Tíminn - 21.06.1975, Qupperneq 15
Laugardagur 21. júni 1975.
TÍMINN
15
Herbert Strang:
Fífldjarfi
drengurinn
ins, sem var i milu-
vegar fjarlægð.
Enda þótt Alan væri
yngri en Rikki, var
hann jafnan for-
sprakkinn i ævintýr-
um þeirra. Hann var
framúrskarandi ráða-
góður og var gáfaðri
en Rikki, sem bar
mikla virðingu fyrir
Alani og var ávallt fús
til að gera allt, sem
hann stakk upp á.
Enginn, sem séð
hefði til Alans i skóg-
unum, mundi hafa
látið sér til hugar
koma, að hann væri
latur eða heimskur.
Hann var eldfjörugur
og hentist áfram, létt-
ur eins og fifa, en nam
við og við staðar til
þess að benda félaga
sinum á sitthvað.
Ekkert fór fram hjá
honum, enda hafði
hann vakandi auga á
öllu. Alan hefði áreið-
anlega veitt þvi at-
hygli, ef ikorni hefði
hlaupið upp eftir tré
eða kanina hefði
skriðið inn i holu sina.
Hann tók eftir fag-
urgrænu grasblettun-
um, benti Rikka á,
hvar villigöltur hafði
rótað upp jarðvegin-
um meðal akarnanna
og nam staðar til þess
að virða fyrir sér tré,
sem hjörtur hafði núið
hornunum við. Allt i
einu kom hann auga á
kaninu, sem svaf
meðal burkna. Hann
varð á undan Rikka
að leggja ör á streng
og skjóta hana.
— Þetta gæti hann
Ambrósius ekki, þó
hann reyndi það,
sagði Alan, glaður i
bragði. — Það er
Hong Kong ®
þvergötu er urmuli söluboröa
settur upp, eftir að almennum
verzlunum i götunni hefur verið
lokað. Þarna úir og grúir af fölki,
kaupmönnum, pröngurum og
iðnaðarmönnum. Þarna sitja
úrsmiðir, leðursmiðir, optikerár,
skósmiðir og skraddarar og bjóða
varning sinn, og það er fátt smá-
vöru, sem ekki er þarna á boð-
stólum. Inn á milli eru „veitinga-
menn” með kraumandi potta og
kínverska rétti. Ekki hefðum við
Gunnlaug Sigvaldason unnið okk-
ur það til lifs að fá okkur þarna i
svanginn og verður það að nægja
um hreinlætið.
Um Kinverjana gegndi öðru
máli. Þeir átu bara beint úr
pottunum og af hinni sönnu lyst.
Að kaupa sér gleraugu
Það væri að æra óstöðugan að
lýsa varningi og kaupmönnum
þarna út i hörgul. Við létum að-
eins berast með straumnum með
hægu flæði gegnum götuna,
endanna á milli. Mannmergðin
var gifurleg. Einu get ég þó ekki
stillt mig um að lýsa, en það var
gleraugnasalan, en hún fer fram
með óliku sniði og þvi sem við
eigum að venjast. Griðarstórt
borð var þakið gleraugum af öll-
um mögulegum og ómögulegum
gerðum. Sennilega öll stolin, kom
manni i hug, a.m.k. virtust þau
ekki vera ný. Þarna voru menn og
konur að „máta” gleraugu.
Kaupmaðurinn stóð rólegur hjá
og þegar viðskiptavinur gaf sig á
tal við hann, dró hann fram dag-
blað, eða timarit og svo gekk við-
skiptavinurinn i hauginn og leit
svo i blaðið til þess að gá hvort
hann gæti lesið stafina. Ný og ný
gleraugu voru sett upp, þar til
viðskiptavinurinn hafði fundið
þau „réttu”.
Sumir virtust lika koma og láta
gömlu gleraugun fyrir ný og
greiddu siðan einhvern mismun.
Og allir voru ánægðir, þegar þeir
fóru með ný gleraugu á nefinu.
Við héldum út á breiðgötuna,
þar sem auðveldara var á fá
leigubifreið. Ljósum prýdd borg-
in blasti við, skýjaklúfar, musteri
auðs og valda. Iðandi kös af fólki
ráfaði um stræti og torg. Og sú
spurning vaknar, hvað biður
þeirrar þjóðar, sem hefur
„fósturjörðina” aðeins á leigu til
99 ára, en á ekkert land?
Jónas Guðmundsson.
Sveitavinna
Tveir 14 ára drengir
vilja komast i sveit.
Upplýsingar í síma 99-
1413, Selfossi.
