Tíminn - 23.05.1975, Page 10
10
TÍMINN
Föstudagur 23. mai 1975
Föstudagur 23. mai 1975
TÍMINN
11
Einkaneyzlan minnkar um 11%
en samneyzlan stendur í stað
Inngangur
Drög þau að þjóðhagsspá fyrir
árið 1975, sem fram voru sett i
fjölritinu „Úr Þjóðarbúskapn-
um” 10. febrúar sl., hafa nú verið
endurskoðuð með tilliti til ráð-
stafana á sviði efnahagsmála af
hálfu stjómvalda, nýrra kjara-
samninga og fyrstu vitneskju og
vfsbendinga um þróun efnahags-
mála á fyrstu mánuðum ársins.
Það, sem hér varðar mestu, eru
eftirtalin atriöi:
1) Gengislækkun islenzku krón-
unnar um 20% hinn 12. febrúar
sl. og fylgilöggjöf hennar.
2) Lög um efnahagsmál og fjár-
mál nr. 11/1975 frá 28. april
1975, en meginákvæði þeirra
voru:
a) Heimild til lækkunar rikis-
útgjalda 1975 um 3.500 m.kr.
b) Lækkun tekjuskatts ein-
staklinga um 1.000 m.kr. og
tekjuútsvarps um 400 m.kr.
frá gildandi reglum. Fjöl-
skyldubætur voru felldar inn i
tekjuskattskerfið og jafn-
framt var allri persónuivilnun
breytt úr persónufrádrætti frá
tekjum fyrir skatt i afslátt frá
skatti eftir að hann er álagður.
I fjárlögum var reiknað með
700 m.kr. lækkun tekjuskatts.
c) Söluskattur og tollur af
nokkrum tegundum matvöru
var felldur niður. Fjárhæð á
heilu ári 850 m.kr. (Aætlað
nema á árinu 1975 um 600
m.kr.)
d) Lagt var á flugvallargjald
(aðalreglan 2.500 kr. á hverja
flugferð til útlanda en 350 kr.
innanlands, en á móti fellur
söluskattur niður af innan-
landsflugi). Flugvallargjaldið
er áætlað nema 200-250 m.kr.
1975.
e) Skyldusparnaður lagður á
með tekjuskatti af háum tekj-
um, sem nemur nálægt 250
m.kr. 1975.
f) Lántökuheimildir fyrir rik-
issjóð til opinberra fram-
kvæmda- og fjárfestingar-
lánasjóða. Samtals er þá gert
ráð fyrir 5.000 m.kr. lánsfé til
opinberra framkvæmda, sbr.
við 3.700 á fjárlögum, og 2.000
m.kr. lántöku erlendis til
Fra mkvæm dasjóðs.
3) Akvörðun almenns fiskverðs,
sem fól i sér um 14-15% hækk-
un og lög um ráðstöfun geng-
ismunar og hækkun útflutn-
ingsjalda i oliusjóð fiskiskipa
um 1.100 m.kr. 1975 en 1.450
m.kr. á heilu ári.
4) Bráöabirgðasamkomulag ASÍ
og vinnuveitenda 26. marz
1975, sem gilda skal til mai-
loka og fól i sér 4.900 kr. hækk-
un mánaðarlauna upp að
69.000 króna launum fyrir
dagvinnu og að laun á bilinu
69.000 til 73.900 skuli öll verða
73.900. Þessi hækkun launa
nemur um 13% fyrir hina
lægst launuðu, en 10-11% að
meðaltali fyrir þau aðildarfé
lög ASl, sem hún náði til.
5) Lög um launajöfnunarbætur,
bætur almannatrygginga,
verðlagsmál o.fl., sem sam-
þykkt voru á Alþingi um miðj-
an mai 1975, en þau fela i sér
staöfestingu bráðabirgðalaga
Almannavarnir á
Norðurlöndum
gébé Rvik — Hér á landi eru nú
staddir forstjórar almannavarna
á Norðurlöndum, nema Finn-
landi. Þeir halda með sér óform-
legar ráðstefnur tvisvar á ári, en
þetta er I fyrsta skipti, sem þeir
koma saman hér á landi. — Alltaf
er eitthvað nýtt aö gerast i þess-
um málum, sagði Pétur Sigurðs-
son forstjóri isl. almannavarna,
og þessir fundir eru fyrst og
fremst haldnir til þess að fylgjast
með þróun f þessum málum, þvi
að alltaf skapast vandamál, þótt
ekki sé strið.
