Tíminn - 08.07.1975, Blaðsíða 15

Tíminn - 08.07.1975, Blaðsíða 15
Þriöjudagur g. júll 1975. TÍMINN 15 „Skipstjór- arnir" komu á óvart ó Húsavík — þegar Reynir frá Arskógsströnd sigraði Völsunga — Breiðablik, Þróttur og Ármann berjast um 1. deildar sæti næsta keppnistímabi AR MENNINGAR, undir stjtírn Keflvikingsins Hólm- berts Friöjónssonar þjálfara, héidu áfram sigurgöngu sinni á laugardaginn, þegar þeir unnu stórsigur (4:1) I leik gegn Haukum á Melavellin- um. Armenningar hafa tekiö mjög miklum framförum i sumar undir stjórn Hólm- berts, og meö þessu áfram- haldi berjast þeir um 1. deild- ar sæti næsta keppnistimabil, ásamt Breiöablik og Þrótti, sem einnig unnu góöa sigra um helgina. Haukar höföu ekkert að gera i hina kraftm.iklu Ar- menninga, sem skoruðu fjögur mörk — Sveinn Guönason, Smári Jónsson og Viggó Sig- urösson (2) — áður en Loftur Eyjólfsson kom Haukum á blaö. Úrslit leikja i 2. deildar keppninni urðu þessi um helg- ina: Armann—Haukar..........4:1 Breiðablik—Selfoss ....4:1 Víkinguról.—Þróttur....0:2 Völsungur—ReynirAr.. ..1:2 „Skipstjórarnir” frá Ar- skógsströnd, eins og leikmenn Reynis eru nú kallaðir, komu skemmtilega á óvart, þegar þeir brugðu sér til Húsavikur. Þeir komu knettinum tvisvar sinnum ( Felix Jósafatsson og Björgvin Guölaugsson) I netiö hjá Völsungum, áöur en Magnús Torfason skoraði mark hjá þeim — úr vita- spyrnu. Þarna tryggðu Reyn- is-menn sér tvö dýrmæt stig, á sama tima og „sjómennimir” frá ólafsvik töpuðu (0:2) fyrir Þrótti á heimavelli sinum i Ólafsvik. Það voru þeir Hall- dór Arason og Þorvaldur 1. Þorvaldsson, sem skoruðu mörk Þróttar. Blikarnir Ur Kópavogi áttu i VIGGÓ SIGURÐSSON... landsliösmaöur I handknatt- leik úr Vikingi, skoraði 2 mörk fyrir Armann gegn Haukum. miklum erfiðleikum með Sel- fyssinga. Einar Þórhallsson kom Blikunum á sporið, þegar hann skoraði stórglæsilegt mark með skalla — knötturinn hafnaði uppi undir samskeyt- um. GIsli Sigurössonbætti sið- an öðru marki við fyrir Blik- ana, áöur en markaskoraran- um mikla frá Selfossi, Sumar- liða Guðbjartssyni, tókst að minnka muninn i 2:1. Og þannig var staöan þar til rétt fyrir leikslok, að Blikamir tryggðu sér sigur (4:1) með mörkum frá ólafi Friðriks- syni og Einari Þórhallssyni. JÓHANN TORFASON. hinn marksækni miö- herji KR-liðsins, skoraði sitt fyrsta mark I 1. deildarkeppninni I Eyjum I sumar. Jóhann, sem skoraði 4 mörk f Reykjavikurmótinu, hefur hingaö til ekki veriö á skotskónum I deildinni. KR-inaar klipptu klærnar qf Eyja- liðinu — sem er nú eitt og yfirgefið á botninum ★ Eyjamenn, sem léku aðeins 10 í síðari hálfleik, misnotuðu vítaspyrnu EYJAMENN sitja nú einir og yfirgefnir á botninum I barátt- unni um islandsmeistaratitilinn i knattspyrnu, eftir aö KR-ingar sluppu lifandi úr „Ijónagryfj- unni” i Eyjum, klipptu klærnar af Eyjamönnum og báru sigur (2:1) úr býtum f hörðum og sögulegum leik I