Tíminn - 11.06.1975, Side 1
FELL
S.F.
Egils-
stöðurri
Sími
97-1179
Slöngur
og tengi
Heildsala
Smásala
TARPAULIN
RISSKEMMUR
HF HÖRÐOR GUNNARSSON
SKÚL'ATÚNI 6 - SÍMI (91)19460
VERKFOLLUM
FRESTAÐ í 2
SÓLARHRINGA
TOGARADEILAN VERÐI LEYST UM LEIÐ
-Yflrlýslng
SamningQnefnd Alþýöuaarabands lalanda hefur ákveöiö aö tilnrolura
aáttanefndar aöfreata £elra vinnuatöövunura,oera boöaöar voru af félögum
innan A.S.l frá og ra_-ö 11. þeaaa raánaöar og frá og meö 12.þeaaa mánaöar
til klukkan 24 firarntudaglnn 12.þeasa raánaöar.
Jafnfrarat aaraþykkja Vinnuveitendasaraband lalands og Vlnnuraálaoaraband
aaravinnufélaganna,aö vinnuatöövanir þær,aera freataö er aarakvŒrat framan-
greindu,koml til framkvtEmda á tllgrelndum tíma,án frekarl tilkynninga
eöa boöunar,hafi samningar eigl tekizt áöur.
Reykjavík,10.júní 1975
F;h. saraninganefndar A.S.l
jKtí'ipUHl
Samþykk ofangrelndu :
P.h. Vinnuveltendasarabands lalands
‘•útcn,
P.h. Vinnuraálasamþ^nds'* saravinnufálaganna
BH—Reykjavík — Aö tilmælum
sáttanefndar þeirrar, sem skipuð
var Ikjaradeilu AStog Vinnuveit-
endasambands islands og Vinnu-
málasambands samvinnuféiag-
anna hefur samninganefnd Al-
þýðusambandsins ákveðið að
fresta verkfaili þvi, sem boðað
hafði verið til frá miðnætti sl. um
tvo sólarhringa, og kemur það þá
til framkvæmda, án frekari til-
kynninga eða boðana, hafi samn-
ingar ekki tekizt áður. Þetta var
tilkynnt i gærkvöldi af fulltrúum
samninganefndanna og sátta-
nefndarinnar.
— Samninganefnd ASt hefur
umboð allra félaga innan ASI, og
hefur beint þeim tilmælum til að-
ildarfélaganna að fresta verkfall-
inu, sagði Björn Jónsson, forseti
Alþýðusambandsins i gærkvöldi,
er Timinn ræddi við hann eftir
undirritun yfirlýsingarinnar, og
innti hann eftir þvi, hvort Mjólk-
urfræðingafélag íslands félli und-
ir þetta samkomulag. — Hitt er
svo annað mál, bætti Björn við, —
hvort öll félögin hlýta þessum til-
mælum okkar.
Annars gengu samningamálin
þannig i gær, að fundur var hald-
inn i baknefnd samninganefndar
ASt kl. 18.00 i gær. Að sögn Guð-
mundar J. Guðmundssonar eftir
þann fund var á þeim fundi sam-
þykkt 2 sólarhringa frestun á
verkfallinu, til þess að skapa um-
ræðugrundvöll til lausnar kjara-
deilunni, að eindregnum tilmæl-
um sáttanefndar. Þá var lögð
þung áherzla á, að togaradeilan
yrði leyst jafnframt, og myndu
viöræður aðila i togaradeilunni þá
hefjast strax i dag, miðvikudag.
Annars sagði Guðmundur, að
ekki væri unnt að tala um tillögur
sáttanefndar, þvi að þær lægju
engan veginn ljósar fyrir sem
sáttagrundvöllur. Mörg atriði
væru með öllu órædd, svo sem
ýmis atriði i verðlagsmálum, og
þá mætti sérstaklega nefna verð á
landbúnaðarvörum. Það yrði að
tryggja, að allt að 20% hækkun á
þeim kæmi ekki beint i kjölfar
samninga.
