Tíminn - 08.07.1975, Blaðsíða 19

Tíminn - 08.07.1975, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 8. júli 1975. TÍMINN 19 O Teiknar út. Ef ég finn hér fengsæl mið, þá er það hugsanlegt. — — En hvaða verkefni er það, sem þú ert að vinna að? — — Ég vil helzt ekki tala um það að svo komnu máli, þetta er enn ekki komið á það stig. — — Hefurðu teiknað mikið, siðan þú komst vestur? — — Ég hafði hugsað mér að teikna einhver ósköp, en enn sem komið er, hef ég haft nóg að gera við að skoða mig um, bæði niðri i fjöru og upp til fjalla. — — Hvernig er það fyrir Reykviking að koma i svona fámennt byggðarlag vestur á fjörðum? — — Fyrir mig er þetta stórkost- legt ævintýri, og ég hef enn ekki séö, að hér sé litið um að vera, eins og svo margir segja. Flestir virðast vera önnum kafnir við að bjarga sér, reyna að lifa sem mest á landsins gögnum og gæð- um. Hér eru menn i nánari snert- ingu við náttúruna og umhverfið. — Ætlarðu að koma aftur næsta sumar? — — Ég kann svo vel við mig, að ég er alls ekki viss um, að ég fari neitt i vetur. Mér er reyndar sagt, að veturinn geti verið anzi harð- ur, en ég held að það sé vel þess virði að leggja það á sig, að vera hér einn vetur, fyrst sumarið er svona fallegt. — O Vikuvinna kemur að þvi að ég þurfi að borga 8000 krónur i kyndingarkostnað fyrir siðustu þrjá mánuði, og þykir fæstum það mikil kynding. Þá á ég eftir þúsund krónur til þess að lifa af. — Hvemig ætlarðu að brúa bilið? — Ég get á engan hátt brúað bilið. Ætli það endi ekki með þvi, að ég verði að láta hreppinn framfæra mig. — Heldurðu að bónuskerfi myndi bæta kjör verkafólks i frystihúsinu á Flateyri, ef það yrði tekið upp? — Til þess að taka upp bónuskerf i i frystihúsinu á Flateyri, þarf að breyta húsinu mikið, en mér hef- ur nú reyndar skilizt, að það standi til vegna komu skut- togarans. En ef aðstaðan batnaði, er ég þeirrar skoðunar, að bónuskerfi yrði til bóta, a.m.k fyrir þá, sem duglegir eru. Sjálf hef ég unnið eftir bónuskerfi, t.d. á Súganda- firði og persónulega finnst mér það betra fyrirkomulag, en þar er vinnuaðstaðan miklu betri heldur en hér á Flateyri. Þegar ég vanná Súgandafirði, hafði ég eftir bónuskerfinu sömu tekjur á dag og ég hefði haft fyrir vikuvinnu i frystihúsinu á Flat- eyri. — Getur bónuskerfið ekki virkað ákaflega þrúgandi fyrir gamla fólkið? — Jú, sú hætta er alltaf fyrir hendi, en persónulega er ég þeirr- ar skoðunar, að bónuskerfið sé hentugra og skapi meiri mögu- leika, jafnvel þó að ég sé nú komin af léttasta skeiði. En eftir- lit þarf að vera mjög strangt gagnvart svona kerfi, og ávinningurinn ekki siður kominn undir þvi, að I vinnusal sé góð trúnaðarmanneskja, en nú sem stendur er engin trúnaðar- manneskja i vinnslusal frystihússins Hjálms, h.f. — Hvernig stendur á þvi? — Það hefur enginn viljað taka starfið að sér, sem liklega er ekki mjög vinsælt. Sjálfsagt er þetta okkur konunum sjálfum að kenna. — Nú sagði mér kona, sem vinnur i frystihúsi Einars Guðfinnssonar i Bolungarvik, að á siðasta aVi hefði hún haft um 900 þúsund i árstekjur og unnið eftir bónuskerfinu. Eru tekjur ykkar i frystihúsinu á Flateyri eitthvað sambærilegar þessu? — Þær eru ekkert sambærilegar við það, sem hér er. Á siðasta ári getég varla sagt að ég hafi sleppt úr einum einasta vinnudegi, en árstekjurnar voru ekki nema um 300 þúsund krónur, rúmlega hálf mánaðarlaun hjá flugstjórum. Það þarf þvi ekki mikil heilabrot til þess að sjá, að erfitt hlýtur að vera að fleyta fram lifinu á ekki meiri tekjum. Manninn minn missti ég fyrir um 20 árum frá sex ungum börn- Ingvar Stefán Ingi Norðurlandskjördæmi eystra Þingmenn Framsóknarflokksins i Norðurlandskjördæmi eystra, Ingvar Gislason, Stefán Valgeirsson og Ingi Tryggvason, boða til funda sem hér segir (aðrir fundir auglýstir siðar): Svalbarösströnd fimmtud. 