Tíminn - 30.05.1975, Qupperneq 8
8
TÍMINN
Föstudagur 30. mal 1975
Kristilega
sjómannastarfið
ÞEIR sem ganga hjá húsinu
Vesturgötu 19, hafa ef til vill kom-
i6 auga á skilti sem á er letrað
„Kristilega sjómannastarfið”.
Fyrir þessu starfi stendur fá-
mennur hópur fólks, sem séð
hefur brýna þörf fyrir sjómanna-
heimili í Reykjavik.
Þarna i þessu litla húsnæði er
rekið mikilvægt sjálfboðastarf til
að koma þessari hugsjón i fram-
kvæmd.
Um miðjan janúarmánuð 1973
var þetta húsnæði opnað, til að-
stoðar og hjálpar þeim sjómönn-
um er þangað vildu koma.
Daglega er þaðan farið með
innlend og útlend blöð og rit, i öll
þau skip sem koma hér i höfn, og
mun margur einmana sjómaður
vera þakklátur fyrir það. Auk
þess hefur starfið gefið út blaðið
„Vinur sjómannsins” undanfarin
ár, og gefið það til allra sjómanna
sem náðst hefur til, einnig hefur
það verið sent til norrænna sjó-
mannaheimila viða um heim.
Ötaldar eru þær bibliur sem gefn-
ar hafa verið af einstaklingum
bæði innan starfsins og utan, og
hafa þær verið látnar I skipin
mörgum til blessunar. Daglega
eru hafðar sambænastundir og
eru þá sjómennirnir sérstaklega
hafðir i huga. Einnig eru bibllu-
lestrar hvert miðvikudagskvöld.
Þar sem húsnæði er mjög tak-
markað hefur ekki verið hægt að
hafa kaffiveitingar fyrir sjó-
menn, en vonandi stendur það til
bóta.
Eins og áður hefur verið sagt,
er félagið bæði fámennt og fá-
tækt, enda nýtur það engra opin-
berra styrkja.
Föstudaginn 30. mai kl. 8.30
verður haldin kynningarsam-
koma á vegum starfsins I safnað-
arheimili Grensássóknar. Þar
mun sr. Halldór S. Gröndal tala,
einnig verður fjölbreyttur söngur.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
38. sjómannadagurinn
er á sunnudaginn
FB—Reykjavik. Sjómannadagur-
innverður haldinn hátiðlegur I 38.
sinn á sunnudaginn. Hátiðahöldin
verða með hefðbundnu sniði:
Fánar verða dregnir að húni á
skipum i höfninni kl. 8. Lúðra-
sveit Reykjavikur leikur við
Hrafnistu kl. 9, en kl. 11, verður
sjómannamessa i Dómkirkjunni,
þar sem biskup Islands herra
Sigurbjörn Einarsson, minnist
drukknaðra sjómanna. Um sama
leyti verður lagður blómsveigur á
leiði óþekkta sjómannsins i Foss-
vogskirkjugarði.
Siðdegis verða siðan hátiðahöld
I Nauthólsvik, sem hefjast með
lúðrablæstriklukkan 13:30. Ávörp
flytja Gunnar Thoroddsen i fjar-
veru Matthiasar Bjarnasonar
sjávarútvegsráðherra, Ingólfur
Arnarson, framkvstj. útvegs-
mannafélags Suðurnesja, fulltrúi
útgerðarmanna, Brynjóflur Hall-
dórsson skipstjóri, formaður
Skipstjóra- og stýrimannafélags-
ins Ægis, fulltrúi sjómanna, og að
lokum mun Pétur Sigurðsson,
formaður Sjómannadagsráðs,
heiðra þrjá sjómenn með heiðurs-
merki dagsins. Enn fremur verð-
ur afhentur gullkross sjómanna-
dagsins. Hann hefur ekki verið
veittur undanfarin ár, en sex
manns hafa hlotið hann til þessa.
Það eru: Ólafur Thors, Henrý
Hálfdánarson, Þorvarður Björns-
son, Guðmundur H. - Oddsson,
Geir Ólafsson, og Gróa Péturs-
dóttir.
Þessu næst fer fram kappróður,
kappsigling, björgunar- og
stakkasund og koddaslagur.
Merki sjómannadagsins og Sjó-
mannadagsblaðið, ásamt veiting-
um, verða til sölu i Nauthólsvik-
inni. Strætisvagnaferðir verða frá
Lækjartorgi og Hlemmi frá kl. 13,
og verða á fimmtán minútna
fresti. Um kvöldið verður sjó-
mannahóf að Hótel Sögu.