Jón Sigurðsson, forseti Sjó-
-------------------:--------->
Við undirritun yfirlýsingar-
innar i gær. Við hringborðið
sitja frá vinstri: Björn Jóns-
son, Gunnar Guðjónsson,
Guömundur Hjartarson, Jón
Þorsteinsson, Skúli J.
Pálmason og Snorri Jónsson.
-----------------------------
mannasambandsins, fagnaði
þessari ákvörðun varðandi tog-
araverkfallið og kvaðst vonast til,
að þetta yrði til þess, að þungur
skriður kæmist loks á það mál.
Við inntum Jón eftir því, hvort
verkfallsfrestunin hefði nokkur
áhrif á togaraverkfallið.
— Ekki önnur en þau, að hún
ýtir undir samninga. En togara-
flotinn fer ekki út fyrr en skrifað
hefur verið undir.
Björn Jónsson, forseti Alþýðu-
sambandsins, kvað ástæðurnar
fyrir samþykkt baknefndarinnar
byggjast á tveim aðalástæðum:
Verið væri að vinna tima til aö
freista þess að ná samkomulagi
án verkfalls, og svo hefðu mörg
verkalýðsfélög, svo sem á Suður-
nesjum og á Snæfellsnesi, ekki
boðað verkfall fyrr en þann 13.
— Samningsstaðan hefur
breytzt mjög mikiö til hins betra
fyrir tilstuðlan sáttanefndarinn-
ar, sagði Björn. En hins verður að
gæta, að breytingartillögur okkar
viö tillöguuppkasti samninga-
nefndarinnar, eru sumar það
mikilvægar, að þær gætu hamlaö
þvi, að af samkomulagi yrði fyrir
þann 13. júni.
Um leið og undirritun yfirlýs-
ingarinnar var lokið, settust þeir
fulltrúar sáttanefndarinnar, sem
aö undirbúningi hennar höfðu
staðið, að sáttafundi með vinnu-
veitendum og fulltrúum Alþýðu-
sambands Norðurlands, þeim
Jóni Asgeirssyni og Kolbeini
Friðbjarnarsyni. Þeir Guðmund-
ur Hjartarson og Jón Þorsteins-
son voru einir mættir af sátta-
nefndarmönnum i gærkvöldi.
Torfi Hjartarson, sáttasemjari,
Guðlaugur Þorvaldsson og Björn
Hermannsson sátu konungsveizl-
una að Hótel Sögu.
VERÐUR AÐ BREYTA
FERÐAÁÆTLUN
CARLS GÚSTAFS?
ASK-Reykjavík. Mikil óvissa var I gærkvöldi um það, hvort frðaáætlun
Sviakonungs stæðist I dag, eða hvort gripa þyrfti til varaáætlunar vegna
veðurs.
Þegarkonungskoman var skipulögð, var sleginn sá varnagli, að veður
gæti hindrað ferð konungs til Vestmannaeyja og Hornafjarðar. Til vara
var skipulögð ferð til Búrfells, Geysis, Gullfoss, Skálholts og Laugar-
vatns, þar sem snæddur yrði kvöldverður.
Samkvæmt spá veðurstofunnar var lægð að nálgast landið og búizt við
rigningu I nótt og fram á morgun. Slöar var búizt við að létti til með suð-
austan átt og stinningskalda, hvort sem hann verður nú til þess að koma i
veg fyrir flug konungs I dag eða ekki.
CARL XVI
GÚSTAF
TIL
ÍSLANDS
KOAAINN
MEÐ hlýjum strekkingi heils-
aði tsland Svíakonungi, er
heimsótti okkur i gær, „mikill
aufúsugestur I landi voru”,
eins og forseti tslands, dr.
Kristján Eldjárn komst að
orði I ræöu sinni I gærkvöldi.
Allt gekk snurðulaust fyrir
sig viö móttökuna svo það
hlýtur bara að vera Kári sem
fær konunginn til að fitja upp á
nefið, þar sem hann kemur til
hádegisverðar að Bessastöð-
um I g=er.
I OPNU
OG
MYNDAOPNU
Sjá fréttir
og myndir
bls. 2—3
Ræður forseta
tslands og
Sviakonungs
bls. 5