þýzks skips, Bahia Blanca, sem bjargað hafði verið úti fyrir Vestfjörðum fyrr á árinu, og höfðust flestir við I Hótel Heklu við Lækjartorg og gistihúsi hjálpræðishersins. Enn ein sveitin hertók Land- simahúsið, þar sem hvort tveggja var, bækistöð rikisút- varpsins og miðstöð alls sima- sambands i landinu. Jafnskjótt og bilum hafði , verið komið á land, fóru enn aðrir flokkar út fyrir bæinn og lokuðu vegum, sem lágu út úr honum, og nokkrir menn voru settir á vörð við loftskeyta- stöðvarnar og útvarpsstöðina á Vatnsendahæð. Úti um land vissi fólk lengi vel óglöggt, hvarð gerzt hafði. Þeg- w \ 1 y Hernám Islands irum '•Ji Brezki herinn á hafnarbakkanum í Reykjavík 10. maí 1940 ar reynt var að ná sambandi við Reykjavfk frá landsimastöðv- um þar, var svarað á ensku og litt látið uppi, hvað i hafði skor- izt. Það var ekki fyrr en kvöldút- varp hófst óg alvöruþrungin, karlmannleg rödd Hermanns Jónassonar forsætisráðherra barst að eyrum alþjóðar, að all- irfengu að vita, að Bretar höfðu hernumið landið um nóttina. Rikisstjórnin mótmælti her- náminu við sendiherra Breta á íslandi, þegar um morguninn. En nær samtimis hófu brezku hermennirnir að reisa tjöld sin, bæði i nágrenni bæjarins og hvar þar innan bæjar, er þeir fundu auðan blett. Hús voru einnig tekin til búsetu handa hernámsliðinu, þar á meðal þjóðleikhúsið og menntaskólinn Fyrstu hermennirnir voru ferjaöir á Isienzkum fiskibátum af herflutningaskipum, sem lögðust viö ankeri á ytri höfninni, til lands. við Lækjargötu. Jafnframt var byrjaö að dreifa herliði um landið, fyrst á ýmsa staði i ná- grenninu. 1 Reykjavik var dreift flug- miða, þar sem Bretar gerðu grein fyrir atferli sinu á furðu- legu hrognamáli, er þeir hafa talið vera Islenzku. Var þessum miðum meðal annars varpað niður úr flugvél. Koma brezka hersins varð undanfari mikils umróts. Mið- um var viða lokað með tundur- duflum, slökkt á vitum og bann- að að útvarpa veðurfregnum. Hömlur voru settar á blöð og út- varp, og skipin urðu að sigla myrkvuð um höfin. Aður en árið var á enda, hafði þýzk sprengju- flugvél gert árás á fyrsta is- lenzka togarann, Arinbjörn hersi.með þeim afleiðingum, að sex menn fórust. Slikar árásir á fiskiskip, fiskflutningaskip, millilandaskip og strandferða- skip urðu margar áður en lauk og manntjón Islendinga af þeim sökum hlutfallslega ekki minna en sumra þeirra þjóða, sem börðust á vigvelli. I septem- bermánuði 1942 var sprengjum meira að segja varpað á Seyðis- fjörð, og slösuðust þar fjórir drengir, er voru að leik skammt frá þeim stað, er sprengjurnar lentu á. Sandpokaskýli, sem voru hugsuð sem loftvarnabyrgi, voru hlaðin I bæjum, einkum I Reykjavik, og loftvarnaflautum komið upp með tilheyrandi æf- ingum, en annars staðar voru lltilfj örlegir kjallarar ætlaðir fólki til þess að flýja i, ef i harð- bakkann slægi. Allt þjóðfélagið komst á ann- an endann. Menn gengu úr skip- rúmi og frá búum til þess ab komast I setuliðsvinnu, sem aöallega var i Reykjavik, eftir að flugvallargerð hófst i Vatns- mýrinni, og hvers konar sölu- krár þutu upp. Sá hugsunarhátt- ur að græða nú á Bretanum breiddist út eins og farsótt. Nasistarnir, sem áður höfðu fariö i fylkingum um götur Reykjavikur i einkennisskyrt- um og með leðurólar um öxl, hurfu eins og hendi væri veifað. Margs konar hömlur voru settar á umferð, og árekstrar af ýmsu tagi urðu. Heryfirvöldin tóku sér það vald að handtaka, kveða upp dóma yfir Islenzkum mönnum og flytja þá úr landi, þar á meðal islenzka alþingis- menn, og banna útgáfu blaða. Rauði krossinn brezki, sem fylgdi hernum, var notaður til þess að smala unglingsstúlkum á hermannasamkomur, og her- stjórnin brást hin versta við, þegar islenzk yfirvöld vildu reyna að stemma stigu við þessu athæfi. Seinna bættist svo við banda- riskt setulið, og enn jókst rösk- unin i þjóðfélaginu, er gerð Keflavikurflugvallar hófst, og i kjölfar þess byggingar þar syðra. Enn er sú saga er af þessu spratt ekki öll, þvi að enn er útlent herlið i landinu, þótt hálfur fjórði áratugur sé siðan fyrstu hersveitir Bandamanna stigu hér á land. Válegir atburðir gerðust hér á styrjaldarárunum. Þó nokkrum sinnum kom það fyrir, að her- mennirnir skutu hér fólk, þar á meðal eitt barn viö Hallveigar- stlg á hvitasunnumorgni. Menn, sem voru I þjónustu Þjóðverja, eða aðeins grunaðir um það, fengu á beiskju að kenna, og einn maður beið bana við yfir- heyrslur, sem gruna má af hverju tagi hafi verið, og haföi þó ekki annað til saka unnið en bjarga lifi sinu og skipshafnar sinnar við örðuga aðstöðu i öðru landi. Mörg byggðarlög landsins guldu mikið afhroð á þessum árum, er fólkið streymdi burt i setuliðsvinnuna, þar sem hún var mest, og ekki sneri nema nokkur hluti þess heim aftur. Mikill fjöldi ungra stúlkna fór úr landi vegna kynna sinna við hermennina, og ekki nema litill hluti þeirra kom aftur. Vinnu- siðferði stórhrakaði, þvi að ekki var setuliðsvinnan sótt af kappi og áhuga. Aftur á móti grædd- um við mikla peninga, sem ekki urðu að visu að sama skapi fast- ir I pyngju, og áreiðanlega hafa þessir atburðir hraðað tækni- væðingu I landinu. tslenzki hesturinn ber sig vel undir borðalögðum liðsforingja. Braggahverfi risu og landið breytti um svip.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.