Afgreiðsla á merkjum sjó-
mannadagsins og Sjómannadags-
blaðsins verður á eftirtöld-
um.stöðum frá kl. 10:
Austurbæjarskóla, Álftamýrar-
skola, Arbæjarskóla, Breiða-
gerðisskóla, Breiðholtsskóla,
Fellaskóla, Hliðaskóla, Kársnes-
skóla, Kópavogsskóla, Langholts-
skóla, Laugarnesskóla, Laugar-
ásblói, Melaskóla, Mýrarhúsa-
skóla, Vogaskóla og hjá Vél-
stjórafélagi íslands Bárugötu 11.
Há sölulaun eru i boði, og þau
börn sem selja fyrir eitt þúsund
krónur eða meira, fá auk sölu-
launa aðgöngumiða að kvik-
myndasýningu i Laugarásbiói.
Meðal efnis Sjómannadags-
blaðsins að þessu sinni má nefna
frásögn Eyjólfs Jónssonar sjó-
manns, sem var annar tveggja er
komust af úr árásinni á Reykja-
borgina, þegar 13 manns fórust.
Skipið var að koma úr Englands-
för árið 1941, þegar það var skotið
niður. Aldrei áður hefur birzt frá-
sögn af þessu slysi, þar sem
hvorki Eyjólfur né Sigurður
Hannesson, sem einnig komst lifs
af úr slysinu, en er nú látinn, hafa
viljað segja opinberlega frá þvi,
hvemig slysið vildi til.
Sinfóníuhljómsveit Islands
LOKATÓNLEIKAR
16. og siðustu reglulegu tónleikar
Sinfóniuhljómsveitar íslands á
þessu starfsári verða haldnir
fimmtudaginn 29. mai kl. 20.30 i
Háskólabiói.
Firmakeppni
Fáks
234 hestar kepptu
Hin árlega firmakeppni hesta-
mannafélagsins Fáks fór fram á
velli félagsins að Viðivöllum 25.
mal. 234 fyri?tæki lögðu félaginu
lið I keppni þessari, og jafnmarg-
ir hestar og hestamenn mættu til
keppninnar, sem var skipt i tvo
flokka, flokk unglinga 16 ára og
yngri og flokk fullorðinna. Þrenn
verölaun voru veitt i hvorum
flokki.
Úrslit urðu þau, að i flokki full-
orðinna sigraði Blikfaxi, knapi
Sigurður Júliusson, eigandi
Sigriður Gisladóttir, en fyrir-
tækið var Sigurlinni Pétursson,
Einingahús. 1 flokki unglinga
sigraði Asi, knapi Freyja
Hilmarsdóttir, eigandi Hinrik
Ragnarsson, fyrirtæki ölgerðin
Egill Skallagrimsson hf.
Stjórnandi verður Karsten
Andersen aðalhljómsveitarstjóri
og einleikari fiðlusnillingurinn
Aaron Rosand frá Bandarikjun-
um. A efnisskrá er Hardingtonar
eftir Geir Tveitt, Sinfónia nr. 5
eftir Carl Nielsen og fiðlukonsert
eftir Brahms.
Bandariski fiðluleikarinn
AARON ROSAND fæddist i
Hammond i Indiana og stundaði
tónlistarnám sitt I Chicago til árs-
ins 1944. A þessum árum lék hann
oft I útvarp og kom fram með
Grant Park sinfóniuhljómsveit-
inni á hljómleikaferðum hennar
um vesturriki Bandarikjanna,
svo og á hljómleikaferðum með
sinfóniuhljómsveitinni i Chicago.
Aaron Rosand stundaði fram-
haldsnám hjá Efrem Zimbalist
við Curtis tónlistarskólann I Fila-
delfiu og kom fyrst fram á sjálf-
stæðum tónleikum i New York ár-
ið 1948. Eftir tónleika, sem hann
hélt á sama stað árið 1955, hlaut
hann afburða góða dóma allra
helztu gagnrýnenda, sem spáðu
honum miklum frama. Hin siðari
ár hefur Aaron Rosand leikið með
öllum helztu hljómsveitum i
Evrópu og Ameriku.