Þetta er 22. ráöstefna Norður-
landanna, siðast var hún haldin I
Danmörku og þar á undan i Svi-
þjóð. Þetta er, eins og áður er
sagt, i fyrsta skipti sem hún er
haldin hér á landi. Þátttakendur
voru: Erik Schultz frá Dan-
mörku, Johannes Nordhaug frá
Noregi og Ake Sundelin frá Svi-
þjóð, ásamt Guðjóni Petersen
fulltrúa og Pétri Sigurðssyni for-
stjóra almannavarna á Islandi.
Forstjórarnir skoðuðu ýmis
fyrirtæki og stofnanir I Reykjavik
og nágrenni og fóru auk þess til
Vestmannaeyja, en fyrir þeirri
ferð höfðu þeir sérstakan áhuga.
Geysilegur munur er á fjárhag
almannavarna á Noröurlöndum,
og verður hér gefið litið dæmi: I
Sviþjóð er kostnaöurinn á ibúa
um 400,-, i Noregi um 500,-, I Dan-
mörkuum 660,-, og á íslandi: 37,-.
Hér er miðaö við Islenzkar krón-
ur.
Kostnaður við loftvarnaskýli er
mjög mikill, og þvi hefur áhugi
verið mikill á þvi aö gera þau
þannig úr garði, að þau kæmu að
sem mestum notum á friöartim-
um.
Hjá Guðjóni Petersen fulltrúa,
fengum viö þær upplýsingar, að
heildarskipulag almannavarna
fyrir Reykjavik veröi endanlega
lokið næsta haust. Hluti af skipu-
laginu er þegar lokið og hefur
verið kynntur. Skipulag fyrir
Hafnarfjörð og Garðahrepp er nú
á lokastigi, — og skipulag fyrir
Akranes, öll sveitarfélögin á
— Höfum meira
loftvarnarrými en
frændur okkar
Suðurnesjum og Vestmannaeyjar
eru langt á veg komin.
Þá er heildarskipulag fyrir
Neskauþstaö, Seyðisfjörð og
Mýra- og Borgarfjarðasýslu vel á
veg komið, en enn eru nokkur
sveitarfélög sem biða.
Þá sagöi Guðjón, aö miðað við
ibúatölu væru skýíi hér á landi
miklu fleiri og rúmmeiri heldur
en annars staðar á Norðurlönd-
um, en hér vantar allan útbúnað I
skýlin, þar sem skýli á Noröur-
löndum eru aftur á móti vel útbú-
in loftræstikerfum og fleiru. —
Skýli þau, sem við nú höfum,
gætu rúmað allt að 80—90% af
þjóðinni, sagði Guðjón.
•
Talið frá vinstri: Guðjón Peter-
sen fulltrúi, Pétur Sigurðsson for-
stjóri, Erik Schultz Danmörku,
Johannes Nordhaug Noregi og
Ake Sundelin Sviþjóð. Myndin er
tekin í stjórnstöð almannavarna I
lögreglustöðinni f Reykjavfk.
—Tfmamynd: Róbert.
nr. 88/1974, auk þess sem við
þau lög var efnislega aukið
hækkun bóta lifeyristrygginga
til samræmis við samkomulag
ASl og vinnuveitenda frá 26.
marz 1975 og sérstakri hækk-
un tekjutryggingar til þess að
hagsbætur hliðstæðar skatta-
breytingum sbr. 2., hér að
framan, kæmu skattlausum
lifeyrisþegum til góða.
Auk þessara fimm atriða hefur
verið litið til allra nýjustu talna
um hagþróun fyrstu mánaða árs-
ins og fylgir sérstakt yfirlit slikra
hagtalna þessum stutta pistli.
Útflutningur og
útflutningsframleiðsla
Nokkuð ber á milli talna um
aflamagn og útflutningsfram-
leiðslu fyrstu mánuði ársins, en
llklegast virðist, að framleiðslu-
magn (m.v. verðmæti á föstu
verðlagi) sjávarafurða hafi auk-
iztum 5% fyrstu þrjá mánuði árs-
ins en nokkru minna fyrstu fjóra
mánuðina, en þá er togaraverk-
fallsins tekið að gæta. Aflahorfur
eru ekki sérlega uppörvandi eins
cg er, en þrátt fyrir það verður
hér spáð 4% aflamagnsaukningu
á árinu 1975 i heild samanborið
við árið 1974. (Hér er að sjálf-
sögöu ekki reiknað með viðtæk-
um, langvarandi verkföllum eða
verkbönnum). Vegna markaðs-
örðugleika er gert ráð fyrir um
15% minni álframleiðslu en i
fyrra og verulegri birgðasöfnun
áls. Hins vegar er gert ráð fyrir,
að sjávarvörubirgðaaukningin
1974 gangi nokkurn veginn til
baka. Vegna þessarar bigðra-
minnkunar er spáð um 14%
magnaukningu vöruútflutnings.
