Tíminn - 30.05.1975, Blaðsíða 3
Föstudagur 30. mai 1975
TÍMINN
3
Nýi síldveiðikvófinn:
19 ÞÚSUND TONN
Á 18 MÁNUÐUM
— veruleg skerðing ó síldveiðum í Norðursjó
— ísland, Danmörk og Svíþjóð mótmæla hugsanlega
Sigfinnur bóndi vaknaði á
mánudagsmorgun við mikla
hundgá og fór út til að athuga,
hverju þetta sætti. Sá hann þá
þrjá hunda við skurð einn i tún-
inu, en þeir hlupu á braut, þegar
Sigfinnur nálgaðist.
Sigfinnur hringdi til lögregl-
unnar, þvf hundarnir virtust hálf-
Einar Ágústsson, utanrikisráðherra afhenti f gær Luns, fram-
kvæmdastjóra NATO, eftirlfkingu að hamri þeim, sem tslend-
ingar gáfu eitt sinn NATO, en sá hamar hefur nú iátið of mikiö á
sjá eftir mikla notkun. Hér er Asmundur Sveinsson myndhöggv-
ari meö fyrsta hamarinn, sem gerður var.fyrir 16 árum. Siöan
var gerður hamarinn, sem NATO fékk, og til vinstri á myndinni
er Jón Benediktsson meö mót að hamrinum, en hann skar út alla
þrjá hamrana. (Timamynd GE).
— drópu lamb og særðu annað
gébé Rvík — Þeir drápu fyrir
mér lamb, og gemlingur var svo
illa bitinn, að dýralæknir þurfti að
sauma sárin saman, sagði Sig-
finnur Pálsson á Blikastöðum i
Mosfcllssveit. Þarna voru að
verki þrir hundar, sem gerðu fé
Sigfinns hálfvitlaust snemma s.i.
mánudagsmorgun. Sigfinnur
hafði þegar samband við iögregl-
una og krafðist þess að hundarnir
yrðu aflifaðir.
Hjá lögreglunni i Árbæ fengust
hins vegar þær upplýsingar, aö
enn væri ekki búið að aflifa hund-
ana.Orsökinvarsögðsú.að annir
mikiar væru hjá manni þeim,
sem sér um dýraeyðingar.
óðir og styggðu féð. Seinna fannst
svo þriggja vikna gamalt lamb
dautt, og við rannsókn, sem siðar
fór fram, kom I ljós, að það var
illa bitið eftir hundana. Siðan
fannst gemlingur, sem einnig var
bitinn, en honum gat dýralæknir
bjargað. Hundarnir þrir voru i
gæzlu i námunda við Gufunes, en
höfðu sloppið frá gæzlumanni sin-
um, með fyrrgreindum afleiðing-
um. Eigendur þeirra eru Reyk-
vikingar.
Sigfinnur krafðist þess að hund-
amir yrðu þegar i stað aflifaðir,
og eftir að sannprófað hafði verið,
að áverkarnir á lambinu og gem-
lingnum voru hundsbit, voru
örlög þeirra ráðin. Þeir verða þvi
aflifaðir einhvern næstu daga.
Þangað til eru þeir i öruggri
geymslu hjá lögreglunni.
Sigfinnur Pálsson sagði, að
gæzlumaður hundanna hefði
strax komið til sin eftir þennan
atburð, og hefðu tekizt með þeim
fullar sættir um bætur fyrir tjón-
iö, sem hundarnir ollu.
Þá sagði Sigfinnur, að slikt
hefði aldrei komiö fyrir sig áður,
en hann kvaðst vita um lik tilfelli
á nálægum bæjum.
— Þetta má ekki eiga sér stað
og sýnir, svo ekki verður um
villzt.aðhundareiga ekkiheima i
þéttbýli, sagöi Sigfinnur að lok
um.
gébé—Rvik — islandi var aðeins
úthlutað 19 þúsund tonna sild-
veiðikvóta i Norðursjó á Norð-
austur-Atlantshafsfundinum i
London. Og ekki nóg með það,
leyfilegur veiðitimi var einnig
lengdur um sex mánuði, þannig
að nú má aðeins veiða þessi
nitján þúsund tonn á átján
mánuðum i stað rúmlega þrjátiu
og þriggja þúsund tonna á tólf
mánuöum áður. ísland, Sviþjóð
og Danmörk greiddu atkvæði
gegn þessari tiilögu, sem þó hlaut
meirihlutastuðning á fundinum.
