Tíminn - 30.05.1975, Qupperneq 19
Föstudagur 30. mai 1975
TÍMINN
19
BÆNDUR
hefur gefið góða raun við sáningu, enda
sérstakar stiilingar fyrir hverja tegund
frsss
Rúmtak: 300 1 <350 kg).
Vinnslubreidd: Allt að 15 m.
Nákvæm stilling úr ekilssæti.
Góðir greiðsluskilmálar.
Guðbjörn Guðjónsson
HEILDVERZLUN
Síöumúla 22 -+■ Simi 8-56-94
r
Arnessýsla
Félag ungra framsóknarmanna I Arnessýslu heldur almennan
félagsfund aö Eyarvegi 15, Selfossi föstudaginn 30. mai kl. 21.
Inntaka nýrra félaga. Kjörnir fulltrúar á þing SUF, sem haldið
verður á Húsavik 6. til 8. júni næst komandi. Kynnt verða drög að
ályktunum þingsins. Eggert Jóhannesson formaöur SUF mætir
á fundinum. Félagar fjölmenniö og takið meö ykkur nýja félaga.
Stjórnin.
Um þessar mundir er hópur fermingabarna frá Norðfirði i ferðalagi um Skotland. Fermingabörnin eru
30 og fararstjórar eru sr. Páli Þórðarson sóknarprestur og GIsli Sighvatsson skólastjóri barnaskólans á
Norðfirði.
Hópurinn kom til Reykjavikur 25. mai og þá var myndin aö ofan tekin. Morguninn eftir flugu börnin svo
til Glasgow meö þotu Flugfélags Islands. Þau koma aftur til landsins 2. júni og fijúga tii Neskaupstaöar
daginn eftir.
Meö börnunum á myndinni eru einnig Vilhjáimur Hjálmarsson menntamáiaráðherra og frú.
TORNADO
endurbóta og fullkomnunar siðar,
að fenginni reynslu. Nú á árinu
1974 voru þegar gerðar veiga-
miklar breytingar á löggjöfinni
um Framkvæmdastofnun rikis-
ins. Með setningu laga um Þjóð-
hagsstofnun var hagrannsókna-
deildin lögð niður og felld úr gildi
önnur ákvæði, sem snertu starf-
semi þeirrar deildar. Þessi breyt-
ing tók gildi 1. ágúst 1974. Siðan
hefur Framkvæmdastofnunin
starfað i tveim deildum, áætlana-
deild og lánadeild.
Nú hafa stjórnarflokkarnir
komið sér saman um að endur-
skoöa þessa löggjöf og þar á með-
al verkefni Byggðasjóðs i þvi
skyni að samræma aðgerðir i
byggðamálum.
Kjarninn i þeirri endurskoðun
að þvl er varðar Byggðasjóð
verður án efa að lögákveða árlegt
framlag til Byggðasjóðs, sem
svarar 2% af útgjöldum á
fjárlagafrumvarpi. Með slikri
stóreflingu sjóðsins mun hann
hafa bolmagn til að auka starf-
semi sina og lána til fleiri þátta i
uppbyggingu landsbyggðar.
Nokkuð hefur þegar verið unnið
að undirbúningi endurskoðunar
löggjafarinnar um Fram-
kvæmdastofnun rikisins. For-
sætisráðherra skýrði frá því, að
rtkisstjórnin hyggðist leggja
fram á næsta Alþingi frumvarp til
laga um endurskoðun á Fram-
kvæmdastofnun ríkisins.
Minnst fjórar Reykjavíkurferðir á óri
— og beinn kostnaður við hverja ferð hundrað þúsund krónur
JH —Hjá okkur eru gerðirút þrir
bátar af stærri gerð, tveir fjörutiu
til sextíu lesta og einn tvö hundr-
uð og fimmtíu lesta, og vertiðin
gaf góða raun á okkar mæli-
kvarða, sagði Óli Björgvinsson,
oddviti á Djúpavogi við Tímann i
gær. Að auki er hjá okkur nokkuð
af smábátum, tveggja til tólf
iesta, og hafa sumir þeirra verið
við rækjuveiðar á Berufirði í vet-
Okkur helzt fremur vel á unga
fólkinu, sagði Óli enn fremur, og
nokkuð er um að fólk flytjist að.
