Tíminn - 08.07.1975, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Þriöjudagur 8. júli 1975,
FRÚAR-JARPUR SIGRAÐI
ÞJÁLFA EFTIR HÖRKUKEPPNI
GÍFURLEGUR spenningur rikti
á fjórðungsmótinu á Faxaborg,
þegar kom að úrslitasprettinum i
800 m stökki. Myndin sýnir Frúar-
Jarp, Unnar Einarsdóttur á
Heliu, sigra Þjálfa Sveins K.
Sveinssonaar eftir geysiharða
keppni. Timi Frúar-Jarps var
62,9 sekundur. Knapi á Frúar-
Jarpi var Kristinn Guðnason,
Skarði á Landi, en knapi á Þjálfa,
sem náði bcztum tima I milliriðl-
um, var Guðrún Fjeldsted i
Ferjukoti.
Blesi Sigurðar Bjamasonar á
Hlemmiskeiði hljóp á aðeins
sekúndubroti undir tslandsmet-
inu I folahlaupi, eða á 18,3
sekúndum i milliriðli, Fannar
Harðar Albertssonar rann skeið-
sprettinn á 23,5sekúndum og Loki
Þórdisar Albertssón stökk 300
metrana á 21,7 sekúndum. Þá
sigraði Funi Marteins Valdi-
marssonar í 1500 metra brokki á 3
min. 16,5 sek.
(Timamynd: G.T.K.)
íslendingar 216.628
SJ-Reykjavik tbúará öllu landinu
voru 216.628 1. des. 1974 og hafði
fjölgað um 1,47% síðan árið áður,
en fjölgunin frá 1/12 1972 til 1/12
1973 var 1,29%. Karlar eru nú
109.506, en konur 107.122.
t Reykjavik eru 84.772 ibúar,
41.301 karlarog 43.471 kona. I öðr-
um kaupstöðum eru samtals
70.206 íbúar, 35.520 karlar og
34.686 konur. í sýslum landsins
búa 61.650 manns, 32.685 karlar og
28.965 konur. Fjölmennasti kaup-
staðurinn er Kópavogur, 12.090,
en siðan kemur Akureyri 11.689
og þá Hafnarfjörður 11.372.
Fimm nýir kaupstaðir urðu til á
árinu, Grindavik, Seltjarnarnes,
Bolungarvik, Dalvik og Eski-
fjörður. Laugarbakki i Ytri-
Torfustaðahreppi, Laugar i
Reykdælahreppi og Rauðalækur i
Holtahreppi bætast i tölu þétt-
býlisstaða.
Tala sveitarfélaga er sem hér
segir: 19 kaupstaðir (Reykjavik
meðtalin), 205 hreppar. Sveitar-
Skátamót að
Úlfljótsvatni um
næstu helgi
LANDSSAMBAND St. Georgs-
gildanna á tslandi, sem er alþjóð-
legur félagsskapur eldri skáta og
velunnara skátahreyfingarinnar,
efnir til móts gildisfélaga að Úlf-
ljótsvatni helgina 12.—13. júli, og
hefst mótið klukkan 14.00 á laug-
ardag.
Til móts þessa er efnt til að
minnast þess, að nú eru liðin rétt
25 ár frá móti þvi, sem almennt er
talið upphaf starfs St. Georgs-
gildanna hérlendis, en það var
einnig haldið við Úlfljótsvatn.
A dagskrá mótsins eru marg-
visleg atriði til fróðleiks og
skemmtunar mótsgestum, og
fyrir þá sem koma vilja snemma
til Ulfljótsvatns, verður tjald-
búðaaðstaða sett upp þegar á
föstudag.
Mótinu lýkur siðdegis á sunnu-
dag.
Sýning
Eyjólfs
Eyfells
framlengd
um viku
JG RVK. Sýning Eyjólfs J. Ey-
fells, listmálara, sem staðið hefur
að Kjarvalsstöðum, hefur nú ver-
ið framlengd um viku.
Mjög góð aðsókn hefur verið að
þessari yfirlitssýningu á verkum
hins aldna málara (89ára),munu
um og yfir 5000 manns hafa komið
á sýninguna.