Flesb ~ öllum málum öðrum,
sem taka átti fyrir á fundinum I
London, var frestað, vegna þess
að málið um sildveiðar i Norður-
sjó tók nær allan tima fundar-
manna.
Er Timinn náði sambandi við
Jón L. Arnalds, ráðuneytisstjóra I
sjávarútvegsráðuneytinu, I gær-
kvöld, sagði hann, að ekkert væri
að svo stöddu hægt að segja um
það, hvort formleg mótmæli yrðu
lögð fram af Islands hálfu, það
mál þyrfti að ræða vandlega, áð-
ur en ákvörðun yrði tekin. En ef
svo fer, verður málið tekið upp að
nýju á næsta fundi Norðaustur-
Atlantshafsnefndarinnar, sem
verður i Madrid á Spáni i nóvem-
ber. Ef Sviþjóð og Danmörk
senda einnig formleg mótmæli,
mun nýi kvótinn ekki taka gildi.
Sildarkvóti annarra Norður-
landa var einnig minnkaður
verulega, Sviþjóðar úr 43 þús.
tonnum niður i 18 þúsund tonn,
Danmerkur úr 210 þús. tn i 69 þús-
und, og Noregs úr 100 þúsund
tonnum i 45 þúsund.
Formaður dönsku sendinefnd-
arinnar sagði i gær, að Danir
væru sammála þvi, að nauðsyn-
legt væri að minnka kvótann, en
Mál á hendur Farmanna-
og fiskimannasamband-
inu þingfest fyrir félags-
dómi í dag Fia!'c,r1,um1samúaar'
^ verkfall velstjora
FB-Reykjavik. 1 gær átti að
þingfesta fyrir félagsdómi
mál vegna samúðarverkfalls
vélstjóra á farskipunum
vegna verkfalls vélstjóra á
togaraflotanum. Ekki var þó
hægt að þingfesta málið, þar
sem einn dómenda i félags-
dómi var erlendis, og ekki
væntanlegur til landsins fyrr
en i dag. Að öllu forfallalausu
verður málið þvi þingfest kl.
16.30 i dag.
Það eru Vinnuveitendasam-
band Islands og Vinnumála-
samband samvinnufélaganna,
sem stefna Farmanna- og
fiskimannasambandi tslands
vegna verkfalls eins aðildar-
félags Farmanna- og fiski-
mannasambandsins, Vél-
stjórafélags tslands. Telja
stefnendur samúðarverkfall
vélstjóra á kaupákipunum
með vélstjórum á togaraflot-
anum ólögmætt, og er málið
rökstutt með þvi, að með sam-
úðarverkfalli sé átt við að ein
stétt styðji aðra i kjarabar-
áttu, en félag geti ekki boðað
samúðarverkfall með sjálfu
sér. Báðir verkfallsaðilarnir
eru sem kunnugt er i Vél-
stjórafélagi Islands.
Með þessu máli er krafizt á-
byrgðar Farmanna- og fiski-
mannasambandsins á verk-
falli vélstjóra á kaupákipun-
um, og að viðurkennd verði
skaðabótaábyrgð þess vegna
tjóns, sem af verkfallinu getur
hlotizt. Vinnuveitendasam-
band íslands stefnir fyrir um-
bjóðendur sina, sem eru
Eimskipafélag tslands hf.,
Hafskip hf., Jöklar og Jón
Franklin skipaútgerð, en
Vinnumálasamband sam-
vinnufélaganna stefnir fyrir
hönd skipadeildar Sambands
islenzkra samvinnufélaga.
Lögfræðingar eru Baldur
Guðlaugsson fyrir VSl, Skúli
Pálmason fyrir Vinnumála-
sambandið, og verjandi Far-
manna- og fiskimannasam-
bandsins er Finnur Torfi.
Stefánsson.
að þeir hefðu orðið að greiða at-
kvæði gegn tillögunni, þvi að
minnkunin hefði verið alltof mikil
að þeirra dómi.
