Tíminn - 05.06.1975, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 5. júni 1975
TíMINN
11
ÍSLAND VERÐUR í SVIÐSLJÓSINU
Knattspyrnuunnendur um alla Evrópu
bíða eftir úrslitum fró Laugardalsvellinum
tslenzka landsliðið verður i
sviðsljósinu á Laugardalsvellin-
um i kvöld, þegar liðið leikur
gegn hinu geysisterka liði A-Þjóð-
verja. Það eru ekki eingöngu ís-
iendingar sem biða spenntir eftir
leiknum, heldur biða einnig allir
knattspyrnuunnendur i Evrópu
eftir þessum leik, með það efst i
huga, að islendingar náðu jafn-
tefli gegn A-Þjóðverjuin í Magde-
burg. Það er vitað, að A-Þjóð-
verjar leika stift til vinnings i
kvöld — ákveðnir i, að hefna ófar-
anna i Magdeburg og útmá þann
leik úr hjörtum knattspyrnuunn-
enda i Evrópu.
Það verður þvi erfiður róður
hjá leikmönnum islenzka liðsins,
sem hafa allt að vinna, til að
Sigurmögu-
leikar gegn
Portúgölum
og írum
Landslið íslands í frjólsum íþróttum, sem -
tekur þdtt í Evrópubikarkeppninni í
Lissabon, var tilkynnt í gær
13 frjálsiþróttamenn hafa verið
valdir í landslið tslands, sem tek-
ur þátt i Evrópubikarkeppninni i
frjálsum iþróttum i Lissabon i
Portúgal 14. og 15. júni n.k. ls-
lenzka liðið tekur þar þátt i
keppni ásamt Portúgal, Hollandi,
Belgiu, írlandi, Spáni og Sviss.
Ekki er vitað mikið um árangur
þessara þjóða i ár, en eftir
árangri þjóðanna sl. sumar, þá
eigum við möguieika á að bera
sigurorð af Portúgalsmönnum og
trum, en Beigia, Spánn og Sviss
eru Ifklegustu þjóðirnar til að
komast i undanúrslit Evrópu-
bikarkeppninnar, sem fer fram i
júli.
Eins og menn muna, þá töpuð-
um við aðeins með einu stigi fyrir
trum i fyrra i landskeppni, en þá
kepptu tveir menn i hverri grein.
tslenzka liðið er sterkara en það
Irska, ef einn maður frá þjóð
keppir ihverri grein. Þá má geta
þess, að trar töpuðu aðeins með
einu stigi i landskeppni gegn
Portúgölum i fyrra. A þessu sést,
að Island, trland og Portúgal eiga
mjög svipuð lið að styrkleika.
tslenzka liðið er skipað snjöll-
um frjálsiþróttamönnum. Ef þeir
ná góðum árangri, þá eru þeir til
alls liklegir, þegar stig þeirra eru
reiknuð saman. Liðið sem keppir
I Portúgal, er skipað þessum
mönnum:
r -— >
PELE
TIL
Sigurður Sigurðsson: 100 m hlaup
og boðhlaup.
Bjarni Stefánsson: 200 m hlaup og
boðhlaup.
Vilmundur Vilhjálmsson: 400 m
hlaup og boðhlaup.
Jón Diðriksson: 800 m hlaup.
Agúst Asgeirsson: 1500 m hlaup
og 3000 m hindrunarhlaup.
Sigfús Jónsson: 10.000 m hlaup.
Stefán Hallgrimsson: 110 m og
400 m grindahlaup og boðhlaup.
EHas Sveinsson: hástökk og
stangarstökk.
Friðrik Þór óskarsson: iangstökk
og þrístökk.
Erlendur Valdimarsson: kringlu-
kast og sleggjukast.
Iireinn Haiidórsson: Kúluvarp.
Óskar Jakobsson: spjótkast.
Sigurður P. Sigmundsson: 5000 m
hlaup.
Fararstjóri verður Einar Fri-
mannsson og þjálfari Guðmundur
Þórarinsson.