10. júll kl. 9 e.h. Sólgarður föstud. 11. júll kl. 9 e.h. Freyvangur sunnud. 13. júli kl. 9 e.h. Dalvik þriðjud. 15. júll kl. 9 e.h. Ólafsfjörður miðvd. 16. júli kl. 9 e.h. Húsavik föstud. 18. júli kl. 9 e.h. Breiðumýri laugard. 19. júli kl. 9 e.h. Borgarf jarðarsýsla Aðalfundur Framsóknarfélags Borgarfjarðarsýslu veröur hald- inn að Brún, Andakllshreppi, þriðjudaginn 15. júli og hefst klukk- an 21.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing. 3. Rætt um stjórnmálaviðhorfið Halldór E. Sigurðsson landbúnaðarráðherra og Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir, bæjarfulltrúi mæta á fundinum. Flyt fyrirlestur um stefnumörkun i sjávarútvegs- og iönaðar- málum I fundarsal Hreyfils Fellsmúla 26 (III. hæö) þriðjudaginn 8. júli kl. 20.30. í fyrirlestrinum er leitast við að sýna fram á að meö nýrri stefnumörkun i þessum atvinnugreinum væri hægt að auka þjóðartekjur svo tugum milljarða skipti árlega — og þar með tekjur almennings. Ahugamenn um atvinnumál og kjaramál velkomnir. Gert er ráð fyrir umræðum og fyrirspyrnum um dagskrár- efnið. Kristján Friðriksson, iönrekandi. Héraðsmót í Barðastrandarsýslu Héraðsmót Framsóknarfélaganna I Barðastrandarsýslu verð- ur haldiö i félagsheimilinu Patreksfirði laugardaginn 12. júli og hefst kl. 20.30. Ræður flytja Steingrimur Hermannsson alþingismaður og Ólafur Þórðarson, skólastjóri. Villi, Gunnar og Haukur leika fyrir dansi. umoghefsetið i óskiptu búi siðan. Ég get þvi varla sagt, að mér hafi gengið allt of vel að borga búið upp. — Heldurðu að skuttogari myndi breyta miklu um ástand atvinnu- mála hér I þorpinu? — Það er ekkert vafamál, að hann myndi breyta miklu, en til þess að hægt verði að vinna allan þann afla, sem berst á land, þá verður að breyta vinnuaðstöðunni I frystihúsinu. — Nú er frystihúsið Hjálmur svo til eini atvinnurekandinn á Flat- eyri. Skapar það ekki ákveðin vandamál? — Jú, mér finnst það vera vanda- mál, þvi að ef maður ætlar að vinna einhvers staðar, þá er þetta eini staðurinn, þar sem hægt er að fávinnu.Enég vil taka það fram, að með þessu er ég ekki að kasta neinni rýrð á forráðamenn Hjálms h.f. — Þú sagðir mér, að það væri enginn trúnaðarmaður frá verka- lýðsfélaginu i vinnslusal frystihússins. Heldurðu að það sé vegna þess, að enginn þori að taka það starf að sér? — Ég get ekkert um það sagt. Liklega er þetta bara okkur sjálf- um að kenna. — Nokkuð að lokum? — Ekki annað en það, að tekjur okkar verkafólksins eru skammarlega litlar, og of litið um það hugsað að bæta okkar kjör. Mér hefur virzt, sem það væru iðnaðarmennirnir, sem mest bera úr býtum i hverjum kjara- samningum. Ef ég fæ trésmið til að vinna einn dag við að skipta um glugga i húsinu minu kostar það mig vikuvinnu i frystihúsinu. Hverjum getur fundizt þetta rétt- lát tekjuskipting? KAUPFELAG EYFIRÐINGA AKUREYRI - SÍMI 96-21400 HERRADEILD

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.