Þannig fjölgaði fólki á Djúpavogi
úr 338 Ibúum 1973 i 352 árið 1974. t
samræmi við þetta hefur verið
talsvert byggt af Ibúðarhúsum
siðustu ár, og i sumar^verður
byrjað á fjórum eða fimm. Þar að
auki á að hefja byggingu nýrrar
simstöðvar og pósthúss. Læknir
hefur verið hjá okkur siðan i
fyrrasumar, þá ráðinn til eins
árs.
Samveitukerfi á Austurlandi
nær nú orðið suður að Lónsheiði
en sá galli er á gjöf Njarðar, að
nýja raflinan, eða spennar á
henni, virðast ekki þola álagið, og
hefur þá orðið að grfpa til disil-
stöðvar og veita rafmagni frá
henni norður á bóginn, jafnvel allt
til Fáskrúðsfjarðar, auk þess sem
hún er höfð i gangi, þegar raf-
magnsnotkunin er mest.
Þvi er ekki að leyna, að þungt
er fyrir fæti hjá okkur úti á landi i
ýmsum samskiptum við rikis-
stofnanir og stjórnvöld. Sveitar-
stjórnir verða að senda menn æ
ofan I æ til Reykjavíkur til þess að
fylgja málum sinum eftir, og ég
held að fjórar ferðir á ári séu lág-
mark. Fyrir okkur á Djúpavogi er
beinn kostnaður af Reykjavikur-
ferð með viku dvöl um hundrað
þúsund krónur á mann, og þá
timasóunin ekki talin með.
Verst er þó, sagði Óli, hve
framgangur mála er tregur. Við
höfum nú lagt um fjörutiu mill-
jónir króna i nýtt frystihús, sem
orðið er langt á eftir öllum
áætlunum vegna vanefndra láns-
loforða, og kemst lfka tveimur ár-
um seinna i gagnið en vera átti,
og verður þá lika að sama skapi
dýrara. í vegamálum virðist lika
eiga litið að gera af þvi, sem ráð-
gert var. Lónsheiði er nú tæpast
fær fólksbifreiðum, þvi að þess-
um kafla hringvegarins hefur
ekki verið haldið við, og allt virð-
ist óráðið um annað vegarstæði.
Ég býst ekki heldur við, að unnið
verði að vegarkafla, sem gera
átti suður á bóginn i framhaldi af
Geithellnaárbrúnni, né heldur að
kaflanum á milli Geithellna og
Melrakkaness, sagði Óli að lok-
um.
Sendum
póstkröfu
JÓLBARÐAR
Kjara 825x20/12 Nyion 19.530
v'GrJk 900x20/14 21'830
1000x20/14
1000x20/16
1100x20/14
1100x20/16
27.320
28.560
29.560
31.320
Full óbyrgð d sólningunni
iéim&si
Nýbýlavegi 4— Sími 4-39-88
Kópavogi
FUF Reykjavík
FÉLAG úngra framsóknarmanna heldur félagsfund laugardag-
inn 31. mai n.k. kl. 14.00 að Rauðarárstlg 18.
Fundarefni: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Kosning fulltrúa á 15.
þing SUF, sem haldið verður á Húsavík 6.-8. júni n.k.
Þeir félagsmenn, sem hug hafa á að sækja þingið eru beðnir að
hafa samband við skrifstofu flokksins fyrir fundinn. Stjórn FUF
Aðalfundur F.U.F. Keflavík
Verður haldinn mánudaginn 2. júnl kl. 20,30 i Framsóknarhús-
inu. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa á þing
S.U.F. önnur mál. — Stjórnin.
Fimmtónda þing SUF
Fimmtánda þing Sambands ungra framsóknarmanna verður
haldið á Húsavlk dagana 6., 7. og 8. júni næstkomandi. Nánar
auglýst slðar.
Stjórn SUF.
P Byggðasjóður
þegar frumvarp til laga um
Framkvæmdastofnun rlkisins
var upphaflega lagt fyrir Alþingi
var sérstaklega getið um það i
greinargerð fyrir frumvarpinu,
að vafalaust þarfnaðist löggjöfin
ÁLFNAÐ ER VÉRK
ÞÁ HAFIÐ ER
^ SAMVINNUBANKINN
13 óra
duglegur strákur óskar
eftir sveitaplássi sem
fyrst. Upplýsingar í
síma 52189.