Feðgin sigruðu á 2 eyfirzkum hestum
PÞ Sandhóli — Nú rekur hver
firmakeppnin aðra hjá hesta-
mannafélögunum. Þá kemur i
ljós, hvei góðum árangri
hestamenn hafa náð i tamningu
hesta sinna I vetur. Einnig kemur
fram, að áhugi og viðleitni til að
styðja við bakið á þeim, sem
hestamennsku stunda, nær út
fyrir raðir hestamanna, en þar
er átt við þau fyrirtæki, sem þátt
taka I sllkri keppni, og er það
þakka vert.
Sunnudaginn 25. mai hélt
hestamannafélagið Ljúfur
firmakeppni i Hveragerði.
Þrjátiu fyrirtæki tóku þátt i
keppninni.
Sigurvegari varð Glæsir úr
Eyjafirði, en eigandi og knapi er
Páll Sigurðsson á Kröggólfsstöð-
um, sem keppti fyrir Garðyrkju-
stöðina Alftafell. í öðru sæti varð
Eyfjörð úr Eyjafirði, eigandi og
knapi Helga Ragna Pálsdóttir,
dóttir Páls á Kröggólfsstöðum,
Helga Ragna keppti fyrir
Bifreiðaverkstæði Bjarna Snæ-
bjömssonar.
I þriðja sæti varð Fluga,
eigandi og knapi Kristinn Antons-
son, sem keppti fyrir Raftækja-
verzlun Suðurlands.
Félagar I hestamannafélaginu
Ljúf eru yfir sjötiu talsins. í vetur
var starfræktur reiðskóli fyrir
unglinga að Kröggólfsstöðum, og
stjórnaði Rósmarie Þorleifsdóttir
honum. Um þrjátiu og sex þátt-
takendur voru . á námskeiðinu,
sem verður haldið áfram seinna I
vor.
Formaður hestamannafélags-
ins Ljúfs er Tómas Antonsson i
Hveragerði.
135 tóku skipstjórapróf ó þessu skólaóri
STÝRIM ANNASKÓLANUM i
Reykjavik var sagt upp 24. mai
sl., I 84. sinn. Viðstaddir skóla-
uppsögn voru margir af eldri
nemendum skólans.
t upphafi gaf skólastjóri stutt
yfirlit yfir starfsemi skólans á
skólaárinu. Auk venjulegrar
kennslu sóttu nemendur 2. stigs
námskeið i brunavörnum i
slökkvistöðinni. Þá fóru nemend-
ur 1. og 2. stigs æfingaferðir á sjó
með Hafþóri, skipi Hafrann-
sóknastofnunarinnar, nemendur
3. stigs með varðskipum rikisins.
Skólastjóri gat þess, að tækja-
kostur skólans hefði aukizt veru-
tega, einkum með nýju kennslu-
tæki, sem heitir á ensku Radar
Simulator, en mætti á islenzku
kallast ratsjár-samlikir. Slik
tækjasamstæða þykir nú orðið
nauðsynleg við sjómannaskóla.
Hlutverk þessa samlikis er að æfa
nemendur I að sigla eftir radar
við sömu aðstæður og um borð i
skipi á sjó.
Að þessu sinni luku 18 skip-
stjóraprófi 3. stigs og 53 skip-
stjóraprófi 2. stigs. Fyrr um vet-
urinn höfðu 58 lokið skipstjóra-
prófi 1. stigs og 6-skipstjóraprófi
4. stigs, þ.e. skipstjórapröfi á
varðskipum rikisins.
Efstur á prófi 3. stigs var Þór-
arinn Th. ólafsson, 9.89, sem er
hæsta einkunn við skólann til
þessa, og hlaut hann verðlauna-
bikar Eimskipafélags íslands,
farmannabikarinn. Efstur á prófi
2. stigs var Kristinn Gestsson,
9.52, og hlaut hann verðlaunabik-
ar öldunnar, öldubikarinn.
Efstur á prófi 4. stigs var Vil-
mundur. Viðir Sigurðsson 9,38 og
á prófi 1. stigs Stefán Þröstur
Halldórsson, 9,50.
Bókaverðlaun úr Verðlauna- og
styrktarsjóði Páls Halldórssonar
skólastjóra hlutu eftirtaldir nem-
endur, sem allir höfðu fengið
ágætiseinkunn: Guðmundur
Jósepsson, Gunnar Jónsson, Jón
Sigmar Jóhannsson, Kristinn
Gestson og Þórarinn Ólafsson.
