Tíminn - 08.07.1975, Blaðsíða 13

Tíminn - 08.07.1975, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 8. júli 1975. TÍMINN 13 Sólarflug innanlands? Hretviðrasamt ætlar sumarið að reynast Sunnlendingum sem endranær. Það heyrir orðið til sérstakra undantekninga ef við fáum almennilegt sumarveður. Himinninn grætur dag eftir dag, og meöan þeir á Raufarhöfn sleikja sólskinið i 20 stiga hita, þá skjálfum við holdvotir i 9 gráðu „sumarhita” i Reykja- vik. Vorið var kalt og úrkomu- samt, og sumarið virðist ekki ætla að verða hótinu betra. Sér á parti viröist þó rigna i Reykja- vik um helgar, þegar hinn al- menni borgari á fri. Þetta hefur skeö helgi eftir helgi. Allir, sem með veðrinu fylgj- ast hljóta að sjá, aö landinu má skipta I tvö veöursvæði a.m.k. Annaö veðurfar er þannig rikj- andi á Norð-Austurlandi og á Suð-Vesturlandi. Þegar sól er fyrir norðan og austan, þá rignir i Reykjavik — ogöfugt (oftast). Norðlendingar fá svo að kenna á vetrinum umfram aðra landsmenn. Þannig var þetta núna um seinustu helgi, þá rigndi á Suðurlandi en sólskin var á Norð-Austurlandi. Þá vaknar sú spurning. Er ekki hægt að bjóða Sunnlendingum upp á ódýrar helgarferðir til Norðurlands, annað hvort til Akureyrar, Húsavikur, eða Raufarhafnar eða til Egilsstaða? Flugfélögin og ferðaskrifstof- urnar hafa undanfarin ár staðið fyrir sólarferðum til Suður- lands: Spánar, Italiu og Kanari- eyja að ógleymdri Mallorca. Fargjald i hópferðum er ótrú- lega lágt og fyrir fáeinum vik- um var flogið i hópferð til Vinarborgar á vegum Framsóknarfélaganna. Kostaði farið fram og aftur aðeins 15.000 krónur. Ef þessi fargjöld eru borin saman við fargjald t.d. til Luxemborgar, sem kosta tæp 60.000 kr. þá sést, að i hópferð- um er gildandi verð, sem er i sumum tilfellum ekki nema 1/3 af farmiðaveröi I reglubundnu áætlunarflugi. Samkvæmt upplýsingum Flugleiða, þá kostar farmiðinn fram og aftur til Akureyrar 6.440 krónur. Þá vaknar sú spuming: Hvað þyrfti fargjald fram og aftur til Akureyrar frá Reykjavlk að kosta I „hóp- ferð”? Éger viss um, að margir Sunnlendingar vildu fara I ódýra „sólarferð” til Norður- og Austurlands, ef slikar ferðir byðust. Vera má að Flugleiðum þætti það örðugt að skipuleggja slikar ferðir, án þess að það kæmi við almenna farþegaflutninga á þessari leið, en við þvi mætti slá ýmsa varnagla, t.d. gæti það verið skilyrði fyrir sliku flugi, að menn pöntuðu með fyrirvara og svo gæti það bara verið skil- yrði, að rigning væri I Reykja- vik, en sól og hiti á áfangastaðn- um, eins og var hér á dögunum þegar 27 stiga hiti var á Akur- eyri, sól og bliða, en dumbungur og kuldi i Reykjavik. Ég er viss um að vert væri að gera tilraun með slikt flug — á vetrum gætu sömu aðilar stund- að hópferðir úr vetrarrikinu i hlýjuna og menninguna suður I Reykjavik. Slikar ferðir mætti einnig skipuleggja i samvinnu við hótel og skemmtanir. Ef flugvélaeigendur vilja ræða þessa hugmynd hér i dálk- unum er það velkomið, en helzt kysum viö þó að þeir flygju eftir henni. — JG Dregið í happdrætti Blindrafélagsins Dregið var i happdrætti Blindrafélagsins 4. júli s.l. og kom upp eftirfarandi Vinnings- númer-: 1954 Mazda sportbifreið 13339 Hljómflutningstæki Happdrættisbifreiðin er af teg. Mazda 919 verðmæti 1200 þús. og stereo hljómflutningstæki af B og O gerð að verðmæti 150 þús. Blindrafélagiö þakkar lands- mönnum fyrir veittan stuðning. Auglýsið * I Tímanum _ Heykvíslar til tenginga á ámoksturstæki og þritengi dráttarvéla. Tæki, sem allir bændur þekkja. Verð kr. 61.000.— Til afgreiðslu nú þegar Ndnari upplýsingar hjd sölumanni G/obusf LAGMÚLI 5. SÍMI 81555 II.-I3.JULÍ Mót allra landsmanna dkeypis aðgangur fyrir 12 dra og yngri Allir ó Akranes 15. landsmót UMFÍ verður haldið ó Akranesi 11-13 júlí. Fjölmennasta og fjölbreyttasta íþróttahdtíð sem haldin hefur verið d íslandi Eitthvað fyrir alla: Knattspyrna, skdk, handknattleikur, fimleikar, körfuknattleikur, þjóðdansar, frjdlsor íþróttir, blak, sund, borðtennis, lyftingar, judo, glíma, siglingar, starfsíþróttir Dansleikir og kvöldvökur öll kvöldin Skemmtum okkur dn dfengis Frdbærir sænskir, danskir og norskir sýningarflokkar sýna fimleika og þjóðdansa Tjaldstæði fyrir öll tjöld d íslandi Ferðir með Akraborginni 4-5 sinnum d dag Hefjum undirbúning ferðarinnar strax Það verður alltaf eitthvað að gerast frd föstudagsmorgni til sunnudagskvölds Allir d Akranes Ungmennafélag íslands

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.