Kerndum
Kerndum,
yotlendiy
hi ii.iiu.i u.mí
LANDVERWD
Diesel rafstöð
6-7,5 kilówatta, 220/380 volt, þriggja fasa,
óskast keypt.
Upplýsingar i sima 2-15-87, á kvöldin.
Vinningsnúmer í happdrætti
Krabbameinsfélagsins
Dregið var þann 17. júni 1975.
Dodge bifreið kom á miða nr. 35552,
Cortina bifreið kom á miða nr. 838877.
Vinninga má vitja i skrifstofu félagsins að
Suðurgötu 22-24.
Krabbameinsfélagið.
Tapazt hefur
tveggja vetra, jörp hryssa með stjörnu,
ómörkuð.
Þeir sem kynnu að geta gefið upplýsingar,
vinsamlegast hafi samband við Þorgeir
Jónsson Gufunesi.
Almennir
stjórnmóla
fundir
Framsóknarflokkurinn efnir til almennra stjórnmála-
funda um næstu helgi. Formaður flokksins, ölafur Jóhannesson
ráðherra mun mæta á öllum fundunum, en þeir verða sem hér
segir:
Hvammstangi:
Félagsheimilinu laugardaginn 21. júni kl. 14.
Frummælendur: Olafur Jóhannesson ráðherra, Brynjólfur
Sveinbergsson oddviti, og Guörún Benediktsdóttir varaþing-
maður.
Stóru-Ökrum, Skagafirði
Héðinsminni, sunnud. 22. júnl kl. 15. Frummælendur Ólafur
Jóhannesson ráðherra, Páll Pétursson alþingismaður og
Magnús Ólafsson formaður SUF.
Siglufjörður:
Alþýðuhúsinu, mánudaginn 23. júni kl. 20.30. Frummælendur
ólafúr Jóhannesson raðherra, Páll Pétursson alþingismaður og
Magnús ólafsson formaður SUF.
Félag Framsóknarkvenna
í Reykjavík
efnir til ferðar út í Viðey fimmtudaginn 26. júni n.k. kl. 19.30.
Farið verður frá sundahöfn, nálægt kornhlöðunni. Leiðsögumað-
ur verður örlygur Hálfdánarson.
Verið vel búin og i góðum gönguskóm. Kaffi fæst i Viðey fyrir þá
sem vilja.
Þátttaka tilkynnist til skrifstofu Framsóknarflokksins, Rauðar-
árstig 18, simi 24480. Allt Framsóknarfólk velkomið.
Stjórnin.
Happdrætti Framsóknarflokksins
Þar sem ennþá vantar tilfinnanlega skil frá
nokkrum umboðsmönnum er ekki unnt að birta
vinningsnúmerin fyrr en i þriðjudags blaði
Timans, 24. þessa mánaðar.
Þingmólafundir
í Vestfjarða-
kjördæmi
Leiðarþing í
Austurlands-
kjördæmi
Framhald þingmálafunda I Vestfjarðakjördæmi verður eins og
hér segir:
Steingrimur Hermannsson mætir:
Sunnudaginn 22. júni, kl. 21:00, Hólmavik.
Athugið breyttan fundartima á Hólmavik.
Gunnlaugur Finnsson mætir:
Laugardaginn 21. júni, kl. 21:30, Birkimel, Barðastrandar-
hreppi.
Sunnudaginn 22. júni, kl. 16:00, Fagrahvammi, örlygshöfn,
Rauðasandshreppi.
Mánudaginn 23. júni kl. 21 Bjarkarlundur
Allir eru velkomnir á fundina.
Þingmenn Framsóknarflokksins.
Alþingismennirnir Halldór Asgrimsson og Tómas Arnason halda
leiðarþing á eftirtöldum stööum i Austurlandskjördæmi svo sem
hér segir:
21. júni ’75 Borgarfjörður
22. júni ’75 Hjaltastaðahr.
22. júni '75 Tunguhreppur
23. júni ’75 Fellahreppur
23. júni ’75 Fljótsdalur
24. júni ’75 Hliðarhreppur
24. júni ’75 Jökuldalur
25. júni ’75 Bakkafjörður
26. júni ’75 Vopnafjöröur
27. júni '75 Skriðdalur
27. júni ’75 Vallahreppur
kl. 9 e.h.
kl. 2 e.h.
kl. 9 e.h.
kl. 2 e.h.
kl. 9 e.h.
kl. 2 e.h.
kl. 6 e.h.
kl. 6 e.h.
kl. 9 e.h.
kl. 2 e.h.
kl. 9 e.h.
Allir eru velkomnir á leiðarþingin. Þingmenn Framsóknar-
flokksins halda áfram leiðarþingum siðar og verða þau nánar
auglýst.