ORSTUTT ATHUGASEMD UM
BYGGÐ í JÖKULDALSHEIÐINNI
ÉG GET EKKI stillt mig um að
gera örlitla athugasemd við nið-
urstööu, sem hinn mikilsvirti
vlsindamaður, dr. Sigurður
Þórarinsson, kemst að I grein,
sem hann hefur skrifað i fyrsta
bindið af Sögu tslands, þjóðhá-
tiðarútgáfuna. Þar segir svo á
bls. 42:
„A árunum 1840-’60 byggjast
17 býli á heiðunum milli Jökul-
dals og Vopnafjarðar, en þau
voru óbyggð, er manntalið var
tekið áriö 1703. Tiu þeirra voru
komin I eyði um siðustu alda-
mót, og öll sautján voru I eyði
fyrir aðra heimsstyrjöldina.”
Ég legg þann skilning I loka-
orð þessarar tilvitnunar, að öll
býlin I Jökuldalsheiöi hafi verið
komin I eyði um eða fyrir upp-
haf heimsstyrjaldarinnar 1939-
1945. En þannig var það ekki.
1 fyrsta bindi ritsafnsins Aust-
urland, sem kom út 1947, er löng
ritgerð, sem heitir Jökuldals-
heiðin og byggðin þar. Hún er
skrifuð af Halldóri Stefánssyni,
fyrrum alþingismanni, sem var
þaulkunnugur á þessum slóð-
um, enda munu villur i henni
vera afar fáar.Samkvæmt þess-
ari heimild hafa að minnsta
kosti fjögur býli Heiðarinnar
haldizt I ábúð fram á heims-
styrjaldarárin, og eitt þeirra
lagöist ekki I eyði fyrr en vorið
1946. Skulu nú þessi býli talin
upp:Veturhús fóru I eyði vorið
1941
Sænautasel fór I eyði 1942
Armótasel fór I eyði 1943
Heiðarsel fór I eyði 1946.
Halldór Stefánsson telur býli
Heiðarinnar reyndar ekki nema
sextán I stað sautján, eins og dr.
Sigurður Þórarinsson gerir, en
um það skal ekki fengizt hér, og
hann (þ.e. Halldór) telur land-
námstimann vera frá 1841-1862,
og má segja, að þar muni ekki
neinu sem máli skipti.
Ég viðurkenni fúslega, að mér
þótti dálitið miður, þegar ég las
fyrrgreindar lfnur i Sögu Is-
lands. Eitt af þvi merkilega við
þessa heiðabyggð er einmitt
það, hversu lengi hún entist, eða
frá þvi fyrir miðja nitjándu öld
og fram undir miðbik þeirrar
tuttugustu. Með öðrum orðum:
siðasta býlið fór ekki i eyði fyrr
en ár var liðið frá lokum seinni
heimsstyrjaldarinnar. Það eru
hvorki meira né minna en eitt
hundrað og fimm ár frá þvi að
fyrsta býlið byggist og þangað
til það siðasta leggst i eyði. Það
er verulega frásagnarverður
hlutur.aukþessað vera söguleg
staðreynd.
Þarflaust ætti að vera að taka
það fram, að þessar llnur eru
ekki skrifaðar til þess að hafa i
frammi neins konar áreitni i
garð dr. Sigurðar Þórarinsson-
ar. öðru nær. Mér er fyllilega
ljóst, að sú ónákvæmni, sem hér
er minnzt á, haggar ekki við
aðalefni ritgerðar hans, sem er
allt annað en að rekja sögu
byggðarinnar I Jökuldalsheið-
inni, þótt hún sé þar tekin sem
dæmi.
En þegar skrifuð er tslands-
saga — og það hátíðarútgáfa —,
þar sem margir lærðustu og
gáfuöustu fræðimenn þjóðar-
innar leggja fram krafta sina,
þá er ekki nema von að fólk lesi
hana með þvi hugarfari, að allt
hljóti að vera rétt, sem þar
stendur. Ekki sizt á þetta við,
þar sem dr. Sigurður Þórarins-
son á I hlut. Hann hefur fyrir
löngu aflað sér slikra vinsælda,
bæði sem fræðimaður og ein-
staklingur, að þeir sem til
þekkja gera meiri kröfur til
hans en flestra annarra, — óaf-
vitandi ef ekki vitandi.
Og vonandi láir enginn okkur
Norðmýlingum, þótt okkur
renni blóðið til skyldunnar, þeg-
ar á aðra hönd eru austfirzkar
heiðar.en á hina sjálfur Sigurð-
ur Þórarinsson. — VS.