Tíminn - 10.05.1975, Side 13

Tíminn - 10.05.1975, Side 13
Laugardagur 10. mai 1975. TÍMINN BliiH 'B i'ii Iw B'IBH i IIIHI, Trúmálagrein Heimis Steins- sonar, skólameistara i Skál- holti, sem birtist i Kirkjuritinu, virðist ætla að vekja storm, enda sennilega að þvi stefnt. Tilbreyting i vændum. Eitt bréf um þetta efni hefur Landfara borizt. VSskrifar: „Loksins getum við átt von á tilbreytingu i gráum hversdags- leikanum. Heimir Steinsson, rektor i Skálholti, hefur skrifað svæsna afturhaldsgrein i Kirkjuritið, þar sem hann eys skömmum yfir Hafstein Björns- son og vini hans og kallar Haf- stein „vanheila persónu”, sem naumast getur þýtt annað en að hann telji Hafstein geðbilaðan. Rektorinn segir um grein sina, að sér „væri nokkur aufúsa á þvi, að hún einkum bærist fyrir augu presta”, og er nú ekki að efa, að sú stétt manna, sem tek- ið hefur sér fyrir hendur að segja fólki að lifa og deyja upp á hluti, sem þeir sjálfir vita ekk- ert um, og liggja utan mann- legrar seilingar, muni risa upp og svara af engu minni hörku en til er stofnað af upphafsmannin- um. Búast má við, að sá leikur verði ekki óskemmtilegur, þvi að séra Heimir Steinsson, rekt- or I Skálholti, lýsir þvi fagnandi yfir I einu dagblaði landsins I dag (6. maí), að.,Ekki er það fyrirfram vitað, hvert okkar riöi feitustum hesti frá rækilegu persónuniði I blöðum”. Ójá, biöi þeir bara við, sem hugsa sér að gerast svo djarfir að andmæla stórmenninu! Nýr Jón Vidalin? Fyrir rösklega hálfri þriðju öld var I Skálholti i Biskups- tungum maður, sem siðan hefur orðið frægur I íslandssögunni. Hann hét Jón Vidalin, og var að visu biskup en ekki rektor. Jón Vfdalln var svo snjall ræðumað- ur, að þjóðin hefur lengt nafn hans og kallað hann „meistara Jón”i — en stórorður þótti mörgum hann. Þrátt fyrir frægð meistara Jóns, hefur islenzkum kenni- mönnum ekki tekizt að likjast honum, þvl að flestar stólræður þeirra eru með þvi dauðamarki brenndar, að þær gleymast jafnskjótt og á þær er hlustað. Það er þvi i sjálfu sér ekkert undrunarefni, þótt ungum guðs- manni detti I hug að skjóta kol- legum sinum ref fyrir rass og nota tækifæri, sem þeir hafa alltaf látið sér úr greipum ganga, eða hafa ekki komið auga á: Herma duglega eftir meístara Jóni og vita, hvort hann getur ekki orðið likur hon- um — i einhverju. Ég sé ekkert á móti þvl að Heimir Steinsson reyni að stæla Jón Vidalín, þótt hins vegar liggi i augum uppi, að sú tilraun hlýtur að mistak- ast_—af náttúrufræöilegum or- sökum. Jón Vídalfn bjó nefni- lega yfir dálitlu, sem hvorki verður keypt fyrir peninga né lært I skólum. Það verður enginn meistari Jón, aðeins með þvi að eiga heima I Skálholti og temja sér fruntalegt oröbragð”. 13 Kappreiðar Hestamannafélagsins Gusts verða haldnar að Kjóavöllum þann 25. mai. Keppnisgreinar: 250 m skeið, 250 m unghrossahlaup, 300 m tölt, 300 m hlaup, 1500 m brokk. Góð- hestakeppni i A og B flokki. Skráning keppnishrossa i simum 4-09-67 Og 4-11-43. Lokaæfing og skrásetning verð- ur á Kjóavöllum að kvöldi þriðjudagsins 20. mai. — Nefndin. Trilla til sölu Ný-uppbyggð 6 tonna trilla með 36 hest- afla Perkins-vél og öðrum búnaði góðum til sölu. Upplýsingar hjá Kristjáni Guðmundssyni skipasmið i Stykkishólmi og i sima 93-8376 milli kl. 19 og 22. Prjónakonur — Kaupum lopapeysur Peysumóttaka þriðjudaga og fimmtudaga i verzluninni Þingholtsstræti 2, frá kl. 9-12 og 1-4 og miðvikudaga að Nýbýlavegi 6, Kópavogi frá kl. 9-12 og 1-4. Simar 1-34-04 og 4-31-51. Álafoss h/f. Fjármólastjóri Starf f jármálastjóra hjá Rafveitu Hafnar- fjarðar er laust til umsóknar. Laun samkvæmt 28. launaflokki. Umsóknum, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, skal skila fyrir 12. mai n.k. til rafveitustjóra, sem veitir nán- ari upplýsingar um starfið. Rafveita Hafnarfjarðar. FLESTAR STÆRÐIR HJÓLBARÐA Vörubila- Fólksbila- Vinnuvéla- Jeppa- Traktorsdekk Vörubiladekk á Tollvörugeymsluverði gegn staðgreiðslu ALHLIÐA HJÓLBAROAÞJONUSTA OPIÐ 8 til 7 HJOLBARDAR HÖFÐATUNI 8 Simi 16740 Véladeild Sambandsins Simi 38900 Bændur Unglingspiltur, 16 ára, vanur sveitastörf um, óskar eftir starfi sem vinnumaður á sveita- heimili. Upplýsingar í síma 3- 74-59. Rannsóknarstofnun landbúnaðarins óskar eftir að ráða mann i einn mánuð, sem vanur er fjárgeymslu. Upplýsingar gefur ólafur Guðmundsson, Simi 8-22-30. Leigu- bílstjórar Chevrolet Nova Til afgreiöslu strax á hagstæöu veröi. Sýningarbíll í salnum. Verd: Kr. 1.080.000, beinskiptur með vökvastýri og aflhemlum. Kr. 1.143.000, sjálfskiptur meó vökvastýri, aflhemlum og lituöum rúöum. Leitiö upplýsinga hjá sölumönnum. EINKAUMBOD 0 FYRIR GENERAL MOTORS Á iSLANDI SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFELAGA $ Véladeild ARMULA 3 REYKJAVIK, SIMI 38900

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.