Tíminn - 31.07.1975, Síða 5

Tíminn - 31.07.1975, Síða 5
Fimmtudagur 31. júli 1975. TÍMINN 5 Ekki sami Lúðvík Sá Lúðvik Jósepsson, sem fram kom i útvarpsþætti um landhelgismálið á mánudag- inn, er ekki sami Lúðvik Jósepsson og sat I ráðherra- stói 1971—’74. t ráðherratið sinni var Lúðvik Jósepsson mjög fús til samninga við út- lendinga um undanþágur til veiða innan fiskveiðilögsög- unnar. En sem þingmaður hefur hann allt aðra skoðun og vill helzt ekkert tala viö út- lendinga um neinar undan- þágur. Að þessu leyti svipar Lúðviki til núverandi sjávar- útvegsráðherra, Matthlasar Bjarnasonar, sem sagði i sama útvarpsþætti, að sem þingmaður hefði hann greitt atkvæði gegn samningum við Breta 1973. Samkvæmt þessu, virðast sumir ekki taka ábyrga af- stöðu, nema þeir sitji I ráð- herrastól. Ábyrg afstaða Áðurnefndur útvarpsþáttur um landhelgismálið var nei- ■ kvæður að þvl leyti, á hve lágu ^ plani málflutningur stjórnar- andstöðunnar var. t þessum þætti lagði Einar Ágústsson utanrikisráðherra áherzlu á, að það væri ekki nema sjálf- sögð kurteisi að ræða við þær þjóðir, sem þess óskuðu. Það væri gert án nokkurra skuld- hindinga. Þingflokkur Fram- sóknarflokksins hefur lýst þeirri skoðun sinni, að vel geti komið til mála að veita ein- hverjar undanþágur utan 50 milnanna, þ.e. á beltinu milli 50 og 200 milna. Um annað hefur ekki verið rætt. A þessu stigi er óverjandi að neita fiskveiðiþjóðum, sem sótt hafa miðin við island, að ræða við þær. Aðalatriðið er að vernda svæðið innan 50 mfln- anna. Þar eru gjöfulustu mið- in og þær uppeldisstöðvar, sem vernda þarf. Getgátur Al- þýðubandalagsmanna um undanslátt I landhelgismálinu eru tilhæfulausar, og afar ó- smekklegt að nota þetta mál til pólitiskra árása, eins og gert er I leiðara Þjóðviljans i gær. —a.þ. GEYMSLU HÓLF GEYMSLUHOLF I ÞREMUR STÆRDUM. NÝ ÞJONUSTA VID VIÐSKIPTAVINI I NÝBYGGINGUNNI BANKASTÆTI 7 Sqiminnubankinn SAMVIRKI Haust- sýning Kaup- stefnunnar í Leipzig Haustsýning Kaupstefnunnar i Leipzig verður að þessu sinni dagana 31. ágúst til 7. september og fer fram undir kjörorðinu: „Alþjóðaviðskipti og tæknifram- kvæmdir”. — Yfir 6.000 framleið- endur og útflytjendur frá 50 löndum hafa tilkynnt þátttöku sina. Þau munu sýna tækni- og neyzluvörur á sýningarsvæði, sem nær yfir 270.000 fermetra. Viðskiptamenn, visindamenn og tækni-sérfræðingar frá meira en 90 þjóðlöndum eru væntanlegir til Leipzig. Sérsýningar i vöruflokkum tæknivara verða margar, en mjög áberandi munu verða: Framleiðsluvörur efna-iðn- aðarins með syntetiskum trefjum og efnavörur fyrir landbúnaðinn. Efnavöru-vélar með plast- -vélum. Ennfremur vefnaðar- vélar, flutningatæki svo og lyf- og skurðlækninga-búnaður. A meira en 130.000 fermetrum verða neyzluvörur sýndar i sýningarhúsunum I innbænum og einnig á tæknisvæðinu. Meðal þeirra má nefna sérstaklega: Vefnaðarvörur og fatnaður. Mat- vörur og þeim skyldir vöru- flokkar. Kemiskar vörur til heimilishalds, snyrtivörur og lyf. Búsáhöld og heimilistæki, gler— og kemiskar vörur. Tómstundavörur og iþróttavörur. Kennslutæki og húsgögn fyrir skóla. Margar ráðstefnur verða haldnar, þar sem vlsindamenn og tæknilegir sérfræðingar geta skipzt á skoðunum og reynslu. Frá þýzka alþýðulýðveldinu munu um 2.800 útflytjendur og framleiðendur sýna vörur sinar, en auk þess munu 11 sósialista- lönd verða með sýningardeildir á haustsýningunni, m.a. frá Sovét- rikjunum, Póllandi, Tékkó- slóvakiu, Ungverjalandi, Búlgariu, Rúmeniu, Júgóslaviu og Mongóllu. 