Tíminn - 08.07.1975, Síða 17
Þriðjudagur 8. júli 1975.
TÍMINN
17
TEITUR ÞÓRÐARSON..... sækir að marki Norðmannanna.
(Timamynd Róbert)
tekur við knettinum og leikur á
bakvörðinn Trond Pedersen og
upp að endamörkum. Þar sendir
hann snögga sendingu fyrir mark
Norðmannanna og til Arna
Sveinssonar, sem kom á fullri
ferðog sendi knöttinn i netið með
hæl hægri fótar, af stuttu færi.
Fögnuðurinn var geysilegur hjá
hinum 11 þús. áhorfendum.
Aðeins þremur minutum siðar
kom svo vitaspyrnudómurinn,
sem tryggði Norðmönnum jafn-
tefli. Það var hinn 20 ára Gabriel
Höyland.sem skoraði örugglega
úr vitaspyrnunni. Stuttu eftir
markið var brotið á Gisla Torfa-
syni— hann meiddist og varð að
yfirgefa völlinn. Björn Lárusson
tók við stöðu hans. Rétt fyrir
leikshlé munaði ekki miklu, að
Marteini Geirssyni tækist að
skora mark. Marteinn spyrnti þá
knettinum aftur fyrir sig inn i
vítateig Norðmannanna, eftir að
hafa fengið sendingu frá Guðgeiri
Skagam aðurinn ungi Árni
Sveinsson sést hér skora mark is-
lendinga. Fyrir aftan hann sést
félagi hans Teitur Þórðarson
stökkva upp og fagna markinu.
Timamynd Róbert j
V
'? f*
i!
v,
Leifssyni — knötturinn stefndi i
netið, en á siðustu stundu náðu
Norðmenn að bjarga i horn.
1 byrjun siðari hálfleiks bjarg-
aði markvörður Norðmanna —
Erik Johannessen — á siðustu
stundu skalla frá Jóhannesi Eð-
valdssyni. Jóhannes fékk knött-
inn eftir hornspyrnu frá Arna
Sveinssyni, sem tók hornspyrnu
frá hægri — hann stökk upp og
skallaði að marki, þar sem Jón
Alfreðsson var staddur og hopp-
aði yfir knöttinn. Þetta var góð
tilraun hjá Jóni, en Johannessen
kom i veg fyrir að hún heppnað-
ist. Jón Alfreðssonátti siðan skot
af 25 m færi, sem johannessen
bjargaði einnig glæsilega. Oft
skapaðist hætta inni i vítateig
Norðmannanna, en smiðshöggið
vantaði á þær sóknarlotur.
Norðmenn áttu nokkur hættuleg
tækifæri undir lokin og þegar að-
eins tvær minútur voru til leiks-
loka munaði litlu, að þeim tækist
að skora. Svein Mathisen og
Jóhannes Eðvaldsson börðust þá
um knöttinn inni i vitateigi Is-
lendinga og tókst Mathisen að
spyrna — knötturinn skoppaði
fram hjá Sigurði Dagssyni og i
stöng.
íslendingarnir náðu sér aldrei
virkilega á strik i leiknum i gær-
kvöldi og hafði vítaspyrnudómur-
inn þar mikið að segja, en hann .
kom á m jög þýðingamiklu augna-
bliki, eða þegar islenzku leik-
mennirnir voru að ná sér á strik.
Þá hafði brotthvarf Gisla Torfa-
sonarmikið að segja, þvi að þar
með gat Tony Knapp lands-
liðsþjálfari ekki skipt tveimur
leikmönnum inn á i siðari hálf-
leik. Guögeir Leifsson, Arni
Sveinsson, Marteinn Geirsson og
Sigurður Dagsson voru beztu
menn liðsins. Þá áttu þeir Jó-
hannes Eðvaldsson og Matthias
Hallgrimsson góða spretti. Aðrir
leikmenn léku undir getu. Ein
aðalástæðan fyrir þvi að islenzka
liðiö náði sér ekki fyllilega á strik
var, að miðjumennirnir Hörður
Hilmarsson og Jón Alfreðsson
sáust varla i leiknum og þess
vegna náði islenzka liðið ekki tök-
um á miðjunni. Elmar Geirsson
kom inn á i staðinn fyrir Hörð
á 20. minútu siðari hálfleiks —
hann átti góða spretti, en náði
aldrei að falla inn i leik liðsins,
þar sem völdin á miðjunni voru i
höndum Norðmannanna.
—SOS
Sagt eftir leikinn
ÞETTA VAR
HLÆGILEGUR
DÓMUR
sagði Gísli Torfason um vítaspyrnudóminn
Arni Sveinsson:
— Ég var alveg öruggur með
að skora i þessu færi, enda annað
óhugsandi, þar sem ég stóð fyrir
opnu marki. Leikurinn var að
minum dómi alltof harður, og
dómarinn hafði engin tök á hon-
um eftir vitaspyrnudóminn. Mér
fannst Norðmennirnir vera með
skemmtilegt og léttleikandi lið.
