Tíminn - 12.06.1975, Side 1
UM ÞETTA
ER VERID
AÐ SEMJA
BH-ReykjavIk.Tillögur sáttanefndar eru I aöalatriöum á þá leið, að
miðað við 6. taxta Dagsbrúnar skuli kauphækkunin nema 10% frá 1.
júnf eða 4.700,00 kr. og 5% frá 1. október eða 2.300,00 samtals 7.000,00
kr, og skuli samkomulagið gilda til 31. desember næstkomandi.
Gagntillögur baknefndar ASl, sem samþykktar voru á fundi i
fyrradag, voru á þá leið (miðað við 6. taxta Dagsbrúnar), að 12%
hækkun kæmi á kaup frá 1. júni eða kr. 5.600,00, og rúml. 4% 1. októ-
ber eða 2.000,00. Jafnframt skyldi þakinu lyft af hámarkstölu þeirri,
sem launabæturnar sl. haust (3.600,00 og april-bæturnar 4.900,00)
náðu til og skyldu þær bætur koma á öll laun frá 1. júni. Ennfremur
var það skilyrði ASl fyrir samkomulagi, að togaradeilan yrði leyst
jafnhliða þessari kjaradeilu, og loks að niðurgreiðslum á landbún-
aðarafurðum yrði haldið áfram.
Björn Jónsson, forseti ASÍ, sagði í gærkvöldi:
FRESTUN Á VERKFALLI
KEMUR EKKI TIL GREINA
— stendur á lausn togaradeilunnar og tryggingu
óframhaldandi niðurgreiðslum á landbúnaðarvörum
BH—Reykjavik — „Sannleikur-
inn er sá, að það hefur ekkert
heyrzt frá vinnuveitendum, frá
þvi að samninganefnd ASt lagði
fram gagntillögur sinar i gær,”
sagði Guðmundur J. Guðmunds-
son, varaformaður Dagsbrúnar,
við okkur, er hann kom á fund i
Tollhúsinu i gærkvöldi ki. 9. Og
háifum öðrum klukkutima siðar
fengum við ekki annað séðen allt
stæði við það sama, fulltrúar
samningsaðila sátu I sinum her-
bergjum, en ekkert gerðist.
A þessu stigi málsins fengust
aðilar ekki til að tjá sig um neitt,
og má iýsa viðbrögðum þeirra
bezt með svari Jóns Þorsteins-
sonar: „Maður talar ekki af sér
meðan maður þegir!”
Talið er, að tvö séu meginatrið-
in, sem standa i veginum. 1.
Lausn togaradeilunnar og 2.
Íslendingar hafa einir
ókvörðunarrétt um útfærslu
efnahagslögsögu sinnar
Trygging áframhaldandi niður-
greiðslu á landbúnaðarvörum.
Rikisstjórnin hélt fund i gær um
niðurgreiðslurnar á landbúnaðar-
vörunum. Þá gengu fulltrúar
vinnuveitenda á fund forsætisráð-
herra i gær.
Samninganefnd ASl leggur
mjög mikla áherzlu á jafnhliða
lausn togaraverkfallsins, og á
baknefndarfundi ASl sem hófst
kl. 18 i gær, var eftirfarandi
ályktun samþykkt:
„Fundur 9 manna nefndar ASl
haldinn 11. júni samþykkir að
krefjast þess, að nú þegar verði
samninganefndirnar i togaradeil-
unni kallaðar saman og þess
freistað að ná sáttum samhliða
hugsanlegri lausn deilu ASl og
VSÍ.”
Er við ræddum við Jón Sigurðs-
son, forseU Sjómannasambands-
ins, seint i gærkvöldi, hafði ekki
verið boðað til samningafundar i
togaradeilunni, og þvi allt i óvissu
um þau mál.
Búizt var við, að fundur i ASl-
deilunni stæði a.m.k. i nótt, enda
styttist timinn óðum til þess að
OÓ-Reykjavik.— Ég tel það ekki
óábyrga pólitik Islendinga að
færa efnahagslögsögu sina ein-
hliða út i 200 milur, og ég er ekki
sammála niðurstöðu Alþjóða-
dómstólsins i Haag um að þið
hafið ekki haft rétt til að færa lög-
söguna einhliöa út i 50 mflur. Það
er svo mikið I húfi fyrir efnahags-
lif Islendinga að nýta fiskimiðin
við strendurnar og vernda fiski-
stofnana, og lega landsins er
þannig, að þeir hljóta sjálfir að
hafa ákvörðunarrétt um þau mál-
efni. Þannig fórust Jens Evensen,
hafréttarráöherra Noregs, orð er
hann ræddi við blaðamenn I gær,
er erindi hans hingað til lands er
að ræða hafréttarmál við islenzka
ráðherra og aðra ráðamenn.