Vegna fjölda óska hefur sýning-
in nú verið framlengd um eina
viku, en henni átti að ljúka s.l.
sunnudag. Hefur stjórn Kjarvals-
staða sýnt hinum aldna lista-
manni þá sæmd að leyfa honum
afnot af salarkynnum til næst-
komandi sunnudagskvölds.
Verður sýningin þvi opín þessa
viku frá kl. 16—22, en á laugardag
og sunnudag verður opið frá kl.
14—22. Sýningin hefur hlotið lofs-
verða dóma i öllum blöðum, sem
um hana hafa fjallað.
félög eru alls 224. Sýslufélög 23.
Arnessýsla er fjölmennust
sýsla á landinu með 9.226 ibúa. N-
tsafjarðarsýsla er fámennust
meö 567 Ibúa.
Fámennasti hreppur i landinu
er Múlahreppur i A-Barðastrand-
arsýslu með 22 ibúa. Selfoss-
hreppur er fjölmennastur með
2.834 ibúa.
34.696 íbúar búa i þéttbýlisstöð-
um öðrum en kaupstöðum. Fjöl-
mennasti þéttbýlisstaðurinn er
Garðakauptún, 3.990.
Garðahreppur og Bessastaða-
hreppur hafa frá 1. janúar 1974
talizt til Kjósarsýslu (voru áður i
Gullbringusýslu). Bæjarfógetinn
i Keflavik er sýslumaður i Gull-
bringusýslu (frá 1. jan. 1974).
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði er
sýslumaður i Kjósarsýslu.
Fingralangur
listunnandi
H.V. Reykjavik. Um helgina
gerðist gestur á sýningu dönsku
listakonunnar Gunhild Skovmand
i Norræna húsinu, nokkuð fingra-
langur og hafði á brott með sér
eina af myndunum, sem hún
sýnir þar. Myndin er smá, um
átta sendimetrar á annan veginn
og tuttugu á hinn, og hafði henni
verið rennt undan glerplötu, sem
var henni til hli'fðar.
Ekki er vitað með vissu, hve-
nær myndin hvarf, en talið er að
það hafi verið annað hvort
laugardag eða sunnudag. Myndin
var þannig staðsett, að gæzlukona
á sýningunni átti óhægt um vik að
fylgjast með henni, og þvi hefur
viðkomandi sýningargestur getað
gefið sér góðan tima til að ná
myndinni undan glerinu.
í gær hafði ekki tekizt að upp-
lýsa málið, en unnið er að rann-
sókn þess.
Sumartónleikar í Skólholtskirkju:
Engin mót í Vaglaskógi í
sumar vegna ónógrar
snyrtiaðstöðu og vatns-
skorts
ASK-Akureyri. — Það hefur verið
litiö um ferðamenn i Vaglaskógi,
þaö sem af er sumri, enda var
vorið kalt, og gera má ráð fyrir að
allur gróður sé um það bil þremur
vikum seinni til en i meðalári,
sagði ísleifur skógarvörður i við-
tali við Timann fyrir skömmu.
Isleifur kvað það fyrst hafa
verið nú um helgina að mikill
fjöldi fólks, aðallega Akureyring-
ar, hefði gist skóginn. Hins vegar
væri litið um erlenda ferðalanga.
Aðspurður um það, hvort ekki
yrðu haldin mót i Vaglaskógi i
sumar, sagði ísleifur, að vegna
ónógrar snyrtiaðstöðu og skorts á
vatni væri það hreinlega
ekki hægt. Ef halda
ætti fjölmenn mót, væri
aðstaðan á allan hátt óviðunandi,
og sagði Isleifur, að ekki væri vit-
aðum nein fjárframlög, sem ættu
að renna til bættrar aðstöðu i
skóginum. I Vaglaskógi eru til
dæmis engin önnur salerni en hin-
ir landsþekktu spútnikkar, og
anna þeir hvergi nærri þörfinni,
þegar allt að 8000 manns sækir
Vaglaskóg heim.
• Þá var siðast liðið haust rifið
samkomuhúsið Brúarlundur, en
■þar hafadansleikir verið haldnir,
þegar mót standa yfir. Brúar-
lundur var byggður á árunum
eftir seinni heimsstyrjöld og
fyrstu árin notaður sem hótel.
