Tíminn - 31.07.1975, Page 13

Tíminn - 31.07.1975, Page 13
Fimmtudagur 31. júll 1975. TÍMINN 13 Grétar Magnús Guömundsson viö eitt verka sinna á sýningunni. PARADISARHEIMT á Kjarvalsstöðum Sýning Grétars AAagnúsar Guðmundssonar Þessa dagana sýnir á Kjar- valsstöðum ungur myndlistar- maöur Grétar Magnús Guð- mundsson, sem nú hefur stytt nafn sitt TARNUS GréTAR MagNUS. Hann er annars úr Skeiöunum, fæddur i Húsatóft- um og er nú 31 árs að aldri. Magnús hefur Hka stundað söng og bariö trommur í hljóm- sveitum, aö þvi er hann sagöi gestum á sýningunni. Hann lauk kennaraprófi i teikningu frá Myndlistarskólan- um i Reykjavik áriö 1971. Grétar Magnús sýnir okkur 35 málverk af ýmsum stærðum og gerðum, það elzta frá árinu 1964 og þau yngstu eru ný. Kennir þar margra grasa og verkin minna á ýmsa eins og gjarnan vill verða, meðan menn eru að finna yndi sitt, eins og þar segir. Allavega blandast ólikir hlutir saman. Grétar Magnús reiðir hátt til höggs.að sýna I þessum sal eftir svo litla vinnu og sýning hefði eflaust orðið heilsteyptari og betri ef hann hefði beðið fáeina mánuði, eitt til tvö ár, þvi þetta er eins og að keyra vanþroskaða ávexti á markaðinn, fáum dög- um fyrir þroska. Með þessu er svo sem ekki verið að ráða honum frá sýningum — öðru, nær, sum verkanna, eins og t.d. no. 11 og reyndar sumar fleiri bera vott um hæfileika og þekk- ingu á málarakúnst. Þó má segja að hann hafi sýnt tals- verðan þroska að nota aðeins hluta salarkynna Kjarvalsstaða undir þessi verk, þvi gjarnara er mönnum að fylla salinn og þá oft á kostnað gæðanna. Listamaðurinn kemur vel fyrir og uppátæki hans mörg benda til þess að hann láti ekki stöðva sig og það vona ég að þetta greinarkorn geri ekki heldur, en umfram allt, heil- steypta, vandaða sýningu næst. Mér er það ljóst að þýðingar- mikið er fyrir málara að sjá verk sin á sýningu, þær eru eignakönnun, skráning og niðurstaða úr sundurleitum far- angri. Sýningin á að hjálpa þessum efnilega manni til út- tektar á sér sjálfum og verða til nokkurs þroska. Jónas Guömundsson. Innanhússfrágangur Heildartilboð óskast i innanhússfrágang I skrifstofuhúsnæði Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins að Keldnaholti. Útboð þetta nær aðallega til innréttinga- smíði, málningar, dúklagningar og raf- lagna. Verkinu sé að fullu lokið 1. mai 1975. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn 5.000.- kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðju- daginn 19. ágúst kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 Ný þjónustumiöstöð KASK SKAFTAFELLI I vershininni: Allar nauösynlegar matvörur, búsáhöld og vefnaóarvara miðuö við þarfir ferðamanna. í veitingastofunni: Heitur matur og grillréttir. Þjónustumiöstöð- Kaupfélag Austur-Skaftfellinga Þjóðgarðinum SKAFTAFELLI í FERÐALAGIÐ Epli — Appelsínur — Grape — Sítrónur Bananar — Tómatar — Agúrkur Niðursoðnir ávextir Niðursoðin kjötvara Kæfa — Sardínur — Rækjur — Sjólax o.fl. Fiskbollur — Fiskbúðingur Kex — Sælgæti Ávaxtasafi margar tegundir Súpur í pökkum og dósum Kartöfluflögur — Saltstangir — Saltmöndlur Vestfirzkur harðfiskur Carlsberg — let öl Opið til kl. 10 föstudag Vörumarkaðurinnhf. J ÁRMULA 1 a Símar: Matvörudeild 86-111 Húsgagnadeild 86-112 Heimilistækjadeild 86-112 Vefnaðarvörudeild 86-113 Skrifstofan 86-114

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.