KOSMOS
Brasillski knattspyrnusniiiing-
urinn PELE hefur skrifað undir
samning við bandariska knatt-
spyrnufélagið Kosmos frá New
Vork. Pele fær 7 milljónir dala
fyrir að leika með Kosmos
næstu þrjú árin, en New York-
liðið sér um að greiða skatta
fyrir hann. Skattfrjálst mun
Pele fá 4,5 miiljónir daia, eða
um 670 milljónir isienzkra króna
— dágóð fúlga það. Eins og við
höfum sagt frá áður, þá voru
mjög litlir möguleikar á, að
Peletækiboði Kosmos, og hann
var búinn að afþakka boð
félagsins, sem hefur sótzt eftir
honum sl. fjóra mánuði. En i sl.
viku flugu þær fréttir út, að
Pele, sem rekur mörg fyrirtæki
i Brasiliu, væri að fara á
hausinn með allt. Fjárhags-
erfiðleikar hans heima fyrir
urðu þess valdandi að Pele
skrifaði undir samninginn við
Kosmos. Eins og stendur er
hann búinn að bjarga sér úr
fjárhagsklipunni.
)■■■■! ILMI ■!■■■■
halda þvi nafni, sem þeir hafa
skapað sér i heimsknattspyrn-
unni. Þeir verða þvi að berjast
eins og grenjandi ljón og ekkert
að gefa eftir, — að hika er sama
og tapa. Það verður vel sloppið, ef
þeim tekst að halda I við A-Þjóö-
verjana og tapa ekki með nema 1-
2 marka mun.
Áhorfendur geta veitt islenzku
leikmönnunum ómetanlega að-
stoð, með þvi að styðja við bakið á
þeim og hvetja þá til dáða með
hvatningarhrópum. Látum
„áfram Island!” hljóma rösklega
i Laugardalnum i kvöld — ekki
bara i tima og ótima, heldur allan
leikinn. AFRAM ISLAND!
Albert aftur
eftirlitsmaður
ALBERT GUÐMUNDSSON hefur
verið skipaður eftirlitsmaður
með Evrópuleik islands og A-
Þýzkalands. Það er UEFA —
knattspyrnusamband Evrópu,
sem sneri sér til Alberts og bað
hann að táka starf eftirlitsmanns
að sér. Eins og menn muna, þá
var Albert einnig eftirlitsmaður
með landsleik islands og Frakk-
lands á dögunum.
ALBERT GUÐMUNDSSON... og
ELLERT B. SCHRAM virða hér
fyrir sér hina fögru gripi, sem Al-
bert afhenti KSÍ i gær. (Tima-
mynd Róbert).
ALBERT KOM MED
GLÆSILEGA GRIPI
FRÁ FRAKKLANDI
— sem verða veittir þeim 1. og 2. deildarliðum, sem sýna
drengilegustu framkomu á keppnistímabilinu
„Albert kom færandi óvenjulega
glæsilega gripi, þegar hann kom
frá Frakklandi fyrir stuttu”,
sagði Ellert B. Schram, formaður
KSi, þegar hann tilkynnti frétta-
mönnum i gær, að Albert Guð-
mundsson, fyrrum formaður KSÍ,
hafði komið með glæsilcga gjöf
frá franska knattspyrnuáhuga-
manninum og guílsmiðnum
Drago, sem hefði gefið Knatt-
spyrnusambandi islands til varð-
veizlu og ráðstöfunar.
Albert Guðmundsson sagði, að
gefandinn Drago væri mikill
knattspyrnuunnandi og þekktur
gullsmiður iFrakklandi, þar sem
hann er þekktur fyrir afskipti sin
af knattspyrnu, og fyrir hönnun
sina á félagsmerkjum og verð-
launastyttum og bikurum. „Ég
Aðalfundur
Aðalfundur Fimleikafélags
Hafnarfjarðar verður haldinn i
samkomusal Rafha 12. júni n.k.
Fundurinn hefst kl. 20.30. —
Venjuleg aðalfundarstörf.