Eyjum. Mikil harka var I leiknum og þurfti ákveöinn dóm- ari leiksins, Arnþór óskarsson, aö bóka tvo leikmenn — Ifauk Ottesen KR og Einar Friöþjófs- son úr Eyjum, — og þar aö auki vfsaöi hann einum Eyjamanni af leikvelli undir lok fyrri hálfleiks- ins. Þaö var Haraldur Gunnars- HOLBÆK TAPAÐI AFTUR JÓHANNES Eövaldsson og félag- ar hans f Holbæk töpuöu aftur I TOTO-keppninni. Þeir léku gegn Telstar frá Hollandi á laugardag- inn — I Hollandi, þar sem þeir töpuöu 1:3 Holbæk er þvf búiö aö tapa tveimur fyrstu Ieikjunum i slnum riöli og möguleikarnir þvi orönir litlir á áframhaldandi keppni. son, sem fékk að sjá rauöa spjald- iö, eftir aö hann haföi brotið gróf- lega á Atla Þór Héöinssyni. Eyja- menn léku þvf aðeins meö 10 leik- menn það sem cftir var leiksins. Þessi sögulegi leikur byrjaði með þvi, að KR-ingar tryggöu Eyjamönnum forustu (1:0) með þvi að senda knöttinn i eigið mark. Það var ólafur ólafsson, sem varð fyrir þessu óhappi, þeg- ar hann ætlaði að senda knöttinn til Magnúsar Guömundssonar, markvarðar Vesturbæjarliðsins. Og útlitið var ekki gott hjá KR- ingum, þegar Eyjamenn fengu vitaspyrnu. Eyjamenn notfærðu sér ekki þetta gullna tækifæri — Friöfinnur Finnbogason tók vita- spyrnuna og skaut framhjá. KR-ingar gáfust ekki upp, þeir náðu að jafna með marki, sem Jóhann Torfason gerði og siðan innsiglaði Atli Þór Héöinsson sig- ur Vesturbæjarliðsins, eftir að hann hafði fengið sendingu frá Jóhanni.Staðan var 2:1 fyrir KR i hálfleik, en siðari hálfleikurinn var viðburðasnauður og fátt var urh fina drætti og sigur KR-inga þvi réttmætur. Útlitið er ekki gott hjá Eyja- mönnum, þeir hafa tapað tveimur siðustu heimaleikjum sinum — gegn Keflvikingum og KR. Róð- urinn verður áreiðanlega örðugur hjá þeim, þvi að þeir eiga aðeins eftir aö leika tvo heimaleiki — gegn Fram og Val — á sama tima og þeir eiga eftir 5 leiki á útivöll- um. Hinir léttleikandi Eyjamenn verða þvi að taka á honum stóra sinum, ef ekki á að fara illa fyrir þeim. Það sást greinilega i leikn- um, að KR-ingar náöu að brjóta niður mótspyrnu Eyjamanna með hörkunni — og þar með að klippa klærnar af Eyjaliðinu. STADAN 1. deildarkeppnin í knattspyrnu cr nú hálfnuð, og er staöan þessi eftir fyrstu 7 umferöirnar: Akranes .......7 4 2 1 15:7 10 Fram...........7 5 0 2 8:3 10 Valur..........7 2 3 2 8:7 7 KR ............7 2 2 3 4:5 (1 Keflavik.......7223 5:7 6 Vikingur.......7223 3:5 6 FH.............7 2 2 3 0:14 (i Vestm.ey ......7 1 33 7:7 5 Markhæstu menn: Guðmundur Þorbjörnss., Val ...5 Matthias Hallgrimss., Akran ...5 örn öskarsson, Vestmey ........4 Atli Þ. Héinsson KR............3 Kristinn Jörundss. Fram........3 Teitur Þóröarsson, Akranesi.... 