10 iðnþróunarlönd munu taka þátt, eins og I undanförnum haustsýningum og hafa sýningar- deildir I vöruflokkum neyzluvara. 1.500 sýnendur frá kapitalista- rikjum hafa pantað sýningar- svæði, en meðal þeirra eru heimsþekktir iðnaðar-hringir, svo og út- og innflytjendur frá Belgiu, Þýzka Sambandslýð- veldinu, Finnlandi, Bretlandi, Itallu, Japan, Hollandi, Austur- riki, Sviþjóð, Sviss og Banda- rikjunum. Fulltrúar rikisstjórna þessara landa munu nú aftur hafa opinberar upplýsinga-mið- stöðvar. Að venju eru Kaupstefnukort v/sýningarinnar I Leipzig af- greidd á skrifstofu Kaupstefn- unnar — Reykjavik h.f., Hafnar- stræti 5, simi 11517, Claas heyhleðsluvagnar ViS bjóSum nú sem fyrr hinn þekkta og traustbyggða Claas heyhleSslu- vagn Autonom LWG 24 m3 með sjö hnífum. Claas heyhleðsluvagninn er sterkbyggður og lipur. Hjólbarðar eru stórir, 11,5x15 (svonefndir flothjólbarðar). Söxunarbúnaður er fyrir þurrhey og vothey og stillanlegt dráttarbeisli. Þurrheys- yfirbygging er fellanleg. Hleðslutíminn er 5 mín. og losunartíminn allt niður I 2 mín. Claas heyhleðsluvagninn nær upp allt að 1,60 m breiðum múga. Góð reynsla hefur fengist af notkun Claas heyhleðsluvagna hérlendis. LWG er 1200 kg að þyngd tómur, en 3800 kg hlaðinn. Hann rúmar 24 mJ af þurrheyl, en 14 mJ af votheyi. Pallstaarð er 4,30x1,60 og heildarlengd 6,80 m. Sporvldd LWG er 1,50 m. Mentor SM 135 Mentor sláttuþyrlan er smíðuð á grundvelli margra ára reynslu og tilrauna. Framúrskarandi traustbyggð og afkasta- mikil. Vinnslubreidd sláttuþyrlunnar er 1,35 m. Mjög auðvelt er að skipta um hnífa I Mentor SM 135 sláttuþyrlunni. Claas hjólmúgavélar Claas AR 4 hjólmúgavélin er tengd á þrítengi dráttarvélar og er hægt að lyfta henni með vökvalyftunni. Burðargrindin er tengd I tvo stífa gorma og tindar hjólanna hafa mikinn sveigjanleika, þar sem þeir ná 30 cm út fyrir hjólgjörðina. Þetta hvort tveggja stuðlar að þvi, að múgavélin geti fylgt ójöfnum landsins. Claas AR 4 rakar vel, skilur eftir litla dreif og er lipur í notkun, þar sem hún er tengd á vökvalyftu dráttarvélar. Ökuhraðinn hefur ekki áhrif á vinnugæðin. Við hraðann 8—12 km/klst. eru meðal- afköst vélarinnar allt að 2 ha á klst. Claas AR 4 múgavélin er lipur og traust- byggð. Claas BSM 6 er dragtengd hjólmúgavél og óháð tengidrifi dráttarvélar. Hún hefur sex rakstrarhjól og hvílir á þrem gúmmihjólum. Vinnslubreidd er allt að 2,80 m. Afköst við venjuleg skilyrði eru allt að 3 ha á klst. Claas heybindivél Claas-Markant 40 heybindivélin tekur heyið upp, pressar það I bagga og bindur. 25 ha dráttarvél getur dregið hey- bindivélina. Claas-Markant heybindivélin er hagkvæm, sparar bæði tima og vinnu. Afköst allt að 12 tonn á klst. Claas W 450 er dragtengd heyþyrla meS fjórum stjörnum, flmmarma. Undir hverri stjörnu er landhjól. Vinnslubreidd er 4,50 m. Afköst allt aS 5 ha á klst. Claas WSD er lyftutengd stjörnumúgavél og vinnslubreidd 2,80 m. Sérlega hagstæS fyrir heybindivélar og heyhleSsluvagna. MENTOR Allar þessar heyvinnuvelar eru fyrirliggjandi á lager og geta fengist afgreiddar strax. Bændur, kynnið ykkur kosti þeirra og leitið upplýsinga um verð og greiðsluskilmála hjá okkur. SUÐURLANDSBRAUT 32 • REYKJAVÍK* SÍMI 86500 • SÍMNEFNI ICETRACTORS

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.