Rafvirkjar
vflja boða
verkfall í
Straums-
vík
H.V. Reykjavik. Rafvirkjar, sem
starfa hjá íslenzka álfélaginu i
Straumsvik, samþykktu á fundi
sinum i gær að leita eftir heimild
hjá trúnaðarmannaráði Félags
islenzkra rafvirkja til þess að
boða til verkfalls i álverinu i
Straumsvik.
Rafvirkjar æskja þessarar
heimildar, þar sem samningar
hafa ekki náðst milii þeirra og
Alfélagsins um kaup þeirra og
kjör, en þegar hefur verið samið
við aðra starfsmenn fyrirtækis-
ins. Að sögn HlöðversKristjáns-
sonar, trúnaðarmanns rafvirkja i
Straumsvik, eru það ekki deilur
um beinar launahækkanir, sem
koma i veg fyrir að semjist, held-
ur ágreiningur um önnur atriði
samningsins.
Komi til þess að rafvirkjar boði
verkfall i Straumsvik, kemur það
þó ekki að fullu til framkvæmda
fyrr en þrem vikum eftir boðaðan
verkfailsdag, þar sem samningar
rafvirkja við álverið kveða svo á,
að þeim sé skylt að vinna öll störf
sem nauðsynleg teljast til að
forða verksmiðjunni frá
skemmdum, fyrstu þrjár vikur
verkfalls.
Stolið úr bíl
H.V. Reykjavík. I gærdag var
stolið veski úr bifreið, sem stóð
við Klapparstig i Reykjavik.
Hafði bifreiðarstjórinn skroppið
frá bifreiðinni I tiu minútur, og
skiidi hana eftir ólæsta á meðan.
Veskinu hafði hann stungið niður
á milli framsætanna, en þegar
hann kom til baka, var það horfið.
t veskinu voru um 5000 krónur i
peningum.
Mál þetta er I rannsókn, en ekki
hefur tekizt að hafa upp á þjófn-
um, og lögreglunni hafa ekki bor-
izt neinar ábendingar frá vegfar-
endum, sem hugsanlega kynnu að
hafa séð til hans.
Tónlist fró 17. og 18 öld
Gisti og veitingarekstur hafinn
SJ-Reykjavik. Um næstu helgi
hefst sú nýbreytni i starfinu á
Skálholtsstað, að efnt verður þar
til tónleikahalds. Semballeikar-
arnir Elin Guðmundsdóttir og
Heiga Ingólfsdóttir og Manuela
Wiesler flautuleikari flytja tónlist
frá 17. og 18. öld I Skálholtskirkju,
og verða þar tónleikar um hverja
helgi fram til 4. ágúst. Þá er tekið
á móti dvalargestum i húsakynn-
um lýðháskólans og þar er einnig
seldur matur og aðrar veitingar.
Fyrstu tónleikarnir i Skálholts-
kirkju verða 12. júli kl. 17 og 13.
júli kl. 16. Verða þá flutt frönsk
sembalverk frá 18. öld. Þær Elin
Guðmundsdóttir og Helga Ing-
ólfsdóttir flytja þá verk eftir Fr.
Couperin og J. Ph. Rameau. Sið-
an verðurný efnisskrá um hverja
helgi, næstu þrjár helgar. A siðari
tónleikunum verða flutt verk eftir
Farmaby, Carlton, Tomkins,
Couperin, Krebs, Frescobaldi,
Scarlatti, Bach og Mozart. Að-
gangur er ókeypis að tónleikun-
um.
Sveinbjörn Finnsson, ráðsmað-
ur i Skálholti, lét i ljós ánægju
með þessa menningarstarfsemi,
sem nú er að hefjast á hinu forna
biskupssetri. Sagði hann, að
þarna væri gamall draumur að
rætast.
Veitingareksturinn að sumrinu
i Skálholti hefur gefið góða raun.
Skálholtsstaður sér i sumar um
þessa þjónustu við ferðamenn, og
er nú hægt að fá gistingu i húsa-
kynnum lýðháskólans. Gistiher-
bergin eru tveggja manna, og bað
fylgir hverju herbergi. Einnig er
hægt að fá svefnpokapláss. Ýms-
ar ráðstefnur og námskeið hafa
veriðhaldnar i Skálholti I sumar,
nýafstaðin er prestastefna, og
námskeið guðfræðinema var þar
fyrir skömmu.
Helga Ingólfsdóttir, Elin Guðmundsdóttir og Manuela Wiesler.