Tíminn - 05.07.1975, Page 4

Tíminn - 05.07.1975, Page 4
4 TÍMINN Laugardagur 5. júli 1975. Keisarar knattspyrnunnar Barnabúðir í háfjöllunum Franz Beckenbauer hefur lengi verið kallaður keisarinn, og er þá átt við stöðu hans i þýzkri knattspyrnu, en hann hefur lengið verið einn skæðasti knattspyrnumaður i Evrópu og fyrirliði landsliðs Vestur- Þýzkalands svo og liðs sins FC Bayern. Nýverið sannaði hann enn að keisaranafnið ber hann með rentu, er hann leiddi lið sitt til sigurs i Evrópumeistara- keppninni og vann Leeds með tveim mörkum gegn einu. En það er annar maður sem einnig er farið aö kalla keisara knattspyrnunnar, en það er Dettmer Cramer, sem einnig er vestur-þýzkur og hefur þjálfað fremstu lið þar i landi. Cramer er á myndinni til vinstri og hef- ur hann gert ljósmyndurum það til skemmtunar, að fara i ein- kennisbúning, svipuðum þeim og Napoleon keisari notaði þeg- ar hann var og hét. Cramer sem óumdeilanlega er keisari knatt- spyrnuþjálfara, á það einnig sameiginlegt með Napoleoni, að vera aðeins rétt rúmur 1.50 sentimetrar á hæð. f fjöllunum i suðurhluta sovézka Mið-Asiulýðveldisins Kirgisiu, i nálega 2000 metra hæð yfir sjó, hefur verið reist dvalarheimili fyrir börn. Þetta hvildarheimili er sérstakrar tegundar, þvi það er sótt af börnum, er hafa haft ýmiss konar öndunarsjúkdóma. Staðurinn er valinn með tilliti til heilnæms loftslags og fagurrar náttúru, þar sem eru margar ferskar uppsprettur og skógar með hnetutrjám. Loftslagið hef- ur a.m.k. jafnmikla þýðingu og kostgæfið lækniseftirlit og dag- leg meðferð. Fyrir börnin sjálf er dvölin þarna fyrst og fremst dásamlegt fri. Þau þrjú sumur, sem búðirnar hafa verið starf- ræktar, hafa rösklega 2000 börn sótt þær, og i ár er gert ráð fyrir þau verði nær 1000. Fá þeirra hverfa þaðan án þess að hafa fengið varanlega heilsubót. Byggingakrani fyrir skýjakljúfa Verksmiðja nokkur i úkrainsku borginni Nikopol hefur fengið viðurkennda nýja gerð af prógramstýrðum turnkrönum. Kraninn getur lyft 25 smálest- um I hæð, sem er á við 24 hæða hús, og hann starfar án stjórn- anda i venjulegum skilningi. Stjórnandinn velur eftir ástæð- um eitt af hinum mismunandi „prógrömmum”, sem eru fyrir fram ákveðin. Tölva i kranan- um reiknar út fljótvirkustu og hentugustu vinnuaðferðina i hverju tilviki. Viðbúin — tilbúin... Ilona Heidtmann, sem er 22ja ára gömul og býr i Gelsenkirch- en, V.-Þýzkalandi, er liklega ekki eina stúlkan sem gefur rás- merki á iþróttavelli i Þýzka- landi, en hún er sú bezta. A námskeiði, sem haldið var i Kaiserau f fyrra fyrir þá sem vildu taka að sér að „ræsa”, stóð hún karlmönnunum á sporði, og fyllilega það. t meist- arakeppni áhugamanna i ár var hún fyrsti kvenræsirinn. Ferill hennar hófstfyrir fjórum árum fyrir hreina tilviljun i heima- borg hennar. Þá fór fram þar i landi allsherjar keppni i likams- þjálfun fyrir alla, og allt i einu kom á daginn, að enginn fyrir- fannst ræsarinn. Þá var gripið til Ilonu. Keppnisgrein hannar er annars fimmtarþraut. Þó að hún hafi ekki orðið sigursæl á þeim vettvangi, hefur hún sannarlega náð forustu sem ræsir. DENNI DÆMALAUSI -r-.• „Ég gæti vel sagt honum að velta sér við, og hann myndi gera það, en við vitum báðir, að það væri heimskulegt.”

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.