Islenzku fulltrúarnir sex, sem
fundinn sátu, voru væntanlegir til
landsins seinti gærkvöld, og þrátt
fyrir itrekaðar tilraunir Timans,
tókst ekki að ná tali af þeim.
Guðrún Helgadóttir og Sólveig
Thorarensen, eftir að þeim höfðu
verið veitt verðlaun fyrir beztu
frumsömdu og þýddu barnabók
ársins 1974. Timamynd Róbert.
Ba r nabóka verðla u nin
afhent í þriðja sinn
Guðrún Helgadóttir og Sólveig
Thorarensen hlutu verðlaunin
FB—Reykjavik — Barnabóka-
verðlaunum var úthlutað á
fimmtudaginn i þriðja sinn, en
það er fræðsluráð Reykjavikur-
borgar, sem stendur að úthlutun
verðlaunanna. Verðlaunin eru
tvenns konar, annars vegar fyrir
frumsamda barnabók og hins
vegar fyrir beztu þýddu barna-
bókina, sem komið hefur út á
næstliðnu ári. Að þessu sinni
hlutu þær Guðrún Helgadóttir og
Sólveig Thorarensen verölaunin,
Guðrún fyrir frumsamda bók,
Jón Oddur og Jón Björn, en Sól-
veig fyrir þýðingu bókarinnar
Ævintýri prinsins hamingju-
sama.
Birgir ísl. Gunnarsson borgar-
stjóri bauð gesti velkomna til af-
hendingarinnar, sem fór fram i
Höfða. Sagði hann, að árið 1970
hefði fræðsluráð ákveðið að veita
árlega verðlaun fyrir barnabæk-
ur, frumsamdar og þýddar. Að
þessu sinni væru veitt verðlaun
fyrir tvær bækur, sem komu út á
árinu 1974. Sagði borgarstjóri, að
verðlaunum þessum væri ætlað
að vera eins konar svar við gagn-
rýni, sem fram hefði komið um að
barnabókum væri ekki nægilega
sinnt, og ekki nægilega vel til
þeirra vandað. Væri verðlaunun-
um ætlað að vera höfundum og
þýðendum örvun til þess að vinna
vel sin störf.
Þá tók til máls formaður dóm-
nefndar, Jenna Jónsdóttir, sem
sjálf hefur hlotið barnabókaverð-
laun. Kvaðst hún vonast til þess
að vel hefði til tekizt um val verð-
launahafanna, enda hefði niður-
staöa dómnefndar verið einróma.
Siðan tilkynnti hún, að Guðrún
Helgadóttir og Sólveig Thoraren-
sen hefðu hlotið verðlaunin. Var
þeim afhent skjal og peningaupp-
hæð.
Guðrún Helgadóttir þakkaði
fyrir hönd verðlaunahafanna
beggja, og sagði m.a., að það
væri mikils virði, að fræðsluráö
sýndi velvilja sinn i að stuðla að
útgáfu góðra barnabóka.
Bókmenntafyrirlestrar
DR. Peter Dronke frá Cambridge
flytur tvo fyrirlestra i boði heim-
spekideildar Háskóla tsiands.
Mánudaginn 2. júni n.k. flytur
hann fyrirlestur er nefnist:
Latin Lyric and Vernacular
Bailad
og þriðjudaginn 3. júnf n.k. flytur
hann fyrirlestur er nefnist:
Abelard and Heloise
Báðir fyrirlestrarnir verða i
stofu 201, Árnagarði, og hefjast
kl. 17.15.
öllum er heimiil aðgangur að
fyrirlestrum þessum.
Hundar gera usla ífé
Skólahljómsveit til Eyja
Þann 31. mai fer skólahljómsveit Mosfellssveitar I tónleik-
aferð til Vestmannaeyja og leikur I samkomuhúsinu þar sama
dag kl. 17.00. Hijómsveitin hefur árlega feröazt um landið, og á
s.l. sumri hélt hún tónleika vlða á Austurlandi. 1 hljómsveitinni
eru 35 börn og unglingar.
Efnisskráin er mjög fjölbreytt, en stjórnendur eru þeir Lárus
og Birgir Sveinssynir. Auk skólahjómsveitarinnar, koma fram á
tónleikunum blásarar úr Sinfóniuhljómsveitinni, sem leika
sónötu fyrir horn, trompet, og básúnu eftir F. Poulenc.