Kaupgjald og verðlag
1 ársbyrjun 1975 voru launa-
taxtar allra launþega um 10%
hærri en meðaltal ársins 1974 og
i stað 50% árið 1974. Þetta fer
vitaskuld eftir niðurstöðum
kjarasamninganna, sem núfara i
hönd. Meðalhækkun verðlags 1975
yrði I námunda við 40% eða svip-
að og 1974, en yfir árið hægði til
muna á ferðinni, ef forsendurnar
standast.
Þjóðarútgjöld
1 þjóðhagsspánni, sem fram er
sett hér á eftir, er gert ráð fyrir
að einkaneyzla minnki að magni
um 11% frá árinu 1974, en hér
gætir að sjálfsögðu minnkunar
kaupmáttar ráðstöfunartekna frá
veltuárunum 1973 og 1974. Þá er
gert ráð fyrir, að samneyzlan
standi nokkurn veginn i stað, sem
er verulegt fráhvarf frá jöfnum 6-
7% vexti ár frá ári mörg undan-
farin ár. Fjármunamyndunar-
spáin er að flestu leyti óvissust
spánna um helztu þætti þjóðarút-
gjalda, niðurstaða hennar er nú
sú, að búizt er við 4-5% magn-
minnkun 1975, um 14% minnkun i
atvinnuvegafjárfestingu, 5% i
ibúðarhúsnæði, en hins vegar um
10% aukningu i opinberum fram-
kvæmdum. 1 þessum tölum hefur
verið gert ráð fyrir áhrifum laga
um ráðstafanir i efnahagsmálum
óg f jármálum. Þegar þessar tölur
eru skoðaðar þarf að hafa i huga
þá geysilegu f járfestingu sem var
á flestum sviðum 1974, ekki sizt
Ibúðabyggingar og skipakaup.
Aukningin i opinberum fram-
kvæmdum er öll á sviði orku-
mála, en reiknað með minnkun á
öörum sviðum. I heild hefur með
þeirri endurskoðun, sem lög um
ráðstafanir I efnahags- og fjár-
málum gera ráð fyrir verið dreg-
ið verulega úr framkvæmda-
áformum hins opinbera. 1 heild er
gert ráð fyrir að magn þjóðarút-
gjalda dragizt saman um 11%, en
hin almennu þjóðarútgjöld um
8%, þegar stórframkvæmdir eru
frátaldar.
anburð þarf þó að hafa i huga, að
á milli þessara ársfjórðunga ber
nær allan þann viðskiptakjara-
skell, sem þjóðarbúið hefur orðið
fyrir á liðnu ári. Ef skyggnzt er I
magnbreytingar utanrikisverzl-
unarstærðanna, kemur I ljós að
almenna innflutningsmagnið hef-
ur sennilega dregizt saman um
12-13%, sem getur samrýmzt
fyrrgreindri spá fyrir allt árið um
18% minnkun. Orðugara er að
draga ályktanir af útflutningstöl-
um, en þær benda til þess að út-
flutningsmagniö (án áls) hafi
verið svipað fyrstu þrjá mánuð-
ina i ár og var i fyrra. Enn er of
snemmt að draga nokkrar álykt-
anir af þessu efni um útflutnings-
spá ársins alls, sem gerir ráð fyr-
ir að þrátt fyrir hægan vöxt út-
flutningsframleiðslu, eða aðeins
um 2% 1975, muni vöruútflutning-
ur aukast að magni um 14%
vegna birgðaminnkunar sjávar-
vöru, sbr. það sem áður sagði.