Teitur Þórðarson:
— Þetta var erfiður leikur og
harður. Dómarinn var ekki sann-
færandi og vitaspyrnudómur
hans algjör fjarstæða. Eftir gangi
leiksins og marktækifærum hefð-
um við átt að fara með sigur af
hólmi. Norðmennirnir áttu mjög
fá opin færi, en hins vegar áttum
við mýmörg tækifæri, en vorum
mjög óheppnir með að skora ekki
fleiri mörk.
Matthias Hallgrimsson:
— Ætli ég hafi ekki fengið ein-
um of mörg tækifæri I kvöld? Ég
get á engan hátt skýrt það, hvers
vegna mér tókst aldrei að pota
knettinum rétta boðleið i netið.
Hins vegár verður það að segjast
eins og það er, að mörg þessara
tækifæra komu mjög óvænt. Hvað
leikinn sjalfan áhrærir, er það
vissulega mjög svekkjandi að
missa hann niður i jafntefli og
vitið var fáránlegt. Dómarinn
sleppti hins vegar vitaspyrnu i
siðari hálfleik, þegar Norðmaður
skellti hendinni fyrir boltann,
þegar Guðgeir ætlaði að senda
knöttinn inn i vitateiginn, þar sem
ég var á auðum sjó.
Jóhannes Eðvaldsson:
— Að vonum er maður sár yfir
þvi, að vinna ekki þennan leik, —
en til að vinna leik verður lika að
skora mörk og i þessum landsleik
misnotuðum við herfilega mörg
tækifæri. Munurinn á þessum leik
og leiknum við A-Þjóðverjana er
sá, að nú voru það við sem þurft-
um að sækja og Norðmannanna
að gera skyndisóknir. Dómarinn
var ekki samkvæmur sjálfum sér i
þessum leik og dæmdi samkvæmt
þvi.
Jóhannes Eðvaldsson heldur
utan á föstudag, en á laugardag
mun hann leika með liði sinu Hol-
bæk á móti pólsku liði i Tato-Cup.
Ellert B. Schram, formaður
knattspy rnusambands íslands:
— Þetta var harður leikur, og
það var ekki sök islenzku leik-
mannanna að sigur vannst ekki.
Leikurinn var spennandi, en það
var mikið áfall að fá á sig þessa
vitaspyrnu, einmitt þegar spenn-
an var i hámarki og islenzka liðið
að ná tökum á leiknum.
Elmar Geirsson:
— Við áttum skilið að vinna
þennan leik, ef miðað er við tæki-
færi liðanna. Það var grátlegt að
missa leikinn niður i jafntefli, þvi
við áttum hann nær allan. En það
má að visu segja það, að ekkert
lið eigi sigur skilið, þegar það
misnotar tækifærin jafn illa og is-
lenzka liðið i kvöld. Vitaspyrnu-
dómur sænska dómarans hafði
mjög niðurdrepandi og neikvæð
áhrif á leik islenzka liðsins.
Gisli Torfason:
— Þegar ég sá boltann koma
einblindi ég á hann og hugsaði um
það eitt að ná honum og skalla
frá. Það var ekki fyrr en ég hafði
stokkið upp að ég varð var við
Norðmanninn við hliðina á mér,
sem rak hnéð i mjöðmina á mér i
uppstökkinu. Það er haft eftir
dómaranum sem rök fyrir þess-
um vitaspyrnudómi, að ég hafi
sparkað viljandi i Norðmanninn!
Þetta er alveg hlægilegur dómur.
Marteinn Geirsson:
— Þessi landsleikur var ágætur
fram að vitaspyrnudómnum.
Eftir það, fram að leikhléi var
ekki sýndur neinn fótbolti. Þaö
var eins og við allir vildum hefna
okkur á Norðmönnunum i stað
dómarans. Það er öruggt aö
Norðmennirnir eru ánægðir með
jafnteflið, enda léku þeir upp á
það. Dómarinn hreinlega eyði-
lagði leikinn og ef eitthvað hefði
átt að dæma þegar hann dæmdi
vitaspyrnu, — þá hefði átt að
dæma á Norömanninn.
JOHANNESSEN niarkvöröur Norömanna er hér búimí aö gónia
knöttinn, eftir eina sóknarlotu islendinga. Elniar Geirsson (t.h.)
horfir vonsvikinn á. (Tóniam vnd Róbert >
ARNI SVEINSSON.
TEITUR ÞÓRÐARSON.
MATTHÍAS HALLGRÍMSSON.
JÓHANNES EÐVALDSSON.
ELLERT B. SCHRAM.
ELMAR GEIRSSON.
MARTEINN GEIRSSON.