» o
í gær fór konungur til Vest-
mannaeyja og siðan ferðað-
ist hann um Austur-Skafta-
fellssiýslu. Varð honum að
ósk sinni að komast á jökul.
Myndin er tekin er konungi
er veitt aðstoð við að klifa
Svinafellsjökul.
Timamynd Gunnar
o
Deiluna verður að
leysa með samningum
— sagði Ólafur Jóhannesson á fjölmennum fundi á Akureyri.
Gagnrýndi vinnuveitendur fyrir stífni í samningamdlum
AÞ-Reykjavik.—Á fjölmennum
fundi Framsóknarmanna, sem
haldinn var á Akureyri s.l.
sunnudag, sagði Ólafur Jó-
hannesson viðskiptaráðherra,
að ekki yrði gripið til bráða-
birgðalaga til að leysa þá vinnu-
deilu, sem nú er uppi. Hins veg-
ar yrði að gripa til allra annarra
ráða til að leysa deiluna með
samningum, þvi að versti kost-
urinnværi sá, að allt stöövaðist i
verkföllum um lengri tima.
— Ég held, sagði ráðherrann,
að vinnuveitendur verði að
breyta þeirri venju sinni að
koma að samningaborði og lýsa
þvi yfir, að þeir geti ekkert boð-
ið. Það er gjörsamlega út i hött,
og einnig óskynsamlegt af þeim
að halda þessum starfsaðferum
áfram.
Ólafur Jóhannesson vitti einn-
ig hina miklu kröfugerð laun-
þegasamtakanna og sagði, að
það væri fráleitt að setja fram
miklu hærri kröfur en samn-
ingsaðilar gætu gert sér nokkra
von um að samið yrði um.
Ræddi ráðherrann um mögu-
leika á nýrri vinnulöggjöf, en
lagði þó áherzluá það, að sam-
vinna yrði höfð við báða aðila
vinnumarkaðarins um breyt-
ingar á henni.
Þá sagði Ólafur Jóhannesson
m.a.:
— Rikisstjórnin mun með
þeim ráðum sem hún hefur,
stuðla að þvi að samningar geti
náðst. Það er vani, að komið sé
til rlkisstjórnarinnar og spurt,
hvað hún geti lagt fram til
lausnar i launadeilum. Það var
gert i vetur. Þá tókst að ná sam-
komulagi til þriggja mánaða, en
rikisstjórnin lækkaði skatta og
felldi niður söluskatt á ýmsum
vörum, sem samtals nam tveim
milljöröum króna. Rikissjóður
hefur ekki ráð á þvi að leggja
fram fjármuni, eða afsala sér
tekjum nú til lausnar vinnudeil-
unni.
En þessi deila verður ekki
leyst án þess að til verulegra
kauphækkana komi. Það eru
þegar komin fordæmi.
Rikisstjórnin hefur haft það
meginmarkmið að halda uppi
fullri atvinnu i landinu. Hún
hefur lika taliö, sérstaklega
Framsóknarflokkurinn, að það
ætti að fylgja -launajafnaðar-
stefnu. En kröfurnar, sem gerð-
ar eru virðast ganga i öfuga
átt”.
I ræðu sinni kom Ólafur Jó-
hannesson viða við. Hann ræddi
m.a. um markaðsmálin al-
mennt, gjaldeyrisnotkunina,
væntanlegan niðurskurð fjár-
laga, landhelgismálið og fleira.
Miklar umræður urðu að lok-
inni ræðu viðskiptaráðherra.
Tóku margir til máls, og var
mörgum fyrirspurnum beint til
ráðherra, sem hann svaraði.
Þótti fundurinn takast mjög vel.
fresturinn renni út, en það er á
miðnætti Verkfall á miðnætti
nk. er að sjálfsögðu enn áhrifa-
meira en fyrir tveim sólarhring-
um, þar eð það nær til enn fleiri
aðildarfélaga ASl én'þá — og nú
er engin von um frestun, að þvi er
Björn Jónsson, forseti Alþýðu-
sambandsins, tjáði okkur i gær-
kvöldi.
Eðvarð
veikur
BH—Reykjavik — Eðvarð Sig-
urðsson, formaður Dagsbrún-
ar, iiggur nú á sjúkrahúsi,
þungt haldinn, að þvi er
fregnir hermdu I gærkvöldi,
og hefur Guðmundur J. Guð-
mundsson, varaformaður
Dagsbrúnar, tekið sæti hans i
samninganefnd ASt.
. 'í
■ V
‘V -