Viðskiptakjör
Bráðabirgðaniðurstöður liggja
nú fyrir um verðvisitölur inn-
flutnings og útflutnings skv.
verzlunarskýrslum fyrsta árs-
fjórðungs 1975. Samkvæmt þess-
um tölum er útflutningsverðlag I
erlendri mynt 4-6% lægra á 1. árs-
fjórðungi 1975 en var að meðaltali
Ifyrra og 10-12% lægra en á sama
tima i fyrra. Almennt innflutn-
ingsverðlag er hins vegar 9-11%
hærra i erlendri mynt en að
meðaltali i fyrra og 24-26% hærra
en á 1. ársfjórðungi 1974, einnig
reiknað i erlendri mynt. Þessar
tölur eru nálægt spám ÞHS um
þetta efni um áramót. Tölur þess-
ar sýna, að viðskiptakjör 1. árs-
fjórðungs 1975 eru 28-29% lakari
en á sama tima i fyrra. Talnaröð-
in hér að neðan sýnir visitölu við-
skiptakjara frá 1972 og spár um
þróun hennar 1975.
1972 1973 Br.b. 1974 Fjárlaga- frv. 1975 Aramóta- spá 1975 Bráðabirgðatölur 1. ársfjórðungs 1975
Vöruviðskiptakjör 100 115.3 102.6 96.9 87.2 88.2
Breyting frá fyrra
ári, % -r 0.9 + 15.3 + 11.0 + 5.6 + 15.0 + 28.5
kauptaxtar verkamanna um
13,5% hærri. A sama tima stóð al-
mennt neyzluverðlag um 20%
hærra en að meðaltali 1974. Fram
til 1. mai hækkaði visitala fram-
færslukostnaðar um 14 1/2% frá
áramótum, en kauptaxtar ASÍ
einsog áður sagði um 10-11% með
bráöabirgðasamkomulaginu frá
26. marz sl. Yrðu ákvæði þessa
samkomulags almenn fyrirmynd,
má ætla, að launataxtar i heild
hækkuðu um nálægt 9% frá 1.
marz. A þessum grunni og að
teknu tilliti til nokkurrar stytting-
ar venjulegs vinnutima, til
skattalagabreytinganna frá i
april, og siðast en ekki sizt með
þvi aö gera ráð fyrir að almennar
launabreytingar eftir 1. júni n.k.
verði I aðalatriðum I hátt við þær
veröbreytingar, sem þegar eru
fyrirsjáanlegar vegna innflutn-
ingsverðbreytinga og þegar
þekktra innlendra verðbreytinga,
virðist liklegt, að kaupmáttur
ráðstöfunartekna heimilanna
verði að meðaltali um 15-16%
minni á mann 1975 en 1974. Þetta
gæti falið I sér, að verðlagsbreyt-
ingar i peningum næmu frá upp-
hafi tilloka ársins 1975 um 27-33%
Innflutningur
Innflutningsspáin er reist á
samhengi innflutningseftirspurn-
ar og þjóöarútgjalda og hlutfalls-
ins milli verðs á innflutningi og
almenns verðlags innanlands.
Samkvæmt siðustu spám OECD
er reiknað með, að innflutnings-
vöruverð hækki um 11% i erlendri
mynt að meðaltali frá fyrra ári,
en það jafngildir um 70% i krón-
um reiknað miðað við núgildandi
gengi. Sé gert ráð fyrir að meðal-
hækkun verðlags innanlands
verði 40-45%, má búast við um
18% magnminnkun almenns
vöruinnflutnings. Þjónustuinn-
flutningur mun einnig minnka
nokkuð, en vegna mikillar og
vaxandi vaxtabyrði, sem þar er
færð, verður þessi magnminnkun
varla meiri en úm 5%.
Vöruskiptajöfnuður
Vöruskiptajöfnuður fyrsta árs-
fjórðungs varð afar óhagstæður,
eða sem næst 6.000 m.kr., ef báð-
ar hliöar eru reiknaðar á f.o.b.
verði, samanborið við um 2.900
m.kr. á sama tima I fyrra á sam-
bærilegu gengi. Við þennan sam-
Bráðabirgðatölur 1. ársfjórð-
ungs benda þannig til þess, að
áramótaspáin 1975, sé ekki fjarri
lagi, þvi i spánni fólst viðskipta-
kjaravisitala fyrir 1. ársfjórðung
1975 nálægt 88-89 stigum. Engin
merki er enn að sjá um bata á út-
flutningsmarkaði. Þvert á móti
eru nú ýmsar blikur á lofti i
markaðsmálum sjávarafurða i
helztu viðskipta- og samkeppnis-
löndum okkar. Stórauknir styrkir
til sjávarútvegs i Kanada, Noregi
og Bretlandi. Tollahækkanir á
fiskafurðir á Spáni, Nigeriu,
Bretlandi og Danmörku.