— Stjórnin.
hitti hann i Nizza fyrir stuttu, þar
sem hann sagði, að hann hefði
mikinn áhuga á þvi, að Island
gengi i samtök, sem stuðla að þvi,
að hvetja til drengilegrar fram-
komu knattspyrnumanna á leik-
velli, — og einnig áhorfenda sem
sækja knattspyrnuleiki. Nú þegar
eru 34 lönd i þessum samtökum,
og I þeim löndum eru félagsliðum
veittar I verðlaun styttur eins og
þær, sem Drago bað mig að af-
henda KSt.
Drago lét mig fá tvo farand-
gripi og tvær eignarstyttur, sem
skal veita þeim 1. og 2. deildarlið-
um. sem sýna drengilegasta
framkomu á keppnistimabilinu
og koma bezt fram á leikvelli.
Þar er einnig tekið tillit til fram-
komu áhorfenda, sem sækja leiki
þessara verðlaunaliða," sagði Al-
bert um leið og hann afhenti Ell-
ert B. Schram verðlaunastytturn-
ar til varðveizlu og ráðstafanna.
Eliert þakkaði Albert milli-
göngu hans og sagði siðan:
„Svo segir mér hugur um, að
þessir fögru gripir eigi eftir að
verða eftirsóttir hjá knattspyrnu-
félögum okkar. Stjórn KSl mun
að sjálfsögðu ráðstafa þessum
gripum eftir beztu getu, og verða
þeir veittir þeim liðum, sem sýna
heiðarlegastan leik á keppnis-
timabilinu. Ekki er enn búið að
ákveða, hvort farið verði eftir
skýrslum aganefndar KSI, eða
hvort sérstakri nefnd verði komið
á fót til að skera úr um það, hvaða
liö skuli hljóta gripina hverju
sinni,” sagði Ellert að lokum.
NÝTT MET
HJÁ RAGN-
HILDI í
ÁRÓSUM
Ragnhildur Pálsdóttir, Stjörn
unni úr Garðahreppi, setti nýt'
met í 1500 m hlaupi I Arhus-
leikvanginum I Danmörku i
þriðjudagskvöldiö. Ragnhildui
hljóp vegalengdina á 4:46,3 min
Hún átti sjálf gamla metið —
4:47,0 min.
„EINS OG VILLIMENN"
— sagði Albert Guðmundsson um
óhangendurLeeds
„Það leikur enginn vafi á þvi,
að Leeds-Iiðið fær strangan dóm
fyrir framkomu áhangenda liðs-
ins, sem komu til að sjá úrslita-
leik Bayern Munchen og Leeds i
Evrópukeppni meistaraliða i
Paris”, sagði Albert Guðmunds-
son, fyrrum formaður KSÍ — en
hann var á meðal áhorfenda, sem
sáu hinn sögulega úrslitaleik I
Paris. — „Ég hef aldrei verið
vitni að öðru eins, völlurinn var
útlitandi eins og eftir sprengju-
árás að leiknum loknum.
— Ahangendur Leeds höguðu
sér eins og villimenn frá fyrsta
deginum, er þeir komu til
Parisarborgar. Þeir gengu um
götur borgarinnar með barsmið-
um og látum og eyðilögðu allt,
sem fyrir þeim var — brutu,
brömluðu og lumbruðu á sak-
lausu fólki. Hámark þessara
skrilsláta varð svo á vellinum
sjálfum, þegar þeir byrjuðu að
grýta harðplast-sessum inn á
völlinn, með þeim afleiðingum að
fjöldi manna stórslasaðist. T.d.
missti einn sjónvarpsmaður aug-
að, þegar hann fékk sessu i and-
litið. Þessi skrill frá Leeds setti
ljótan svip á úrslitaleikinn, sem
Frakkar voru búnir að vanda
mikið til. Það kemur mér ekkert
á óvart, þótt að Leeds-liðið verði
útilokað frá Evrópukeppni næstu
árin”, sagði Albert að lokum.