3 Arni Sveinsson, Akran..........2 Atli Eövaldss. Val.............2 Jón ÓI. Jónsson, Keflavik......2 Marteinn Geirsson, Fram .......2 Ólafur,Danivaldsson, FH........2 Þórir Jónsson, FH..............2 HVERJIR DETTA í LUKKUPOTTINN? Svarið við spurningunni fæst í dag dag, Evrópukeppninni í STAÐAN 2. DEILD Staöan f 2. deild eftir leikina um helgina og þegar keppnin þar cr hálfnuð: Breiöablik.......7 6 0 1 30:5 12 Þróttur..........7 5 1 1 14:6 11 Armann.......... 7 4 2 1 13:6 10 Selfoss..........7 3 2 2 14:10 8 Haukar...........7 3 1 3 13:12 7 Völsungur........7 1 2 4 5:14 4 Reynir A.........7 2 0 5 7:19 4 VlkingurÓ........7 0 0 7 4:28 0 Markhæstu menn: Hinrik Þórhallss., Breiðablik .. 10 Sumarliöi Guðbjartss. Self.....9 Ólafur Friöriksson, Breiö......5 Þór Hréiðarsson, Breiöablik .... 5 Guöjón Sveinsson, Haukuni......4 Loftur Eyjólfsson, Ilaukum.....3 Hreiöar Breiöfjörö Breiðabl....3 Ingi Stcfánsson, Arm...........3 Þorvaldur 1. Þorvaldss. Þrótti .. 4 Ólafur Jóhanness. Haukum.......3 HVAÐA liö fá Skagamenn, Vals- menn og Keflvfkingar scm mót- herja I Evrdpukeppninni í knatt- spyrnu? —Viö þvi fæst svar I dag, þvf aö þá veröur dregið um hvaöa liö skuli mætast f Evrópukeppn- inni I aöalstöövum UEFA I Bern I Sviss. Knattspyrnuunncndur biöa ávallt spenntir eftir drættinum, þvl aö þaö er aldrei aö vita nema Skagamenn, Valsmenn og Kefl- vfkingar detti i lukkupottinn og lendi á móti hcimsfrægum knatt- spyrnuliöum. Þaö veröur mest spennandi aö vita hvaöa liö Skagamenn fá, en möguleikarnir eru mestirá þvi aö þeir fái sem mótherja lið, þar sem þeir taka þátt i Evrópu- en þá verður dregið í knattspyrnu keppni meistaraliöa. Óska- draumur Akurnesinga er, að þeir fái að keppa við Evrópumeistar- ana Bayern Munchen eða ensku meistarana frá Derby.Mörg önn- ur heimsfræg liö koma einnig til greina — eins og Real Madrid frá Spáni, Juventus frá Italiu og Borussia Mönchengladbach — UEFA-bikarmeistararnir frá V- Þýzkalandi. Valsmenn taka þátt i Evrópu- keppni bikarmeistara. — „Ég vil helzt fá West Ham frá Englandi sem mótherja”, sagði Hermann Gunnarsson, sem hefur leikið 12 Evrópuleiki fyrir Val — „Nú, þá væri ég ekki á móti að fá Frank- furt frá V-Þýzkalandi”. Keflvikingar taka þátt I UEFA- bikarkeppninni og eiga þeir möguleika á, að lenda gegn fjór- um enskum liöum — Aston Villa, Everton, Liverpool eða Ipswich. — „Ég er ekkert á móti því að fá Liverpool sem mótherja, eöa jafnvel Aston Villa”, sagði Haf- steinn Guömundsson, formaöur IBK. — „Strákarnir hafa mestan áhuga á að fá mótherja frá Italiu eöa Spáni, þannig aö þeir gætu notað keppnisferðina þangað i leiðinni — sem afslöppunarferö eftir erfitt keppnistimabil. Nú sumir vildu lið frá V-Þýzkalandi, Hollandi eöa Belgiu, og a.m.k. tveir vildu bregöa sér austur fyrir — töluöu um Rússland", sagöi Hafsteinn. Nú er bara aö biða og sjá, hvort Skagamönnum eöa Keflvikingum verður að ósk sinni — og detta i lukkupottinn. Hér á siðunni á morgun verður sagt frá hvaöa mótherja islenzku liöin fá, og þá væntanlega spjallaö litillega um þau liö.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.