Útflutningsstyrkir á fiskafurðir i
löndum Efnahagsbandalagsins,
löndunarbann i Vestur-Þýzka-
landi. Takmörkun innflutnings-
leyfa á Spáni. Og siðast en ekki
sizt lækkandi verð á helztu sam-
keppnismatvælum fiskafurða á
Bandarikjamarkaði. Þannig
viröist ekki hyggilegt að búast við
að markaðsverð helztu út-
flutningsafurða okkar fari hækk-
andi á næstu mánuðum. Nokkrar
vonir má e.t.v. binda við lækkun
innfluttra hráefna og rekstrar-
nauðsynja en enn sem komið er
virðist ekki unnt að reikna með
betri viðskiptakjörum 1975 en
þeim, sem nú rlkja.
Greiðslujöfnuður og
gjaldeyrisstaða
Niðurstaða spánna hér að
framan verður sú, að spáð er um
14% magnaukningu vöruútflutn-
ings, en 17-18% magnminnkun
vöruinnflutnings. A verðlagi árs-
ins 1974 hefðu slik umskipti i
utanrikisverzlun valdið þvi, að
vöruskiptahallinn hefði lækkað úr
14.700 m.kr. 1974 I 1.800 m.kr.
1975. En vegna þeirrar 15%
versnunar viðskiptakjara, sem
búizt er við, fela spárnar i sér
vöruskiptahalla um 12.000 m.kr.,
þegar miðað er við gildandi
gengi. Við þennan halla bætist
áætlaður 300 m.kr. halli á
þjónustujöfnuði. Viðskiptahall-
inn, 12.300 m.kr., yrði því um 7%
af vergri þjóðarframleiðslu 1975
samanborðið við tæplega 12%
1974. Sé leiðrétt fyrir sveiflum I
birgðum útflutningsvöru og inn-
flutningi vegna stórframkvæmda
sem valdið geta stórbreytingum
milli ára, sýnist viðskiptahallinn
þannig leiðréttur nema um 3% af
vergri þjóðarframleiðslu saman-
borið við 5% 1974. Vegna óhag-
stæðra ytri aðstæðna og þar af
leiðandi lækkandi þjóðartekna
þarf mikið átak til þess að þessi
takmarkaði bati náist i viðskipt-
um við útlönd, og ekki virðast
hæg tök á að taka erlend lán til að
jafna meiri halla en að ofan
greindi. Samkvæmt si"ðustu spám
Seðlabankans má búast við þvi á
ofangreindum forsendum, aö
gjaldeyrisstaðan gæti batnað
litilsháttar á árinu, en hún var
tæp viö upphaf ársins eða 2.465 m
kr. gengi I aprillok 1975. Þróunin
það, sem af er árinu vekur ekki
bjartsýni. Um miðjan mai var
gjaldeyrisstaðan nettó — 1.617
m.kr. Spárnar fyrir árið allt fela I
sér, að i árslok verði nettógjald-
eyrisstaðan tæpar 3.000 m.kr. en
til þess að það náist verður hún
þannig að batna um 4.600 m.kr..
Augljóst er, að litið má út af bera,
ef þetta mark á að nást.
Þjóðarframleiðsla
— atvinna
Þjóðhagsspáin, sem gripið er á
hér að framan og fram er sett I
töflunum hér á eftir, bendir til um
2% minnkunar þjóðarframleiðslu
1975 og um 6% minnkunar raun-
verulegra ráðstöfunartekna þjóð-
arinnar vegna áhrifa versnandi
viðskiptakjara. Raungildi þjóðar-
tekna á mann virðist þvi munu
minnka um 7-8%.
Þessum breytingum i umsvif-
um á þjóðarbúinu hlýtur að fylgja
minni eftirspurn eftir vinnuafli.
Þessa hefur þó ekki séð stað i töl-
um um skráð atvinnuleysi I heild
til aprilloka en þær tölur eru:
Skráð atvinnuleysi sem
% af heildarmannafla
Lok mán 1974 1975
% %
Janúar 1.1 1.0
Febrúar 0.6 0.7
Marz 0.5 0.6
April 0.4 0.7
Helzta breyting: Hlutfall kaup-
staða hefur hækkaö (50% I stað
25%). Hlutfall kvenna hefur
hækkað (65-70% i stað 45-55%).
I þessum tölum er ekki farið að
gæta áhrifa frá verkföllum. Hins
vegar mun eins og áður var að
vikið nokkuð hafa dregið úr yfir-
vinnu.
tiér birtist yfirlit það, sem
sanininganefndum h'efur
verið gefið um stöðu þjóðar-
búskaparins. Yfirlit þetta er
samið af Þjóðhagsstofnun-
inni.
Þjó6arframlei6sla, þjófeartekjur
og þjóðarútgjöld ,1974-1975.
Fjárhæðir þjóðar- - framleiðslu og -tekna1' Breytingar frá fyrra ári, %
Bráðab. tölur 1974 Spá 1975 Magn Verð 19742) 19753) 1974 1975
M.kr. M.kr.
Einkaneyzla 87.660 110.800 7,5 • -11 42,0 42
Samneyzla 14.430 18.750 6,0 0 48,0 30
Fj ármunamyndun 43.230 58.920 6,7 -4,5 4.1,5 42,5
Atvinnuvegir 20.520 26.830 15,0 -12 36,0 49
Opinberár frairikvæmdir 12.. 860 19.460 12,1 10 48,5 38
íbúíarhús ' -9.850 12.630 -16,3 -5 52,0 35
Birgðabreytingar +3.250 -2.500 • • . •
Þjóðarútgjöld samtals 148.570 185.970 10,2 -11 41,8 41
Ötflutningur vöru og bjónustu 48.080 77.200 0,3 9 28,1 47
Innflutningur vöru og þjónustu 63.610 89.500 13,4 -14 4C,1 ' 65
Verg þjóðarffHmleiðsla 133.040 173.670 3,2 -2 39,5 33,5
Viðskiptakjaraábrif1* ^ -2,8 -4,0 . •
Vergar þjóðartekjur 0,4 -6 • •
ViÖskiptakjaraáhrif,/m.kr.
1) Verðlag hvors árs.
2) Á verðlagi 1969..
3) Á verðlagi 197ii.
4) Hlutfall af þj^ðarframleiðslu fyrra árs.
Utanríkisviöskipti 1974-1975.
. ___________Breytingar frá fyrra ári, %
Fjarhæðir x ~ Verð Verð
milljonum króna Magn £ ísl.kr. £ erl. mynt
1974 1975 1974 1975 1974 1975 1974 1975
Ötflutningsframleiðsla
Sjávarafurðir 26.660 38.270 2,7 4,0 34,0 38,0 20,5 -10,0
Aðrar afurðir 8.545 13.180 2,7 -4,0 34,0 61,Ó 20,5 4,5
Samtals 35.205 51.450 2,7 2,0 34,0 43,0 20,5 -7,0
Birgðabreyting1) -2.325 +2.000 -6,53) -jr V* co co
Vöruútflutningur 32.880 53.450 -5,4 14,0 34,0 43,0 20,5 -7,0
Sérst. vöruinnfl.
Skip og flugvélar 5.980 5.450 18,0 • -38,0 30,0 ‘ 60,0 17,0 4,0
Landsvirkjun 560 3.550 -54,0 4,64) 42,0 61,0 27,8 4,5
Álverksmiðja 3.260 4.200 3,0 . -19,0 43,0 60,0 28,7 4,0
Samtals 9.800 ‘13.200 cn . o cn -16,0 ' 34,0 60,0 20,6 4,0
Alm. vöruinnflutn. 37.780 52.250 14,2 ■ -18,0 49,0 68,0 34,1 9,0
"þ.a. ol£a 5.300 8.400 -5,5 0,0 195,0 56,0 166,0 2,0
Vöruinnflutn., alls 47.580 65.450 11,3 ■ -17,5 46,5 66,0 32,0 8,0
Vöruskiptajöfnuður -14,700 -12,000 • • •' •
Þjónustutekj ur 15.200 23.750 (7,5) -1,0 24,0 58,0 11,5 2,5
Þj ónustuútgj öld 16.030 24.050 (16,5) -5,0 27,0 58,0 11,5 2,5
Þjónustujöfnuður -830 -300
Viðskiptajöfnuður-15.530 -12.300
Viðskiptajcfnuður sem
% af þjóðarframleiðslu -11,7% 7,1%
i\c.uu ídu ci veroiagi ryrra
Ui O 4
3) Birgðabreyting, reiknuð á verólagi fyrra árs, sem % af heildarvSruútflutningi fyrra árs.
4) Reiknað sem % af heildarvöruihnflutningi fyrra árs.
5) 1 heildartölum sórstaks innflutnings 1973, sem hér er miðað við, var innflutningur
Viðlagasjcðshusa meðtalinn.